Morgunblaðið - 09.03.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.03.1988, Blaðsíða 1
72 SÍÐUR B STOFNAÐ 1913 57. tbl. 76. árg. MIÐVIKUDAGUR 9. MARZ 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins Sovétríkin: Gagnrýna frétta- flutning af óeirðum Fórnarlambanna minnst í Jerevan Moskvu, Reuter. VIKURITIÐ Moskvu-fréttir gagnrýndi í gær sovésk yfirvöld fyrir að hafa ekki gefið nægar upplýsingar um róstumar i Azerbajdzhan og Armeníu í síðasta mánuði. í grein sem byggð er á fréttum og upplýsingum sem blaðamenn fengu af atburðunum segir, að frétta- fiutningur af óeirðunum hafi einkennst af „seinagangi og hiki“. í greininni í Moskvu-fréttum sem verið hefur framarlega í flokki blaða sem krafist hafa aukins og ná- kvæmari fréttaflutnings í anda „glasnost“-stefnu Gorbatsjovs Sov- étleiðtoga, segir meðal annars: „Engar áreiðanlegar upplýsingar fengust frá yfirvöldum um óróleik- ann sem hrundið var af stað af smáglæpamönnum í Azerbajdz- han," og blaðið bætir því við að ástæða uppþotanna hafi verið orð- rómur og kjaftasögur. Engar fréttir voru af óeirðunum í sovéskum fjölmiðlum í gær. Sam- kvæmt fréttum Reuters-fréttastof- unnar tóku hins vegar þúsundir Armena þátt í minningarathöfn í gær í Jerevan um þá sem féllu í óeirðunum. Að sögn sovéskra emb- ættismanna féll 31 maður er Az- erbajdzh önum og Armenum laust saman í borginni Súmgajt í Az- erbajdzh an um síðustu mánaða- mót. Blómsveigur var lagður á minnismerki um þá sem féllu í átök- um við Tyrki árið 1915 og síðan var gengið að Óperu-torginu þar sem flutt voru ávörp. Stór hluti þeirra sem þátt tóku í minningarat- höfninni voru konur en í gær var alþjóðlegi kvennadagurinn. IRA-menn felldir á Gíbraltar: Sprengiefni finnst í bifreið á Spáni Madríd, Reuter. SPÁNSKA lögreglan fann sprengju í gær í bifreið í bænum Marbella. Hafði hún verið tekin á leigu í bæ í nágrenni Marbella. Bifreiðin er talin hafa verið á vegum írskra skæruliða, sem skotnir voru á Gíbraltar á sunnu- dag. I bifreiðinni, sem er af gerðinni Ford Fiesta, fundust fimm pakkar af sprengiefni og klukka sem hugs- anlega hefur verið ætluð til að tíma- setja sprengingu, að sögn tals- manns lögreglunnar. Bifreiðin fannst í neðanjarðar-bílageymslu í miðborg Marbella, sem er 50 kíló- metra frá bresku nýlendunni Gíbraltar, þar sem þrír skæruliðar voru skotnir af öryggislögreglu á sunnudag. Lögreglan hefur leitað að sprengiefni frá því mennirnir þrír, sem allir voru meðlimir írska lýðveldishersins, IRA, voru skotnir. Breska stjómin hefur lýst því yfír að viðbrögð öryggislögreglunn- ar hafi komið í veg fyrir árás IRA á Gíbraltar. Talsmaður innanríkis- ráðuneytisins á Spáni sagði í sam- tali við Æeuíers-fréttastofuna að sprengiefnin sem fundust væru samskonar og IRA notaði alla jafna í sprengjuárásir sínar. Klukkan sem fannst í bílnum var stillt á 11.20, sem er sami tími og skipt var um varðliðasveitir við bústað landstjór- ans á Gíbraltar, athöfn sem dregur að Qölda áhorfenda. IRA-mennimir sem skotnir vom skildu eftir hvita Renault-bifreið við bústað landstjórans á Gíbraltar og er talið að þeir hafi gert það til þess að geta síðar komið þar með bifreið sem hefði að geyma virka sprengju. Telur lögregla að málið sé að mestu upplýst. Sjá einnig „Thatcher hvött... á bls. 31. Thor tekur við verðlaununum THOR Vilhjálmsson rithöfundur tók við bókmennta- verðlaunum Norðurlandaráðs í Tónlistarhöllinni í Ósló í gær. Hann er þriðji íslendingurinn sem fær verðlaunin, hinir em Ólafur Jóhann Sigurðsson og Snorri Hjartarson. Það var Jan P. Syse, forseti Norðurlandaráðs, sem afhenti Thor verðlaunin og sést hann á myndinni ásamt Thor og Elsi Hátemáki- Olander, fyrmm forseta Norðurlandaráðs. Við afhendingu verðlaunanna sagði Ingmar Sved- berg finnski fulltrúinn í úthlutunarnefndinni þegar hann kynnti Thor Vilhjálmsson og ritverk hans að verðlaunabókin, Grámosinn glóir, væri í 'senn mikil og hrífandi íslensk skáldsaga og mikil og