Morgunblaðið - 11.09.1987, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 11.09.1987, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1987 B 7 En þessir kentárar. Eru þeir ekki dálítið á skjön við íslenska menningu og hefðir? „Ég vil líta svo á að sagan sé okkar hefð. Auk þess eru þetta ekki alltaf hreinir kentárar. Þetta eru oft hundur og maður og við höfum náttúrulega í þjóðsögum okkar sambærilegar manneskjur, líka í íslendingasögunum. Fyrir mér eru þetta ekki kentárar eins og við þekkjum þá. Heldur er þetta tákn um veikleika og styrkleika. Ef þú ert kentár, lítur fólk á þig annað- hvort sem Guð, eða aumingja. Þetta er líka tákn um einsemd. Ef þú ert öðruvísi en aðrir, getur þú verið eitthvað merkilegra en aðrir, eða eitthvað ómerkilegra. Þetta getur líka verið vottur um það að fegurð getur leynst á ólíle- gustu stöðum. Hver tími hefur sitt staðlaða fegurðarskyn. Við getur tekið konuna sem dæmi. Á einum tíma þótti hún falleg ef hún var feit, hvít og mjúk. Nú til dags á hún að v.era mjó og brún og á síðustu árum, dálítið vöðvuð. Að þessu leiti finnst mér ég geta verið að breyta heiminum svolítið með listinni, þótt auðvitað sé ekki leyfílegt að segja svona í dag. Ég hef fundið það sjálfur, með árunum smátt og smátt, að fók hefur vanist myndunum mínum. Það þýðir að fólk sveigir sig utan um myndimar, breytir sínum eigin smekk og fer að sjá fegurð út úr því sem því þótti áður ljótt og hvimleitt. Eitt er víst, að mörgum þótti gömlu myndimar mínar ljótar, en þegar ég sýni þær nú, þykja þær bara nokkuð fallegar." Er markmið þitt þá að breyta heiminum? „Þetta er kannski ekki markmið mitt sem listamaður. Og þó. Mark- mið mitt sem listamaður er að skapa einhvem heim sem fólk á aðgang að þegar það þarf eitthvað annað en það hefur alla daga. En þetta er eins og þegar síminn kom fyrst. Þá fannst fólki þetta fáránlegt. Svo þegar það hefur haft hann um tíma, fínnst því ómögulegt að hafa hann ekki. Þannig að síminn hefur breytt þjóðfélaginu." Lítur þú þá á myndlist sem einhvers konar tjáskipti? „Mér finnst hún geta verið svipuð og trú. Hún er fylling. Jú, ég býst við að hún geti verið ein- hvers konar tjáskipti. Reyndar finnst mér allir hlutir sem hafa dýpri fegurð geta verið það,“ sagði Helgi Þorgils Friðjónsson, myndlistarmaður að lokum. Sýning Helga á Kjarvalsstöð- um stendur yfir til 21. september næstkomandi og sýningu hans í Gallerí Svart á hvitu lýkur 20. september. Viðtal/Súsanna Svavarsdóttir „Vor,“ olía & striga, 1986 „Sjálfsmynd með vasa á höfðinu, “ olía á striga, 1987 „Stund hugleiðingar, “ olía á striga, 1987

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.