Morgunblaðið - 30.03.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.03.1988, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B OG LESBOK STOFNAÐ 1913 75. tbl. 76. árg. MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1988 Málgagn sovéska kommúnistaflokksins: Thatcher sökuð um andsovéskan áróður Moskvu, Reuter. MÁLGAGN sovéska kommúnista- flokksins, Pravda, sakaði í gœr bresku stjórnina um að halda á loft andsovéskum skoðunum sem einkenndust af „sjálfbirgingi og siðleysi". í grein sem birtist í Prövdu í gær segir að á undanfömum árum hafi Bretar komist til áhrifa á alþjóðavett- vangi. Þessi nýja staða þeirra hafi krafist breyttrar afstöðu, þar sem ekki væri rúm fyrir „kaldastríðs- hugsunarhátt". „Þótt Bretar hafi lýst sig fylgjandi fækkun kjamorkuvopna á alþjóðlegum vettvangi, hefur at- höfn ekki fylgt orðum," segir í Prövdu. „Sjálfsbirgingsháttur og sið- leysi á ekkert skylt við áhuga á ör- yggi í heiminum eða velferð Bret- lands." Blaðið segir að breska ríkisstjórnin beri ábyrgð á því hversu lítill árang- ur náðist í afvopnunarmálum á fundi NATO-ríkjanna í Bmssel fyrr í þess- um mánuði. Segir blaðið að Margar- et Thatcher, forsætisráðherra Bret- lands, hafi beitt andsovéskum áróðri til að knýja fram samþykki við tillög- ur sínar um endumýjun á herafla bandalagsríkjanna. Pravda heldur því fram að á fund- inum í Bmssel hafi Thatcher hvatt til andstöðu við Sovétríkin innan NATO og meðal annars hafi hún lagt til að krafist yrði fækkunar í hefðbundnum herafla Austantjalds- landanna. Pravda minnist ekki einu orði á það, að breski forsætisráð- herrann hældi Míkhaíl Gorbatsjov fyrir hugrekkið sem hann sýndi með umbótatillögum sínu. Herteknu svæðin í ísrael: Fregnir berast af mann- falli þrátt fyrir lokun Sameinuðu þjóðirnar, Jerúsalem. Reuter. HERSVEITIR ísraelsmanna særðu 11 Palestínumenn í átökum á herteknu svæðunum í gær. Sam- tök erlendra blaðamanna í ísrael hafa kært lokun herteknu svæð- anna til hæstaréttar landsins. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna mun koma saman í dag til að íjalla um aðgerðir ísraelsstjómar á her- teknu svæðunum að sögn Clovis Maksouds, talsmanns Arababanda- át lagsins hjá Sameinuðu þjóðunum eft- ir að hann átti fund með Javier Perez de Cuellar framkvæmdastjóra SÞ. Palestínska fréttaþjónustan, sem er í eigu araba, greindi frá því í gær að 10 manns hefðu fallið í bænum Zeita á vesturbakka Jórdanár, nærri bænum Tulkarem, þar sem unglingar settu upp götuvígi og köstuðu bensínsprengjum að bílum ísraels- manna. Ekki er hægt að fá þessar féttir staðfestar vegna þess að frétta- menn fá ekki að fara inn á herteknu svæðin veg^na banns ísraelsstjómar. Blaðamenn hafa kært tokun her- teknu svæðanna til hæstaréttar og að sögn Roberts Slaters, formanns samtaka erlendra fréttamanna, var þess farið á leit við hæstarétt að hann gefí fyrirmæli um að stjórnvöld leyfi fréttamönnum aðgang að her- teknu svæðunum. Reuter Prentsmiðja Morgunblaðsins '-^^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmi Forkosningar Repú- blikanaflokksins; Robert Dole hætturvið þátttöku Washington, Reuter. ROBERT Dole, öldungardeildar- þingmaður, tilkynnti í gærkvöldi að hann drægi sig úr baráttunni um að verða útnefndur forseta- efni repúblikana og lýsti yfir stuðningi við George Bush vara- forseta. Bush er nú öruggur um útnefningu en Dole var helsti keppinautur hans meðal repúblik- ana. Robert Dole sagðist vera hættur þátttöku í forkosningum Repúblik- anaflokksins á blaðamannafundi í gærkvöldi og hvatti samtímis flokks- bræður sína til að flykkjast um Ge- orge Bush. Hann sagðist óska vara- forsetanum til hamingju og óskaði honum góðs gengis í forsetakosning- unum í nóvember. Þegar öllu væri á botninn hvolft skipti mestu að repú- blikanar héldu Hvita húsinu. Sjá Erlendan vettvang á bls. 20 og„Jacksonsækir... “ábls.31. Ástandið versnar stöðugt í Panama. Lögreglumaður í Panamaborg sést hér veifa gúmmíkylfu að stjórnarandstæðingum sem hlaupa undan barsmiðum og táragasi lögreglunnar. Delvalle fyrrum forseti Panama: Allt leyfilegt til að losna við Noriega .Washington, Panamaborg, Caracas. Reuter. FYRRUM forseti Panama, Eric Arturo Delvalle sem dvelur í út- legð í Bandaríkjunum, vill að Bandaríkjastjórn og stjórnir ann- arra ríkja, grípi til aðgerða til þess að aðstoða stjórnarandstæð- inga við að koma Manuel Antonio Noriega herforingja frá völdum í Panama. