Morgunblaðið - 12.03.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.03.1988, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B OG LESBOK 60. tbl. 76. árg. LAUGARDAGUR 12. MARZ 1988 Prentsmiðja Morgxinblaðsins Efnahagsaðgerðir í Noregi: Launin hækka um 1% á árinu Ósló. Reuter. Minnihlutastjórn norska Verkamannaflokksins kynnti i gær að- gerðir sinar í efnahagsmálum en þær felast aðallega í því að setja miklar skorður við launahækkunum. Gert er ráð fyrir, að á þessu ári nemi almenn launahækkun ekki nema einu prósenti til jafnaðar. Búist er við, að tillögur stiórnarinnar verði samþykktar á þingi. „Vegna þessara ráðstafana get- um við gert okkur vonir um minn'. verðhækkanir og aukna samkeppn- isgetu norsks iðnaðar enda er það forsenda fyrir velferðinni og fullri atvinnu," sagði Gro Harlem Brundt- land forsætisráðherra á blaða- mannafundi í gær og Gunnar Berge fjármálaráðherra sagði, að erfið- leikamir í norskum efnahagsmálum fælust í víxlhækkun launa og verð- lags. „Hún getur ekki haldið áfram,“ sagði hann. Norðmenn eiga við það að stríða, að verðið fyrir Norðursjávarolíuna, burðarásinn í efnahagslífinu, hefur farið lækkandi, viðskiptajöfnuður- inn er mjög óhagstæður og verð- bólgan um 7%, miklu meiri en í flestum viðskiptalöndum þeirra í Evrópu. Launastöðvunin á að standa fram í apríl á næsta ári en hún þýðir í raun, að almenn kaup- hækkun á árinu nema til þeirra lægstlaunuðu verður ein norsk króna, rúmar sex ísl. kr., átímann. Efnahagsmálasérfræðingar hafa fagnað ráðstöfunum stjómarinnar en aðra sögu er að segja af 350.000 launþegúm, sem eru í félögum utan norska alþýðusambandsins. í gær lögðu margir þeirra niður vinnu í tvær stundir til að mótmæla því, að stjómin hafði aðeins samið við alþýðusambandið og 800.000 fé- laga þess um launastefnuna. Reuter Þessi börn i Vin voru dálítið andaktug á svip þegar þau og margir landar þeirra minntust þess í gær með einnar mínútu þögn, að fyrir 50 árum máðu Hitler og hermenn hans Aust- urríki af landakortinu. Innlimun Austurríkis 12. mars 1938: Blygðumst okk- ar fyrir fortíðina í DAG, 12. mars, er hálf öld liðin siðan Austurriki var innlimað í Þýskaland nasismans og hefur þess verið minnst með ýmsum hætti í landinu. Eru þetta erfið timamót fyrir Austurríkismenn þvi að margir fögnuðu á sinum tíma sameiningunni við Þýska- land og Waldheim-málið hefur fortiðina. í sjónvarpsávarpi, sem Kurt Waldheim, forseti Austurríkis, flutti í fyrrakvöld, baðst hann afsökunar á þeim glæpum, sem austurrískir nasistar frömdu í stríðinu, og Leopold Gratz, forseti þingsins, sagði í gær, þegar hann afhjúpaði minnismerki um þing- menn, sem nasistar drápu, að öll þjóðin ætti að blygðast sín fyrir það, sem gerðist í landinu eftir sameininguna við Þýskaland. „Guð blessi Austurríki" voru síðustu orð Kurts Schusehniggs Austurríkiskansiara fyrir fimmtiu árum þegar hann sagði af sér vegna þrýstings frá Hitler og lét embættið í hendur nasistanum Artur Seyss-Inquart. í viðtali, sem Anna Bjamadóttir, fréttaritari Morgunblaðsins í Ziirich, hefur átt við Otto von Habsburg, son orðið til að minna óþyrmilega á Karls I, síðasta keisara Austurrík- is, kemur meðal annars fram, að hann hafi árangurslaust reynt að fá Schuschnigg til að veíta Þjóð- veijum viðnám. Segir hann m.a. í viðtalinu: „Ég vildi, að Austurríki að- hefðist eitthvað svo að landið yrði áfram merkt inn á landabréf þótt það væri hemumið. Auk, þess var agnarsmár möguleiki, að hem- aðaraðgerðir Þjóðverja mistæk- just. Mér fannst Schuschnigg komast einkar illa að orði þegar hann sagðist ekki vilja bera ábyrgð á að blóði Þjóðverja yrði úthellt. Ég hefði orðað það öðm- vísi. Ég hefði sagt, að ég vildi sjá hvort herra Hitler vildi