2 B fflorgttitftlatob /ÍÞRÓTTIR MWvTKUDAGUR 6. APRIL 1988 KORFUKNATTLEIKUR Koma erlendir leikmenn aftur? Stjórn KKÍ ætlar að leggja fram tillögu þess efnis á ársþinginu í maí TILLAGA um að erlendum leikmönnum veröi leyft að leika með íslenskum félags- liðum verður lögð f ram af stjórn Körf uknattleikssam- bands íslands á ársþinginu í maí n.k.," sagði Kristinn Al- bertsson gjaldkeri KKÍ á blaðamannafundi í gr. Kristinn sagði að stjórn KKÍ hefði kannað viðhorf hinna ýmsu félaga til þessa máls. í ljós hefði komið að skoðanir væru ^¦M skiptar og því væri Björn ekki hægt að spá Biöndal um á þessu stigi hvort tiiiagan næði fram að Keflavík ganga. Kristinn sagði að í könnun þeirra KKI manna hefði komið í ljós að þeir leikmenn sem ekki þyrftu að standa í fjáröflun væru yfirleitt hlyntir að fá erlenda leikmenn, en hinir sem stæðu í fjáröflun samhliða æfingum virtust ekki vera eins hrifnir. Pram kom hjá fyrirliðum og þjálfurum UMFN, IBK, Val og Haukum sem nú leika um íslandsmeistaratitilinn að mikill áhugi væri fyrir að þessi tillaga yrði samþykkt. Breyting á deildarkeppninni Kristinn Albertsson sagði enn- fremur að ekki væru allir sam- mála um ágæti úrslitakeppninnar eins og hún væri í dag og yrðu þrjár tillögur þar af lútandi lagðar fram á ársþinginu. í fyrsta lagi að fyrirkomulagið yrði óbreytt, í öðru iagi að ieikin yrði fjórföld umferð með 8 liðum án auka- keppni og í þriðja lagi að tekin yrði upp riðlakeppni, 4 lið í 2 riðl- um og síðan færi fram sérstök úrslitakeppni og yrði fyrirkomu- lag hennar með þeim hætti að aliir leikir í riðlakeppninni gætu skipt máli. íptffmR FOLK ¦ OLAF Thon leikmaður Schalke í v-ýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu hefur sagt að hann muni skrifa undir samning við ítalskt lið innan tíu daga. Hann vildi ekki segja hvaða lið væri um að ræða. Mörg lið hafa reynt að fá hann í sínar raðir, m.a. Atletíco Madrid og Tottenham. Þá reyndu v-þýsku stórliðin Bayern Mtlnchen og Hamburger SV að fá hann til að skrifa undir samning. Schalke fer fram á 6.5 milljónir marka (160 milljónir ísl. kr.) fyrir Thon sem er aðeins 21 árs. ¦ CELTIC tryggði sér sigur, 2:0, yfir St. Mirren í skosku úrvals- deildinni í gærkvöldi. Félagið þarf aðeins eitt stig til að tryggja sér meistaratitilinn. Andy Walker, skoraði fyrra markið, hans 29. mark í vetur og Paul McStay skor- aði annað markið. 45.465 áhorfend- ur sáu leikinn. ¦ SIGURÐUR Jónsson og fé- lagar hans hjá Sheffield Wed. gerðu jafntefli, 2:2, gegn Luton í Hattaborginni í gærkvöldi. Mel Sterland skoraði jöfnunarmarkið á 87 mín. Wimbledon mátti þola tap, Olaf Thon 1:2, fyrir Coventry á heimavelli. John Fashanu, miðherji Wimble- don, varð að fara af leikvelli eftir fimm mín., meiddur á læri. Brian Kilcline, vítaspyrna, og Keith Houchen skoruðu mörk Coventry, en Eric Young setti mark Wimbledon. ¦ LEIGHTON James hefur sótt um að gerast landsliðsþjálfari Wales. James er 35 ára og á að baki 54 landsleiki fyrir Wales. Hann leikur nú með Burnley og var rekinn af velli um helgina í Ieiknum gegn Bournemouth. ¦ JÚGÓSLAVAR gerðu jafn- tefli við ftali, 1:1, í æfingaleik í knattspyrnu