hrífandi norræn skáldsaga. í upphafi þakkarræðu sinnar sagði Thor Vil- hjálmsson: „Við lifum á tímum hinnar upphöfnu lágkúm. Hins íburðarmikla auvirðis. Öll skynjum við að við þörfnumst einhvers annars. Það kemur ekki mál við mig þótt menn séu að syngja eða láta syngja yfir sér, eða allir í kór: la det svinge — en mætti ég spyija: Hvað á að sveiflast og hvemig? Kannski fest upp á hæsta gálga, eða bara dingla eins og sprellikarl, eða hengilmæna með taktmæli?" Sjá fréttir frá þingi Norðurlandaráðs á bls. 31 og ræður Þorsteins Pálssonar, Matthíasar Á. Mathiesens og Thors Vilhjálmssonar á miðopnu. Stefndi í yfirburða- sigur Georges Bush Washington, Reuter. FLEST benti til þess að George Bush, varaforseti Banda- ríkjanna, myndi vinna yfirburða- signr í forkosningum flokkanna vestra þegar Morgunblaðið fór í prentun í gær. Mikil spenna ríkti meðal stuðningsmanna Bush vegna þessa, en hann hafði látið Pólland: Lögregla réðst með kylf- um gegn mótmælendum Varsjá, Reuter. TIL ATAKA kom milli lögreglu og mótmælenda i borginni Kraká í Póllandi í gær. Pólskir stúdentar efndu til fjöldafunda í fjórum borgum til að minnast þess að 8. mars 1968 réðist lög- regla á mótmælagöngu stúdenta í Varsjá. Atburðurinn í Varsjá 1968 er talinn hafa komið af stað víðtæk- ustu stúdentaóeirðum sem orðið hafa í landinu. Var efnt til þeirra vegna aðgerða yfirvalda gegn gyð- ingum og menntamönnum. Þús- undir háskólaborgara voru reknir frá störfum og 20.000 gyðingar flýðu land. Að sögn sjónarvotta í Kraká í gær barði lögreglan mótmælendur með kylfum. Stúdentar, undir for- ystu rektors háskólans, Grzegorz Bialkowskis, hlóðu götuvígi úr ruslatunnum og almenningsbekkj- um og köstuðu gijóti að lögregl- unni. Þrír slösuðust í barsmíðum lögreglunnar og talið er að allt að hundrað manns hafi verið hand- teknir. Ekki kom til átaka á fjölda- fundum í Varsjá og Gdansk. í málgagni pólska kommúnista- flokksins Trybuna Ludu í síðustu viku var viðurkennt að árið 1968 hefðu stúdentar krafist lýðræðis- legra breytinga og hefðu ranglega verið kallaðir endurskoðunar- sinnar. Einnig sagði í blaðinu að aðgerðir sem beinst hefðu gegn gyðingum og menntamönnum hefðu verið harðneskjulegar og valdið miklum harmi. Reuter hafa eftir sér að í raun gæti valið staðið um hver yrði næsti forseti Banda- ríkjanna. Forkosning- ar repúblik- ana fóru fram í 17 ríkjum, en demókratar gengu til kjörborðs í 20 ríkjum. í George Bush‘ kosmngun- um eru valdir fulltrúar, sem sækja munu landsfundi flokk- anna síðsumars, og þar verða forsetaframbjóðendur þeirra valdir. Talið var að meðal demó- krata myndi Michael Dukakis, ríkisstjóri Massachusettes, vinna mest á, en svertinginn Jesse Jackson fylgja honum fast á hæla. Samkvæmt skoðanakönnunum sjónvarpsstöðva, sem gerðar voru utan við kjörstaði, naut Bush allt að þrisvar sinnum meira fylgis en öldungadeildarþingmaðurinn Robert Dole og ekki talið ólíklegt að Bush sigraði í öllum ríkjunum 17. Bush var þó varkár í orðavali, minnugur þess að í New Hampshire var Dole spáð naumum sigri, en Bush sigraði svo með talsverðum mun. Þegar Bush kaus í heimaríki sínu Texas lét hann þau orð falla að ef kosinn yrði „ótvíræður og sannfær- andi sigurvegari" í forkosningum repúblikana hefði um leið verið kjör- inn næsti forseti Bandaríkjanna. Hjá báðum flokkunum var til mikils að vinna fyrir frambjóðend- ur, því samanlögð tala þeirra full- trúa, sem kosið var um, nemur um einum þriðja allra landsfundarfull- trúa. í herbúðum demókrata voru þeir Michael Dukakis og Jesse Jackson sigurstranglegastir. Það kynni þó að draga úr fylgi Dukakis að tals- vert virtist vera um það í þeim níu ríkjum, þar sem menn ráða í for- kosningunum hvors flokksins þeir kjósa, að demókratar ráðstöfuðu atkvæði sínu í forvali repúblikana. Það gæti hins vegar styrkt stöðu Jesse Jacksons til muna. Sjá ennfremur á síðu 30, „Demókratar í val- þröng . . . “
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.