Morgunblaðið - 17.03.1988, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MARZ 1988
4$
Lúðanum Ronald Iærist að ekki er allt falt fyrir fé.
Aumt er ástlaust fé
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
BÍÓHÖLLIN:
NÚTÍMASTEFNUMÓT -
CAN’T BUY ME LOVE
Leikstjóri: Steve Rash. Fram-
leiðandi: Thomas Mount. Hand-
rit: Michael Swardlick. Tónlist:
Robert Lyons. Kvikmyndatöku-
stjóri: Peter Lyons Collister.
Aðalleikendur: Patrick Demps-
ey, Amanda Peterson, Courtney
Gains, Tina Caspary, Seth Green,
Sharon Farrell. Bandarísk.
Touchstone 1987.
í tugum mynda um amerískan
æskulýð hefur ekki gleymst hlutur
„hallærisgæjanna", öðru nær, þeir
hafa verið vel þegið krydd í ungl-
ingamyndaflóðinu sem nú er bless-
unarlega að linna. Nútímastefnu-
mót fjallar einmitt um hvernig einn
lúðanna (Ronald) svindlar sér með
klókindum inní raðir hinna útvöldu.
En í þeirra hópi er að finna diskó-
drottningamar, þokkadísimar,
harðjaxlana, fótboltastjömumar,
alla þá sem eru á vinsældalista
skólafélaganna. Aðferð Ronalds við
að komast inní klíkuna er einföld,
gamalkunn, en ekki að sama skapi
óbrigðul. Fýrir væna fúlgu kaupir
hann um mánaðartíma vináttu og
félagsskap Cindyar, vinsælustu og
fallegustu stúlku bekkjarins. Og
viti menn, ráðabruggið gengur upp,
klíkan bítur á agnið, skyndilega er
skussinn orðinn hrókur alls fagnað-
ar, umvafinn glanspíum og fótbolta-
görpum. En þá sannast hið fom-
kveðna að aumt er ástlaust fé því
fegurðardrottningunni Cindy er far-
ið að þykja gamanið grátt og flett-
ir ofanaf hneykslinu. Lendir nú
Ronald garmurinn í einskismannsl-
andi félagslífsins, brottrækur gerr
úr hópi útvaldra og hallærisklíkan
hans gamla hefur snúið við honum
bakinu!
Ekki merkilegur efniviður en af
honum má draga þau gömlu og
góðu sannindi að engum er hollt
að reyna að vera eitthvað annað
en hann sjálfur, þá eru menn komn-
ir útá hálan ís þar sem erfitt er að
verjast falli. Og Ronald garmurinn
paufast um á þessum villigötum
allt að lokum myndarinnar er hann
uppgötvar stórasannleik tilvemnn-
ar og lífið tekur að brosa á ný.
Jákvæð niðurstaða myndarinnar er
afgreidd svo ljómandi snyrtilega að
kauðsk og ýkt framvinda Nútíma-
stefnumóts fyrirgefst og þegar á
heildina er litið er hún í þokkalegu
meðallagi miðað við unglingamynd-
ir, þó það sé svo sem ekkert oflof.
Leikstjórinn, Steve Rash, sem m.a.
gerði „The Buddy Holly Story,“
hina skinandi góðu mynd um goð-
sögnina, kemst klakklaust í gegn-
um torfíð og aðalleikaramir em hin
geðslegustu ungmenni. Og þar sem
myndin gerist í Arizona fer ekki
hjá því að hetjumar hverfí inní sól-
setrið í myndarlok, reyndar á garð-
sláttuvélarræksni!
nútimaíeg hönnun
FALLEG
OG VÖNDUO
máraöasarnan
fáanlegar or
skáphuröir met
áaeöunum
paer eru
a nvitu og
SAUXWi'u^
asf-
Þar sem góöu kaupin gerast.
Smiðjuvegi 2 Kópavogi
sími 44444
INNRÉTTINGA- OG HÚSGAGNASÝNING UM HELGINA
OPIÐ LAUGARDAG KL. 10 - 16 OG SUNNUDAG 14-17
IConica
U-BIX
UÓSRITUNARVÉLAR
Árekstur á
Fellabökum
Laugarhóli, Bjarnarfirði.
ÁREKSTUR varð á veginum á
Fellabökum ekki langt frá
Hólmavík í gær, þriðjudaginn
8. mars. Var þarna á ferð bíll
frá ísafirði á heimleið að því
er virtist og bfll frá Reykjavík
á suðurleið. Ekki mun hafa orð-
ið mikið tjón í árekstrinum, sem
varð í brekku.
Það gekk á með éljum er árekst-
urinn varð og virðist bíll sá er var
á leið niður brekkuna hafa skrikað
í hálku.
Vegurinn um Fellabök hefir
verið mikil árekstra- og slysagildra
á Djúpvegi, eftir að leiðin um
Steingrímsfiarðarheiði opnaðist og
fært er til Isafjarðar allan ársins
hring. Era þama margar blind-
hæðir og blindbeygjur, sem hafa
orsakað bæði minni og stærri slys
á undanfömum ámm, þó meira
að sumarlagi með aukinni umferð,
en að vetrarlagi.
Ekki er á áætlun vegamála að
gera neitt við þessa slysagildra
fyrr en eftir 1990, þótt öllum sem
til þekkja sé ljóst að þama hefði
þurft að hefja þær vegabætur sem
nú standa yfir hér í norðanverðri
Strandasýslu.
- SHÞ
ptorijiiwMsifoifr
Gódandaginn!
NEOLT teikniborð
hirslur og teiknivélai
/\llt fyrir teiknistofuna
Teikniborð frá k:r. 6.-400
eiknivélar -frá kir. 10.900
Hallarmúla 2 Sími 83211