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem Jose Sosa, sendiherra Panama, hélt í Wash- ington í gær. Sendiherrann sagði blaðamönnum að forsetinn hefði orðað það svo í ákalli sínu til Bandaríkjastjómar að „allar aðgerðir til að koma Noriega frá völdum eru réttlætanlegar". „Fólkið í Panama hefur gripið til tu-uter Leysingar í V-Þýskalandi MESTU vorflóð síðustu fimm árin í Vestur-Þýskalandi hafa orðið sex mönnum að bana. Flóð- in virðast hafa náð hámarki og er búist við að vatnsborð fari að lækka úr þessu, að sögn opinbers starfsmanns í gær. Loka þurfti 42 þjóðvegum vegna vatnselgs og skipaumferð um Rín er bönnuð þar til sjatnað hefur í ánni. Flytja þurfti fólk á brott úr nokkrum þorpum við Dóná og ótt- ast er að skemmdir af völdum flóð- anna séu miklar, meðal annars er óttast að skemmdir hafi orðið í eldri bæjarhluta Kölnar. Þorpið Sinzig við Rín var umflotið vatni i' gær eins og sjá má á myndinni. Eldflaugasala Kínverja til Saudi-Arabíu: Bandaríkj astj órn ber að koma í veg fyrir víðskiptin New York, Washington. Reuter. DAGBLAÐIÐ New York Times fjallar í' leiðara í gær um sölu Kínveija á meðaldrægum eldflaugum til Saudi-Arabíu. Heldur blað- ið því fram að Bandaríkjamönnum beri að þrýsta á Kínveija um að afhenda Saudi-Aröbum ekki eldflaugarnar, sem geta • borið kjarnaodda. Dagblaðið Washington Post segir Kinveija hafa beitt brögðum til þess að halda vopnasölunni leyndri í meira en tvö ár. í forystugrein New York Times segir að Saudi-Arabar geti með kínversku eldflaugunum, sem draga um 3.500 kílómetra, hæft skotmörk í ísrael, Sovétríkjunum og Egyptalandi. Telur leiðarahöf- undur lítið vit í kaupum þessum án þess að gert sé ráð fyrir að unnt verði að búa eldflaugamar kjarnorkuhleðslum. Segir hann að eldflaugarnar, sem eru af gerðinni CSS-2 og eru einnig nefndar „Austanvindur", magni mjög spennu í þessum heimshluta verði þær settar upp. „Kínveijar fullyrða með helgi- svip að þeir muni aldrei selja Saudi-Aröbum kjamaodda í eld- flaugarnar. Með því að heija sölu á eldflaugum þessum flýta Kínveijar fyrir því að ríki sem nú ráða yfir þeirri tækni sem nauðsyn- leg er til að smíða kjarnorkuvopn eignist eldflaugar til að bera ger- eyðingavopn gegn óvinveittum ríkjum," segir greinarhöfundur og bætir við að eldflaugum þessum verði einungis unnt að beita til árása á borgir bijótist út átök þar eð þær séu ekki sérlega nákvæm- ar. „Stjórn Ronalds Reagans for- seta er í lófa lagið að skýra kínverskum stjómvöldum frá því að vopnasalan geti komið í veg fyrir að bandarískur hátæknibún- aður til hernaðamota verði seldur til Kína,“ segir í greininni. Í frétt í dagblaðinu Washington Post í gær segir að bandaríska leyniþjónustan hafi ekki staðið sig í stykkinu. Kínveijar hafí sam- þykkt söluna í meginatriðum árið 1985 en bandaríska leyniþjónustan hafi ekki haft veður af henni fyrr en fyrir tveimur mánuðum. allra aðgerða annarra en vopnaðra," sagði sendiherrann. „Það vill að Noriega fari frá.“ Sosa sagði að hann myndi ræða við bandarísk yfírvöld í dag til þess að biðja þau að grípa til þeirra ráða sem þyrfti til að koma Noriega frá völdum. „Ein af tillögun- um felur í sér að sérsveitir verði sendar á vettvang til að handtaka Noriega," sagði hann. Talsmaður Bandaríkjastjómar varaði Noriega við því í gær að þolin- mæði Bandaríkjamanna væru tak- mörk sett. Viðvörun þessi kom í kjö'- far þess að ráðist var á bandaríska blaðamenn ásamt flölda stjómarand- stæðinga á hóteli í Panamaborg í gær. Voru blaðamenn og stjómar- andstæðingar teknir höndum en út- lendingum var fljótlega sleppt úr haldi. „Það hefur ætíð verið stefna bandarískra stjómvalda að gæta þegna sinna. Hafi Bandaríkjastjórn sagt að hún muni ekki grípa til hem- aðaríhlutunar verða allir aðilar að gera sér grein fyrir hvar mörkin liggja," er haft eftir Marlin Fitz- water talsmanni Bandaríkjastjómar í gær. Sagði Fitzwater að blaða- mennimir hefðu mátt þola barsmíðar og hefði blaðamaður dagblaðsins Los Angeles Times slasast alvarlega. Tuttugu og tvö ríki í rómönsku Ameríku gagnrýndu Bandaríkin fyrir efnahagsaðgerðir gegn Panama og skoruðu á stjómvöld að láta af þeim. Segir í yfirlýsingu ríkjanna að þau munu íhuga beiðni Panama um efna- hagsaðstoð. Meðal þeirra ríkja sem skrifuðu undir yfírlýsinguna voru Kúba og Chile.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.