Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						46    C

MORGUNBLAÐIÐ, FMMTUDAGUR 31. MARZ 1988

a drotiinma

Umsjón:

Séra Auður Eir Vilhjáímsdóttir

Séra Kristján Valur Ingólfsson

Þorbjörg Danielsdóttir

Hvers virði er

upprisan mér?

Ef Kristur er ekki upprisinn er trú okkar ekki annað en endileysa. En Kristur er upprisinn!

Hvaða þýðingu hefur upprísan?

Hvaða þýðingu hefur upprisan fyrir fólkið, sem

vaknar á páskadagsmorgun, fólk, sem vaknar til

mismunandi heimilislífs, mismunandi tilfmninga,

á mismunandi lífsreynzlu og vinnur mismunandi

störf á virkum dögum?

Ég batt á mig skóna í sólskininu á föstudaginn

í hinni vikunni og stikaði út til að taka fólk tali

af handahófi og fá að birta niðurstöðu svaranna

nafhlaust en með vildarkveðjum og páskaóskum

frá þeim, sem svöruðu, til ykkar, kæru lesendur.

Svörin komu mér á óvart, gleðilega á óvart. í

fyrsta lagi fannst mér það gleðilegt hvað þau

tóku spurningunni vel, bæði ungt fólk og eldra

og hugleiddi hana og svaraði af íhygli. í öðru

lagi hafði ég ekki búizt við að svo mörg þeirra

segðust staðfastlega trúa upprisuboðskapnum.

Niðurstaða þessarar stuttu könnunar minnar var

sú að flestir, sem ég spurði, trúðu á upprisuna

sem kraft Guðs, sem reisti Jesúm frá dauðum.

Það sannar þeim að ástvinir þeirra, sem eru dán-

ir, lifí með Guði. Það fyllir þau ómetanlegu öryggi

í daglegu lífí. Annan kraft upprisunnar höfðu þau

síður hugleitt. Þau töldu þó að sá kraftur bæri

þau uppi og að þau ættu að gera sér betri grein

fyrir því. Sum þeirra fóru reglulega í kirkju og

störfuðu i söfnuðunum, önnur fóru næstum aldr-

ei í kirkju.

Svo fékk ég tvo viðmælendur til að hugleiða

það með okkur hvers virði þau telja upprisuna.

Séra Stína Gísla-

dóttir svarar

Séra Stfna Gísladóttir er

nývigður prestur, sem þjónar

sem farprestur á Blönduósi.

Sem aðrir prestar stendur hún

í starfi sínu andspænis margvis-

legum aðstæðum sóknarbarna

sinna, sem oft knýja fram

spurningar um kristna trú.

— Upprisa táknar fyrir mér

betta tvennt:

1. Jesús er upprisinn frá dauðum

og

2. í krafti upprisu sinnar mun

hann reisa alla lærisveina

sína upp til eilífs lífs með

sér.

Hvaða máli skiptir þetta svo

fyrir mig í daglegu lífi?

Það gefur lífí mínu tilgang

Með því að treysta orðum Jesú

og vænta þess að hann muni að

loknu jarðlffinu reisa mig upp til

eilífs lífs með sér, gefur það lífinu

markmið og innihald, sem Guð

sjálfur hefur sett því í upphafi

sköpunar. Lffið verður þjónusta

við þann Guð, sem ber svo mikla

umhyggju fyrir mér.

Það styrkir í mótlæti

Daglegt líf er ekki eintómur

dans á rósum, heldur líka sorg

og þjáning, þrældómur og bar-

átta, andleg og líkamleg. Jesús

hughreysti lærisveina sína áður

en hann var handtekinn og kross-

festur og sagði: „Hafí þeir ofsótt

mig, munu þeir líka ofsækja yð-

ur." Jesús leið og þjáðist án þess

að kvarta. Því skyldum við þá

kvarta, ef hann er með og leiðir

okkur öruggt að markinu, til hins

fullkomna lífs í upprisunni?

