Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						6    C

MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988

¦+.

Þórdís   Árnadóttir  skrifar  frá  Helsinki:

Af tveimur

(frímerkja-)

Finnum

Matti Nykanen og Alvo Ylppö hafa

unnið til frægðar og frímerkis á

ólíkan hátt

Það hefur tœplega faríð fram hjá nokkrum að þjóðhetja Finna

þessa dagana er skíðastökkvarinn Matti Nykanen — Finninn fljúg-

andi. Þegar hann hafði aflað þjóð sinni þrennra gullverðlauna á

Ólvmpíuleikunum fór forseti finnska þingsins, Matti Ahde, rakleið-

is tíl Calgary til að afhenda Nykánen heiðursmerki þingsins. Heima

fyrir voru ekki allir á einu máli um hvort ástæða væri til að veita

Nykanen einmitt þessa viðurkenningu. Einnig var spurt hvort ekki

hefði mátt bfða með veitinguna þar til NykSnen kæmi heim og

spara þannig ferðakostnað þingforsetans. Til þessa hafa aðeins

tveir Finnar fengið þetta heiðursmerki, barnalæknirinn Arvo Ylppö,

sem hélt upp á aldaraf mæli sitt á liðnu hausti, og kappakstursmaður-

inn Keke Rosberg.

Tiu fallbyssuskot

En Matti fékk sem sagt heiðurs-

merkið í Calgary og þegar hann

kom heim til Jyvaskyla fáum dög-

um síðar beið hans önnur viður-

kenning, gullmerki heimaborgar-

innar. Meðal hinna fáu sem hafa

fengið Jyváskylá-merkið er arki-

tektinn Alvar Aalto, sem teiknaði

28 byggingar í borginni. í Jyvá-

skylá var tekið á móti stökkvaran-

um með meiri viðhöfn en áður hef-

ur þekkst og hefur þó margt frægt

fólk sótt Jyváskylábúa heim. Má

þar nefna Elfsabetu Englands-

drottningu og Karl Svíakóng. Og

frá því ráðhús borgarinnar var

byggt árið 1899 hefur enginn verið

hylltur á svölum þess — nema

Matti. Skotið var tfu fallbyssuskot-

um og var það f fyrsta skipti sem

Jyváskylá heiðrar einstakling á

þann hátt. Ákveðið var að stökk-

pallur bæjarins skuli héðan f frá

bera nafn Matti Nykánen og telja

menn að þar með hafi Matti fengið

heimsins stærsta minnismerki ef

frá séu taldar risamyndirnar í

Mount Rushmore í South Dakota

af Bandarfkjaforsetunum Was-

hington, Jefferson, Lineoln og Ro-

osevelt. Og sú spurning kom fram

hvort ekki væri upplagt að breyta

nafni Jyváskylá í Nykaskylá!

Jyváskylá ætlar sem sagt að

„gera" út á Matta.

Nykanen flýgur á

frímerki

Þegar þjóðþing Finnlands og

Jyvaskylaborg höfðu lokið af sér

tilkynnti póststjórnin á hlaupárs-

dag að ákveðið hefði verið að gefa

út frímerki með mynd af Matta á

flugi. Útgáfudagurinn var ákveð-

inn 6. apríl og allt sett í gang til

að sú áætlun megi standast. En

sjaldan er hægt að gera svo öllum

lfki. Þeir sem venjulega kvarta yfir

seinagangi f skrifstofuveldinu

gagnrýna nú þetta sama skrifstofu-

veldi fyrir að ætla að koma frímerki

f umferð með methraða, eftir að-

eins 6 vikna meðgöngutíma. Og

spurt er hvort ekki sé vafasamt

að setja Nykánen á bekk með for-

setum Finnlands, tónskáldinu Sib-

elíusi og 100 ára barnalækninum

Arvo Ylppö, en þeir einir hafi verið

heiðraðir f lifanda lffi með sérstöku

frímerki. Póstmálastjóri verst

gagnrýninni með því að segja að

Nykánen-frímerkið eigi alls ekki

að vera Nykánen-frímerki. Þótt

myndin á frfmerkinu sé tekin af

Matta í 70 metra gullhoppinu í

Calgary muni það ekki bera nafn

hans og hugmyndin með því sé að

heiðra alla þá sem urðu Finnlandi

til sóma á vetrarólympíuleikunum.

Og hann bendir á að áður hafi

komið út íþróttafrfmerki með nafh-

lausum myndum af finnskum

íþróttamönnum. En gagnrýnendur

segja að þar hafi verið um að ræða

vel undirbúnar seríur en ekki

frímerki ákveðið í „Nykanen-

vímu".

