Morgunblaðið - 03.10.1987, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1987
Frá athöfninni í Eiðakirkju.
Eiðakirkja 100 ára:
Efni í kirkjuna
kom frá Noregi
Nuddaðí
fjáröflun-
arskyni
NUDDARAR heilsuhælisins í
Hveragerði ætla að bjóða al-
menningi upp á nudd gegn
fijálsum framlögum er renna
munu til tækjakaupa fyrir heilsu-
hælið.
Nuddað verður að Hverfísgötu
46 í Reykjavík dagana 3. og 4.
október frá klukkan 11.30 og fram
eftir degi.
Kaffisala
KFUM og K
á sunnudag
KAFFISALA verður í húsi
KFUM og K við Amtmannsstíg
2b sunnudaginn 4. október og
hefst hún kl. 15.00.
Nú er lokið þrítugasta og áttunda
sumrinu sem sumarbúðir KFUK í
Vindáshlíð hafa verið reknar. Dval-
arflokkamir voru 11 á þessu sumri.
Flestir flokkamir vom fyrir telpur
á aidrinum 9-12 ára, en auk þess
voru unglingaflokkur, fjölskyldu-
flokkur og flokkur fyrir 17 ára og
eldri. Hver- flokkur dvaldi að jafn-'
aði viku í senn og voru dvalargestir
í sumar um 600 talsins.
Fyrirhugaðar eru framkvæmdir
við vatnsból staðarins og þess vegna
er staðið fyrir kaffísölunni á sunnu-
daginn.
Vindáshlíð.
Geitagerði.
í BYRJUN september sl. var
haldin hátíðarguðsþjónusta í
Eiðakirkju i tilefni 100 ára af-
mælis kirkjunnar, eins og skýrt
Haustfundur
þingeyskra
kvenna
FÉLAG þingeyskra kvenna held-
ur haustfund sinn sunnudaginn
4. október nk.
Haustfundur þessi er haldinn að
Haliveigarstöðum. Félagskonum er
heimilt að taka með sér gesti á
fundinn.
hefur verið frá í Morgunblað-
inu. Að þessari messu lokinni
bauð sóknamefnd Eiðasóknar
kirkjugestum til kaffisamsætis
í Alþýðuskólanum.
í kaffísamsætinu í Alþýðuskól-
anum vom margar ræður fluttar.
Formaður sóknarnefndar, Val-
gerður Gunnarsdóttir, byrjaði á
því að bjóða gesti velkomna og
gera grein fyrir ýmsum endurbót-
um á kirkjunni. Kristinn Kristjáns-
son skólastjóri var veislustjóri og
las hann upp skeyti sem borist
höfðu í tilefni afmælisins.
Prófasturinn, sr. Sigmar Torfa-
son, minntist þeirra sóknarpresta
er þjónað höfðu sókninni og
gengnir em. Þá rakti Einar Þ.
Þorsteinsson sóknarprestur sögu
kirkjunnar. Þar kom fram, að hún
Eiðakirkja.
Séra Sigurður Guðmundsson
biskup prédikaði.
var byggð í skólastjómartíð fyrsta
skólastjórans við Búnaðarskólann,
Guttorms Vigfússonar alþingis-
manns. Guttormur hafði numið í
Noregi og þekkti þar vel til, útveg-
aði hann því mikið efni til bygging-
arinnar þar og var því skipað upp
á Seyðisfírði. Þá réð hann þrjá
smiði til verksins undir stjóm
mágs síns, Gísla Páls Sigmunds-
sonar frá Ljótsstöðum á Höfða-
strönd í Skagafirði, en hann var
þá nýlega kominn heim frá námi
í húsagerð í Danmörku. Um hann
hefur verið sagt að hann hafí í
mörgu verið á undan sinni samtíð
og fékk hann m.a. fengið heiðurs-
verðlaun úr styrktarsjóði Kristjáns
konungs níunda árið 1906.
Þá flutti Guðlaug Þórhallsdóttir
á Breiðavaði endurminningar frá
Eiðum, sagði frá messuferðum til
Eiðakirkju og fleira varðandi kirkj-
una. Þessari hátíðarathöfn lauk
svo með ávarpi biskups, sr. Sigurð-
ar Guðmundssonar.
- G.V.Þ.