Það gefur von í dauða

Hvort sem við stöndum við

dánarbeð ástvinar eða vinar, eða

við vitum, að dauði okkar er

nærri, þá breytir það öllu að vita,

að dauðinn er innganga í hið nýja,

fullkomna líf, sem Jesús leiðir

okkur inn í. Hinn upprisni frelsari

mun reisa okkur upp með sér,

skapa okkur að nýju og gjöra alla

hluti nýja.

Upprisutrúin er samfélag

Upprisa Jesú frá dauðum er

grundvöllur kristinnar trúar. Væri

Barlómur í stað páskagleði

Spjallað við

Jónas Þórisson

kristniboða

Jónas Þórisson hefur verið

kristniboði í Eþíópíu í 15 ár og

er nýlega fluttur heim með fjöl-

skyldu sinni. Ég taldi að ykkur

kynni að finnast athyglisvert

að heyra um skoðun hans á

upprisukraftinum i íslenzku

þjóðlífi.

— Nú höfum við búið í 1 ár í

umhverfi, þar sem vandamál ann-

arra eru meginmáiið. Við höfðum

nóg fyrir okkur að íeggja og vor-

um ánægð með það, sem við höfð-

um. Hér erum við hins vegar

pressuð inn í samfélag, þar sem

ytri kjör skipta mestu og mönnum

er talin trú um að lífíð sé ekkert

annað.

Segðu okkur þá hvað annað

lífið er.

Ufið hefur eilíft gildi. Gildis-

matið er ekki bara bundið við það

ytra,   að  eignast   nýjan   bfl,   fá

hærri laun, tryggja framtíð barn-

anna með menntun og eignum.

Þegar ég flutti heim aftur fannst

mér allt kúgað af þessum kröfum.

í fjölmiðlunum er sífellt verið að

tala um kaup og kjör og kröfur.

Ég er ekki í vaf a um að óréttlætið

í þessum málum er mikið. En

þetta sífellda tal, sem glymur í

eyrum okkar jafnt og þétt, gerir

okkur síóánægð. Allt það, sem við

eigum, ætti að gera okkur ánægð

og hvetja okkur til fórnfýsi. En

ekkert kemst að nema barlómur.

Börnin okkar mótast svo líka af

þessu. Til þess að uppfylla allar

þessar kröfur vinnum við og vinn-

um, svo mikið að við höfum ekki

nokkurn tíma til að staldra við

og hugleiða hið eilífi gildi lifsins,

engan tíma til að taka á móti þvi

og láta það móta afstöðu okkar.

í Eþíópíu hefur lífið miklu meiri

andlega vídd. Hið andlega hefur

miklu meiri áhrif í daglegu lífi

þar en hér heima.

Hvað eigum við þá að gera?

Við eigum að staldra við þann

boðskap að Kristur hefur ekki

bara liðið á kcossi heldur sigrað

Jónas Þorisson kristniboði.

dauðann og gefið öllum, sem á

hann trúa, eilíft líf. Því í ljósi

eilífðarinnar með Kristi verður

lífið allt annað. Trúin á hinn dána

og upprisna Krist, sem dó fyrir

okkur, breytir lífi okkar.

Fyrir mörgum eru páskarnir

liðnir án þess að þau hafi gefið

sér tíma til að hugleiða hvers

vegna við höldum páska. Ef

páskaboðskapurinn hefur ekkert

sannleiksgildi eru páskarnir ekki

þess virði að taka þá alvarlega.

Þeir eru líka teknir æ minna alvar-

lega. Áður tíðkaðist það að gefa

rúm fyrir kirkjuhald á páskadög-

unum. Þá hefðu ekki verið haldin

skíðamót á páskadag. Nú víkur

kristnihaldið hins vegar fyrir öðru.

Þetta brýtur niður trú einstakl-

ingsins. Lang mestur hluti íslend-

inga tilheyrir kirkjunni og það á

að taka tillit til þess. Enginn neyð-

ir aðra til að fara í kirkju. Pólk

á að ráða því sjálft hvernig það

ver tíma sínum. En margir fara

á mis við svo mikið af því að

annað er sett í fyrirrúm fyrir það

að fara þangað, sem orð Guðs er

boðað og gleðjast þar með öðrum.

