Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						12    C

MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988

''A

Tónlistarhús á Islandi - hvers

vegna, hvernig, hvenær?

eftirÁrmann Órn

Armannsson

Hljótt hefur verið um Samtök

um byggingu tónlistarhúss nú

síðustu mánuði og um önnur hús

deilt. Fjáröflun til hússins er þó í

gangi og hönnunarvinna á fullum

skrið. Undirritaður telur rétt og

skylt að gera grein fyrir ýmsum

atriðum varðandi fyrirhugaða

byggingu, rifja upp þörfina sem við

teljum að sé á henni, hvers vegna

hún verður byggð og hvernig fyrir-

hugað er að standa að því.

Einnig þarf að leiðrétta þann

misskilning að það hafi verið mistök

að ná ekki samnýtingu á Borgar-

leikhúsi og tónlistarhúsi eða að

endurbyggja Háskólabíó.

Hvers vegna?

Samkvæmt Árbók Reykjavíkur-

borgar var aðsókn að Laugardals-

höll árið 1986 alls 26.864 manns

og efast þó enginn um gildi hennar

fyrir eina af þjóðaríþróttum okkar,

handboltann. Erfitt er að segja til

um þann fjölda sem sækir tónleika

en samkvæmt spá sem Rekstrar-

stofan vann 1984 fyrir Samtök um

byggingu tónlistarhúss er áætlað

að meðalaðsókn að tónlistarhúsi

verði ekki undir 103.000 seldum

sætum árlega og var þá ekki gert

ráð fyrir óperúflutningi sem vænt-

anlega mun allt að tvöfalda þá að-

sókn.

Oft er talað um að tónlist megi

flytja í flestum húsum og er það

rétt, en til að undirstrika hvað við

er átt með tónlistarhúsi leyfi ég

mér að birta kafla úr forsendum

dómnefndar í norrænu arkitekta-

samkeppninni um tónlistarhús á

íslandi 1986, en þar segir: „Þegar

dómnefnd stóð frammi fyrir því að

yelja teikningu fyrir tónlistarhús á

íslandi, mótuðust endanlega viðhorf

hennar til samhengis milli huglægra

og hagkvæmra þátta. Huglægt séð

bar hæst samband milli flytjenda

og áheyrenda. Hvorir tveggja bera

vissa ábyrgð og eiga réttmætar

kröfur á hendur húsinu, sem ber

að uppfylla. 1. Flytjendur: Þeir sem

koma fram opinberlega ætla sér

eflaust að leggja sig alla fram.

Þegar um er að ræða tónlistarflutn-

ing í alþjóðlegum mælikvarða er

Frá styrktartónleikum Samtaka um byggingu tónlistarhúss í Háskólabíói 9. janúar sl.

Morgunblaðið/Þorkell

það algjör forsenda. Flytjendur gera

sér. grein fyrir því, að það er sama

hversu frægir þeir eru, áheyrendur

dæma þá af hverjum tónleikum,

sem þeir flytja. Þeir eru því spennt-

ir, einbeittir og ákveðnir í að standa

sig. Þeir aðilar, sem vinna að tón-

leikahaldi, verða að gera sitt til að

flytjandinn fari inn á sviðið hvfldur

og öruggur, því mega engar hindr-

anir né truflanir verða á vegi hans.

Hönnun tónlistarhúss hefur afger-

andi áhrif á þessi atriði. Þættir eins

og kuldi, raki, og aðrar óþægileg-

ar, jafnvel hættulegar hindranir,

trufla og angra flytjendur. Mistök

í hönnun geta leitt til þess að þeim

líður illa og eiga í erfiðleikum með

að einbeita sér. 2. Áheyrendur:

Áheyrendum þarf að búa þær að-

stæðuf að þeir setjist í sæti sín

ánægðir og eftirvæntingarfullir.

Tónleikar eiga að vera fólki áhrifa-

mikil og skemmtileg reynsla. Að-

koma einkabíla, leigubfla og stræt-

isvagna þarf að vera auðveld og

anddyri hússins glæsilegt og vekja

eftirvæntingu ... Til þess að flytj-

endur og áheyrendur séu vel undir-

búnir og tónleikar megi þar með

ná bestum áhrifum, þarf tónlistar-

<WP ¦:;,::'

F1e*tar meanfngarþjóðir elga aé* segí**; íóniutartós.:

Nö rr i sjónmölí tRlcn.kt trmll»tarttó**tr»! ttiíítwjffr í

alþjóðicguui krófum flytjcnda (jg 4tt<:jrefcwjft. / :::¦:

Sametnumal ítví t {>j(»df.rstaía unt r*utifí»ía WA :' ¦:

að attltu majti.'    .

Sbmhjálp

DAGSKRA SAMHJ ALPAR UM

PÁSKANA

Skírdagur. Almenn samkoma í Þríbúðum kl. 20.30.