ÁRBÆJARPRESTAKALL: Barna-
samkoma í Foldaskóla í Grafar-
vogshverfi laugardag 3. okt. kl. 11
árdegis. Barnasamkoma í safnaö-
arheimili Árbæjarsóknar sunnudag
kl. 10.30 árdegis. Guösþjónusta í
Árbæjarkirkju kl. 14. Altarisganga.
Organleikari Jón Mýrdal. Sr. Guð-
mundur Þorsteinsson.
ÁSKIRKJA: Barnaguösþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl.14. Kaffisala
safnaðarfélags Ásprestakalls í
safnaöarheimili Áskirkju eftir
messu. Sr. Árni Bergur Sigur-
björnsson.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL.
Barnaguðsþjónusta í Breiðholts-
skóla kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Sr. Lárus Halldórsson messar.
Organisti Daníel Jónasson. Sókn-
arprestur.
BUSTAÐAKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11. Elín Anna Antons-
dóttir og Guðrún Ebba Ólafsdóttir
annast barnastarfið í vetur eins
og í fyrra. Guðsþjónusta kl. 14.
Organleikari Jónas Þórir. Sr. Ólafur
Skúlason. Kökubasar kvenfélags-
ins eftir messu og sóknarnefndin
býður upp á kaffisopa. Æskulýðs-
félagsfundur þriðjudagskvöld.
Félagsstarf aldraðra miðvikudag-
seftirmiðdag.
DIGRANESPRESTAKALL: Barna-
samkoma í safnaðarheimilinu við
Guðspjall dagsins:
Lúk. 7.: Sonur ekkj-
unnar f Nain.
Bjarnhólastíg kl. 11. Guðsþjónusta
í Kópavogskirkju kl. 14. Sr. Þor-
bergur Kristjánsson.
DÓMKIRKJAN: Laugardag 3. okt.
Barnasamkoma í kirkjunni kl.
10.30. Messa kl. 11. Dómkórinn
syngur. Organleikari Marteinn
Hunger Friðriksson. Leikið verður
á orgel kirkjunnar í 20 mín. fyrir
messuna. Sr. Hjalti Guðmunds-
son.
LANDAKOTSSPlTALI: Messa kl.
13. Organleikari Birgir Ás Guð-
mundsson. Sr. Þórir Stephensen.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs-
þjónusta kl. 10. Sr. Gylfi Jónsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Ragnheiður
Sverrisdóttir. Fermingarguðsþjón-
usta og altarisganga kl. 14.
Oragnisti Guöný Margrét Magnús-
dóttir. Fundur í æskulýðsfélaginu
mánudagskvöld kl. 20.30. Sr.
Hreinn Hjartarson.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Guðspjalliö í
myndum. Barnasálmar og smá-
barnasöngvar. Afmælisbörn boðin
sérstaklega velkomin. Framhalds-
saga. Við píanóið Pavel Smid.
Fermingartími verður laugardag
10. okt. kl. 14. Sr. Gunnar Björns-
son.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11. Messa kl. 14 —
ferming og altarisganga. Organisti
Árni Arinbjarnarson. Fimmtudag
kl. 20.30. Almenn samkoma
UFMH — kaffisopi á eftir. Sr. Hall-
dór S. Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Laugardag
3. okt.: Innritun fermingarbarna kl.
11. Sunnudag: Messa og barna-
samkoma kl. 11. Altarisganga. Sr.
Karl Sigurbjörnsson. Þriöjudag:
Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30.
Beðið fyrir sjúkum.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 10.
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Messa
kl. 14. Organisti Orthulf Prunner.
Sr. Arngrímur Jónsson.
HJALLAPRESTAKALL í Kópavogi:
Barnasamkoma kl. 11 í Digranes-
skóla (aðaldyr). Foreldrar eru
beðnir að hvetja börnin til að vera
með frá upphafi og gjarnan að
fylgja þeim. Sr. Kristján Einar Þor-
varðarson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Barna-
samkoma í safnaðarheimilinu
Borgum kl. 11 árdegis. Guðsþjón-
usta í Kópavogskirkju kl. 11
árdegis. Sr. Árni Pálsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Útvarpsguðsþjón-
usta kl. 11. Prestur: séra Pjetur
Maack. Organisti Jón Stefánsson.
Óskastund barnanna kl. 11. Söng-
ur, sögur, myndir. Athugið að
stundin verður í safnaðarheimiiinu.
Þórhallur Heimisson og Sverrir
Guðjónsson sjá um stundina.
Guðsþjónusta kl. 14. Fermd verð-
ur: Arndís Dögg Arnardóttir,
Melgerði 1, Kópavogi. Prestur sr.