f SpUt í Júgóslavíu á laugardaginn. Vialli skoraði fyrir ftali á 10. mínútu en Jakovljcvic jafnaði rétt fyrir leikhlé. Morgunblaöiö/Sverrir Atll Hilmarsson sést hér sækja að marki Japana og er ekki tekin neinum vettlingatökum. Atli skoraði fjögur mörk í gærkvöldi. HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ Japanir engin fyrirstaða VIÐ höf um oftast átt í erf ið- leikum með svona handknatt- leik eins og Japanir spila. Ég er þokkalega ángður með leikinn en hann bar þess merki IslandJapan 29 : 25 Laugardalshó'll, landsleikur f hand- knattleik, þriðjudaginn 5. april 1988. Gangur leiksins: 1:0, 2:3, 4:4, 6:4, 6:8, 8:9, 10:10, 13:10, 13:12, 14:18. 17:15, 17:17, 20:20, 23:21, 24:23, 27:24, 28:25, 29:26. Mörk íslands: Þorgils Öttar Mathiesen 7, Július Jonasson 6/1, Atli Hilmarsson 4, Jakob Sigurðsson 3, Sigurður Gunn- arsson 3, Guðmundur Guðmundsson 3, Stefán Kristjánsson 2 og Karl Þrá- insson 1. Varin skot: Einar Þorvarðarson 18. Utan vall/tr: 4 mlnútur. Mðrk Japans: Tamamura 7/1, Tachiki 3, Miyashita 8, Pujii 3, Yamamura 3, Okuda 3 og Takamura 2. Varin skot: Ito 9 og Hashimoto 4. Utan valiar: 6 mfnútur. Áhorfendur: 610. Dómarar: Szajna og Wroblewski frá Póllandi og Btóðu sig vel. FRJALSAR IÞROTTIR FRI sækir um HM í 15 km götuhlaupi kvenna Frjálsíþróttasamband ís- lands hefur sótt um að að hálda Heimsmeiataramót í 15 kílómetra götuhlaupi kvenna í IJeykjavfk næsta vor. Ef okkur verður faiin fram- kvæmd hlaupsins verður það háð í miðborg Reykjavíkur, á 2,5 km hring með rásmarki og endamarki í Lækjargötu. Við hðfum lagt til að hlaupið fari fram sunnudaginn U. maí 1989," sagði Agúst Ás- geirsson, formaður FRÍ, f sarntali við Morgunblaðið í gær. Að sögn Ágústs verður ákvörðun um hvar hlaupið verður haldíð tekin á fundi syóraar Alþjóða- frjálsfþróttasambandsins (IAAF) f London í næstu viku. Nokkrar umsóknir munu liggja fyrir og til þess að vinna að því að fa hlaup- ið hingað til lands fer Ágúst tii fundarins. Það hafa um eitthundrað hlaupa- konur frá 25-30 rfkjum keppt í hlaupinu undanfarin ár. Sigurveg- arinn hlýtur heimsmeistaratign og einnig er um að ræða sveita- keppni, sem mikið er lagt upp úr að vinna. Því taka margar frábær- ar hlaupakonur þátt í hlaupinu. Norska hlaupadrottningin Ingrid Kristiansen hefur unnið tvö síðustu hlaupin," sagði Ágúst. Valur Jónatansson skrifar að við höfðum ekki leikið sam- an í nokkra mánuði," sagði fyr- irliði íslenska liðsins Þorgils Óttar Mathiesen eftír leikinn. Leikurinn var ekki í háum gæða- flokki og gerðu leikmenn sig seka um mörg mistök bæði í vörn og sókn. Einbeitingu vantaði og skal engan undra því mótstaðan var ekki mikil. Japanska liðið virtist vera frekar þreytt eftir erfitt keppnisferðalag í Evrópu síðustu vikurnar og lék ekki af fullri getu. Þorgils Óttar, Jakob Sigurðsson, Júlfus Jónasson og Einar Þorvarð- arson voru þeir sem stóðu upp úr í fslenska liðinu, aðrir léku undir getu. Tamamura var besti leikmaður Jap- ans. Hann átti auðvellt með að skora fyrir utan þótt hann sé ekki hár í loftinu. Hann stökk upp og skoraði með lumskum skotum í gegnum vörnina. Ito, markvörður, varði einnig vel