Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988

C    21

STOKKSEYRARKIRKJA: Föstu-

dagurinn langi: Messa kl. 14.

Páskadagur: Messa kl. 14. Annar

páskadagur: Barnamessa kl. 11.

Sóknarprestur.

GAULVERJABÆJARKIRKJA: Ann-

ar páskadagur: Messa kl. 14.

HVERAGERÐISKIRKJA: Páska-

dagur: Hátíöarmessa kl. 11. Annar

páskadagur: Fermingarmessa kl.

11.

STRANDARKIRKJA:           Hátíðar-

messa föstudaginn langa kl. 14.

HJALLAKIRKJA:      Hátíöarmessa

annan páskadag kl. 14.

KAPELLA NLFÍ Hveragerfti: Há-

tíöarmessa páskadagsmorgun kl.

8.

ÞORLÁKSKIRKJA: Hátíðarmessa

páskadag kl. 13.30. Sr. Tómas

Guðmundsson.

ÞINGVALLAKIRKJA: Skírdags-

kvöld, altarisganga kl. 21. Föstu-

daginn langa: Písiarsagan lesin kl.

14. Páskadagur: Hátíðarguðsþjón-

usta kl. 14. Organisti páskadag

Einar Sigurðsson. Sóknarprestur.

AKRANESKIRKJA:          Skírdagur:

Messa kl. 20.30. Altarisganga.

Messa á sjúkrahúsinu kl. 13 og á

dvalarheimilinu Höfða kl. 14. Altar-

isganga. Föstudagurinn langi:

Barnasamkoma kl. 11. Hátíðar-

guðsþjónusta kl. 14. Páskadagur:

Hátíðarguðsþjónustur kl. 8 og ki.

14. Einsöngvarar: Guðrún Ellerts-

dóttir og Kristján E. Jónasson.

Annar páskadagur: Skírnarguðs-

þjónusta kl. 13.30. Fermd verður

Thelma Ýr Woudstra, Hol-

landi/Vesturgötu 42. Organistar:

Jón Ólafur Sigurðsson og Haukur

Guðlaugsson. Sr. Björn Jónsson.

BORGARPRESTAKALL: Föstu-

dagurinn langi: Messa í Borgar-

neskirkju kl. 14. Páskadagur: Há-

tíðarguðsþjónusta Borgarnes-

kirkju kl. 11. [ Borgarkirkju kl.

13.30. í Álftártungukirkju kl. 16.

Annar páskadagur: Messa í Álfta-

neskirkju ki. 14. Guðsþjónusta í

dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi

kl. 16.30. Sóknarprestur.

SIGLUEJARÐARKIRKJA: Skírdag-

ur: Guðsþjónusta í sjúkrahúsinu

kl. 10.30. Föstudagurinn langi:

Guðsþjónusta kl. 15. Litanía sr.

Bjarna Þorsteinssonar flutt. Stól-

vers: Ave verum corpus. Altaris-

ganga. Páskadagur: Hátíðarguðs-

þjónusta kl. 8. Stólvers: Exsultate

justi. Organisti Antony Reley.

Páskakaffi í safnaðarheimilinu eftir

messu. Hátíðarguðsþjónusta í

sjúkrahúsinu kl. 10.15. Skírnar-

stund í kirkjunni kl. 11.15. Sr. Vig-

fús Þór Árnason.

Sjálfsmorðí

spray-brúsum

eftir Hólmstein

Brekkan

Stórt smámál

Af ög til hafa birst greinar og

fréttapistlar í blöðum um eyðingu

ósonlags jarðarinnar. Sérstaklega

hefur Morgunblaðið verið ötult við

að vekja máls á þessari aðsteðjandi

hættu sem okkur stafar af eyðingu

ósonlagsins. Því miður virðist al-

menningur gefa þessu svo mjög

mikilvæga máli lítinn gaum og hefur

það verið mér tilefni til hugleiðinga

um hvað veldur. í mínum augum er

eyðing ósonlagsins stórmál sem

snertir mig og alla aðra íbúa þessar-

ar jarðar. Ég verð að viðurkenna að

ég er sekur og á þátt í eyðingu óson-

lagsins. í hvert skipti sem ég hleypi

af spray-brúsa þá legg ég mitt af

mörkum í átt til eyðingar lífs á jörð-

inni.                                                ,

AI varleg- þægíndi

Fyrir nokkrum árum minnist ég

þess að hafa velt fyrir mér alvör-

unni í þessu máli en komst þá að

þeirri niðurstöðu að þægindin við

notkun spray-brúsa væru mikilvæg-

ari en eyðing ósonlagsins. Að þess-

ari niðurstöðu komst ég með því að

horfa á spray-brúsann og bera hann

við himininn. Með þessari athöfn

tókst mér að sannfæra sjálfan mig

um að þarna uppi í himninum væri

nóg pláss fyrir nokkra lítra af

klórflúorkolefni í viðbót og með það

lét ég vaða úr brúsanum. Síðan þá

hef ég tæmt úr ótölulegum fjölda

spray-brúsa og sennilega dælt út

fleiri lítrum af klórflúorkolefni en

þessum sem ég taldi að pláss væri

fyrir þarna uppi í himninum. í dag

geri ég mér grein fyrir því hversu

alvarleg þægindi þrýstibrúsanna

eru.

