Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988

C    43

Islenskri þjóð hefur verið

talið til gildis að hún

hef ur varast vígaferli og

lítt sinnt vopnaskaki.

Magnús Jónsson prúði, sýslu-

maður á Bæ á Rauðasandi,

hafði aðra skoðun á vopna-

burði fslendinga. 12. október

1581 var að hans frumkvæði

kveðinn upp sá dómur í Tungu

í Patreksfirði: „að allir menn

hér á landi séu skyldir að eiga

vopn og verjur eftir fjárupp-

hæð".

Vopnabrot var stór ósiður

í Vopnadómnum svonefnda

kemur fram að íslendingar voru

þá vopnlausir að kalla, höfðu

afvopnast eða verið afvopnaðir

fyrir fáum árum (e.t.v. fimm

árum). f dómsorði segja þeir

þrettán menn sem voru kvaddir

í dóminn að þeir hafi verið til-

nefndir til að: „. . . að skoða

og rannsaka og síðan fullnaðar-

dóms atkvæði á að leggja um

þá klögun og ákæru, sem hann

þar samstundis fyrir oss fram

bar sökum fátæks almúga og

almennilegrar nytsemi í hans

umdæmi, sem var

í fyrstu um þann stóra ósið

og almennilega fordjörfun, já og

líka vel má heita foröktun og

afdráttur Danmerkur og Noregs

krúnu og vors hogbornasta, stór-

mektugasta kóngs fyrirlitning

sem hér til af nokkrum óforsótt-

um vorum sýslumönnum og fó-

vetum nú fyrir fáum (e.t.v. fimm)

árum sem ei að eins með skyldu

hafa af skipað, já og með heipt

og valdi fyrir mörgum dugandis

mönnum vopn og verjur brjóta

látið, heldur og öll afdæma látið

svo gjörsamlega, að menn hafa

varla fúndist svo um allt landið,

eitt lagvopn hafi átt eða þorað

að hafa, svo opinberlega að hafi

haft, að hafi mátt reyna fyrir sér

Magnús prúði og

fjölskylda við krossinn.

Minningartafla frá

Bæ á Rauðasandi.

þriggja atgeira frá 16. öld í

Grísatungufjöllum í Þingeyjar-

sýslu í því sambandi. Atgeirar

þessir fundust árið 1965.

I Vopnadómi var svo mælt

fyrir að allir skattbændur skyldu

„kaupa og eiga eina luntabyssu

og þrjár merkur púðurs, þar með

einn arngeir (atgeir) og annað

lagvopn gilt og gott". Einhleyp-

ingar skyldueiga„lagvopn og

stikhníf". Sá sem var svo vel

stöndugur að hann ætti a.m.k.

20 hundruð skyldi kaupa „byssu,

boga og langspjót fyrir hvern

sinn vígfæran mann og aðrar

verjur sem hann ætlar gagnlegar

eftir dýrleika og hann verður til

skyldaður eftir dómi eða kóngs

skipan".

Ekki að tilefnislausu

Sú fordæming og vantrú á

afvopnun íslendinga sem birtist

í Vopnadóminum var ekki alveg

tilefnislaus. í Eyrarannál stend-

un „Anno 1578 . . . Komu

ránsmenn útlenskir á Vest-

fjörðu . . . Þeir tóku Eggert

Hannesson til fanga og var hann

leystur með miklu gjaldi og

gerðu silfri af dóttur sinni Ragn-

heiði í nær hálftunnu ..."

Magnús prúði var einmitt

kvæntur Ragnheiði, dóttur Egg-

erts lögmanns, Hannessonar.

Jóni Þorkelssyni þjóðskjala-

verði  farast svo orð  í  Sö gu

Afvopnun 0g

vígbúnaður

— Magnús prúði taldi vopnleysi

vondan kost

Magnúsar prúða, 1895: „Þessi

ránskapur og fangelsan Eggerts

er ljósast dæmi upp á það, hvern-

ig manndómur og karlmennska

voru farin á íslandi á seinni hluta

16. aldar . . ." Einnigsegir Jón:

„íslendingar gátu ekkert gert

annað en horft á og mokað fé

sínu í þennan trantaralýð."

Ránið á Bæ og skýrsla Eg-

gerts Hannessonar um það, urðu

líklega til þess að Friðrik annar

Danakonungur, brá á það ráð

árið 1580, að senda i hverja sýslu

átta spjót og sex byssur.

Annars þurfti ekki yfirgang

útlendinga svo Vestfirðingar

brygðu brandi. Jón Eggertsson,

mágur Magnúsar prúða, fann

upp á því við drykkju í Síðumúla

1570 að leggja korða sínum und-

ir borðið til Jóns Grímssonar og

hlaut hann bana af. Jón Eggerts-

son flúði til Hamborgar og sett-

ist þar að.

