Morgunblaðið - 06.03.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.03.1988, Blaðsíða 1
96 SIÐURB 55. tbl. 76. árg. SUNNUDAGUR 6. MARZ 1988 Prentsmiðja Morgrinblaðsins Tsjemobyl- slysið hið dýrasta í sögunni Moskvu, Reuter. SLYSIÐ í Tsjernobyl hefur kost- að Sovétríkin átta milljarða rúblna (um 500 milljarðar króna) og er að líkindum kostnaðarsam- asta slys mannkynssögnnnar. Þetta kom fram í ritinu Nedelja, helgarblaði Ízvestíju, sem er mál- gagn Sovétstjómarinnar. í grein- inni kom ennfremur fram að endan- legur kostnaður vegna slyssins væri síður en svo fram kominn. „Tölurnar benda til þess að hér ræði ef til vill um dýrasta slys, sem um getur í sögunni,“ sagði í grein- inni, sem fjallaði um eftirmál kjarn- orkuslyssins í Tsjernobyl. Það varð hinn 26. apríl árið 1986. Sprenging og eldur í kjamaklúfn- um olli dauða að minnsta kosti 31 og 200 til viðbótar þjáðust af geisl- unarveiki. Auk þess dreifðust geisl- unaragnir yfir nær alla Vestur- Evrópu. Sovétríkin: Geimferju brátt skot- ið á loft Moskvu, Reuter. MÁLGAGN sovézka kommúnista- flokksins, Pravda, skýrði frá því á föstudag að von bráðar myndu Sovétmenn skjóta fyrstu geim- ferju sinni á braut um jörðu. Pravda skýrði ekki frá því hvenær af geimskoti fetjunnar yrði en sagði að það yrði bráðlega. Ræddi blaðið við Igor Volk, sem er aðaltilrauna- flugmaður ferjunnar og skýrt er frá þjálfun hans og annarra geimfara, sem þátt munu taka í fyrstu ferðum geimferjunnar. Er þjálfun þeirra og undirbúningur sagður á lokastigi. Loðnuskipið Víkurberg veður í gegnum öldurnar á leið sinni á miðin. Morgunblaðið/Snorri Snorrason Öldurnar öslaðar Linnulausar flugskeyta- árásir í Persaflóastríðinu Nikósíu, Reuter. ÍRANIR og írakar skiptust á eldflaugaárásum í gær, sjötta daginn í röð. Að sögn stjórn- valda í Teheran, höfuðborg írans, hafa ekki færri en 90 manns fallið í árásum íraka og ítalskir sósíaldemókratar í vanda: Formaðurinn sagði af sér vegna fjármálamisferlis Milanó, frá Bcnedikt Stefánssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. ÍTALSKA lögreglan hefur lýst eftir forstjóra Framkvæmdastofnun- ar ríkisins, Giorgio Di Palma, sem grunaður er um aðild að mútu- hneyksli er teygir anga sína inn í æðstu valdastofnanir rikisins. Franco Nicolazzi sem sagði af sér formennsku i sósíaldemókrata- flokknum í bytjun vikunnar er einn þriggja fyrrverandi ráðherra sem bendlaðir eru við málið. Atkvæðagreiðsla um eftirmann hans á að fara fram í miðstjóm flokksins á þriðjudag. Þrátt fyrir að sterk rök hnígi i þá átt að Nicolazzi hafi þegið tugi milljóna króna í mútur segjast stuðningsmenn hans hafa tryggt sér atkvæði ríflega helmings miðstjórnarmanna. Nicolazzi hefur verið formaður sósíaldemókrataflokksins frá því að Pietro Longo neyddist til að segja af sér ráðherraembætti og síð' r formennsku í flokknum. Nafn Longo fannst á skrá frímúrararegl- unnar P2 sem skipulagði valdarán á Ítalíu. Nicolazzi skipaði Di Palma for- stjóra Framkvæmdastofnunar ríkisins þegar hann var ráðherra opinberra framkvæmda. I verka- hring Di Palma var að hafa yfirum- sjón