Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988

C    5

„Ég bara geri... það er aldrei

neitt vandamál. Auðvitað er þetta

vinna, en mér finnst það samt ekki.

Ég hef verið læs á tónlist síðan ég

varð læs, svo túlkun í tónlist er

mér jafn töm eða tamari heldur en

orð."

Að kasta burt sjálfinu

„Ég hef gripið í að kenna í Söng-

skólanum meðan ég hef verið hér

og þá meðal annars sagt nemendun-

um að það gildi að kasta burt sjálf-

inu, en nota sig sem verkfæri.

Söngvarinn er hljóðfæri, sem gerir

sitt besta samkvæmt eigin tilfinn-

ingu og viðmiðun. Svo er bara að

vona að aðrir kunni líka að meta

viðleitnina.

Tónskáldin skrifa fyrir ákveðin

hljóðfæri og í ákveðnum takti. I

hljómsveitarverki tekur stjórnand-

inn auðvitað mið af taktinum, en í

framkvæmd er það tákturinn í

manni sjálfum sem er spilaður. Og

takturinn er breytilegur frá sýningu

til sýningar.

Sem þjálfaður píanóleikari get

ég sest niður og spilað verk, sem

ég hef ekki séð áður, verk eftir

Janácek, Mozart eða aðra. Ekki

snilldarvel í fyrstu, en hef nógu

margar stílviðmiðanir í kollinum,

svo verkið fær strax einhverja

merkingu fyrir mér, finn strax ein-

hverja endurómun í því.

í óperu hugar stjórnandi strax

að áferð hljómsveitarleiksins og að

litnum hjá söngvurunum. í Don

Giovanni skiptir til dæmis miklu

máli að draga fram þá þætti, sem

er vitað að Mozart lagði mikla alúð

í, fagottið myndar þarna eins konar

andlag, víólulínan verður að vera

skýr. Mozart dró gjarnan fram

dökku litina í tónlistinni. Þessir

hlutir týnast of oft í flutningi.

Svo er líka merkilegt hvernig

hægt er að hlusta á tónlist. Það er

hægt að hlusta yfirborðslega, eins

og við gerum kannski þegar við

heyrum einhverja tónlist í lyftu. En

svo er hægt að hlusta af athygli,

til dæmis á tónleikum.. Þar sjáum

við tónlistina verða til, sjáum þegar

einstök hljóðfæri koma inn og get-

um þá hlustað sérstaklega eftir

þeim. í óperunni sést hljómsveitin

ekki, svo þar styður sjónin ekki.

Hljómsveitarspilið þarf því að vera

enn skýrara en ella. Reyndar kýs

ég alltaf skýrt spil, rétt eins og ég.

vil lesa skýrt prentaðar bækur og

án prentvillna. Fyrir sýninguna hér

unnum við mikið einmitt til að þoka

okkur í átt að skýrleika, þá líka í

framburðinum, byrja og hætta sam-

an, ná jafnvægi . . .

Auðvitað eru flestir tónlistar-

menn meðvitaðir um þessi atriði,

sammála um að tónlist eigi ekki öll

að hljóma eins og þéttofin, impressj-

ónísk tónlist, sérstaklega eklri

klassísk verk, en samt sem áður

verður niðurstaðan alltaf ólík."

„Mozart náði einhverri

fullkomnun . . ."

Mozart guðdómlegur . . . Hvað

er það í tónlist hans sem gerir hana

slíka?

„Mozart náði einhverri fullkomn-

un í tónlist sinni, í hendingum, sam-

hljómi, takti og taktbreytingum,

allt eitthvað svo rétt í tónlist hans.

Það er uppörvandi að hugsa til þess,

að þó það sé svo langt síðan hann

var að, þá streymir hið góða enn

látlaust fram. Eg vildi helst deyja

hlustandi á Mozart, til dæmis Sin-

fóníu concertante fyrir fiðlu og

víólu. Þegar einleikshljóðfærin

grípa inn í þar, þá er það eins og

ljósflæði. Á slíkum stundum hefur

Mozart komist í snertingu við eitt-

hvað handan og ofan við allt. Og

það undursamlega er að hann sat

sjaldnast-lengi yfír verkum sínum,

þau bara spruttu fram og það heyr-

ist líka á þeim. Beethoven er líka

minn maður, en hann þurfti að

hafa mikið fyrir að semja og það

er auðheyranlegt."

Tónskáldið tjáir tilfínningar sínar

í tónlist sinni. Svo kemur tónlistar-

maðurinn og spilar hana. Er þá eitt-

hvert rúm fyrir persónulega tján-

ingu hans í verki tónskáldsins?

