Morgunblaðið - 29.11.1987, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 29.11.1987, Blaðsíða 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1987 Austurbæjarbíó Fá hús þóttu betri til tónleikahalds vegnagóðs hljómburðar. Það þótti líka brúklegt til leiksýninga. í Austurbæjarbíói voru haldnar hinar geysivinsælu miðnæturskemmtanir til ágóða fyrir húsbyggingarsjóð Leikfélags Reykjavíkur. Bíóið hefurnúskiptumnafnoger . í höndum nýrra eigenda, sem jafnframt hafa gertá þvi verulegar endurbætur til að það hæfi betur til bíósýninga en um leið er það orðið óhæft til tónleikahalds, hvað þá leiksýninga. Lindarbær í Lindarbæ var vettvangur fyrir leikhópa um árabil. Hérkomst hin eftirminnilega Leiksmiðja á legg. Gríma hafði hér sýningar um árabilsem þóttu merkt innlegg í menningarlífið. Þegar Alþýðuleikhúsið flutti suður fyrir um áratug setti það niður bækistöðvar sínar í Lindarbæ. Nemendaleikhús Leiklistarskóla íslands hefur starfað hér innandyra og standa þær ekki öðrum opnar lengur. I gær: Á götunni f dag: Undir sjávarmáli Á morgun: Fokið í flest skjól Húsnæðismál atvinnuleikhópa hafa verið til umræðu hin síðari ár í hinni ört vaxandi höfuðborg. Jafnframt því sem í borginni eru byggð stærri og glæsilegri hús til ýmissa nota því minni möguleikar eru fyrir leikhópa að verða sér úti um viðunandi húsaskjól. Þar við bætist að rýmið sem þeir fá til af nota verður æ óhentugra og smærra með árunum. Þó er leikhópunum að fjölga. Náttúran verður ekki lamin með lurk. í húsnæðiseklunni hefur reynt ótrúlega á þanþol hugmyndaflugs og útsjónarsemi, sem ekki þarf endilega að eiga neitt skylt við leik- list, við að reyna að útbúa leiksýn- ingar í þau salarkynni sem bjóðast pg eru oft óíbúðarhæfir kjallarar, rök háaloft eða þegar best lætur salarkynni þar sem rekin er önnur starfsemi. Slíkt húsnæði er oft illa búið til að hýsa leiksýningar og verða því skiljanlega oft árekstrar á milli þeirrar meginstarfsemi sem í húsinu er rekin og leikhópsins sem þar fær að gista. Leikhópamir reyna þó að semja sig að staðhátt- um og jafnvel velja verk sem falla að þeirra starfsemi sem fyrir er og hefúr forgang. En hætt er við þeg- ar svo þröngur stakkur er leiklist- inni skorinn, að lítið verði eftir af því „frelsi" sem stundum er kennt við íeikhópa og þeir byggja tilveru sina á. Aðeins tveir „leikhópar" hafa fengið varanlegt skjól fyrir starf- semi sína og þeir hafa verið nefndir eftir þeim: Iðnó og Þjóðleikhúsið. ' Það var stór stund fyrir leiklist í landinu þegar Iðnó var byggt fyrir tæpri öld og Leikfélag Reykjavíkur fékk þar samastað. Það þótti glæsi- legt á sinni tíð, eins og Þjóðleikhúsið þótti rúmri hálfri öld síðar. Þessi tvö hús hafa veitt siq’ól þeirri leik- listarstarfsemi sem hefur orðið burðarás í leikmenningu þessarar þjóðar og er orðinn óijúfanlegur þáttur hennar. Án húsnæðis hefði þessi starfsemi aldrei náð þeim áfanga því leiklist þarf skjól, helst eigið húsnæði eða „sérherbergi". Það er fróðlegt að líta yfir sögu húsnæðismála leikhópa. I fljótu bragði má tína til um tvo tugi húsa sem oftar en einu sinni hafa með misgóðum árangri verið notuð til leikstarfsemi, þó ekki verði þau öll talin hér. Sum hafa verið til þessa brúks eingöngu um lengri eða skemmri tíma, önnur hafa hýst Talíu sem homkerlingu. Nokkur þeirra hafa verið rifín. Þar má nefna Ejalaköttinn og Hafnarbíó. Salur í Nýlistasafninu var rifínn að hálfu strax eftir að leikhópar höfðu haft þar viðkomu, svo hann var óhæfur til leiksýninga eftir það. Þess má geta hér í framhjáhlaupi að íslensk- ur leikhópur sýndi í ævagömlum helli í Edinborg fyrir nokkmm árum. Hann var vitaskuld jafnaður við jörðu stuttu síðar. . Fáein hús hafa vegna starfsemi sinnar úthýst leikhópum, sem áttu þar um tíma samastað. Má þar nefna Félagsstofnun stúdenta, Tjamarbæ, Lindarbæ og Sjálfstæð- ishúsið við Austurvöll. Nokkur veitingahús hafa hleypt leikhópum til sín en þeim eru þá settar ýmsar skorður, þvi veitinga- húsareksturinn er að sjálfsögðu aðal búgreinin: Broadway, Gaukur á Stöng, Djúpið og í Kvosinni. Það er umhugsunarvert að tvö síðast- nefndu eru ásamt kjallaranum í Hlaðvarpanum undir sjávarmáli. En þau eru einmitt það skjól sem leik- hópum hefur boðist upp á síðkastið. Fjalakötturinn Fyrrá öldinni voru revíur sýndar hér fyrir fullu húsikvöld eftir kvöld.jafnhliða bíósýningum. Húsið varjafnað viðjörðu fyrirnokkru. Tjarnarbær Litla leikfélagið sýndi bér eftirminnilegar sýningar og fleiri leikhópar eins og t.d. Grima og Stúdentaleikhúsið. Tjamarbær er í eigu Háskólans núna og er notaður til fyrirlestrahalds. Stúdentaleikhúsið reyndi um tíma aðfá það til sýningahalds en dyrum hefur verið lokað á leikstarfsemi, nema með einni undantekningu: Ferðaleikhúsið hefur fengið þar inni í tvo mánuði á sumrin fyrir landkynningarsýningar ætlaðar erlendum ferðamönnum. Hafnarbíó Alþýðuleikhúsið hefur staðið lengst núlifandi leikhópa í húsnæðisbasli. Því tókst að fá Hafnarbíó leigt á annað ár undir starfsemi sína. Á þeim tima komu yfir 30.000 áhorfendur á sýningar leikhússins ogþaðánþess aðlátyrðiá aðsókn í önnur Ieikhús. Eigendur gerðu boð fyrir Alþýðuleikhúsmenn 1982 ogsögðu þeim að rýma húsið með hraði, þvíþað ætti að rífa svo annað hús gæti risið. Engan tíma mátti missa oggátu leikhúsmenn rétt forðað fátæklegum eigum sínum út áður en það varjafnað viðjörðu. Ekkert hús hefur risið þar enn. - !

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.