Hvað sem allri gagnrýni líður

verður frímerki með myndinni af

Matta gefið út í þremur milljónum

eintaka og verðgildið 1,80 finnsk

mörk, en það er einmitt það sem

nú þarf á venjuleg bréf innan Finn-

Frímerkið sem gefið var út í

tilefni 100 ára afmælis Arvo

YIppö var valið fallegasta

finnska frimerkið árið 1987.

verið helgað þeim sem minnst mega

sín, börnunum. Það má segja að

hann sé lifandi dýrlingur. I skoð-

anakönnun, sem gerð var meðal

unglinga um vinsælasta Finnann,

lenti hann í einu af ef stu sætunum,

við hliðina á poppstjörnum.

Þegar Arvo Ylppö varð 100 ára

þann 27. október sl. var hátíðis-

dagur í Finnlandi. Afmælisinsvar

minnst með samkomum, fyrirlestr-

um, verðlaunaveitingum, ævisögu-

útgáfu, kórsöng og hljómsveitar-

leik og alls staðar var afmælis-

barnið sjálft viðstatt. í sjónvarps-

viðtali var Ylppö eins og unglamb

og gerði að gamni sínu. Þegar

hann var spurður hvað hann hefði

að segja um ellina svarar hann

kíminn: „Ellina? Hana þekki ég

ekki." Hann er ótrúlega frár á

fæti, hefur dansað og farið á skíði

fram að þessu, er mikill veiðimaður

en stundar jafnframt fiskirækt hjá

sumarbústað sínum. „Vilji maður

fá verður maður líka að gefa," seg-

ir hann. Þegar hann fær hina

sfgildu spurningu hverju hann

þakki hestaheilsu og langlífi segir

hann sig hafa verið of önnum kaf-

inn við að hugsa um heilsu annarra

Nokkrum mánuðum fyrir aldarafmælið seldi Arvo Ylppö blóm í miðborg Helsinki til ágóða fyrir

sjóð þann sem ber nafn Arvo og Leu konu hans.

lands og Norðurlandanna. Frá og

með 6. apríl nk. geta þvf íslending-

ar, sem tengsl hafa til Finnlands,

átt von á að fá Finnann fljúgandi

inn um bréfalúguna.

Undraöldungxuinn Ylppö

Og áfram með frímerkin. í at-

kvæðagreiðslu sem finnska póst-

stjórnin stóð fyrir var frímerkið

„Arvo Ylppö 100 ára" kjörið falleg-

asta frímerkið sem út kom í Finn-

landi á árinu 1987. Á þessu

frímerki er mynd af barnalæknin-

um Arvo Ylppö og litlu barni og í

baksýn sést barnaspítalinn þekkti

Barnets Borg f Helsinki. Frímerkið

er fallegt og það sem meira er;

maðurinn sjálfur hefur f hugum

landa sinna til að bera meiri fegurð

en flestir aðrir. Fegurðin er þó

ekki hið ytra því maðurinn er eink-

ar smávaxinn og hefði einhvern

tíma verið sagður væskilslegur á

fslandi. En það geislar frá honum

innri fegurð og góðmennska, enda

hefur nær 80 ára ævistarf hans

til að mega vera að því að hugsa

um sjálfan sig.

Starf andi læknir í 60 ár

Arvo Ylppö.er bóndasonur frá

Mið-Finnlandi. Hann varð stúdent

árið 1906 og hóf þá strax nám f

læknisfræði við háskólann í Hels-

inki. Hann stundaði námið af

kappiog árið 1911 var hann orðinn

þekktur í Helsinki sem afbragðs

barnalæknir. Síðan lá leiðin til

Berlfnar og þar vann hann í 9 ár

við rannsóknir á barnasjúkdómum

hjá Kaiserin Auguste Victoria

Haus, sem var fræg rannsóknar-

stofnun. Með doktorsritgerð sinni

sem fjallaði um gulu hjá nýfæddum

börnum skipaði hann sér alþjóðleg-

an sess sem vísindamaður. Honum

bauðst starfsframi í Þýskalandi og

vfðar en hann kaus að hverfa heim

til Finnlands. Þar var verk að

vinna.

Þegar Ylppö sneri heim til Finn-

lands árið 1920, þá 32 ára gamall,

var þjóðin enn í sárum eftir borg-

arastyrjöldina 1918. Yfir 10 þús-

Matti Nykanen í sigurstökki á Ólympiuleikunum f Calgary.

til hann hafði hrifið ráðamenn með

sér og unnið kenningum sfnum

fylgi meðal almennings. Og nú er

hann kallaður faðir barnalækninga

og barnaverndar í Finnlandi. Hann

var starfandi barnalæknir í 60 ár,

f forystu fyrir Barnets Borg í 43

ár, f barnaverndarnefhd Helsinki-

borgar f 42 ár, prófessor í barna-

lækningum við Helsinkiháskóla f

37 ár og yfirmaður barnadeildar

Háskólasjúkrahússins í 32 ár. Og

óteljandi eru þær viðurkenningar

sem hann hefur hlotið heima og

heiman.

