MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. í % Vt Graf ískir samleikir Myndlist Bragi Asgeirsson Það má vera borðleggjandi, að listgrafík nútímans einkennir öðru fremur hvers konar tæknilegar tilraunir. Fyrir örfáum árum var það sjálf þrykk-tæknin. Þ.e. hið hreina óað- finnanlega þrykk, sem var dýrkað um heim allan og háværar raddir voru um það, að útiloka bæri allt, sem ekki uppfyllti ákveðnar kröf- ur um tæknilegan frágang. Svo langt gekk þetta, að menn fengu skrifað upp á ákveðnar reglur hjá Sameinuðu þjóðunum, hvað teld- ist ekta listgrafík og hvað ekki. En það að fá einhverjar alþjóðleg- ar stofnanir til að skrifa upp á, hvað teljist ekta og hvað óekta í listinni, er frekar hæpinn verknað- ur og var enda mótmælt af hinum ágætustu listamönnum. Að sjálfsögðu einkenndust sýn- ingar á alþjóðlegri listgrafík af þessarí samþykkt næstu árin svo og þróunin innan skóianna, og satt að segja urðu hinar fjölþjóð- legu grafík-stefnur, tvíæringar o.fl. yfirþyrmandi andlausar. Og eins og fyrri daginn varð þetta til þess að losa um andstæð- una og alþjóðlegir listamenn eru margir á kafi í því að vinna að einhverju leyti í blóra við áður- nefnda samþykkt, svo sem sjá mátti sýnishorn af á sýningunni Grafica Atlantica" að Kjarvals- stöðum á sl. ári. Ætli það sé ekki hið mikilvæg- asta í listinni að hafa eitthvað að segja frá eigin brjósti, en traust tæknileg úrvinnsla er af hinu góða, en gengur ekki ein sér. Þá hefur fulikomnun prent- tækninnar á siðustu árum gert það að verkum, að aldrei hefur verið auðveldara að setja svört þrykk" í umferð, enda markaður- inn ySrfullur af sliku eftir meist- ara aldarinnar þannig að frum- grafík, sem margur telur sig eiga eftir slíka, er kannski ættuð úr einhverri neðanjarðarprentsmiðj- unní! Þar að auki geta miðl- ungslistamenn með brögðum tækninnar sett saman þekkile- gustu myndir. í ljósi framanskráðs er því eðli- Valgerður Hauksdóttir myndlistarkona. legt, að listamönnum, sem er annt um heiður sinn, reyni að setja sitt persónulega mark á myndir sínar og gera það á þann hátt að tor- velt verði tU efÖrlíkingar. Eitt er það td. að mála með litum í svart-hvítar grafikmyndir eða nota blandaða tækni í útfærslu þeirra, sem gerir samsetninguna flóknari og persónulegri og erfið- ari til eftiriflringar. Angi af þessari þróun kemur að mínu mati greinilega fram í myndum Valgerðar Hauksdótt- ur, sem um þcssar mundir sýnir í Gallerí Borg við Pósthússtræti. Hún blandar t.d. kol. krít og tré- ristu í einni myndanna á sýning- unni og í annarri gengur hún ennþá lengra og bætir þurrnál við. Þetta eru og einnig þær myndir, sem mér þóttu áhuga- verðastar í viðkynningu á sýning- unni, enda hefur þetta ekki verið gert áður hér á landi, svo ég viti. Ekki er það þó svo, að það sé vegna vinnsluaðferðarinnar sjálfr- ar einvörðungu, að þær vöktu athygli mína, heldur einnig fyrir útfærsluna og þau listrænu átök, sem mér finnst meiri í þeim en flestu öðru á sýningunni. Hér á ég við myndirnar Dagur og Nótt" (5) og Þú og ég" (22). Tæknilega má segja, að sýningin sé nær óaðfinnanleg nema þá helst, að í steinþrykkjunum kemur hin sérstaka áferð kalksteinsins ekki fram, sem getur stafað af því, að þær séu unnar á zink- plötur, sem einnig er hægt og raunar algengt. Picasso o.fl. blön- duðu þessu tvennu saman til að ná einnig inn blæbrigðum steins- ins. Plöturnar eru margfalt léttari og meðfærilegri en hafa sína ann- marka. í heild er sýningin nokkuð eintóna, en hér er á ferð listamað- ur sem telst í upphafi ferils síns og hefur tímann fyrir sér til að byggja á þeirri tæknilega undir- stöðu, sem virðist hafa verið inn- tak menntunar hennar___ Teiknað með myndavél" í Listasafni ASÍ sýnir Guð- bjartur Gunnarsson 44 myndir gerðar í tækni, sem hann nefnir fótógrafík, og