Morgunblaðið - 30.10.1987, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.10.1987, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/C 11 #rjtusiltfafrffr STOFNAÐ 1913 246. tbl. 75. árg. FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins Sri Lanka: Óbreyttir borgar- ar falla í árásum Nýju Delhí, Colombo, Reuter. INDVERSKAR friðargæslusveitir á Sri I>anka gerðu í gær loftárás- ir á eina af höfuðstöðvum skæruliða tamíla austur af borginni Jaffna á norðurhluta eyjarinnar. Að sögn sjónarvotta skutu árásarþyrlur eldflaugum á markað og íbúðarhús í aðalverslunarhverfi bæjarins Chavakacheri. Indverska herstjórnin á eyjunni sagði 27 skæruliða hafa fallið en indverskur blaðamaður sem var vitni að árásinni sagði flesta þeirra föllnu hafa verið óbreytta borgara. Árásin á Chavakacheri hófst á þriðjudagskvöld og lauk henni í gær. Talsmaður indversku friðar- gæslusveitanna, sem freista þess að afvopna skæruliða tamíla sam- kvæmt samkomulagi stjómvalda á Indlandi og Sri Lanka, sagði að gengið hefði verið úr skugga um að óbreyttir borgarar væru ekki í hættu áður en merki var gefíð um árásina. Hins vegar kvaðst ind- verskur blaðamaður hafa fundið lík 15 óbreyttra borgara og sagði hann fleiri hafa látist í sjúkrahúsi bæjar- ins. Indverski talsmaðurinn vildi ekki tjá sig um hvort óbreyttir borg- arar hefðu fallið. Bretland: Ríkishluta- bréf í BP verða seld London, Reuter. BRESKA ríkisstjórnin til- kynnti f gærkvöldi að hún hygðist ekki hætta við sölu á hlutabréfum rikisins í breska olíoufélaginu BP þrátt fyrir verðfall á hluta- bréfamörkuðum. Nigel Lawson fjármálaráð- herra kvaðst hafa komist að þessari niðurstöðu eftir að hafa ráðfært sig við hags- munaðila og fjármálasér- fræðinga. Sagði hann að þess yrði gætt að viðunandi verð fengist fyrir bréfín en sér- fræðingar höfðu bent á að að aukið framboð á hlutabréf- um myndi einungis verða til þess að stuðla að frekara verðfalli á verðbréfamarkað- inum í London. Skæruliðar tamfla hafa undan- farin fjögur ár barist fyrir stofnun sjálfstæðs ríkis á Sri Lanka. í júlí- mánuði gerðu stjómir Indlands og Sri Lanka með sér samkomulag um að binda enda á borgarastyijöldina sem kostað hefur rúmlega 6.000 manns lífíð. Skæmliðar tamfla sam- þykktu í fyrstu að leggja niður vopn en gengu síðan á bak orða sinna. Hófu indversku friðargæslusveit- imar þá umsátur um borgina Jaffna og hafa hundmð manna fallið í þeim átökum. Fullyrt hefur verið að fjöldi óbreyttra borgara hafi beðið bana í stórskotaliðsárásum Indveija og er þiýst á Rajiv Gand- hi, forsætisráðherra Indlands, um að kalla sveitimar heim. Sjá einnig „Af erlendum vett- vangi“ á miðopnu blaðsins. 50.000 Frakkar flýja eiturský Reuter Um 50.000 manns í vesturhluta Frakklands var skipað að jrfirgefa heimili sín í gær þegar 15 kfló- metra hátt eiturský lagðist yfír ána Loire og nærliggjandi sveitir. Að sögn yfírvalda slapp eitur- efni út í andrúmsloftið er eldur varð laus í áburði sem geymdur var í skemmu á hafnarsvæði borgar- innar Nantes, sem er við mynni árinnar. íbúum sjö smábæja í grennd við Nantes var sagt að yfirgefa heimili sín til að forðast gasskýið. Gasið er ammoní- aksblandað, og getur að sögn lækna verið banvænt andi menn því að sér í langan tíma. 24 íjórir þurftu á aðhlynningu lækna að halda vegna minniháttar áverka. í gærkvöldi höfðu vindar blásið eiturskýinu langleiðina á haf út. Sovétmenn búa sig undir leiðtogafund fyrir áramót: Fyrirvörum um geimvam- ir hefur verið ýtt til hliðar Moskvu. Waiihinaton. Rpntpr. Ónafngreindir heimildarmenn Re- uters-fréttastofunnar í Moskvu sögðu að fundurinn yrði líklega í byijun desember eða um miðjan mánuðinn. Boris Pyadyshev, einn yfirmanna upplýsingaskrifstofu sov- éska utanríkisráðuneytisins, sagði á blaðamannafundi í gær að öllum Rustamenni fá raflost Norbert Benzaous, formaður stéttarfé- lags franskra leigubílstjóra, kynnti fréttamönn- um