Morgunblaðið - 27.08.1987, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 27.08.1987, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987 Sýning Margrét- ar Elíasdóttur Myndlist Valtýr Pétursson Það var ekki uppörvandi að ganga á milli gallenanna hér í borg á sunnudaginn var. Sama sagan alls staðar — fámennið slíkt, að ótrúlegt var á þeim tíma, er fólk yfirleitt sækir sýningar, síðdegis á sunnudögum, og þar að auki höfðu flestar sýningamar verið opnaðar daginn áður. Manni hlýtur að detta í hug að hér sé að skapast sama ástand og stundum gerist á fiski- mörkuðum erlendis, að framboðið sé of mikið og eftirspumin minnki í samræmi við það. Það er líka orð- ið þannig hér um slóðir, að sýningar em í öðm hverju húsi, og tala lista- manna í þessu dvergþjóðfélagi skiptir hundmðum. Það er eins og einn kunningi minn sagði við mig nýlega: Það em allir famir að halda, að þeir geti málað og kallað sig listamenn. Sannleikurinn er sá, að aldrei hefur meira af nýliðum verið á ferð í myndlist, og auðvitað em ekki allir meistarar, en tíðarandinn gerir lítil skil milli þroskaðs fólks og ný- liða, og Qölmiðlar em afleitir með að ýta undir skmm og auglýsinga- fár í sambanndi við listir. Ég tala nú ekki um, ef unglingar, sem dval- ið hafa erlendis eiga í hlut. Þessi atriði, sem ég hér hef nefnt virðast sem sé á góðri leið með að eyði- leggja sýningarstarfsemina, sem var svo lífleg hér í borg fyrir aðeins nokkmm mánuðum. Meira að segja vom Kjarvalsstaðir allt að því tóm- ir eftir hádegið á sunnudaginn var — sjálfur Kjarval var einmana á veggjum. Að Kjarvalsstöðum er nú sýning á verkum Margrétar Elíasdóttur, en hún hefur áður sýnt hér í borg, lágmyndir í leir og keramík. Nú hefur hún söðlað um, ef svo má að orði kveða, og sýnir aðallega mál- verk, og em verkin 56 talsins. Þama á þessari sýningu kennir margra grasa, og Margrét þreifar fyrir sér í ýmsar áttir. Það er áber- andi, hve hún kemur víða við, og ég fæ ekki annað séð en að hún standi á nokkmm krossgötum og hafí ekki gert sér fyllilega ljóst, hvaða stefnu á að taka. Margrét hefur lagt gjörva hönd á margt og er síður en svo bytjandi í fræðun- um, enda hefur hún dvalið langdvöl- um erlendis og ferðast víða við nám og kennslu. Hún er nú búsett í höfuðborg Svía og er því aðeins í heimsókn hér heima eins og stend- ur. Það er annars ekki mikið að segja af þessari sýningu. Það er líflegt á veggjum Vestursalarins, en ég verð að játa það, að mér tókst ekki sem bezt að komast í náin tengsl við það, sem til sýnis er. Hvað þetta snertir, varð ég fýrir vonbrigðum eftir að hafa lesið upplýsingar á öftustu síðu sýningarskrár Margr- étar, en svona em nú einu sinni hlutirnir — eitt gleður augað, annað ekki og ekkert við því að gera. Engu að síður var ég langt frá því að vera dús við að sjá fullan sal af myndverkum og engan skoð- anda. Betur hefði mátt taka á móti þessari listakonu, sem búsett er í fjarlægu landi. Myndir í Menningarstofnun Banda- ríkjanna við Neshaga hefur staðið að undanförnu sýning á Ijósmynd- um eftir ungan ljósmyndara, Loft Atla Eiríksson, en hann hlaut Full- bright-styrkinn fyrir listamenn 1986, og mun það hafa verið í fyrsta sinn, sem þessum styrk var úthlutað hér á landi. Loftur Atli án orða hefur að unanfömu dvalið