Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						<4fe  3

10RGUNBLAÐIÐ, FÍMMTUDAGUR 31. MARZ 1988

z  ¦ o    ¦¦ ¦ »•.••31 m.    ¦¦ w    ¦	in y u

3    1 >    ¦ o    ¦ 2     ¦ c-    ¦ (fi    ¦ o    ¦ z	i SÍÐAN

	Iti	1		

BPf' ^j^TJB		iL'   lr	í; x - ^gy	

11	/\ J	'¦"¦¦       *\ 1		'¦*                        ^««H L

				Mfc

/	0	Nh	Éá	

	^^3S3tÉk ;         ¦¦*„ ¦	a	Jy	

Ham

Ljósmynd/BS

Lágreistir tónar

Lost

Ljósmynd/BS

Fimmtudaginn 24. mars hélt

Lost frá Akuroyri tónleika i Duus-

Tónlistin er f ögur

en hún er mögur

Rættvið Mannakomsmennina Magnús

Eiríksson og Pálma Gunnarsson

Hljómsveitin Mannakorn er í

hópi iifseigari sveita hérlendra

og enn eru Mannakornsmenn

að; vœntanleg er frá þeim plata

á sumardaginn fyrsta.

Mannakorn er öðru fremur

hljómsveit þeirra Pálma Gunnars-

sonar og Magnúsar Eiríkssonar

og Rokksiðan tók hús á þeim í

Hljóðrita í Hafnarfirði þar sem

verið var að leggja siðustu hönd

á plötuna væntanlegu. Hvað

kemur til að Mannakorn gerir

plðtu?

Pálmi: Það er bara okkar

skemmtan og löngunin til að

halda áfram að gera hluti saman.

Það spilar margt inn i þetta, við

erum búnir að þekkjast það lengi

og höfum gaman af að vinna sam-

an.

Hver semur lögin?

Pálmi: Það er Magnús.

Átt þú alltaf nóg af lögum til

á lager Magnús?

Magnús: Nei, ég safna engum

lögum á lager. Annað hvort hendi

ég þeim eða þá að þau eru not-

uð. Lögin á þessari plötur eru öll

samin sérstaklega fyrir hana.

Hverig tónlist verður á plöt-

unni?

„Grípum til þess ráðs

að kalla þetta Manna-

kornsplötu vegna þess

aö vlö höfum getaö sett

ýmsar tónlistarstefnur

undir þann hatt.

Mannakorn er okkar

vinnuskúr"

Magnús: Allur andskotinn,

þetta er allskonar tónlist. Við

grípum til þess ráðs að kalla þetta

Mannakornsplötu vegna þess að

við-höfum getað sett ýmsar tón-

listarstefnur undir þann hatt.

Mannakorn er okkar vinnuskúr.

Nú er alltaf einn blús í það

minnsta á hverri Mannakorns-

plötu, er einhver slíkur á þess-

arí?

Pálmi: Það er einn sem allir

blúsarar myndu kalia blús, en tón-

listin er öll blúskennd.

Stendur til að gera hreina

blúsplötu?

Pálmi: Það ætla ég að vona að

okkur beri gæfa til að gera blús-

plötu og ég held að það komi sá

tími að við gerum það. Ég veit að

Magnús á til nóg af blúslögum.

Tekur þú undir það Magnús

og ert þú þá mjög þunglyndur

maður?

Já, ég verð að viðurkenna að

ég á til blúsa þó ekki haldi ég upp

á popplogin. Hvað þunglyndið

varðar þá er til gleðiblús ekki síður

en hin gerðin. Það er alltaf smá

blús í manni.

„ Það er oft alveg jafn

mikill blús að vera ís-

lendingur og að vera

negri og hamborgara-

œta"

Pálmi: Það er bara formið á

þessu öllu saman, það er ekkert

gaman nema það sé svolítið leið-

inlegt líka. Mikið held ég það

væri ofboðslega leiðinlegt ef það

væri alltaf gaman.

Magnús: Það er oft alveg jafn

mikill blús að vera íslendingur og

að vera negri og hamborgaraæta.

Hvernig er með ykkur, hvers

vegna haldíð þið áfram f rokkinu,

poþpinu, blúsnum, í hildarleikn-

um öllum? Getið þið ekki hætt?

