Morgunblaðið - 26.02.1988, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 26.02.1988, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1988 Hreindýradauði á Austurlandi: Ekki líkur á að um sýkingu sé að ræða - segir Jón Pétursson héraðsdýralæknir „ÉG TEL engar líkur á því að um sýkingu 8é að ræða, þó.ég geti ekki fullyrt að svo sé. Einasta sýkingin, sem ég hef séð hreindýr falla úr, er garnapest en það er ótrúlegt að um hana sé að ræða. Ég skoðaði 2 fallin dýr fyrir skömmu og það var greinilegt að þau höfðu fallið úr hor,“ sagði Jón Pétursson héraðsdýralæknir í sam- tali við Morgunblaðið en fréttir hafa borist af óvenju miklum hrein- dýrafelli að undanförnu. Jón sagði að á hveijum vetri dræpust alltaf nokkur dýr en sumar tölumar sem hefðu verið nefndar í því sambandi, t.d. 50 dýr, væm Fulltrúar verktaka á fundi með fjármálaráðherra á miðvikudagsmorgun. Morugnblaðið/Bjami Verktakar funda með fjármálaráðherra um framkvæmdir: Vilja fá að vera með í ráð- um ef til samdráttar kemur FULLTRÚAR verktaka fóru á fund Jóns Baldvins Hannibalssonar fjármálaráðherra á miðvikudagsmorgun til að kynna honum stöðu verktakagreinarinnar. Að sögn fjármálaráðherra fóru verktakar fram á að fá að vera með í ráðum ef uppi væru áform um samdrátt í framkvæmdum, og lögðu áherslu á að sá samdráttur ætti ekki að ná til landsbyggðarinnar. Fjármálaráðherra sagði við Morgunblaðið að fulltrúar verktak- anna hefðu lýst þeirri skoðun sinni að verulegur munur væri á fram- kvæmdum úti á landi, þar sem þenslu gætti lítið eða mjög misjafn- lega, og á höfuðborgarsvæðinu. Einnig væri munur á jarðvegs- og tækjavinnu við margvíslegar fram- kvæmdir úti á landi og á steypu- massanum á suð-vesturhominu. Þeir hefðu lagt á borðið ýmis gögn um hversu sveiflukenndar þessar framkvæmdir hefðu verið á liðnum árum, sem skapaði óhagræði fyrir greinina, og einnig að opinberar framkvæmdir hefðu oft orðið til að magna þær sveiflur í stað þess að vega á móti þeim. Fjármálaráðherra sagði að ríkið hefði að þessu sinni gert hreinna fyrir sínum dyrum en venjulega, bæði með aðhaldssömum lánsfjár- lögum og með niðurskurði á fjár- festingum, sem næmi um 15% mið- að við fyrra ár. Á sama tíma hefðu sveitarfélögun aukið fjárfestingará- form sín um 40% og höfuðborgin með 63% þannig að varla væri við því að búast að ríkið geti gengið lengra í aðhaldsátt. Fjármálaráðherra sagði þó að ef litið væri á nýfjárfestingu væri hægt að staldra við nýja liði á láns- ijárlögum eins og feijur, sem á að fjármagna með erlendum lánum. I opinbera geiranum gætu menn staldrað við Landsvirkjun, og Póst- og síma. Hjá Landsvirkjun yrði þá að fresta Blönduvirkjun enn um sinn og stjómstöðvarbyggingu á höfuðborgarsvæðinu sem væri raunar mjög þörf ffamkvæmd fyrir nýtingu á orkuveitukerfínu. Jón Baldvin sagðist síðan geta nefnt dæmi um framkvæmdir sem ríkisvaldið hefði í hendi sér að draga úr. Til dæmis væri í undirbúningi útboð á byggingu 250 íbúða á Keflavíkurflugvelli og væri innan seilingar utanríkisráðherra að slá því á frest. Einnig hefði Samband íslenskra samvinnufélaga í undir- búningi verulega mannaflsfreka og dýra framkvæmd við Kirkjusand, sem hlypi á hundruðum milljóna króna. „Þeir sem eru í fararbroddi þeirra sem heimta að dregið sé úr þenslu á höfuðborgarsvæðinu geta þama litið í eigin barm. Það hefði einnig vonandi góð áhrif á borgarstjórann í Reykjavík sem gæti þá samkvæmt góðu fordæmi slegið á frest hring- leikahúsi sínu ofan á Öskjuhlíðar- geymunum sem sumir landsbyggð- arþingmenn tala um sem níðstöng reista gegn landsbyggðinni á sama tíma og hitareikningar íbúða á köldu svæðunum slaga upp í 20 þúsund krónur á mánuði fyrir venjulegt einbýlishús,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson. Qarri raunveruleikanum. „Veturinn hefur verið harður og núna em að falla dýr sem hefðu fallið í fyrra eða hitteðfyrra ef vetur hefðu ekki verið óvenju mildir," sagði Jón. „Menn hafa fundið dýr með fulla vömb og ályktað sem svo að þau hafí ekki fallið úr hor. En dýr, sem þjáðst hefur af sulti, drepst ef það kemst í heyrudda og fyllir vömbina, því það þolir það einfaldlega ekki. Þetta