„Sjálfstjáning er öllum nauðsyn-

leg, að gera eitthvað sem greinir

þá frá öðrum og hver velur það sem

honum hentar best, hvort sem það

er að ganga f klaustur eða stefna

á að skara fram úr svo eftir verði

tekið. Ég hef enga tilhneigingu til

að semja tónlist, en í tónlistinni

fínnst mér ég vera að koma með

eitthvað frá sjálfum mér og það

veitir mér mikla og djúpa ánægju.

Nútímatónskáld eru oft ótrúlega

róleg yfír því hvernig verk þeirra

eru flutt, róleg yfír hendingaskipun

og hraða. Það segir mér að það

ferli er þeim mun fjarlægara en

sjálf sköpun verksins á blaðið var

þeim. Og það að vera frumleg-

ur . . . Það er alltaf um eitthvert

lán frá fortíðinni að ræða."

„Grípa og hríf a"

„Það kemur hver að tónlistinni á

sinn hátt, en til að hún hrífi, verður

hún alltaf að hljóma frísklega, eins

og hún sé að verða til á þessari

stundu og þessum stað. Grípa og

hrífa . . . Ég man enn þegar ég

fékk í fyrsta skiptið tak í magann

af hrifningu yfir tónlist, var sjö ára

og settist niður til að þræða í gegn-

um Chopin-pólónesu. Það er þessi

sprennutilfinning, ákafí, sem gefur

lífínu gildi. Hæfíleiki, sem börnum

er eiginlegur, en sem fullorðnir

glata oft.

Ég vil reyna að halda í þennan

hæfíleika í sjálfum mér, því þessi

spenna heldur manni gangandi,

þessi ákafi. Ég vil halda í að geta

sest niður og fínnast ég svífa af

hrifningu .      "

Texti: Sigrún

Davíðsdóttír

Nýjung á Islandi

CLASSICA gróðurhús - glerskáli

formfagurt- sterkbyggt- dönsk hönnun

Allar upplýsingar veitir:

Heildversl. SMIÐSHÚS, E. Sigurjónsdóttir,

225 Bessastaðahreppur, sími 51800.

Versl. Akurvík,

Akureyri.

BaldurogÓskarsf.,

Fellabæ, Egilsstöðum.

MAZDA 929

FRA JAPAN!

MAZDA 929 skipar sér á bekk með þeim bestu

evrópsku, þar sem öll smíði og frágangur er

með því besta sem sést hefur í bíl. Við reynslu-

akstur finnst strax að MAZDA 929 er í hærra

gæðaflokki en gerist og gengur.

MAZDA 929 gerir að auki betur en allir hinir því

hann er með hjálparstýringu á afturhjólum

ásamt Tijúkri gormafjöðrun á öllum hjólum,

sem tryggja ýtrasta öryggi og þægindi í akstri,

bæði á möl og malbiki.

MAZDA 929 GLX með 4 gíra sjálfskiptingu

m/overdrive, vökvastýri, rafmagnsrúðum og

læsingum, raf stýrðum útispeglum og f I. kostar

nú aðeins 967 þúsund krónur!

MAZDA 929 er fyrir þig ef þú gerir háar kröfur

og vilt hafa það náðugt!

(gengisskr. 4.3.88)

________Opið laugardaga frá kl. 1—5

BÍLABORG H.F.

FOSSHÁLSI 1.SÍMI 6812 99

					
Fela smįmyndir
C 1
C 1
C 2
C 2
C 3
C 3
C 4
C 4
C 5
C 5
C 6
C 6
C 7
C 7
C 8
C 8
C 9
C 9
C 10
C 10
C 11
C 11
C 12
C 12
C 13
C 13
C 14
C 14
C 15
C 15
C 16
C 16
C 17
C 17
C 18
C 18
C 19
C 19
C 20
C 20
C 21
C 21
C 22
C 22
C 23
C 23
C 24
C 24
C 25
C 25
C 26
C 26
C 27
C 27
C 28
C 28
C 29
C 29
C 30
C 30
C 31
C 31
C 32
C 32
C 33
C 33
C 34
C 34
C 35
C 35
C 36
C 36
C 37
C 37
C 38
C 38
C 39
C 39
C 40
C 40
C 41
C 41
C 42
C 42
C 43
C 43
C 44
C 44
C 45
C 45
C 46
C 46
C 47
C 47
C 48
C 48
C 49
C 49
C 50
C 50
C 51
C 51
C 52
C 52
C 53
C 53
C 54
C 54
C 55
C 55
C 56
C 56
C 57
C 57
C 58
C 58
C 59
C 59
C 60
C 60
C 61
C 61
C 62
C 62
C 63
C 63
C 64
C 64