Pálmi: Persónulega get ég það

ekkí, ég hef allt of gaman af

þessu.

Magnús: Það er sama sagan

með mig, ég hef bara það gaman

af tónlist yfirleitt að ég get ekki

látið þetta í friði.

Magnús, nú hefur þú alla tíð

samið þína texta á íslensku,

finnst þár sem íslensk rokk og

popptónlist sé orðin fslenskari

en hún var þegar þú varst að

byrja þinn feril?

Magnús: Maður sér auðvitað

alltaf hreyfingu í þá átt aö syngja

á ensku og það er eins og ég hef

alltaf sagt að það er vonlaust fyr-

ir þá sem stíla upp á erlendan

markað að syngja á íslensku.

Maður fagnar því náttúrulega

mjög að t.d. Sykurmolarnir skuli

fá hljómgrunn ytra, því sú hljóm-

sveit er þess eðlis, þetta er fram-

úrstefnuhljómsveit.

Pálmi: Og mjög góð.

Nú vinna þau þannig að þau

semja á íslensku og snúa síðan

textanum yfir á ensku.

Magnús: Já, það eru rétt vinnu-

brögð til að hljómsveitin haldi sínu

þjóðerni.

Hvað þá með rokktónlistina í

dag? Fyrir stuttu ræddi óg við

bandartskan blaðamann og hann

sagði að sér virtist sem íslensk

rokktónlist fram undir 1970 hafi

einkennst af því að menn voru

að endurútsetja bresk og

bandarísk lög.

Pálmi: Menn mega ekki gera

of mikið úr því þó hljómlistarmenn

leiti til annarra sveita eftir áhrifum

og þá út fyrír landsteinana. Allar

götur síðan tónlistarlíf tekur við

sér á íslandi eru menn að leita

eftir áhrifum úr öllum áttum og

þeir lifa sem né að gera eitthvað

nýtt úr öllu saman.

Magnús: Allar hljómsveitir

byrja á að herma eftir einhverjum

öðrum. Við Pálmi vorum ? dans-

hljómsveitum í fjölda ára og við

gerðum ekkert annað en að leika

tónlist eftir aðra menn. Þar kom

svo að maður var búinn að fá nóg

af því og vildi fara að skapa eitt-

hvað sjálfur. í fyrstu var það auð-

vitað bara þversumman af öllu

því sem maður hafði verið að

spila en síðan tókst manni að

skapa eigin stíl.

Pálmi: Eina spurningin er

kannski sú hvað þú festist í því

að leika lánstónlist.

Magnús: Um leið og ég heyrði

og sá John Mayall leika í London

með Peter Green sem gítarleikara

þá var það mér sem uppljómun

og ég steinhætti að leika i dans-

hljómsveit og stofnaði blúsband.

Það má segja að það sé vendi-

punkturinn.

„Punkturinn í öllu

þessu brölti er að hafa

gaman af því sem mað-

ur er að gera, annars

er engin glóra í þessu"

Pálmi: Mig grunar að það blús-

band sem Magnús stofnaði þá

eigi eftir að gera plötu innan

skamms og það jafnvel á þessu

ári.

Magnús: Punkturinn i öllu

þessu brölti er að hafa gaman af

því sem maður er að gera, annars

er engin glóra í þessu. Mig langar

að vitna i orð sem Elías Líndal

kaupmaður lét falla þegar sonur

hans fór að læra á harmonikku:

Músíkin er fögur, en hún er mög-

ur.

húsi, og fókk til liðs við sig héðan

að sunnan hljómsveitirnar Ham

og Yesminis Pestis. í heild voru

tónleikar þessir ekki nema miðl-

ungi góðir.

Félagarnir í Ham komu kvöldinu

af stað. Léku þeir einfalt, hratt og

taktfast djöflarokk, tókst það

ágætlega í byrjun, en vildu

tvístrast um of í síðarí lögum.

Hljóðblöndun var heldur ekki góð.

Laga- og textasmíðar sveitarinnar

eru skemmtilegar en mistækar.

