8861 AfflK A SWOKOWÍWM fRnOMTi tf ttftHmwtflE a * «0Mtll>lW&Íl> 1988 MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL KÖRFUKNATTLEIKUR / DRENGJALANDSLIÐ Islensku strákarnir komu mjög á óvart Sigruðu Englendinga og íra á sterku móti íSouthampton Morgunblaðið/Sverrir Fyrstu Skagamennirnir í körffuknattleikslandsliði Jóhannes Helgason og Jón Þór Þórðarson eru í drengjalandslið- inu í körfuknattleik og eru þeir fyrstu Skagamennirnir sem komist hafa í landslið Islands í körfuknattleik. Þeir fóru með landsliðinu út til Englands um páskana og stóðu sig mjög vel. ÍSLENSKA drengjalandsliðið í körfuknattleik stóö sig mjög vel á sterku móti sem haldiö var á Englandi um páskana. Liðið sigraði gestgjafana, Englend- . inga, og íra, en tapaði naum- lega fyrir Spánverjum. Liðið hafnaði því í2. sæti og var það meira en f lestir áttu von á. Islendingar mættu Spánverjum í fyrsta leiknum og þrátt fyrir að Spánn sé meðal sterkustu þjóða í Evrópu var leikurinn jafn. Spán- verjar leiddu þó allan tímann og í hálfleik var staðan 43:35. íslendingum tókst að minnka mun- inn í sex stig, en sigur Spánverja var sanngjarn, 77:66. Óskar Karlsson átti mjög góðan leik og var besti maður vallarins. Slig íslands: Óskar Karlsson 21, Hjörtur Harðarson 8, Bergur Hinriksson 8, Kristinn Jónasson 7, Jóhannes Helgason 6, Jón Þór Þórisson 4, Helgi Sigurðsson 4, Marel Guð- laugsson 2, Ingi Karl Ingðlfsson 4 og Krist- inn Ingólfsson 2. íslendingar mættu Englendingum í næsta leik og áttu flestir von á sigri gjestgjafanna. En íslendingar voru Góðurárangur íslenska drengjalandsliðið í körfuknattleik náði mjög góðum árangri á móti í Englandi um páskana. Liðið lék þrjá leiki, sigraði í tveimur leikjum og_ tapaði einum. Liðið vann góðan sigur á Englendingum, 76:65 og írum, 78:68, en tapaði fyrir Spánverjum, 66:77. Þessar þjóðir hafa hingað til verið taldar mun sterkari en íslendingar og úrslitin komu því mjög á óvart. Á þessari mynd má sjá liðið ásamt þjálfurum. Fremri röð frá vinstri: Bergur Hinriksson, Jón Þór Þórðar- son, Einar Örn Birgisson, Hjörtur Harðarson fyrirliði, Ingi Karl Ing- ólfsson, Helgi Sigurðsson og Kristinn Ingólfsson. Efri röð frá yinstri: Sigvaldi Ingimundarson aðstoðarþjálfari, Kristinn Jonasson, Jóhann- es Helgason, Marel Guðlaugsson, Þröstur Sigmundsson og Jón Sig- urðsson þjálfari. Á myndina vantar Óskar Karlsson sem leikur í Luxemburg. Morgunblaðiö/Syerrir á öðru máli, þrátt fyrir slæma byrj- un. Englendingar náðu tíu stiga for- skoti í upphafi leiksins, en íslend- ingar minnkuðu muninn í tvö stig fyrir leikhlé, 35:37. Berg^ur Hinriksson fór á kostum í upphafi síðari hálfleiks og skoraði átta stig í röð, en Englendingar jöfnuðu að nýju, 59:59. Þá komu sex stig í röð frá íslendingum og sigurinn var í höfn, 67:65. Bergur Hinriksson og Marel Guð- laugsson voru bestu menn íslenska liðsins í þessum leik. Stig íslaods: Marel Guðlaugsson 18, Berg- ur Hinriksson 18, Óskar Karlsson 13, Hjört- ur Harðarson 8, Ingi Karl Ingólfsson 6 og Einar Örn Birgisson 2. Síðasti leikurinn var gegn írum, sem höfðu þá sigrað Englendinga með þriggja stiga mun og því var búist við spennandi leik. íslendingar byrjuðu mjög vel og náðu snemma tíu stiga forskoti. I leikhléi var staðan 36:29, íslending- um í vil. Kristinn Jónasson gerði svo út um leikinn með tfu stigum á fyrstu mínútum síðari hálfleiks og íslend- ingar náðu 14 stiga forskoti, 54:40. Eftir það var aldrei spurning og sigur Islands var örugg^ur og sann- gjarn, 78:68. Bergur Hinriksson og Helgi Sig- urðsson voru bestu menn íslenska liðsins í þessum leik. Stig íslands: Óskar Karlsson 22, Hjörtur Harðarson 12, Kristinn Jonsson 12, Helgi Sigurðsson 9, Marel Guðlaugsson 7, Bergur Hinriksson 6, Jón Þór Þðrisson 4, Jðhannes Helgason 2, Ingi Karl Ingólfsson 2 og Þröst- ur Sigmundsson 2. Þetta var mjög góð ferð í alla staði, enda mjog sterkur hópur og líklega besta lið sem við höfurn átt í þessum aldursflokki," sagði Jón Sigurðsson, þjálfari íslenska liðsins í samtali við Morgunblaðið. Við gerðum okkur vonir um sigur á Irum, en það er orðið langt síðan við sigruðum Englendinga. Þessi hópur er mjög góður og sam- stilltur og á án efa eftir að ná langt." Boðið á þrjú mót Islenska drengjalandsliðið vakti mikla athygli og hrifningu á mótinu í Englandi og. var boðið að taka þátt í þremur mótum. Athygliverðasta boðið kom frá Spánverjum sem eru með sterk- ustu þjóðum Evrópu í körfuknatt- leik. íslenska liðinu var einnig boðið að taka þátt í þessu sama móti, í Englandi, á næsta ári og einnig móti sem haldið verður á írlandi um jólin. Spánverjarnir voru mjog ánægð- ir og sögðust ekki hafa leikið gegn jafn baráttglöðu liði. Þeir vilja ólmir fá okkur ti að taka þátt í móti í sumar eða haust og telja sig geta lært margt af okk- ur, einkum hvað varðar varnar- leik," sagði Jón Sigurðsson, þjálf- ari drengjalandsliðsins í samtalið við Morgunblaðið. Þetta eru allt góð mót, en tilboðið frá Spáni er óneitanlega mest spennandi, enda mikilvægt að leika gegn sterkum andstæðingum. Spánverjar standa mjög framarlega og hafa hingað til ekki viljað spila gegn íslendingum og það er því greini- legt að þessi ferð hefur skilað árangri."