eru jórturdýr og þola illa snögg fóðurskipti." Undir þessi orð tók Skarphéðinn Þórisson líffræðingur sem hefur haft eftirlit með hreindýrunum. Hann sagðist telja líklegast að þau hefðu fallið úr hor. „Þau dýr sem hafa fundist eru gömul dýr, kálfar og tarfar. Náttúran tryggir viðgang stofnsins með því að fóma þeim sem em ekki eins nauðsynlegir fyrir kýmar. Þetta er einfaldlega gangur lífsins. Fleiri hreindýr hafa fallið í vetur en endranær en þetta á ekki eingöngu við um hreindýr, einnig hafa fundist ijúpur dauðar úr hor. Þegar harðnar svona í ári, dregur af dýmnum og þau spekjast. Þess em dæmi að menn hafí elt þau á vélsleðum en einn sprettur getur eytt það miklu af orku þeirra að þau lifí ekki af veturinn." Uppstigningardagur: Fyrst og f remst spurn- ing um helgidagavinnu samkvæmt kjarasamningi Morgunblaðið/Ámi Helgason Stykkishólmur: Fyrsta heimsókn nývígðs biskups Stykkishólmi. BISKUP kaþólskra á íslandi, hr. Alfreð Jolson, kom í stutta heim- sókn til safnaðar síns hér i Stykkishólmi fyrir skömmu. Flutti hann messu í kirkju þeirra og tók séra Jan Habets á móti honum. Hann var boðinn hjartanlega velkominn i þessa heimsókn. Síðan fór hann um sjúkrahúsið, Þessi ferð hans var hraðferð þar skoðaði nýbygginguna og heimsótti sem viðdvölin var rúmur sólarhring- sjúklingana í allar stofur. Flutti ur. Hann fullvissaði fréttaritara um hann þeim mikla hlýju og létu þeir að það liði ekki langt þar til hann það óspart í ljósi við fréttaritara heimsækti Hólminn á ný og innsigl- Morgunblaðsins er hann kom f aði það í þéttu handtaki. heimsókn. — Ámi segir Jón Sigurðsson kirkjumálaráðherra „ÞAÐ er ekki á valdi verald- legra yfirvalda að færa til helgi- daga kirkjunnar, en hins vegar má velta því fyrir sér hvort helgi dagsins sé spillt með þvi að samningsaðilar á vinnumarkaði takmarki helgihaldið við tímann að Iokinni vinnu, og færi lög- bundið fri yfir á aðra daga ef það hentar þeim betur,“ sagði Jón Sigurðsson, kirkjumálaráð- herra, er hann var inntur álits á þeim hugmyndum samninga- nefnda Verkamannasambands íslands og vinnuveitenda að frídagar á uppstigningardag og sumardaginn fyrsta, sem alltaf bera upp á fimmtudag, verði teknir næsta mánudag á eftir. Ráðherrann kvaðst ekki líta á þetta sem spumingu um að færa til fasta helgidaga í dagatalinu, heldur fyrst og fremst um það, hvað væri helgidagavinna sam- kvæmt kjarasamningum. Lög um almannafrið á helgidögum þjóð- kirkjunnar eru frá árinu 1926 og þar er ákvæði um að banna alla vinnu úti og inni, sem hefur háv- aða í för með sér með þeim hætti að hún raski friði helgidagsins. Undanþágur eru gerðar vegna brýnna starfa, sem ekki mega falla niður. Uppstigningardagur er einn af helgidögum þjóðkirkjunnar og fellur undir þessi lög, en haft er eftir hen-a Pétri Sigurgeirssyni, biskupi íslands, í frétt Morgun- blaðsins síðastliðinn þriðjudag, að breyta þyrfti þessum lögum ef ákveðið yrði að taka upp virinu á uppstigningardag. Að sögn Jóns Ákveðið hefur verið að fram- lengja skilafrest í samkeppni læknaf élaganna „Mannvist í þéttbýli" um einn mánuð. Upp- haflega var ákveðið að skila- frestur rynni út síðasta dag fe- brúarmánaðar en hann verður framlengdur um einn mánuð. INIMLENT w Sigurðssonar kirkjumálaráðherra, eru engin áform um breytingar hvað þetta varðar af hálfu ráðu- neytisins að svo stöddu. „Mannvist í þéttbýli" er sam- keppni sem efnt er til vegna 75 ára afmælis Læknablaðsins og er henni ætlað að hvetja fólk til um- hugsunar um húsakost okkar og umhverfí og ieiða fram nýjar hug- myndir að umbótum í húsnæðis-, skipulags- og umhverfísmálum er geti stuðlað að betra mannlífi. Samkeppni þessi er jafnframt til heiðurs fyrsta ritstjóra Lækna- blaðsins, Guðmundi Hannessyni, prófessor, en hann var ötull bar- áttumaður fyrir bættum húsakosti og betra skipulagi bæja. Þátttakendur skulu koma úr- lausnum sínum, sem geta verið ritgerðir, uppdrættir, myndbönd, ljóð og fleira, til Útgáfústjómar læknafélaganna, Domus Medica, 101 Reykjavík eigi síðar en 31. mars næstkomandi. Mannvist í þéttbýli: Skilafrestur í sam- keppninni lengdur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.