Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						jjjgggggftjgfttjj /ÍÞRÓTTIR

MWVIKUDAGm 6. APRIL 1988

B   3

KNATTSPYRNA

Knattspyrnumenn á heimleið:

„Eg ætla mér að leika

með Val gegn Fram"

- segir Guðni Bergsson, sem er á heimleið frá V-Þýskalandi. Ragnar Margeirsson

hefurfengið sig lausan frá 1860 Munchen og kemur heim á föstudaginn

„ÉG er ákveðinn í að f á mig

íausan frá 1860 MUnchen fyrir

15. apríl, þannig aöóg get leik-

ið með Val fyrsta leikinn í ís-

landsmótinu - gegn Fram á

Laugardalsvellinum," sagði

Guðni Bergsson, landsliðsmið-

vörður í knattspymu, sem hef-

ur æft og leikið með

Miinchenarliðinu að undan-

förnu.

Ragnar Margeirsson, félagi

hans í landsliðinu, sem hefur

einnig verið hjá 1860 Munchen,

hefur fengið sig lausan frá félaginu

og kemur heim á föstudaginn. „Ég

get byrjað að leika með Keflavíkur-

liðinu strax þegar 1. deildarkeppnin

hefst," sagði Ragnar.

ÞJáHariísviðslJósinu

Uwe Klimaschefski, þjálfari „Ljón-

anna" fá Miinchen, hefur heldur

betur verið í sviðsljósinu í Miinchen

að unfanförnu. Hann hefur verið

með hinar og þessar yfirlýsingar í

blöðum, um leikmenn og lið sitt,

sem hafa ekki fallið í góðan jarð-

veg. „Það hefur verið mikil pressa

á þjálfaranum, forráðamönnum og

leikmönnum. Fyrir lokasprettinn

voru fimm nýir leikmenn keyptir til

1860 Munchen. Þrátt fyrir það gekk

dæmið ekki upp," sagði Guðni.

„Við gerðum jafntefli, 2:2, gegn

efsta félaginu í Bayern-deildinni,

Unterhaching, fyrir páska og síðan

töpuðum við, 1:2, fyrir Vesten-

bergsgreuth, þannig að möguleikar

okkar á að komast upp í 2. deild

eru nær úr sögunni. Únterhaching

er með fjögurra stiga forskot á

qkkur og á leik inni.

Ég hef því ekkert að gera hér út

keppnistímabilið. Ég er samnings-

bundinn til 7. maí, en er ákveðinn

að fá mig lausan fyrir 15. apríl,"

sagði Guðni, sem sagðist hafa feng-

ið góða reynslu á að vera í V-

Þýskalandi. Guðni tognaði á nára

„K-y*M:—»&s

Ragnar Margelrsson verður kominn á fulla ferð með

Keflavíkurliðinu gegn Völsungum í fyrsta leik 1. deildar-

keppninnar.

í síðasta leik og óvíst er hvort að

hann leiki um næstu helgi.

„Þjátfarinn er ruglaður"

„Ég hef kynnst mörgum skrautleg-

um þjálfurum. Klimaschefski slær

öll met. Hann er ruglaður - öskar-

ar stöðugt á leikmenn í leikjum og

gengur um nöldrandi. Hann ætlaði

að gera kraftaverk á lokasprettin-

um, en hann náði aldrei að þjappa

leikmönnum saman í eina liðsheild.

Því fór sem fór, og ég ákvað að

koma mér heim sem fyrst," sagði

Ragnar Margeirsson.

^mS		W~\„

	5»               lí   1 »f             ' \ **aMr	¦

	þ    sji AlíJ ^ WVVrl	

		

^H	\            ¦&;*¦¦¦'-¦: .¦'¦'¦¦''/%j3ei	

		^W^k'!.  -

	- ¦•*w$Sf*iJ?i'3SmJk	f^Z

Guðni Bergsson leikmaður Morgunblaðsins 1987,

ætlar sér að vera með Valsmönnum þegar þeir hefja vörn-

ina á meistaratitlinum.