í gær nýstárleg- an öryggisbúnað, sem komið hefur verið fyrir í nokkr- um leigubflum í Parísarborg. Með búnaði þessum get- ur bflstjórinn hleypt rafstraumi í rusta- menni sem láta ófriðlega eða gera sig líkleg til að beita bflstjórann ofbeldi. Moskvu, Washington, Reuter. TALSMAÐUR sovéska utanríkisráduneytsins skýrði frá því í gær að leiðtogar risaveldanna, þeir Mikhail Gorbachev og Ronald Reagan, myndu koma saman til fundar á þessu ári. Ronald Reagan kvaðst ætla að bíða komu Eduards Shevardnadze, utanríkisráðherra Sov- étríkjanna, sem var væntanlegur til Bandaríkjanna í nótt, og vildi að öðru leyti ekki tjá sig um hvort af fundinum yrði. Shevardnadze mun hafa bréf meðferðis til Reagans frá Gorbachev og er talið fullvíst að í þvi sé að finna tillögu um dagsetningu næsta leiðtogafundar, sem að líkindum fer fram í Washington. hindrunum hefði verið rutt úr vegi og því myndu leiðtogamir eiga við- ræður fyrir áramót. Pyadyshev sagði Bandaríkjastjóm hafa fallist á að ræða fækkun langdrægra kjam- orkuflauga og ákvæði ABM-sátt- málans svonefnda um takmörkun gagneldflaugakerfa en Sovétmenn túlka þann sáttmála á þann veg að hann taki fyrir tilraunir með geim- vopn. Sovétmenn höfðu áður krafíst þess að fyrir lægju drög að sam- komulagi um þessi atriði áður en næsti leiðtogafundur yrði haldinn. Hafði þess almennt verið vænst að leiðtogamir þinguðu í nóvember og yrði þar undirritað samkomulag um upprætingu meðal- og skamm- drægra kjamorkuflauga á landi. Fréttaskýrendur telja að með þessu hafi Sovétstjómin ætlað sér að beita Reagan og stjórn hans þrýstingi. Það hafi á hinn bóginn ekki tekist enda hafa bæði bandarískir embætt- ismenn og ráðamenn í Vestur-Evr- ópu lýst yfir því að ekki sé nauðsynlegt að boða til leiðtoga- fundar til að undirrita samkomulag það sem nú liggur fyrir um útrým- ingu meðaldrægu flauganna. Boris Pyadyshev sagði Banda- Reuter ríkjamenn hafa lýst sig reiðubúna til að ræða ágreiningsefni varðandi ABM-sáttmálann og fækkun lang- drægra flauga. „Þetta er fullnægj- andi ástæða fyrir því að boða til leiðtogafundar," sagði hann. Kvað hann Sovétstjómina ekki hafa skipt um skoðun, æskilegra hefði verið að fyrir lægju drög að samkomu- lagi, en fyrst svo væri ekki myndu leiðtogamir freista þess að ná þeim fram og yrði þá unnt að undirrita þau er Reagan kæmi til Moskvu á næsta ári. Aður höfðu Sovétmenn lagt til að bráðabirgðasamkomulag yrði gert á leiðtogafundi á þessu ári og iokadrögin yrðu síðan undirrituð í Moskvu. Reagan hefur lýst því yfír að hann stefni að því að ná samkomulagi unm helmingsfækkun langdrægra kjamorkuflauga á þeim 15 mánuðum, sem eftir lifa af valda- tíma hans. Hins vegar hefur hann gefíð skýrt til kynna að hann sé ekki reiðubúinn til að semja um geimvamaáætlun Bandaríkjastjóm- ar og hefur það legið fyrir allt frá því að leiðtogamir ræddu afvopnun- armál á fundi þeirra í Reykjavík fyrir rúmu ári. Hæstiréttur Bandaríkjanna: Douglas Ginsburg út- nefndur í stað Borks Washington, Reuter. RONALD Reagan Bandaríkjaforseti tilkynnti I gær að hann hefði útnefnt Douglas Ginsburg til embættis dómara í hæstarétti Banda- ríkjanna. Ginsburg er 41 árs að aldri og hljóti hann samþykki þingsins verður hann yngsti dómari hæstaréttar frá því að Lewis Powell fékk þar sæti fertugur að aldri árið 1939. Ginsburg kemur í stað Roberts Bork, sem Reagan hafði tilnefnt til starfans, en bandarískir þingmenn höfnuðu honum í síðustu viku. Reagan sagði Ginsburg, sem er gyð- ingur, njóta virðingar bæði frjáls- lyndra manna og íhaldsmanna og hvatti hann þingmenn öldungadeild- arinnar til að fjalla sem fyrst um tilnefninguna. Sagði forsetinn að deilumar um Bork hefðu verið bæði hæstarétti og bandarísku þjóðinni til vansa. Kvaðst hann vænta þess að barátta þrýstihópa setti ekki mark sitt á umræður um hæfni Gins- burgs til starfans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.