stendur sýningin til 10. apríl. Hér er auga myndavélarinnar, ljósopið, notað til að teikna með og myndirnar gerðar með í huga að herða þær upp og búa til eftir þeim grafískar myndir með sáld- þrykki. Þetta er nokkuð flóknara ferli en t.d. að vinna beint á silk- ið með litógrafískri krit- túski eða útklipptum/niðurskornum filmu- formum, en hins vegar verður útkoman í öllum tilvikum stórum vélrænni. Þetta er þó mjög algeng aðferð í nútíma sáldþrykki og er það sennilega vegna hennar, að margur vill meina, að hér sé ekki um hreina grafík að ræða. Hins vegar býr sáldþrykkið yfir miklum grafískum möguleikum í sinni hreinustu mynd, þegar hjálpar- tækjum sleppir. Málið er, að vegna meðfærileika þess þá hefur það verið notað svo mjög til hönnunar hvers konar, að það fær auðveld- lega á sig eins konar léttunnin fjöldaframleiðslusvip og yfirbragð gervitækni, sem mjög ber að var- ast í listgrafík hvers konar. Myndir Guðbjarts Gunnarsson- ar, sem unnar eru á mislitan pappír í þrykkingu til að ná fram mismunandi blæbrigðum, eru ekki lausar við að vera þessu marki brenndar einkum er hann nálg- Eitt verka Guðbjarts Gunnarssonar. ast sjálfa ljósmyndina full mikið. En hins vegar eru harðar myndir í svarthvítu, svo sem Steinn yfir steini" (27), og Svartir kassar og engir eins" (28) lausar við þessa annmarka. Þessi tækni ásamt hliðargeirum hennar hefur verið notuð á marga vegu af listamönnum á undanf- örnum áratugum og þá ekki síst popplistamönnum, er þekktu hana úr auglýsingafaginu, sem þeir voru margir tengdir upphaflega. Myndir Guðbjarts vega salt á milli hlutveruleikans og hins ab- strakta og hvort heldur er, þá nær hann að mínu mati bestu tökunum á myndefninu og miðlinum, þegar hann vinnur einfalt og vafninga- laust... Eitt lítið hylki af GERICOMPLEX inniheldur: -----------GINSENG G115 Staðlað þykkni úr Ginseng rótinni, eykur líkamlegt og andlegt starfsþrek. DIKALCIUM FOSFAT Mikilvægt byggingarefni fyrir tennur og bein, einnig mikilvægt fyrir vöðva, taugar og æðakerfL ^LECITHIN Nauðsynlegt fyrir taugavefma og minnkar likur á æðakölkun með þvi að halda blóðfitu uppleystri. JARN Naúðsynlegt til blóðmyndunar, vöm gegn streitu og sjúkdómum. MAGNESIUM Mikiivægt byggingaremi fyrir bein, æðar, taugax og tennur. KALIUM Kemur i veg fyrir að of mikill vökvi bindist í iíkamanum (bjúgur). KOPAR Nauðsynlegt til myndunar RNA-k)amsýra, hjálpar til við myndun hemoglobins og rauðra blóðkorna. ------MANGAN Nauðsynlegt við myndun kynhormóna, mikUvægur hluti ýmissa efnahvata. ZINK Mikiivægt við frumumyndun og efhaskipti. Mjög nauðsynlegt tii þess að blöðruhálskyrtillinn starfi eðliiega. A-VTTAMIN Blóðaukandi, styrkir beinin og tennumar. Hefur góð áhrif á nýru og lungu. B-I VÍTAMÍN Styður orkugjafa líkamans. Viðheldur tauga- og jafnvægiskerfinu. Vinnur gegn streytu. -B-2 VÍTAMÍN Nauðsynlegt fyrir húðina, neglur og hár. -B-3 VÍTAMÍN Auðveldar starf taugakerfisins. Hjálpar til við meltinguna og hressir upp á húðina. -----B-5 VÍTAMÍN Aðstoðar við hormónamyndun og myndar mótefni. Tekur þátt í orkumyndun likamans. Vinnur gegn streytu. ----B-6 VÍTAMÍN Nauðsynlegt fyrir nýtingu Ifkamans á fituefnum. HjáJpar til við myndun rauðra blóðkoma. B-12 VÍTAMÍN Mjög blóðaukandi. Nauðsynlegt ryrir tauqakerfid og heilasellumar. -----C-VÍTAMÍN Vinnur gegn kvefi og kvillum. Hefur stjórn á blóðfítumagninu. D-VÍTAMÍN Nauðsynlegt í nýtingu kalks og fosforus. Talið hmdra vöðvarýmun. E-VÍTAMÍN Mótefni sem hindrar óæskilega virkni súrefnis i líkamanum. Lengir lif rauðu blóðkomanna, eykur þrekið. -P-VÍTAMÍN Eykur áhrif C*vitamins og vinnur með því. Gericomplex fæst i Heilsuhúsinu, Skólavöröustíg 1 a og Kringlunni, einnig iheilsuhillum matvöruverslanna og íapótekum. Éh eíisuhúsið Hylkið á myndinni er stækkað um 375%.