Morgunblaðið - 23.01.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.01.1988, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B OG LESBOK STOFNAÐ 1913 18. tbl. 76. árg. LAUGARDAGUR 23. JANUAR 1988 Prentsmiðja Morgfunblaðsins Frakkar og Vestur-Þjóðveijar: Aukið samstarf í öryggismáliim París. Reuter. FRAKKAR og Vestur-Þjóðverjar undirrituðu í gær samning um formlegt samstarf í öryggis- og efnahagsmálum. Hafa ríkin með Hættir Sihan- ouk samstarfi við khmerana? Salnt-Gennain-en-Laye, Frakklandi. Reuter. NORODOM Sihanouk prins, leið- togi einnar skæruliðahreyfingar- innar í Kambódíu, er tilbúinn til að hætta samstarfinu við Rauða khmera með ákveðnum skilyrð- um. Rauðu khmerarnir eru sakaðir um að hafa myrt hundruð þúsunda manna þegar þeir réðu landinu. Norodom Ranariddh prins, sonur Sihanouks, sagði, að morðæði Rauðu khmeranna hefði hvílt eins og skuggi yfir tveggja daga friðarviðræðum föður síns og Huns Sens, forsætis- ráðherra Kambódíu, en hann og stjóm hans sitja í umboði Víetnama. Þeir réðust inn í landið árið 1978 og hafa þar nú rúmlega 100.000 hermenn. í skæruliðasamsteypu Sihanouks eru þijár hreyfingar og Rauðir khmerar langöflugastir. Þeir hafa til þessa ekki viljað taka þátt í friðar- viðræðum við núverandi stjómvöld. Ranariddh sagði, að faðir sinn væri ekki fráhverfur tveggja flokka stjóm með Hun Sen og án Rauðu khme- ranna en ef Víetnamar héldu hersetunni áfram yrði baráttan gegn þeim tekin upp að nýju og við hlið Rauðu khmeranna. Hun Sen vill að víetnamska herlið- ið fari úr landi á tveimur árum eftir að um semst með honum og Sihano- uk en Sihanouk segist tilbúinn til samninga þegar öðrum áfanga brottflutningsins er lokið. Sjá frétt á bls. 26. sér samstarfsráð, sem m.a. á að skipuleggja fyrstu frönsk-þýsku herdeildina. Francois Mitterrand Frakklands- forseti og Helmut Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands, undirrituðu samninginn í þeim sal í Elysee-höll þar sem þeir Charles de Gauile og Konrad Adenauer settu nöfn sín undir sögulegan vináttusamning fyrir 25 árum upp á dag. í sameigin- legri yfirlýsingu kváðust þeir Kohl og Mitterrand vera vissir um, að ekki væri hægt að tala um evrópska einingu fyrr en tekið hefði verið upp náið samstarf í öryggis- og vamar- málum. Bretar og ítalir hafa gagnrýnt fransk-þýska samninginn og segj- ast óttast, að hann muni verða til að reka fleyg á milli Evrópu og Bandaríkjanna en Kohl og Mitter- rand segja, að samningurinn sé í anda Atlantshafsbandalagssáttmál- ans og Brussel-sáttmálans um vamir Vestur-Evrópu. Sjá nánar á bls. 24. Reuter Helmut Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands, og Francois Mitterrand Frakklandsforseti skiptast á undirrit- uðum samningi um nána samvinnu ríkjanna í öryggis- og efnahagsmálum. Hvalveiðarnar: Bandaríkjastjóm setur Japönum urslitakosti Hótar refsiaðgerðum skjóti þeir einn einasta hval í Suðurhöfum Washington. Reuter. WILLIAM Verity, viðskiptaráð- herra Bandaríkjanna, hefur hótað Japönum refsiaðgerðum skjóti þeir nokkurn hval í Suður- höfum en þangað eru nú komin japanskt verksmiðjuskip og tveir hvalveiðibátar. Er það haft eftir embættismönnum í Washington, Breska stjórnin ber fram harðorð mótmæli við Rúmeniustjórn: Fölsuðu heillaóskaskeyti frá Englandsdrottningu - í tilefni af sjötugsafmæli Nicolaes Ceausescus London. Reuter. BRESKA stjómin bar i gær fram