með öllum byggingarfram- kvæmdum á vegum ríkisins. Sam- kvæmt framburði byggingameist- ara í Mílanó sem gengið hefur lög- reglunni á hönd tók Di Palma við mútum til ráðherrans og hafði jafn- framt milligöngu um verksamninga gegn greiðslu í eigin vasa. Svissneskir landamæraverðir handtóku Di Palma fyrir réttri viku þegar hann reýndi að komast yfir landamæri ríkjanna um fjallaskarð nálægt þorpinu Dommodossola. Forstjórinn gaf svissnesku landa- mæravörðunum þá skýringu á at- hæfi sínu að hann væri pólitískur flóttamaður. Að loknum yfirheyrsl- um var honum gert að greiða tæp- ar 30 þúsund ísl. krónur í sekt og sleppt að því búnu. Til Di Palma hefur ekkert spurst síðan og telur ítalska lögreglan eins líklegt að hann hafí ótrauður strokið yfir landamærin aftur. um 200 særst. Sendiherra ír- ana hjá Sameinuðu þjóðunum sagði í sjónvarpsviðtali að íran- ir væru reiðubúnir til að vinna að því að komið yrði á vopna- hléi í Persaflóastríðinu. IRNA, hin opinbera fréttastofa Irana, skýrði frá því í gær að tvær íraskar eldflaugar hefðu hæft íbúðahverfi í Teheran og hefði fjöldi óbreyttra borgara særst. Þessarar árásar hefndu íranir með því að skjóta eldflaug að Baghdad, höfuð- borg Iraks. Að sögn talsmanns írösku stjómarinnar féllu nokkrir óbreyttir borgarar í þeirri árás. Eftir því sem næst verður komist hafa Irakar skotið 28 eldflaugum að Teheran frá síðasta mánudegi og hafa íranir svarað með 13 flug- skeytaárásum á Baghdad. íranir segja um 90 manns hafa fallið í árásum þessum en írakar hafa ekki birt tölur um mannfall. Hermt er að bæði ríkin beiti sov- éskum eldflaugum af gerðinni „Scud“ sem geta borið allt að eins tonns sprengjuhleðslu. Að sögn Irna heldur lögregluvörður uppi gæslu við sovéska sendiráðið í Te- heran til að reiði borgarbúa bitni ekki á starfsmönnum þess. Irakar segja. tilgang árásanna vera þann að þröngva írönum til að fallast á ályktun Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé í stríði þjóð- anna sem staðið hefur í sjö og hálft ár. íranir kveðast reiðubúnir til að ganga til slíkra samninga með því skilyrði að írakar verði lýstir upphafsmenn átakanna. Stjórnvöld í Baghdad telja hins vegar að fyrst beri að semja um vopnahlé og síðan geti sérstök rannsóknamefnd Qallað um hvort ríkið hafi hleypt stríðinu af stað. Mohammad Mahallati, sendi- herra Irana hjá Sameinuðu þjóðun- um, sagði í viðtali við bandarísku sjónvarpsstöðina ABC að stjórn sín hefði tilkynnt Javier Perez de Cuell- ar, aðalritara Sameinuðu þjóðanna, að Iranir væru tilbúnir til að vinna að því að ályktun samtakanna öðl- aðist gildi. Ónefndur bandarískur embættismaður sagði í samtali við fíeuters-fréttastofuna að Iranir hefðu sent de Cuellar bréf en ekki væri ljóst hvort þeir væru reiðubún- ir til að fallast á vopnahlé. í fréttum ABC var haft eftir bandarískum embættismönnum að þrátt fyrir þetta væri um þýðingarmikla tii- slökun að ræða af hálfu Irana. Irak- ar hafa fallist á ályktun Sameinuðu þjóðanna og heitið að virða hana geri óvinurinn slíkt hið sama.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.