Morgunblaðið - 17.03.1988, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 17.03.1988, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MARZ 1988 Bjarni Olafsson skrifar frá Holstebro, Danmörku Árið 79 e.Kr. lagðist 6 metra þykkt lag af ösku og vikri yfir borgina Pompei. Minjar genginna kynslóða Rómaborg: það varð mér ógleymanleg op- inberun, er ég komst til Róma- borgar í fyrsta sinn, nú um miðjan febrúar. Það var næstum eins og tíminn hefði stöðvast og snúið til baka. Einhvemveginn var eins og maður gæti búist við að mæta á götu rómverskum hermönnum frá dög- um keisaranna, jájafnvel senator- um eða keisara, ambáttum og þrælum. Leiðsögumaður fylgdi okkur um rústir þær sem grafnar hafa verið upp og rannsakaðar frá tímum keisaranna. Það var sænski ambassadorinn í Róm, C.F. Fredenheim, barón, sem hóf uppgröft á þessum slóðum. Þama er Curian sem senator- amir þinguðu í og þama em rúst- ir hofs Agústusar keisara. Hann á það litlu bami, sem fæddist í Betlehem, að þakka að nafn hans er nefnt um hver jól. Hof Júlíusar ■Cesars stóð þama, sigurbogi Títusar reistur eftir að hann hafði lagt Jerúsalem í rúst og sigrað Gyðinga. Til að gera þessum sögulegu minjum einhver skil þarf að rita heila stóra bók. Gamall steinlagður vegur sem er upp í 11 metra breiður, Via Appia Antica heitir hann, liggur í suður frá Rómaborg. Hann er lagður stómm grágrýtissteinum. Við hann stendur kirkjan Domine Quo Vadis, „Herra hvert ætlar þú?“ og segir helgisagan að þar hafi Pétur postuli mætt Jesú er Pétur var að flýja úr fangelsinu. Eftir þessum vegi gengu her- sveitimar sem fóm til að beija á öðmm þjóðum. Oft friðsömum þjóðum. Fjölmargir hinna ungu hermanna komu aldrei aftur. Eft- ir þessum vegi þokuðust þreyttar sveitir, með lestir hlekkjaðra fanga, karla og kvenna, sem áttu sumir ekki annað eftir en að skemmta kvölumm sínum með kvalafullum dauða, eða þjóna þeim í auðsveipni, meðan heilsa lejrfði. Steinamir í veginum gætu sagt fi-á ýmsu, mættu þeir mæla. Já, enda þótt þeir fái ekki mælt, verðum við margs vísari við að sjá þessi fomu mannvirki. Þama er Colosseum, sem rúmaði 45.000 áhorfendur í númemðum sætum og 5.000 stæði og áhorf- endur gengu inn um 66 númemð hlið. Múr sem byggður var kring- um Rómaborg var 19 km langur og enn em 14 km uppistandandi. Höggmyndir og málverk, mosaik, gosbrannar og garðar, auk fag- urra bygginga. Margt er enn ótalið, því auðæf- in em svo mikil í listaverkum. Sjálf Péturskirkjn og Vatíkanið, yfírfull af myndlist hinna miklu meistara, en dýpst snart mig er ég stóð við Píetá eftir Michelang- elo. Myndin sýnir Maríu sitja með Jesú dáinn í fanginu. Sagan segir að Michelangelo hafi ekki verið nema 24 ára er hann vann þetta fræga verk. Þrátt fyrir allt þetta og miklu meira af verðmætum, finnst mér fljótt á litið að íbúamir í þessar stóm og sögufrægu borg líkist íslendingum í mörgu. Allar þessar frægu rústir em þeim hversdags- legar, e.t.v. ekki mikils virði. Þeir eiga alltof marga bíla, eins og við. Það er engin leið að koma þeim öllum fyrir. Það er hvergi reiknað með að gangandi vegfar- endur þurfi að komast leiðar sinnar. Reykur og blý frá öku- tækjum skemmir mannvirkin óð- fluga, að ekki sé talað um heilsu fólksins. Samt em þeir góðviljaðir og hjálpsamir og fúsir að ræða við ókunnuga. Höfundur er smíðakennari. nlÐNTÆKNISTOFNUN ÍSLANDS Stjórnendur Aukin framleiðni-betriafkoma - POSPAK - ASBJORN HABBERSTAD A/S er virt, norskt ráðgjafafyrirtæki, sem hefur þróað POSPAK aðferðina tilþess að auka heildarframleiðni. JENS-JORGEN JULSRUD rekstrarráðgjafi hjá Habberstad hefurmikla reynslu í kennslu og ráðgjöfá POSPAK. Námskeiðið erhaldið á ensku. - Staður: Holiday Inn Tími: 24.-25. mars kl. 8.30-17.00. Skráning: (91)-687000, Iðntæknistofnun. Upplýsingar: Ingvar Kristinsson. Verð.Kr. 16.900,- Aukum framleiðni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.