við nám í listgrein sinni við hið þekkta Pratt Institute í New York, og nú sýnir hann sem sagt árangurinn. Það em um þrír tugir mynda á þessari sýningu, sem ljósmyndarinn hefur valið heitið Myndir án orða, og kennir þar sannarlega margra grasa. Þarna er á ferð myndgerð, sem er byggð upp á listrænum metnaði, og ungur, framsækinn listamaður á þama í hlut, en hann hefur stundað ljósmyndun í nokkur ár, bæði sem blaðaljósmyndari og áhugamaður, og haldið sýningar á verkum sínum, svo að hann er ekki byijandi í faginu. Því verður ekki neitað, að hann er auðsjáanlega leitandi fyrir sér vítt og breitt, og segja mætti mér, að þessi ungi ljós- myndari ætti eftir að mótast mjög á komandi ámm. Loftur Atli leggur mikið upp úr myndbyggingu sinni, og það em listrænu tökin sem eiga hug hans allan. Hugmyndafræðin að baki flestra þessara verka em að nokkm skyld því, sem verið hef- ur á ferð í myndlist hjá okkur á seinni ámm, og er skemmtilegt að sjá, hvernig unnt er að nota ljós- myndatæknina til að koma slíkum viðhorfum til skila. Nokkuð langt er um liðið síðan farið var að leggja listrænt mat á ljósmyndun hér á landi, en í þeim efnum mun vera viss vakning um veröld víða. Ég held, að við þurfum ekki að hafa neinar sérstakar áhyggjur um þróunina hérlendis í þeim efnum og vil minna á þann mikla fjölda ljósmyndasýninga, sem verið hefur hér í borg á undanföm- um ámm. Það verður skemmtilegt að sjá hvert framhaldið verður hjá Lofti Atla. Eitt er víst, hæfileikar em þama fyrir hendi. Litir og fletir FÍM-salurinn við Garðastræti hefur verið lítt notaður að undan- fömu, enda hásumar og aðsókn að sýningum oft betri en á þeim tíma. Nú er þar hafín starfsemi á ný og fyrst hefur riðið á vaðið ung mynd- listarkona, sem er að hefja sína fmmraun í sýningarhaldi. Það er Bima Kristjánsdóttir sem komið hefur verkum sínum fyrir í FIM- salnum. Bima hefur dvalið í Kalifomíu undanfarin ár og stundað þar list- grein sína, sem er blönduð tækni í tekstíl — fullunnin hafa þessi verk svo sterkan svip málverksins, að ég leyfi mér að kalla þau myndverk í þessum línum. Þetta er sérlega vel heppnuð sýning, aðeins 12 verk, og nær hvert og eitt þeirra að njóta sín ágætlega. En það er ekki aðeins þetta, sem er Bimu til sóma, heldur er myndbygging afar einföld og traust og hvergi kastað til höndum. Mjög ömgg litsjón einkennir þessi verk, og er öllu stillt í þvílíkar skorð- ur að manni dettur ekki í hug að verkið getið verið öðmvísi. Það er sannarlega góðs viti þegar slíkt verður á vegi manns, og er sjaldséð fyrirbæri. Þessi sýning Bimu er að vlsu nokkuð þung í litnum yfirleitt, en það ætti að geta gtekið stakka- skiptum á komandi tíma, því að hér er nýliði á ferð í listinni, sem auðvit- að á eftir að þróast og öðlast þá reynslu, sem hveijum listamanni er nauðsynleg. Myndverk Bimu em byggð á flatarfræðilegum hugmyndum, og því náskyld því sem margir stun- duðu hér á ámm áður og sumir enn. Það vom myndræn gildi sem í hávegum vom höfð og em þau og uppistaðan í þessum nýju verk- um Bimu Kristjánsdóttur. Það er því ekki að furða að sumum hlýni um hjartarætur við að sjá þennan þátt myndlistar á tuttugustu öld koma fram í dagsljósið að nýju og það á þann hátt, sem hann birtist í verkum Bimu. Þetta er óvenju sterk og heilleg