Morgunblaðið - 17.03.1988, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 17.03.1988, Blaðsíða 54
r\ ooor V9AV vr aTrn/.nTTTMMn fTTf7A.TnMTT0fT0M 54 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MARZ 1988 Þórarinn E. Hafberg verkstjóri Fæddur 7. janúar 1915 Dáinn 9. mars 1988 Ég ætla í örfáum orðum að minn- ast góðvinar míns Þórarins Haf- berg. Ég ætla ekki að rekja ævi- sögu hans, læt þeim það eftir sem betur kunna með að fara. Við vorum nágrannar í nokkur ár. Og betri vini og granna hefí ég ekki kynnst en þeim sæmdarhjón- um Þórami og Guðrúnu eiginkonu hans. Alltaf gátum ég og bömin mín leitað til þeirra á erfiðum sem og gleðistundum. Vinátta var svo góð sem sést best á því að bömin mín íjogur kölluðu þau afa og — Minning ömmu á Réttó. Við munum lengi minnast veiðiferðarinnar sem við fórum að Djúpavatni og voru þar í nokkra daga í veiðihúsi. Alltaf hafði Þórarinn skemmtilegar sögur að segja okkur, og í mörg ár á eftir var mikið gert grín að aflanum sem var mikill, en mest á stærð við sardínur, en allir stórir sem smáir veiðimenn voru ánægðir eftir veiði- og gönguferðimar. Alltaf þegar ég kom í morgun- kaffí (sem var æði oft), var tekið á móti mér með hlýju handabandi og kossi á kinn og brosi á vör, og/eða sagt að það væri búið að laga kaffí og meðan Gunna mín útbjó meðlæt- ið töfraði Þórarinn nokkrar skemmtilegar sögur, alltaf sömu hlýlegheitin og vinsemdin í minn garð, og það langar mig að þakka og á ég eftir að sakna þessara morgunstunda mikið. Það var erfítt að segja lítilli tæplega fjögurra ára dóttur minni þessar fréttir, en eftir dálitla umhugsun sagði hún: „Þór- arinn afí var veikur í hjartanu sínu og læknamir gátu ekki lagað það. Svo nú er hann dáinn og fer þá upp til guðs," síðan hallaði hún sér að öxlinni á mér og grét. Þórarinn var hagleiksmaður við smíðar og eigum við íjölskylda mín nokkra góða smíðisgripi eftir hann. Svo málaði hann og teiknaði mjög góðar mynd- ir, en þessu hélt hann ekki mikið á lofti. Sýnir það hversu hæverskur hann var. Og nú að leiðarlokum viljum við kveðja góðan vin og þakka allt. Elsku Gunna mín, böm, tengda- böm og bamaböm. Við sendum ykkur okkar dýpstu samúðarkveðj- ur. Guð gefí líkn þeim sem lifa. Ágústa, Hreinn, Dóra, Sirrý, Gummi og Sigrún. Vinur minn og æskufélagi, Þór- arinn, lést snögglega hinn 9. mars sl., 73ja ára að aldri. Þegar ég frétti lát hans rifjuðust upp þær mörgu ánægjustundir er við áttum í æsku og á unglings- árum. Þórarinn var fæddur í Reykjavík og ól allan sinn aldur hér. Foreldrar hans voru Oddrún Jónsdóttir og Engilbert E. Hafberg, auglýsinga- stjóri Morgunblaðsins og síðar bóndi í Viðey. Þórarinn ólst upp hjá Ingibjörgu Eysteinsdóttur föðurömmu sinni, HVAR ER ÓDÝRAST AÐ VERSLA? ER UMBOÐIÐ ALLTAF DÝRAST? I nýgerðri verðkönnun Verðlags- stofnunar kemur fram að verð á varahlutum í þá bíla, sem Hekla hf. hefur umboð fyrir, er lægst í Varahlutaverslun Heklu hf. í 7 tilfellum af 12. Þar að auki var Hekla hf. aldrei með hæsta verð á þeim varahlutum, sem könnunin tók til. Þessar niðurstöðureru sannarlega góður vitnisburður um að varahlutir geta verið ódýrastir hjá viðkomandi bifreiðaumboði. 