Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						-& t

RRPr ,vq»w  r? qnrvAfT'mJiMT's wtA.fíIwiTOWW

MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988

F

u

Mikill sálarháski að

afrækja kirkju sína

Lítil kirkjusókn er

mörgum áhyggjuef ni. Á

sunnudögum er allur

fjöldinn annars staðar en

í messu. Þorlákur biskup

Skúlason hafði einnig af

því nokkrar áhyggjur á

sinni tíð ef menn van-

ræktu messur. E.t.v. eiga

umvandanir kirkjuhöfð-

ingjans ekki síður erindi

til landsins barna í dag

en árið 1645.

Þverúðugar persónur

Arið 1645 fengu sóknarmenn í

Tjarnarsókn og Kirkjuhvamms-

sókn á Vatnsnesi bréf frá bisk

upi. „Látandi þá hér með vita að

fyrir mig er komið, að þar skuli

vera ein persóna eður tvær sem

þverúðarlega afrækja kirkju sína

og gegni ekki sóknarprestinum

þó hann þar um vandi, hvar þeir

munu í samvisku sinni, (ef þeir

hafa nokkra þekkinga á Guði og

hans orði) sjálfir dæma að vera

hinn mesta sálarháska fyrir sjálfa

sig og mesta hneyksli fyrir

aðra . . ."

„Yfir þvílíkum klagar drottinn,

Esa. 30 cap., segjandi það er eitt

óhlýðugt fólk og lygigjörn börn

sem ekki vilja hlýða lögmáli drott-

ins, heldur segja til þeirra sem

kenna skulu, kenn þú oss ekki,

og til umsjónarmannanna, gef

engan gaum að oss með réttum

lærdómi heldur predika oss mjúk-

lega . . ."

„Svo áminni ég nú áðursagða

þyngjunauta eftir skyldu míns

embættis hvort þeir eru einn, tveir

eður fleiri að þeir ekki með af-

ræki sinni við kirkjuna og Guðs

orða heyrn, reiti Guð til reiði og

safni sér hinum mesta sálarháska,

en samkristnum náunga dauðlegt

hneyksli. En vilji þeir ekki hér að

gjöra og það bevísist að nokkrir

af þeim séu - 3 helga daga í samt

frá sóknarkirkju sinni þá embætt-

að er, þá befala ég sóknarprestin-

um, eftir upplesin þessi mín bréfs-

orð og að gjörðum þremur áminn-

ingum, að frávísa þvílíkum Guðs-

orða forögturum frá heilögu

sakramenti og Guðsbarna sam-

neyti, eftir því sem stendur í

skikkun sáluga Páls Stígssonar

höfuðsmanns, góðrar minningar,

vilji það og ekki hjálpa þá hlýt

ég vegna Guðs vandlætingar að

láta lesa yfir þeim kirkjunnar

bann og forboð . . ."

Forboð, bann hið minna, var í

því fólgið að menn voru útilokaðir

frá kirkjusókn og þjónustu presta.

Bannsetning, bann hið meira, úti-

lokaði menn frá samneyti við

kristið fólk og útskúfaði þeim úr

þjóðfélaginu.   Bannfæring   hélst

áfram eftir siðaskipti, einkum

bann hið minna eða forboð og var

ekki numið úr lögum fyrr eh með

konungsbréfi 1782.

Röggsamur og réttlátur

Þorlákur Skúlason fæddist á

Eiríksstöðum í Svartárdal 24.

ágúst 1597. Móðir hans, Stein-

unn, var laundóttir Guðbrands

biskups Þorlákssonar. Þorlákur

ólst upp á Hólum hjá Guðbrandi

afa sínum og nam í Hólaskóla.

Hann vígðist til prests 1624 og

var kjörinn Hólabiskup 1627.