sýning hjá nýliða og lofar feikna góðu. En það er nú einu sinni svo að um framhald er bezt að spá sem minnstu en ef held- ur sem horfir, er enginn vafi á að árangur verður eftir því. Myndefni morg- undagsins Bókmenntir Jóhann Hjálmarsson Jóhann árelíuz: SÖNGLEIKUR FYRIR FISKA. Uppsetning og útlit: Hallgrímur Tryggvason. Fiskar: Albin Venables. Útgef- andi: Já, Reykjavík 1987. Jóhann árelíuz hefur áður sent frá sér blátt áfram (1983), en nú birtist á ljóðasviðinu Söngleikur fyrir fiska. Jóhann er Akureyring- ur, en hefur lengi verið búsettur í Svíþjóð. Það er rómantískur tónn í ljóð- um Jóhanns árelíuzar, en slíkt er fremur sjaldgæft hjá nýrri skálda- kynslóð. Þó ekki alveg óþekkt. Söngleikur fyrir fiska ber líka vitni kaldhæðni sem ekki er óalgeng hjá rómantískum skáldum. í heild sinni er bókin dæmi um æskilega þróun í ljóðagerð, markvissari vinnubrögð, ljóð sem vilja tjá mannlega reynslu með eftirminni- legum hætti. En ekki sakaði að skáldið gerði til sín strangari kröf- ur. „Mig knýr þörf og þrá“ yrkir Jóhann árelíuz í ljóðaflokki sem hann nefnir samhljóm tíðaran- dans. Þar er á tveimur stöðum talað um „blóð mitt bijálað og heitt“. í fimmta kafla syngur eitt- hvað í sálu skáldsins og því er líkt við „hvítt einmana spangól/ af svartri bæjarhellunni", en er „bón mín til sólarinnar“. Sú bón hljóðar svo: „ég bið um sumar án skil- mála/ og með kvöldinu bláan skugga/ handa myndefnum morg- undagsins/ og horfi veginn fram“. Þessi ljóðaflokkur er bjartsýnn og þótt hann sé kannski ekki frum- Heimsmyndin 1987 Erlendar bækur Siglaugur Brynleifsson State of the World 1987. A World- watch Institute Report on Pro- gress Towards a Sustainable Society. Lester R. Brown, Edward C. Wolf, Linda Starke etc. W.W. Norton & Company - New York - London 1987. Þetta er Qórða árbók „Worldwatch Institute“ um árangur þeirrar við- leitni að skapa mannheimi umhverfi sem telja mætti til frambúðar að minnsta kosti í orði. Höfundamir benda á þau atriði sem brenna hvað heitast á mannheimum og hvað er helst til ráða í baráttunni við yfirvof- andi hættur. í árbók 1987 er fjallað um út- þenslu stórborga, fólksfjölgunina, kjamorkunotkun, rafvæðingu þriðja heimsins, landbúnaðarframleiðslu, skuldir vanþróaðra og þróaðra þjóða og mengunina. Mengun loftsins er að breyta lofts- laginu víða um heim. Það var 1985 að breskur rannsóknarhópur taldi sig merkja breytingar á ósónlaginu yfir Suðurskautinu. Fljótlega bárust fréttir af frekari götum á þessum hlífiskildi jarðarinn- ar, ósónlaginu. Þynnra ósónlag myndi auka húðkrabba, hamla vissum jarð- argróða og breyta veðurfari. 1986 töldu veðurfræðingar sig hafa fundið ástæður til að staðfesta þá spá, að hitastig færi hækkandi í heiminum. Veðurfræðingar East-Anglia- háskólans töldu að undanfarin 134 ár hefðu árin 1980, 1981 og 1983 verið þau heitustu og að fimm af níu heitustu árum þessa 134 ára tímabils hefðu verið eftir 1978. Skömmu síðar tilkynntu bandarískir jarðfræðingar um hækkað hitastig á jarðvegi undir túndrunni í Norður-Alaska. Jarðarbúar teljast vera 5 miljarð- ar. Árið 1900 voru íbúar jarðarinnar um 1,6 milljarður, 1950 voru þeir 2,5 milljarðar og 1986 um 5 milljarðar. A fyrri öldum fyölgaði fólki lítið, sé litið á lengri tímaskeið. Þegar nær dregur okkar