Aldrei of seint gott að gera

Með þessari grein er ég ekki að

skera upp herör gegn framleiðend-

um spray-efna sem innihalda klór-

flúorkolefni heldur einungis að

hvetja fólk til að staldra við og

hugsa. Ég vil eindregið hvetja fólk

til að íhuga samhengið á milli spray-

-brúsans, sem stendur inni á baði

eða úti í bílskúr og eyðingu óson-

Hólmsteinn Brekkan

„í minum augum er

eyðing ósonlagsins

stórmál sem snertir migf

og alla aðra íbúa þess-

arar jarðar. Ég verð að

viðurkenna að ég er

sekur og á þátt í eyð-

ingu ósonlagsins."

hjúps jarðarinnar. Einnig væri gam-

an ef einhver af okkar ástkæru al-

þingismönnum myndi íhuga þetta

mjög svo mikilvæga mál. Þetta rnál

sem snertir ekki einungis okkur ís-

lendinga heldur alla heimbyggðina

og allt líf á okkar jörð.

Líf og dauði

Svo alvarlegt tel ég þetta mál

vera fyrir mig að ég þori að fullyrða

að hér sé um líf og dauða að velja.

Engan mann þekki ég sem ekki vel-

ur lífið fram yfír dauðann. Og engan

mann veit ég um sem ekki væri tilbú-

inn að fórna öllum sínum veraldlega

auði fyrir líf sitt. Mitt líf er það

dýrmætasta sem ég á og tel ég að

engin auðlegð sé til nema lffið sjálft.

Það er okkar að varðveita lífið þann

stutta tíma sem við fáum að lifa því.

Höfundur er blikksmíðameistari.

HÚSEIGANDl GOÐUR!

ERTU ÞREYTTUR

Á VIÐHALDINU?

Eru eftirfarandi vandamál

að angra þig?

% Alkalí-skemmdir   0 Vaneinangrun

0 Frost-skemmdir     9 Sprunguviðgerðir

0 Lekir veggir           # Síendurtekin málningarvinna

Ef svo er, skaltu kynna þér kosti

sto-utanhúss-klæðningarinnar:

stb-klæðningin   er samskeytalaus.

sto-klæðningin   er veðurþolin.

Stb-klæðningin   er litekta og fæst í yfir 300

litum.

stD-klæðningin   er teygjanleg og viðnám gegn

sprungumyndun er mjög gott.

sto-klæðningin   leyfir öndun frá vegg.

stO'klæðningin   gefur ótal möguleika í þykkt,

áferð og mynstri.

stb'klæðninguna   er unnt að setja beint á vegg,

plasteinangrun eða steinulf.

stó'klæðninguna   er hægt að setja ó nær hvaða

byggingu sem er, ón tillits til

aldurs eða lögunar.

sfo-klæðningin endist - Vestur-þýsk gæðavara

Til að tryggja ásetningu

sto-kiæðningarefnanna ¦ sumar,

vinsamlega hafiö samband sem fyrst.

Opið laugardag og mánudag

frá kl-13.00-18.00.

Bíidshöfða18 (Bakhús)

112 Reykjavík - Sími 673320

Tvöfaldur páska^imingur 6-7

Munið útdráttinn á laugardag.

Flestir sölustaðir opnir á skírdag.

Gleðilega páska!

» 0

Upplýsingasími: 685111

					
Fela smįmyndir
C 1
C 1
C 2
C 2
C 3
C 3
C 4
C 4
C 5
C 5
C 6
C 6
C 7
C 7
C 8
C 8
C 9
C 9
C 10
C 10
C 11
C 11
C 12
C 12
C 13
C 13
C 14
C 14
C 15
C 15
C 16
C 16
C 17
C 17
C 18
C 18
C 19
C 19
C 20
C 20
C 21
C 21
C 22
C 22
C 23
C 23
C 24
C 24
C 25
C 25
C 26
C 26
C 27
C 27
C 28
C 28
C 29
C 29
C 30
C 30
C 31
C 31
C 32
C 32
C 33
C 33
C 34
C 34
C 35
C 35
C 36
C 36
C 37
C 37
C 38
C 38
C 39
C 39
C 40
C 40
C 41
C 41
C 42
C 42
C 43
C 43
C 44
C 44
C 45
C 45
C 46
C 46
C 47
C 47
C 48
C 48
C 49
C 49
C 50
C 50
C 51
C 51
C 52
C 52
C 53
C 53
C 54
C 54
C 55
C 55
C 56
C 56
C 57
C 57
C 58
C 58
C 59
C 59
C 60
C 60
C 61
C 61
C 62
C 62
C 63
C 63
C 64
C 64