Heimildir benda til þess að hon-

um hafi farið biskupsstjórnin vel

úr hendi, röggsamur en þó réttlát-

ur. Jón Halldórsson segir í Bisk-

upasögum sínum: „Herra Þorlák-

ur var mikill lánsmaður, vel lærð-

ur gáfumaður, vandaði mjög alla

sína embættisgerð og var í stórri

gúnst hjá höfuðsmönnum hér á

landi og einna mest ríxadmíral

Hendrick Bjelke, vel látinn af

prestum sínum sem öllum öðrum,

því hann hélt alla æfi sína sama

lítillæti, ljúflyndi, guðhræðslu,

hýrlyndi, örlæti, siðprýði, guðs-

þakkagirni og var því flestum

harmdauði."

Þorlákur var einnig hamingju-

samur í einkalífi, hann kvæntist

Kristínu, dóttur Gísla lögmanns

Hákonarsonar. Þeim hjónum varð

6 barna auðið og urðu tveir son-

anna biskupar, þeir Gísli og Þórð-

Þorlákur biskup Skúlason.

ur. Þorlákur biskup var lærdóms-

maður og menningarfrömuður og

studdi m.a. Björn Jónsson frá

Skarðsá við annálaskrif hans.

Einnig er talið að hann hafi í bisk-

upstíð sinni látið prenta 30-40

bækur. Mest þessara bóka er Bi-

blían, Þorláksbiblía svonefnd

1644.

Þorlákur   biskup   andaðist   4.

janúar 1656 eftir stutta banalegu.

samapa 1500

Þegar hugað er að bílakaupum.vakna margar spumingar, m.a.

hver er tilgangur bílsins, hverjar eru aðstæðurnar o.s.frv. Hér

að neðan gefur að líta nokkrar staðreyndir um Lada Samara.

Sem dæmi má nefna framúrskarandi fjöðrun, hátt undir lægsta

punkt, kraftmikill og sparneytinn. Sé einhverjum spurningum

ósvarað, ræddu þá við sölumenn okkar, sem gefa nánari upplýs-

ingar um Lada Samara og ath. að verðið er engin spuming.


Stærri vél, 1500.

Einstök fjöðrun.

Opið á laugardögum f rá kl. 10—16.

Beinn sími í söludeild: 31236.

Framdrif sbíll á

hramúrifsbiiia   |/r 04QAAA

algjöru undraverði:   ¦*¦ • 010,\)\)\)}1

BIFREIÐAR & LANDBUNAÐARVELAR

Suðurlandsbraut 14. Sími 681200.

Umboðsaðilar:

Bílás, Akranesi. S. 93-12622.

Jóhannes Kristjánsson, Akureyri. S. 96-23630.

Bílaleiga Húsavikur. S. 96-41888.

4-~

					
Fela smįmyndir
C 1
C 1
C 2
C 2
C 3
C 3
C 4
C 4
C 5
C 5
C 6
C 6
C 7
C 7
C 8
C 8
C 9
C 9
C 10
C 10
C 11
C 11
C 12
C 12
C 13
C 13
C 14
C 14
C 15
C 15
C 16
C 16
C 17
C 17
C 18
C 18
C 19
C 19
C 20
C 20
C 21
C 21
C 22
C 22
C 23
C 23
C 24
C 24
C 25
C 25
C 26
C 26
C 27
C 27
C 28
C 28
C 29
C 29
C 30
C 30
C 31
C 31
C 32
C 32
C 33
C 33
C 34
C 34
C 35
C 35
C 36
C 36
C 37
C 37
C 38
C 38
C 39
C 39
C 40
C 40
C 41
C 41
C 42
C 42
C 43
C 43
C 44
C 44
C 45
C 45
C 46
C 46
C 47
C 47
C 48
C 48
C 49
C 49
C 50
C 50
C 51
C 51
C 52
C 52
C 53
C 53
C 54
C 54
C 55
C 55
C 56
C 56
C 57
C 57
C 58
C 58
C 59
C 59
C 60
C 60
C 61
C 61
C 62
C 62
C 63
C 63
C 64
C 64