tímum jókst framleiðsl- an og heilbrigðisástand skánaði mjög, fólkinu fjölgaði og framleiðslan jókst jafnframt. í þróuðum ríkjum nútí- mans dregur úr fæðingum, svo að fólksfjölgunin verður undir hættu- mörkum, þ.e. offjölgun. Offjölgun á sér nú stað, einkum í þeim ríkjum sem síst skyldi, þar sem framleiðslan nægir ekki til að fæða stöðugt vax- andi fjölda, því er gengið á náttúru- gæði, skógar eru eyddir og ofbeit á sér stað, svo að uppblástur og jarð- vegseyðing eykst hröðum skrefum. Oft er miðað við 3% árlega fólksfjölg- un. í þessum ríkjum versnar ástandið ár frá ári. Þetta ástand veldur uppflosnun bændanna, þeir flytja í stórborgimar og fylla hinn stöðugt vaxandi grúa atvinnuleysingja. Þetta veldur stöð- ugri spennu, óeirðum og upplausn og oft valdatöku hersins, í viðkom- andi ríki, eða hugmyndafræðinga ásamt her. Þetta leiðir oftast til ger- ræðistjórnarfars. Lester R. Brown og Jodi Jacobson skrifa um margföldun íbúafjölda stór- borga í framtíðinni. Þróunin bendir öll í stóraukna fjölgun borga og íbúa- §ölda þeirra. 1950 bjuggu 600 millj- ónir í borgum, 1986 var sú tala 2 milljarðar og ef svo heldur áfram mun meira en helmingur íbúa jarðar- innar búa í borgum strax eftir næstu aldamót. Ástandið í borgunum er mjög mismunandi, fer eftir fram- leiðslugetu og skipulagi borganna. Þótt útlitið sé svart hefur Kínveij- um og Indvetjum tekist að hefta fólksfjölgunina og jafnframt auka framleiðsluna, ástandið virðist verst í Afríku og Suður-Ameríku. Christopher Flavin skrifar um raf- væðingu Þriðja heimsins. Rafvæðingin var lausnarorðið í mörgum löndum hér á árunum. Raf- væðingin átti að flýta fyrir mótun nútímalegra h'fshátta og stuðla að stórauknum framförum á flestum sviðum. Iðjuverum var komið upp, með misjöfnum árangri, oft fylgdi þeim hrikaleg umhverfisröskun og byggðaröskun og síðast en ekki síst hrikaleg skuldasöfnun, sem fjölmarg- ar vanþróaðar þjóðir sjá ekki fram úr. Höfundur greinarinnar ályktar að dreifing raforku um byggðirnar sé þýðingarmeiri og ábatasamari en stóriðjuhugmyndir. Sami höfundur skrifar um endur- skoðun kjarnorkunotkunar. Cherno- byl-slysið sýndi heimsbyggðinni hvað myndi gerast ef slíkt endurtæki sig í stærri stíl. Það sem verra er, er að öll líkindi benda til þess að slík slys muni verða, enginn veit hve mörg, en þijú slík eða meiri slys fram að aldamótum eru ekki ólíkleg. Margar iðnaðarþjóðir eru nú háðar kjamorku sem orkugjafa, en þótt deilur um nothæfni kjarnorku sem undirstöðu- orku séu harðnandi og andstaða magnist, þá er ólíklegt að kjamorka verði aflögð sem orkugjafi í náinni framtíð. Höfundurinn telur að fyrr en síðar muni þó koma að því að þessi orkugjafi verði talinn of vara- samur til þess að óhætt sé að nýta hann og að horfið verði frá notkun „kjamorku í friðsamlegum tilgangi". Það þarf ekki mikið ímyndunarafl til að sjá hvað gerðist ef Chemobyl-slys yrði í þéttbýlinu í Frakklandi eða þýska sambandslýðveldinu. Og slys af stærri gráðu gæti gert Evrópu óbyggilega á einni nóttu um aldir. Allar þessar greinar sem birtast í þessu ársriti eru hugvekjur, vel unnar og vandaðar. Það hefur aðeins verið drepið á þær greinar sem tímabær- astar eru, en þær eru það allar meira og minna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.