úthella blóði Þjóðveija." Sjá „Sameining Evrópu ..." á miðopnu og frétt á bls. 30. Upptökurfrá átökunum Armenar, sem komið hafa til Moskvu, hafa haft þangað með sér myndbönd með upptökum af átökun- um í hinu umdeilda héraði Nagomo-Karabakh. Em þau sex klukkustunda löng og sýna atburði þriggja daga í höfuðstað héraðsins, Stepanakert, bmnnin og brennandi hús, bfla og strætisvagna; fólk, sem hefur slasast í óeirðunum og mikinn mannfjölda hrópa niður Fjotr Demísjov, fyrsta aðstoðarforsætis- ráðherra Sovétríkjanna. Hafa Armenamir komið eintaki af upptökunum til Míkhafls Gorbatsjovs, leið- toga Sovétríig'anna, til að sýna hve alvarleg átökin vom. Myndin að ofan var tekin í borginni Kirovakan í Armeníu 25. febrúar þegar þúsundir manna efndu til mótmæla á aðaltorginu. Komust fréttamenn Reut- ers yfir hana eftir óopinbemm leiðum. * * Iran-Irak: Fallast á vopna- hlé í „borgastríði“ Olíukaup Irana á Vesturlöndum vekja undrun Nikósíu, Amsterdam. Reuter. ÍRANIR lýstu yfir í gærkvöld, að þeir hefðu ákveðið að hætta árásum á borgir i írak en þá um daginn höfðu írakar skotið 11 eldflaugum á íranskar borgir og fylgt þeim eftir með miklum árásum sprengjuflugvéla. íranir hafa keypt allverulegt magn af unninni olíu í Vestur-Evrópu og hafa þessi olfukaup vakið mikla undrun. írakar höfðu áður gefið írönum frest til miðs dags f gær til að hætta árásum á borgir í írak og áskildu sjáifum sér rétt til að eiga sfðasta orðið í „borgastríðinu". Ifyrr um daginn skutu þeir 11 eldflaug- um á borgir í íran, meðal annars á hina helgu borg; Qom, og sendu síðan tugi sprengjuflugvéla til árása á mikilvæg skotmörk. íranir skutu tveimur eldflaugum á Bagdad en lýstu síðan yfir, að þeir ætluðu að hætta „borgastríðinu" ef írakar gerðu slíkt hið sama. Gffurlegt tjón hefur orðið f eld- flaugaárásunum á borgimar og hundruð manna látist. íranir hófu þær fyrir alllöngu en f þessari síðustu hrinu hafa írakar verið mun stórtækari og ráða augljóslega yfir miklu fleiri eldflaugum. Á það vafa- laust sinn þátt f, að íranir láta sér lynda vopnahlé, sem írakar hafa ákveðið. Fréttir um, að íran, sjálft olíu- framleiðsluríkið, hafi keypt stóra olíufarma í Vestur-Evrópu hafa vakið mikla undrun enda er ekki vitað til, að það hafi gerst áður. Nýlega keyptu íranir t.d. 240.000 tonn af dfsilolfu af vestur-þýsku fyrirtæki og orðrómur er um fleiri álíka samninga. íranskar olíu- hreinsistöðvar hafa orðið illa úti í árásum íraka en ekki er ljóst hvort þessi miklu oliukaup bendi til, að Iranir séu ekki lengur sjálfum sér nægir um hreinsaða brennsluolíu. Þingi Norðurlandaráðs lokið: Afstaðan til EB eitt aðalmálið Ósló. Frá Steingrími Sigurgeirssyni, blaðamanni Morgunbladsins. ÞINGI Norðuriandaráðs, þvi 36. í röðinni, lauk í Ósló í gær með afgreiðslu fjárlaganna og jafnframt var frá þvi skýrt, að næsta þing yrði haldið í Stokk- hólmi í febrúar að ári. • Ólafur G. Einarsson, formaður íslensku sendinefndarinnar, sagði í viðtali við Morgunblaðið, að al- menna umræðan á þinginu hefði ekki síst einkennst af tilraunum vinstrimanna til að ræða um ut- anríkismál rfkja utan Norðurlanda en einna merkustu samþykktina sagði hann hafa verið gerða um samstarf þjóðanna f menningar- og æskulýðsmálum. Matthías Á. Mathiesen, sem er einn af norrænu samstarfsráð- herrunum, sagði, að fyrir þingið hefði verið ljóst, að Norðurlönd og Evrópubandalagið yrðu eitt aðalmálið og hefði það berlega komið í ljós í almennu umræðun- um. Sagði Matthías, að eftir þing- ið væri á því aukinn skilningur, að Norðurlöndin yrðu að auka samstarfið í viðskiptamálum og hrinda í framkvæmd hugmyndinni um norrænan heimamarkað. Sjá fréttir frá þinginu á bls. 29.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.