í fyrri hálfleik. íh&ik FOLK ¦ KARL Allgöver, leikmaður Stuttgart, hefur ákveðið að fara í skaðabótarmál við Bodo Illgner, markvörð Köln. Allgöver fer fram á 575 þús. kr. vegna atviks sem átti sér stað í leik Stuttgart og Köln, 5:1. Illgner hljóp þá út á móti Allgöver og braut gróflega á honum. Video-myndband sannar brotið. Þetta brot var fyrir ofan þau mörk, sem íþróttamenn eiga að þola," sagði lögfræðingur Allgöver. Málið verður tekið fyrir 11. apríl og bíða menn spenntir eftir hvernig það fer, enda í fyrsta skipti sem þannig mál er tekið fyrir i V-Þýskalandi. ¦ NORSKA knattspyrnufélagið Valerengen tilkynnti um helgina að það hafi hug á að reyna að fá danska landsliðsmanninn Preber Elkjær Larsen til sín. Áður hafa félög eins og Real Madrid og Ju- ventus sýnt kappanum áhuga. Larsen leikur með Veróna. ¦ CESAR Luis Menotti, fyrrum landsliðsþjálfari Argentínu, sem var rekinn frá Atletico Madrid á dögunum, skrifaði undir samning við argentínska félagið River Plate í gær. Félagið mjög öflugt. Með því leika sex Iandsliðsmenn Argentínu og þrír landsliðsmenn frá Uruguay. Þetta er áfall fyrir keppinautana Boca Juniors, því að Menotti hafn- aði boði frá félaginu sl. ágúst og tók boði Atletico Madrid. ¦ VERONA keypti í gær arg- entfnska landsliðsmanninn Claudio Caniggia frá River Plate á 78 millj. kr. Caniggia skrifaði undir fjögurra ára samning við ítalska félagið. Hjá því eru tveir aðrir er- lendir leiicmenn. Daninn Preber Elkjær Larsen og V-Þjóðverjinn Thomas Berthold. Eins og hefur komið fram þá fá þrír erlendir leik- menn að leika með félagsliðum á ítalíu á næsta keppnistímabili. ¦ DORTMUND og NUrnberg gerðu jafntefli, 1:1, í gærkvöldi í Bundesligunni f knattspyrnu, að viðstöddum 24. þús. áhorfendum. Heimamenn byrjuðu betur, en Nilrnberg sótti í sig veðrið og komst yfir á 57. mín. eftir varn- armistök. Norðmaðurinn Ander- son skoraði. Hupe jafnaði fyrir Dortmund með skalla Ikvöld íslendingar spila landsleik í handknattleik við Japan í Laugardalshöll í kvöld kl. 20.30. Þetta varður síðasti leikur Japana í heimsókn þeirra hingað til lands að þessu sinni. Fyrsti leikurinn í úrslita- keppni KKÍ verður í Njarðvík í kvöld kl. 20.00. Þar mætast UMFN og Valur. KORFUKNATTLEIKUR KKÍ hefur augastad á ungverskum þjálfara Eg tel yfirgnæfandi líkur á að erlendur þjálfari taki við lands- liðinu í haust og við erum þegar með augastað á þekktum þjálfara ¦¦¦¦¦¦ frá Ungverjalandi Bjöm og við höfum góðar Blöndal vonir um að fá hann skrifar tii starfa," sagði Kristinn Albertsson gjaldkeri Körfuknattleikssambands Islands í samtali við Morgunblaðið í gær. Eins og hefur komið fram í Morgun- blaðinu er hér um að ræða prófess- or, dr. Laszlo Nemeth, 37 ára. Hann lék með ungverska landslið- inu .á árunum 1969-1976. Þá gerð- ist hann þjálfari í Ungverjalandi og síðan lá leið hans til Kuwait, þar sem hann gerðist landsliðsþjálfari 1986. Kristinn sagði að engin verkefni væru fyrir landsliðið í körfubolta í vetur. Hinsvegar væri Ijóst að verk- efni á næsta keppnistímabili yrðu næg, þar mætti nefna Polar Cup, leikar smáþjóða, auk nokkurra landsleikja sem búið væri að semja um.