Sig. Haukur Guðjónsson. Organisti
Jón Stefánsson. Sóknarnefndin.
LAUGARNESKIRKJA: Messa fyrir
alla fjölskylduna kl. 11. Þegar kem-
ur að sálmi fyrir prédikun, verður
börnunum boðið upp á fræðslu við
sitt hæfi í safnaöarheimilinu. Eftir
messu verður heitt á könnunni og
tækifæri til að spjalla saman og
eiga samfélag. Mánudag 5. okt.:
Æskulýðsstarf kl. 18. Kl. 20.00 -
Fundur í Kvenfélagi Laugarnes-
sóknar í safnaðarheimilinu.
Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Laugardag 3. okt.:
Samverustund aldraðra kl. 15.
Gestir: Jón Dan rithöfundur ásamt
Herdísi og Gísla Helgasyni sem
leika á hljóðfæri. Sunnudag:
Barnasamkoma kl. 11. Munið
kirkjubílinn. Guðsþjónusta kl. 14.
Orgel- og kórstjórn Reynir Jónas-
son. Sr. Guðmundur Óskar Ólafs-
son. Mánudag: Æskulýðsfélags-
fundur kl. 20. Þriðjudag og
fimmtudag: Opið hús fyrir aldraða
kl. 13—17. Miðvikudag: Fyrir-
bænamessa kl. 18.20. Sr.
Guðmundur Óskar Ólafsson.
SELJASÓKN: Laugardag. Guðs-
þjónusta í Seljahlíð kl. 11 árdegis.
Sunnudag: Guðsþjónusta í Öldus-
elsskóla kl. 11. Sr. Valgeir Ástráðs-
son.
SELTJARNARNESKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Messa kl. 14.
Organisti Sighvatur Jónasson.
Prestur sr. Solveig Lára Guð-
mundsdóttir. Tekið verður í notkun
nýtt altarissilfur. Kaffisopi eftir
messu. Ath. breyttan messutíma.
Opið hús fyrir unglinga 13 ára og
eldri mánudagskvöld kl. 20.30.
Opið hús fyrir 10—12 ára þriöjudag
kl. 17.30. (Leikir, heimsóknir, helgi-
stund.) Sóknarprestur.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Ffla-
delffa: Almenn guðsþjónusta kl.
20. Ræðumaður Warren Flatterey
frá Bandaríkjunum.
DÓMKIRKJA Krists konungs,
Landakoti: Lágmessa kl. 8.30,
hámessa kl. 10.30. Lágmessa kl.
14. Rúmhelga daga er lágmessa
kl. 18 nema á laugardögum þá kl.
14. í októbermánuði er lesin Rósa-
kransbæn eftir lágmessuna kl. 18.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti:
Hámessa kl. 1.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 14. Hjálpræðissam-
koma kl. 20.30. Flokksforingjarnir
stjórna og tala.
MOSFELLSPRESTAKALL: Messa
í Lágafellskirkju kl. 14. Sr. Birgir
Ásgeirsson.
GARÐAKIRKJA: Barnasamkoma í
Kirkjuhvoli kl. 11. Sr. Bragi Friðriks-
son.
BESSASTAÐASÓKN: Messa í
Garðakirkju kl. 11. Sr. Bragi Frið-
riksson.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Hámessa kl. 14.
H AFN ARFJ ARÐARKIRKJ A:
Sunnudagaskóli kl. 10.30.
Skólabíllinn fer um bæinn. Messa
kl. 14. Altarisganga, nýir sálmar
kynntir. Organisti Helgi Bragason.
Sr. Gunnþór Ingason.
KAPELLAN St. Jósefsspítala: Há-
messa kl. 10. Rúmhelga daga
lágmessa kl. 18.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Barna-
samkoma kl. 11. Lagt af staö í
safnaðarferðina sunnudag kl.
11.30. Farið veröur til guðsþjón-
ustu austur í Hruna. Kaffisamsæti
á Flúðum að lokinni guðsþjónustu.
Þátttaka tilkynnist safnaðarpresti.
Einar Eyjólfsson.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa kl.
8.30. Rúmhelga daga messa kl. 8.
KÁLFATJARNARKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Bragi Friðriks-
son.
INNRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Barnaguðsþjónusta kl. 11 í umsjá
Helgu Óskarsdóttur og Láru Guð-
mundsdóttur. Sóknarprestur.