HANDKNATTLEIKUR / SVIÞJOÐ

Þorbergur og

félagarí

„AIKsvenskan"

IFK Malmö að missa af lestinní

KNATTSPYRNA

Þórður til IBV

Þórður Sveinsson hefur gengið

frá félagaskiptum úr FH í

ÍBV. Þórður er 24 ára varnarmað-

ur og lék níu leiki með FH í 1.

deildinni á síðasta keppnistíma-

bíli.

Eyjamenn æfðu um páskana und-

ir stjórn Vestur-Þjóðverjans Ralph

Rockenmer. Æft var fjórum sinn-

um á dag og eru leikmenn mjög

ánægðir með þjálfarann og bjart-

sýnir fyrir komandi keppnistíma-

bil.

Geysilegur föghuður braust út

þegar ljóst var að við værum

búnir að tryggja okkur sæti í „Alls-

venskan." Uppselt var á leik okkar

gegn Frölunda, sem við unnum,

22:21. Eftir leikinn sátu allir áhorf-

endur (2.300) sem fasfast og

hlustuðu á beina lýsingu frá leik

Karslskrona og IFK Malmö. Ljóst

var þá, að ef Karlskrona næði sigri,

væri sæti okkar og Karlskrona ör-

uggt í úrvalsdeildinni. Leikmenn

Karlskrona voru sterkari á loka-

sprettinum og unnu, 21:19, eftir

að IFK Malmö hafði haft yfir,

16:13," sagði Þorbergur Aðal-

steinsson.

Eftir að staðan var jöfn, 10:10, í

leikhléi, náðum við góðum leikkafla

og komumst yfir, 19:13. Þá var ég

og Jan Lennard Olson teknir úr

umferð og Frölunda náði að minnka

muninn í, 22:21.

Það hefur komið á óvart að við

höfum náð að tryggja okkur sæti

í „Allsvenskan" - þar sem við erum

með mjög ungt lið," sagði Þorberg-

ur, sem skoraði sex mörk í leiknum

gegn Frölunda.

Með tapinu gegn Karlskrona

minnkuðu möguleikar, lærisveina

Þorbjörns Jenssonar, IFK Malmö á

að tryggja sér sæti í „Allsvensk-

an." Gunnar Gunnarsson skoraði

sex mörk í leiknum. IFK Malmö er

að berjast við Frölunda og Viking-

arna um þriðja sætið, sem er laust.

HANDBOLTI

Morgunblaöið/Sigurgeir

Slgbjörn Óskarsson skoraði sjö mörk fyrír Eyjamenn.

Japanskur sigur í Eyjum

JAPANSKA handknattleiks-

landsliðið sigraði ÍBV, 23:15, í

œfingaleik i'Eyjum á laugardag-

inn. Staðan í leikhléi var, 14:7,

fyrir Japan.

Sigbjörn Óskarsson var marka-

hæstur   Eyjamanna   með   7

mörk. Sigurður Friðriksson gerði

tvo og Elías Bjarnhéðinsson, Jó-

hann Pétursson, Þorvarður Þor-

valdsson og Guðfínnur Kristinsson

eitt mark hver. Shinichi Shudo og

Kazuhiro Miyashita gerði fimm

mörk hvor fyrir Japan.

íMémR

FOLK

¦     ÞORBJÖRNJensson, þjálfari

IFK Malmö, kemur fljótlega upp

úr næstu helgi til landsins. Hann

mun þá ræða við forráðamenn

Breiðabliks, sem hafa sýnt áhuga '

á að fá hann sem þjálfara. Geir

Hallsteinsson, sem hefur náð frá-

bærum árangri með Blikana sl.