113% VERÐMUNUR í könnun Verðlagsstofnunar kom fram að það munaði allt að 113% á verði varahlutar í Heklu hf. og samskonar vara- hlutar í þeirri verslun, sem hæsta verðið hafði. Það liggur því í augum uppi að hægt er að spara verulega með því að kaupa þar sem verðið er lægst. GÆÐIN SKIPTA LÍKA MÁLI í varahlutaverslun Heklu hf. eru aðeins seldir viðurkenndir vara- hlutir með ábyrgð, sem stand- ast ýtrustu kröfur framleiðenda bílanna. Umboö Bilanaust Borgar- túni 26 Háberg Skeifunni Sa Oliu- élagiö hf. (Esso) GS vara hlutir Hamars- höföa 1 I. Erlings- ' son Ármúla 36 Oliufélagiö Skeljungur (Shell) Blossi Ármúla 15 Oliuversl* un íslands (Olis) Stilling Skeif unni 11 Álimingar Ármúla 22 Laegsta verð Hæsta verö Mismunur í % 1 | MITSHUBISI GALANT 1600 í ÁRG . 1983 — HEKLA HF ‘í Kerti 1 stk 90* 02 110* 110 105 116 03 125 109 oo 125 38,0% • Platina 110 110 144 153 185 106 1 56 108 165 55,7% Lofftsia 248 " 403 378 248 403 62,5% * Oliusia 237* 312 305 237 312 31,6% 1078* 1514 1277 1 200 1078 1514 40,4% ~* Bromsuklosaar, 4 stk. 848 845 578 1 280 877 884 576 1260 118,8% Stýrlsendi 758 780 600 800 760 10,1% Kúplingsdiskur 1710* 1750 2270 1050 1700 1710 2270 33,3% * Kúpllngspressa 2280 ' 2270 3004 3814 2250 3814 80,6% “ Þurrkublað 105* 320 301 41 5 314 287 105 415 112,8% ~* 201 187 170 205 170 205 20,8% Kveikjulok 250 245 218 280 345 283 255 216 345 50,7% Lmgata varð. Kynntu þér okkar verð - það borgar sig! HEKLAHF A Laugavegi 170-172 Simi 695500 RANGE ROVER MlNl^TR0; ágætri og velgefínni konu, sem sá vel um uppeldi hans, hlúði vel að honum og uppfræddi hann í guðs- ótta og góðum siðum. Eftir fermingaraldur tók hann þau störf sem honum buðust, sjó- mennsku, almenna verkamanna- vinnu og fleira, en öll þau störf sem honum voru falin leysti hann vel og samviskusamlega af hendi. Þór- arinn var mjög handlaginn, góður smiður og sérstaklega við alla fínlega hluti. Þórarinn giftist heitkonu sinni, Guðrúnu Ólafsdóttur, hinni ágæt- ustu konu hinn 21. maí 1938. Hef- ur hjónaband þeirra staðið í hart- nær 50 ár og mikil ástúð hefur verið á milli þeirra öll árin. Þegar Guðrún og Þórarinn hófu búskap áraði ekki vel fyrir ungu hjónunum að byrja lífsbaráttuna og afla tekna, sér og sínum til framfæris, því að á þessum árum var mikið atvinnu- leysi og fá tækifæri til þess að hljóta vinnu. Nú kom alvara lífsins fram og krafan um að sjá fjölskyldu farborða. Árið 1941 var styijöld skollin á, en þá hófst hér á landi svokölluð Bretavinna með næga atvinnu handa öllum. Árið 1947 byijar Þórarinn að starfa hjá Reykjavíkurborg og vann hann þar óslitið tæp 40 ár, þar af um 30 ár verkstjóri. Hann fór til Bretlands vegna uppskurðar á hjarta og tókst sú aðgerð eftir öllum vonum. Var hann mjög þakklátur öllum læknum og hjúkrunarfólki sem annaðist hann í veikindum hans þetta tímabil. Guðrún og Þórarinn eignuðust 4 böm, en þau eru: Ingibjörg, Ólafur, Engilbert og Sigurður. Þórarinn var mjög trúaður. Hann var í Fíladelfíusöfnuðinum og söng þar í kómum í áratugi. Þórarinn óttaðist ekki dauðann, hann treysti á Guð. Ég vil þakka Dóra vini mínum allar góðu stundimar sem við áttum saman. Þær em mér ætíð kærar. Guðrúnu, bömum og tengda- bömum sendi ég og Svava, kona mín, okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Hróbjartur Lútherson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.