Söfnuðurinn í Kirkjulækjarkoti sér um samkomuna með

söngogvitnisburðum.

Stjórnandi er Hinrik Þorsteinsson.

Laugardagur 2. apríl: Opið „páska"-hús í Þribúðum kl. 24-17.

Heitt kaffi verður á könnunni og allir hvattir til að líta inn

og spjalla um daginn og veginn. KJ. 15.30. tökum við lagið

og syngjum saman kóra.

Páskadagun Almenn hátíðarsamkoma í Þríbúðum kl. 16.00.

mikill og íjölbreyttur söngur. Barnagæsla.

Ræðumaður Óli Agústsson.

Allir velkomnir í Þríbúðir, Hverfisgötu 42.

Sjá nánar í félagslífi.

Gleðilega paska.        f^^

BwtiœtöslisteMs

hús að standast ýtrustu kröfur

beggja.

Bygginjnn þarf einnig að standa

undir nafni sem alþjóðlegt tónlistar-

hús á Islandi. Byggingarlist og tón-

Iist verða þar í jafnvægi. Leitað er

að tónlistarhúsi þar sem salir hafa

sem fullkomnastan hljómburð og

sem líkja má við öndvegis hljóð-

færi. Byggingin á að verða ein af

meginstoðum íslensks menning-

arlífs."

- Tónlistarhúsið verður fastur

vinnustaður hljóðfæraleikara í Sin-

fóníuhljómsveit íslands, sem aldrei

hafa haft aðstöðu til þeirrar vinnu

sem þeir þurfa að leggja fram þar

sem þeir hafa leigt undanfarin 20

ár, þ.e. í Háskólabíói. Þegar minnst

er á Háskólabíó er rétt að það komi

fram að það var kannað í upphafi

okkar starfs hvort það hús væri

falt, en það er nauðsynlegur þáttur

í starfsemi Háskólans og kom þar

af leiðandi ekki til greina sem

framtíðartónlistarhús. Borgarleik-

húsið hefði auðveldlega mátt gera

að óperuhúsi, en Leikfélag

Reykjavíkur var með réttu að

byggja leikhús og að athuguðu

máli samrýmist sú starfsemi afar

illa og gerir leikfélagið ráð fyrir að

borgarleikhús verði fullnýtt með

leikstarfsemi. Hljómburður spilar

þar einnig hlutverk því aðrar kröfur

eru gerðar til hins talaða orðs svo

það njóti sín heldur en tónlistar.

Sem betur fer fékk íslensk ópera

inni í Gamla bíói til bráðabirgða,

en þrátt fyrir að við höfum átt þar

ógleymanlegar stundir og margt

'gott niegi segja um húsið er það

staðreynd, sem kannski er best að

minnast sem minnst á, að rjúsið er

alls óviðunandi t.d. frá öryggissjón-

armiði m.t.t. brunavarna svo ekki

sé minnst á starfsaðstöðu eða þann

möguleika að ná fjárhagslega við-

unandi rekstrarafkomu.

Forseti íslands hefur í ræðu og

riti bent á að listin selji fleiri þorska

en þorskurinn list og þó erfitt sé

að mæla þá er það örugglega stað-

reynd að menningarlíf okkar, sem

hægt er að bera samari við marg-

falt stærri þjóðir, gerir okkur ríkari

peningalega, svo ekki sé nú minnst

á andlega. Okkur er bæði sjálfsagt

og skylt að gera vel við handbolt-

ann og skákíþróttina, þessar þjóðar-

íþróttir okkar, enda þótt þær séu

lítt þekktar í okkar nágrannalönd-

um, en okkur er nauðsyn að gera

okkur grein fyrir að listir okkar og

bókmenntir eru sambærilegar að

gæðum og annarra þjóða. Ekkert

okkar nágrannalanda (nema Lúx-

emborg) státar ekki af fleiri en einu

tónlistarhúsi. Sú þversögn stendur

hér ennþá því miður aðþrátt fyrir

fjölbreytt tónlistarlíf og mikinn

áhuga vantar tónlistarhús.

Hvernig?

Þegar fjárvana samtök lýsa áætl-

unum um húsbyggingu fyrir nær

800 milljónir er eðlilegt kannski að

spurt sé hvort viðkomandi séu heil-

ir á sönsum. Um það liggja svo sem

engir úrskurðir fyrir en hitt er jafn-

ljóst að margir eru sama sinnis og

samtökin um nauðsyn verkefnisins,

sem þau hafa tekið sér fyrir hend-

ur. Þjóðin ætlar að gefa sjálfri sér

tónlistarhús og þess vegna mun það

takast.

Með hæfilegri bjartsýni og raun-

sæi í bland ætla samtökin áð standa

myndarlega að þessarí brýnu fram-

kvæmd og kalla til alla þá aðila,

sem vilja og geta lagt sitt lóð á

vogarskálina.