Umönnun ófullburða barna hef-

ur lengi verið sérlegt áhugamál

Ylppö og hann hefur skrifað mikið

um það efni. Sjálfur hefur hann

lifað það að sjá ungbarnadauðann

lækka úr 15% í 0,6% f Finnlandi.

Til að hvetja aðra, innan Finnlands

og utan, til rannsókna á þessu sviði

stofnaði Arvo Ylppö sérstakan sjóð,

sem ber nafn hans og Leu konu

hans. Lea Ylppö er einnig barna-

læknir og hefur stutt mann sinn f

einu og öllu. Hún er miklu yngri

en Arvo og þau gengu í hjónaband

árið 1950. Saman eiga þau 4 börn

og fyrsta barnabarn þeirra, auga-

steinn afans, fæddist í fyrra. Arvo

á tvö börn af fyrra hjónabandi.

Ein,,áfullu"

í einu afmælisviðtalinu sagði

Arvo Ylppö frá þvf þegar hann var

75 ára hefði hann verið svo hrædd-

ur um að hann myndi ekki lifa

mikið lengur að hann hefði drifið

f að skrifa bók um sjálfan sig til

þess að börnin hans fengju að vita

hvernig föður þau hefðu átt. Sfðan

eru liðin 25 ár og pabinn enn „á

fullu" eins og sagt er á góðri

íslensku. Hann fer á fætur klukkan

fimm á morgnana og sest þá við

skriftir og svarar bréfum. Klukkan

hálf nfu er hann tilbúinn f verkefni

dagsins, undraöldungurinn.

Fallega frímerkið með myndinni

af Ylppö er 1,70 finnsk mörk að

verðgildi en það var sú upphæð sem

þurfti á almenn bréf innan Finn-

lands og Norðurlandanna á útgáfu-

deginum. Arvo Ylppö hefur því

heimsótt marga á Islandi á liðnu

hausti og um jólin. — Og ég veit

ekki til þess að nokkur hafi gert

athugasemd við útgáfu Ylppö-

frímerkisins. Og heldur ekki við

viðurkenningu þingsins.

und börn voru munaðarlaus, ung-

barnadauði var mikill og húsakost-

ur víða lélegur. Ylppö kom með

nýjar kenningar um heilsugæslu

barna en þær féllu f misgóðan jarð-

veg f fyrstu. Hann vissi að það

reið á að fá þekkt fólk í lið með

sér til að koma málum áfram.

Þannig var hann áamt Mannerheim

hershöfðingja (og síðar forseta)

einn af stofhendum og fyrsti form-

aður barnaverndarsamtaka þeirra

sem kennd eeru við Mannerheim.

Og hann fékk menntaskólabróður

sinn Sillanpáa, sem þá var orðinn

þekktur rithöfundur, til að skrifa

um barnaverndarmál. (Sillanpaá,

sem lést árið 1964, hlaut Nóbels-

verðlaunin 1939. Aldarafmælis

hans verður minnst sfðar á þessu

ári.)

Hvetur nú aðra

til rannsókna á

6fullburða börnum

Ylppö efur alltaf haft gott lag á

fólki og það leið ekki á löngu þar

					
Fela smįmyndir
C 1
C 1
C 2
C 2
C 3
C 3
C 4
C 4
C 5
C 5
C 6
C 6
C 7
C 7
C 8
C 8
C 9
C 9
C 10
C 10
C 11
C 11
C 12
C 12
C 13
C 13
C 14
C 14
C 15
C 15
C 16
C 16
C 17
C 17
C 18
C 18
C 19
C 19
C 20
C 20
C 21
C 21
C 22
C 22
C 23
C 23
C 24
C 24
C 25
C 25
C 26
C 26
C 27
C 27
C 28
C 28
C 29
C 29
C 30
C 30
C 31
C 31
C 32
C 32
C 33
C 33
C 34
C 34
C 35
C 35
C 36
C 36
C 37
C 37
C 38
C 38
C 39
C 39
C 40
C 40
C 41
C 41
C 42
C 42
C 43
C 43
C 44
C 44
C 45
C 45
C 46
C 46
C 47
C 47
C 48
C 48
C 49
C 49
C 50
C 50
C 51
C 51
C 52
C 52
C 53
C 53
C 54
C 54
C 55
C 55
C 56
C 56
C 57
C 57
C 58
C 58
C 59
C 59
C 60
C 60
C 61
C 61
C 62
C 62
C 63
C 63
C 64
C 64