þrjú ár, hefur tilkynnt þeim að það

sé kominn tími til fyrir hann og

leikmenn Breiðabliks, að breyta

til. Akureyrarfélögin KA og Þór

hafa einnig áhuga á að fá Þor-

björn sem þjálfara.

¦     VALDIMAR          Grímsson,

landsliðsmaður í handknattleik úr

Val, hefur ekki tekið þátt í undir-

búningi og landsleikjunum gegn

Japan, þar sem hann er kinnbeins-

brotinn.

MBOGDAN, landsliðsþjálfari, kall-

aði á Óskar Armannsson, leik-

manninn efnilega úr FH, á

Skírdag, til að æfa og leika með

landsliðinu gegn Japan.

¦     GUNNAJR Guðjónsson sigr-

aði í snókermóti Kiwanismanna

sem haldið var í Billiardstofunni í

KÓpavogi. í 2. sæti varð Guðlaug-

ur Kristjánsson og Sigurður R.

Pétursson hafnaði í 3. sæti.

¦     GOLFÁHVGAMENN geta

séð Masters-keppnina í golfi í

beinni sjónvarpsútsendingu í golf-

skálanum í Grafarholti. Keppnin

hefst annað kvöld og verður bein

útsending alla dagana frá kl. 19.00.

Nú standa yfir miklar breytingar á

golfskálanum og eru sjálfboðaliðar

hvattir til að leggja hönd á plóginn

f kvöld.

¦     ÍTALSKA liðið Pisa bauð

Nottingham Forest í gær 1,5 millj-

ónir punda fyrir Nigel Clough.

Faðir hans, Brian Clough fram-

kvæmdastjóri, vill halda syni sínum

og vill að hann skrifi undir nýjan

samning við Forest. Nigel er 22

ára og hefur gert 18 deildarmörk

fyrir Forest í vetur.

HANDBOLTI

Tveir ný-

liðar léku

í Eyjum

Tveir leikmenn klæddust

landsliðsbúningnum í fyrsta

skipti í Vestmannaeyjum, þegar

Islendingar lögðu Japana að velli,

25:21. Það eru þeir Stefán Kristj-

ánsson, stórskytta úr KR og

Hrafn Margeirsson, markvörður

IR-liðsins.

Stefán stóð sig mjög vel í sínum

fyrsta landsleik og skoraði tvö

mörk. Hann skoraði fyrsta mark

íslands, eftir að Japanar höfðu

skorað fyrstu þrjú mörk ieiksins.

íslenska liðið fór rólega á stað.

Náði að jafna, 7:7, og komast

yfir, 11:8, fyrir leikshlé. Liðið

náði síðan sjö marka forskoti,

22:15, í seinni hálfleik, en undir

lokin var slakað á og Japanir

náðu að minnka muninn í, 21:25.

Island - Japan

25 : 21

fþróttahilsið í Vestmannaeyjum. Vin-

áttulandsleikur í handknattleik, 4. apríl

1988

Gangur lciksins: 0:3, 1:3, 7:7, 11:8.

22:15, 25:21.

Mðrk íslands: Július Jónasson  5/2,

Atli Hilmarsson 4, Sigurður Gunnars-

son 4, Karl Þráinsson 3, Þorgils Óttar

Mathiesen 2, Guðmundur Guðmunds-

son 2, Stefán Kristjánsson 2. Jakob

Sigurðsson 1, Bjarki Sigurðsson 1 og

Geir Sveinsson 1.

Mörk Japans: Tamanura 6, Shinichi

4, Miyashita 4, Yamanura 3, Tachiki

2, Seiichi 1 og Uguda 1.

Dómarar: Szajna og Wroblewski frá

Póllandi. Þeir dæmdu mjög vel.

					
Fela smįmyndir
B 1
B 1
B 2
B 2
B 3
B 3
B 4
B 4
B 5
B 5
B 5
B 5
B 6
B 6
B 7
B 7
B 8
B 8
B 10
B 10
B 11
B 11
B 12
B 12