Kirkjurnar ættu að vera fullar á

páskunum því kristin trú stendur

og fellur með þeim boðskap, sem

þá er boðaður. Því ef Kristur er

ekki upprisinn er prédikun okkar

og trú ónýt, eins og Páll segir.

Séra Stína Gísladóttir.

Jesús ekki upprisinn, væri engan

boðskap að flytja. Það var uppris-

an, sem breytti öllu. Þegar fréttin

barst, að Jesús væri ekki lengur

í gröfinni, heldur upprisinn og lif-

andi, var gleðifregnin fljót að ber-

ast. Menn komu saman til að

fagna og Iofa Guð. Vegna þess

að Jesús lifir, er enn predikaður

gleðiboðskapurinn um hann, og

enn er til samfélag kristinnar

kirkju, sem heldur páskahátíð.

Sérhver sunnudagur er gleðidag-

ur vegna upprisunnar. Lærisvein-

ar Jesú eiga samfélag í kirkjunni

um alla jörð, samfélag við hinn

upprisna frelsara, og samfélag við

alla þá, sem á undan eru gengn-

ir. Það er samfélag heilagra, sam-

félag á himni og á jörðu!

Upprisan veitir gleði og

von

„Lærisveinarnir urðu glaðir, er

þeir sáu Drottin." Mér þykir eink-

ar vænt um þessa setningu úr

Jóhannesarguðspjalli. Ástæðan er

sú, að ég reyni þetta sama í trúar-

samfélaginu við Jesú. Þessa gleði

getum við ekki veitt hvert öðru

nema nota sömu aðferð og læri-

sveinarnir fyrstu. Þeir fóru með

vini sína til Jesú.

Lærisveinn Jesú er sá sem vel-

ur það að vera með Jesú, hlusta

á hann, læra af honum, hlýða

honum og treysta. Trúarvissuna

getur enginn maður höndlað í eig-

in krafti. Hún er gjöf Guðs til

þess manns, sem gerist lærisveinn

Jesú.

Biblíu-

lestur

vikunnar

Sunnudagun

Mark. 16.1—7: Jesús er upp-

risihn.

Mánudagun

1. Kor. 5.7-8: Höldum hátíð.

Þriðjudagun

Sálm. 118.14-24: Ég mun

lifa.

Miðvikudagur:

Matt. 28.1-8: Farið og

segið.

Fimmtudagur:

1. Kor. 15.1-8:... að Krist-

ur sé upprisinn.

Föstudagun

Jes. 25.6-9: ... og hafi

afmáð dauðann

Laugardagun

1. Kor. 15.12-20: Ef...

Biblíulestrarnir     eru      úr

messutextum paskadagsins.

					
Fela smįmyndir
C 1
C 1
C 2
C 2
C 3
C 3
C 4
C 4
C 5
C 5
C 6
C 6
C 7
C 7
C 8
C 8
C 9
C 9
C 10
C 10
C 11
C 11
C 12
C 12
C 13
C 13
C 14
C 14
C 15
C 15
C 16
C 16
C 17
C 17
C 18
C 18
C 19
C 19
C 20
C 20
C 21
C 21
C 22
C 22
C 23
C 23
C 24
C 24
C 25
C 25
C 26
C 26
C 27
C 27
C 28
C 28
C 29
C 29
C 30
C 30
C 31
C 31
C 32
C 32
C 33
C 33
C 34
C 34
C 35
C 35
C 36
C 36
C 37
C 37
C 38
C 38
C 39
C 39
C 40
C 40
C 41
C 41
C 42
C 42
C 43
C 43
C 44
C 44
C 45
C 45
C 46
C 46
C 47
C 47
C 48
C 48
C 49
C 49
C 50
C 50
C 51
C 51
C 52
C 52
C 53
C 53
C 54
C 54
C 55
C 55
C 56
C 56
C 57
C 57
C 58
C 58
C 59
C 59
C 60
C 60
C 61
C 61
C 62
C 62
C 63
C 63
C 64
C 64