mjög harðorð mótmæli við sendiherra Rúmena i London vegna falsaðra heillaóska frá Elísa- betu Englandsdrottningu til Nicolaes Ceausescus Rúmeniufor- seta, sem verður sjötugur á þriðjudag. Var heillaóskaskeytið falsaða birt i tímaritinu Lumea og i þvi á drottning varla orð yfir rúmenska mikilmennið. David Mellor, utanríkisráð- herra Breta, kallaði í gær á sinn fund Stan Soare, sendiherra Rúm- ena í London, og tjáði honum, að skeytið væri „falsað og móðgun við hennar hátign". I því var meðal annars þetta: „Við Bretar dáumst að rúm- ensku þjóðinni, einörðum vilja hennar til að vera sjálfstæð og öðrum óháð, og okkur finnst til um áhrif hennar á alþjóðavett- vangi. Þér, hr. forseti, eruð leið- togi á heimsmælikvarða og mannkostir yðar, reynsla og áhrif eru almennt viðurkennd." Ceausescu hefur ráðið ríkjum í Rúmeníu í 22 ár og þora þar fáir að-mæla því í mót, að hann sé allt að því guðleg vera. Efnahags- málin eru hins vegar í kaldakoli og matar- og orkuskortur ollu því raunar í nóvember sl., að þá kom til uppþota og árása á skrifstofur kommúnistaflokksins. Talmaður breska utanríkis- ráðuneytisins sagði, að rúmenski sendiherrann hefði tekið við mót- mælunum en svarað þeim í engu. Sagði hann einnig, að í febrúar í fyrra hefðu rúmenskir fjölmiðlar birt falsaða orðsendingu til Ceau- sescus frá Margaret Thatcher forsætisráðherra. að Japönum hafi verið settir þessir úrslitakostir á miðviku- dag. Talsmaður japanska sendiráðsins í Washington vildi ekkert um málið segja en samkvæmt Packwood- Magnuson-lögunum ber Banda- ríkjastjóm að beita refsingum það riki, sem brýtur bann Alþjóðahval- veiðiráðsins við hvalveiðum. Japanir ætla að veiða 300 hvali í vísinda- skyni en umhverfísvemdarsamtök segja, að vísindin séu aðeins höfð að yflrvarpi. Hermt er, að Verity hafi hótað að refsa Japönum veiði þeir einn einasta hval áður en lokið er at- kvæðagreiðslu innan Alþjóðahval- veiðiráðsins um ályktun frá Bretum en í henni biðja þeir Japani um að hætta hvalveiðum. Eiga niðurstöður hennar að liggja fyrir 14. febrúar. Bandaríkjastjóm getur einnig beitt Pelly-lögunum en þau banna fískútflutning til ríkja, sem em brotleg að hennar mati, en Japanir geta auðveldlega bmgðist við því og beint kaupum sínum annað. Packwood-Magnuson-lögin kveða hins vegar á um, að veiðikvótar brotlegxa ríkja skuli helmingaðir en á síðasta ári veiddu Japanir 100.000 tonn innan bandarískrar lögsögu. Bandaríkin: Náðarhöggið fyrir Hart? Washington. Reuter. GARY Hart, sem berst fyrir því að verða útnefndur frambjóðandi bandariska Demókrataflokksins í kosningunum á hausti komanda, viðurkenndi í gær að hafa tekið við ólöglegum framlögum £ for- kosningabaráttunni árið 1984. Dagblaðið The Miami Herald sagði á miðvikudag, að Hart hefði fengið rúma 15.000 dollara frá Hollywood-leikstjóranum Stuart Karl árið 1984 en ekki gefíð það upp og Washington Post bætti um betur í gær og fullyrti, að óuppgefin framlög ájþessu ári næmu 60.000 doliumm. I gær viðurkenndi Hart, að gleymst hefði að gefa upp fram- lagið frá Stuart Karl en önnur ekki. Kvaðst hann mundu skila fénu. Óháðir stjómmálaskýrendur og keppinautar hans telja, að þessi uppákoma geti orðið til að veita kosningabaráttu Harts náðarhöggið og í skoðanakönnunum kemur fram, að hann er nú í fjórða sæti í lowa þar sem kosið verður 8. febrúar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.