Ham er nýleg og ekki enn komin

í fremstu röð, en hefur þó til þess

alla burði. Ham þótti undirrítuðum

áhugaverðasta hljómsveitin í Duus

þetta kvöld.

Yesminis Pestis tóku við af

Ham. Þeim piltum gekk einkar illa

að komast í gang, og gerðu það í

rauninni aldrei. Hafa þeir oft stað-

ið sig betur. Þarna vantaði í þá

allan kraft og alla sannfæringu, og

um leið mögnuðust aðrír gallar

sve'rtarínnar, s.s. léleg og ófrumleg

lög og óviss hljóðfæraleikur.

Síðastir á svið voru Norðlend-

ingamir í hljómsveitinni Lost. Flytja

þeir kraftmikið keyrslurokk sem

kannski væri vel á hlustandi ef

ekki værí fyrír hálfgerða flatneskju

í lagasmíðum. Þetta kvöld var líka

bassinn hjá þeim einum of hátt

stilltur og tókst næstum að yfir-

gnæfa önnur hljóðfæri. Einna Ijós-

asti punkturínn var líklega hinn

áhugaverði víxlsöngur og samspil

söngvaranna tveggja. En í öðru var

svipleysið svo til einrátt.

Baldur A. Krístinsson

m+

Bjössi í Hótel íslandi.

Ljósmynd/BS

Bleikir bastar

íHótelBorg

Á annan f páskum, mánudag-

inn 4. apríl, halda Bleiku bastarn-

ir tónleika f Hótel Borg með

Langa Sela og Skuggunum.

Bastarnir hafa ekki komið fram

á tónleikum lengi utan að þeir léku

nokkur lög á tónleikum Sykurmol-

anna fyrir skemmstu á Hótel ís-

landi. Sveitin hefur verið að æfa

upp nýja tónleikadagskrá með nýj-

um lögum og voru reyndar þrjú

þeirra viðruð á Sylurmolatónleik-

unum. Talsmaður sveitarinnar

sagði hana halda sig við þá tónlist

sem er henni eiginlegust, pönkað

roknabillý rokk með blúsívafi. Hann

bætti því við að Bastarnir væru

að undirbúa nýja atlögu að sálarró

borgarbúa og sagði ennfremur að

stefnan væri sett á höfuðstað

Norðurlands von bráðar. Hann

sagði nýju lögin vera sömu ættar

og þau gömlu, en ekki hefðu þeir

þó lagt gömlu lögin á hiiluna, þeim

værí fléttað inní til að halda fólki

við efnið.                        -»

Með Böstunum þetta kvöld

verður og önnur sveit sem leikur

undir rokkabillíáhrifum, Langi Seli

og Skuggarnir. Sú sveit hefur ekki

haldið tónleika í manna minnum,

en sveitina skipa að mestu fyrrver-

andi meðlimir Oxzmá, þeir Kommi,

Axel og Jón Steinþórs, að við-

bættum Steingrími.

					
Fela smįmyndir
C 1
C 1
C 2
C 2
C 3
C 3
C 4
C 4
C 5
C 5
C 6
C 6
C 7
C 7
C 8
C 8
C 9
C 9
C 10
C 10
C 11
C 11
C 12
C 12
C 13
C 13
C 14
C 14
C 15
C 15
C 16
C 16
C 17
C 17
C 18
C 18
C 19
C 19
C 20
C 20
C 21
C 21
C 22
C 22
C 23
C 23
C 24
C 24
C 25
C 25
C 26
C 26
C 27
C 27
C 28
C 28
C 29
C 29
C 30
C 30
C 31
C 31
C 32
C 32
C 33
C 33
C 34
C 34
C 35
C 35
C 36
C 36
C 37
C 37
C 38
C 38
C 39
C 39
C 40
C 40
C 41
C 41
C 42
C 42
C 43
C 43
C 44
C 44
C 45
C 45
C 46
C 46
C 47
C 47
C 48
C 48
C 49
C 49
C 50
C 50
C 51
C 51
C 52
C 52
C 53
C 53
C 54
C 54
C 55
C 55
C 56
C 56
C 57
C 57
C 58
C 58
C 59
C 59
C 60
C 60
C 61
C 61
C 62
C 62
C 63
C 63
C 64
C 64