Magnúsi prúða er svo lýst í

Skarðsárannál sem Björn lög-

maður Jónsson skrifaði á fjórða

áratug 17. aldar: „Einn hans

höfðingsskapur var sá, er menn

sáu alt.íö, er hann reið til á al-

þing, að hans selskapur var auð-

kenndur frá annarra fylgd í því,

að þeir höfðu nær allir sitt lag-

vopn, og setti hver einn upp sitt

vopn, er heim á Þingvöll riðu

fyrst, og voru það um 40 menn

vel svo, er slík lagvopn höfðu.

Þetta var svo hvert sumar meðan

bóndinn Magnús sat uppi . .   *

Vopnadómurinn var ekki lagð-

ur fyrir Alþingi og komst því

ekki nema að nokkru leyti í fram-

kvæmd. Vopnaeign og vopnburði

landsmanna fór því hrakandi.

Birni frá Skarðsá þótti það mið-

ur. „Þetta má halda bæði skyn-

samlega, nauðsynlega og rögg-

samlega dæmt, og hefði verið

þarflegt uppi að halda, og er

undur slíkur dómur hefur ekki

framkvæmd fengið um landið,

svo menn væru ekki þeir aukvis-

ar ætta sinna, að ekkert geri

annað en gala og flýja, þó einn

lekabátur að landi kæmi, eða að

vera teknir og hentir heima hver

á sínum stað, sem búfé í haga,

hverju vorir foreldrar eður forf-

eður í fyrri öldum mundu aldrei

trúað hafa, svoddan óöld yrði."

f Skarðsárannál er ennfremur

svo sagt frá Magnúsi prúða:

„Magnús var mjög vitur maður

og ágætt skáldmenni, sem hans

kveðlingar vitni um bera."

Magnús orti m.a.:

Hjálpi hver, sem hjálpa kann

og hjartaprýði þar til ber,

líf og góss leggi út hann,

svo laga og réttar njótum vér.

75. grein stjórnarskrár lýð-

veldisins í slands er líklega í anda

Magnúsar Jónssonar prúða:

„Sérhver vopnfær maður er

skyldur að taka sjálfur þátt i

vörn landsins, eftir því sem ná-

kvæmar kann að verða fyrir

mælt með lögum."

Enn hafa nánari lög ekki ver-

ið sett.

Magnús með sonum sínum.

vötn og ísa eður einn glepsandi

hund frá sér reka, móti allra

landa, allra þjóða öllum plagsið,

venju og lögmáli um alla veröld-

ina".

Af ofangreindu má ráða að

„óforsettir sýslumenn og fóget-

ar" hafi brotið vopn landsmanna

þá fyrir fáum eða fimm árum.

Páll Eggert Ólason, skrifstofu-

stjóri og fræðimaður á handrita-

deild Landsbókasafhsins, taldi

ekki ósennilegt að Danakonungi

hafi þðtt nóg um óróa og víga-

ferli landsmanna í kringum og

MorRunblaðia/Sverrir

eftir siðaskiptin og því lagt það

fyrir embættismenn sína að þeir

skyldu draga til sín vopnabirgðir

landsmanna og jafnvel fyrir-

muna mönnum vopnaburð.

Björn Teitsson sagnfræðingur

telur í íslandssöguköflum, 1551-

1630 hugsanlegt að einhverjir

þessara „dugandis manna" hafi

fremur falið vopn sín en að láta

brjóta þau og bendir á fund

Vígaferli

á 16. öld.

v     j v

»*   "^-rs    v —r

Atgeir frá 16. öld.

_}***•'-

					
Fela smįmyndir
C 1
C 1
C 2
C 2
C 3
C 3
C 4
C 4
C 5
C 5
C 6
C 6
C 7
C 7
C 8
C 8
C 9
C 9
C 10
C 10
C 11
C 11
C 12
C 12
C 13
C 13
C 14
C 14
C 15
C 15
C 16
C 16
C 17
C 17
C 18
C 18
C 19
C 19
C 20
C 20
C 21
C 21
C 22
C 22
C 23
C 23
C 24
C 24
C 25
C 25
C 26
C 26
C 27
C 27
C 28
C 28
C 29
C 29
C 30
C 30
C 31
C 31
C 32
C 32
C 33
C 33
C 34
C 34
C 35
C 35
C 36
C 36
C 37
C 37
C 38
C 38
C 39
C 39
C 40
C 40
C 41
C 41
C 42
C 42
C 43
C 43
C 44
C 44
C 45
C 45
C 46
C 46
C 47
C 47
C 48
C 48
C 49
C 49
C 50
C 50
C 51
C 51
C 52
C 52
C 53
C 53
C 54
C 54
C 55
C 55
C 56
C 56
C 57
C 57
C 58
C 58
C 59
C 59
C 60
C 60
C 61
C 61
C 62
C 62
C 63
C 63
C 64
C 64