I þeim áætlunum sem samtökin

hafa gert er gert ráð fyrir að ein-

staklingar og fyrirtæki leggi til um

63% af öllum byggingarkostnaði

hússins og hafa raunsæja von um

að það takist.

Þannig ætlum við að gefa þjóð-

inni og sjálfum okkur hús sem

hæfir blómlegu tónlistarlífi og hefur

þann ótvíræða kost að geta með

skynsamlegri stjórn staðið undir

rekstri sínum. Engan minnisvarða

eða monthús heldur raunverulegt

tónlistarhús þar sem bestu lista-

menn fá loks aðstöðu til að leika

við skilyrði sem hæfa getu.

Armann Örn Armannsson

„Þannig ætlum við að

g-efa þjóðinni og sjálf -

um okkur hús sem hæf-

ir blómlegu tónlistarlífi

og hefur þann ótvíræða

kost að geta með sky n-

samlegri stjórn staðið

undir rekstri sínum.

Engan minnisvarða eða

monthús heldur raun-

verulegt tónlistarhús

þar sem bestu lista-

menn fá loks aðstöðu

til að leika við skilyrði

sem hæfa getu."

Fjár ætla samtökin að afla með

ýmsum hætti og ber þar hæst sölu

stóla í húsið, sem þegaf hefur feng-

ið frábærar viðtökur, þó það átak

sé rétt að byrja, auk sérstaks tón-

listarhússsjóðs, sem fjár verður afl-

að til, ekki síst á erlendri grund;

Auk þess verða (ó)hefðbundnar

fjáröflunarieiðir, félagsgjöld, styrk-

ir og tónleikar nýttir eftir sem áð

ur. Þjóð, sem lætur sig ekki muna

um að hesthúsa páskaegg fyrir 100

milljónir á páskum, ber sem betur

fer ekki vonarvöl. Eftirstöðvar

kostnaðar, um 37%, verða sóttar

um til fjárveitinganefndar og

Reykjavíkurborgar. Mikil áhersla

hefur verið lögð á það, að undirbún-

ingi verði sem næst lokið áður en

hafist er handa við byggingarfram-

kvæmdir. Það er því miður allt of

algengt að farið sé að byggja af

ofurkappi áður en hönnun er komin

það langt að réttlætanlegt sé, sem

veldur því að aukakostnaður vegna

breytinga verður óhóflegur. Þetta

er svo sem ekki óþekkt fyrirbæri

erlendis, en er þar frekar undan-

tekning, sem hér er allt að þvl

regla, því miður.

Hvenær?

Það er undir okkur öllum komið

hvenær unnt verður að Ijúka bygg-

ingunni, en áætlanir þær sem gerð-

ar hafa verið miðast við að bygging-

arffamkvæmdir hefjist næsta ár og

verði lokið 1992. Vonandi vinnum

við ekki Eurovision-keppnina fyrr!

Lokaorð: Þrátt fyrir gífurlega

offjárfestingu í atvinnuvegum og

óarðbærar fjárfestihgar skal það

undirstrikað að hér er um arðbæra

fjárfestingu, bæði andlega og pen-

ingalega, að ræða. Það er samdóma

álit flestra sem til þekkja, að á tón-

leikunum f Haskólabfói 8. janúar

sl., þar sem fram komu hátt á ann-

að hundrað tónlistarmenn í beinni

sjónvarpsútsending'u, hafi tekist að

skapa sterka samkennd meðal tón-

listarmanna og þjóðarinnar allrar

um „að gera drauminn að veru-

leika".

Leyfum tónlistinni að njóta sín

og hjálpa til við að selja þorskinn.

Höfundw er formaður Sam taka

utn byggingu tónlistarhúss.

					
Fela smįmyndir
C 1
C 1
C 2
C 2
C 3
C 3
C 4
C 4
C 5
C 5
C 6
C 6
C 7
C 7
C 8
C 8
C 9
C 9
C 10
C 10
C 11
C 11
C 12
C 12
C 13
C 13
C 14
C 14
C 15
C 15
C 16
C 16
C 17
C 17
C 18
C 18
C 19
C 19
C 20
C 20
C 21
C 21
C 22
C 22
C 23
C 23
C 24
C 24
C 25
C 25
C 26
C 26
C 27
C 27
C 28
C 28
C 29
C 29
C 30
C 30
C 31
C 31
C 32
C 32
C 33
C 33
C 34
C 34
C 35
C 35
C 36
C 36
C 37
C 37
C 38
C 38
C 39
C 39
C 40
C 40
C 41
C 41
C 42
C 42
C 43
C 43
C 44
C 44
C 45
C 45
C 46
C 46
C 47
C 47
C 48
C 48
C 49
C 49
C 50
C 50
C 51
C 51
C 52
C 52
C 53
C 53
C 54
C 54
C 55
C 55
C 56
C 56
C 57
C 57
C 58
C 58
C 59
C 59
C 60
C 60
C 61
C 61
C 62
C 62
C 63
C 63
C 64
C 64