Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga breidd


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						8861 AfflK A SWOKOWÍWŒM

fRnOMTi tf ttftHmwtflE

a *

«0Mtll>lW&Íl>

1988

MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL

KÖRFUKNATTLEIKUR / DRENGJALANDSLIÐ

Islensku strákarnir

komu mjög á óvart

Sigruðu Englendinga og íra á sterku móti íSouthampton

Morgunblaðið/Sverrir

Fyrstu Skagamennirnir í

körffuknattleikslandsliði

Jóhannes Helgason og Jón Þór Þórðarson eru í drengjalandslið-

inu í körfuknattleik og eru þeir fyrstu Skagamennirnir sem

komist hafa í landslið Islands í körfuknattleik. Þeir fóru með

landsliðinu út til Englands um páskana og stóðu sig mjög vel.

ÍSLENSKA drengjalandsliðið í

körfuknattleik stóö sig mjög vel

á sterku móti sem haldiö var á

Englandi um páskana. Liðið

sigraði gestgjafana, Englend- .

inga, og íra, en tapaði naum-

lega fyrir Spánverjum. Liðið

hafnaði því í2. sæti og var það

meira en f lestir áttu von á.

Islendingar mættu Spánverjum í

fyrsta leiknum og þrátt fyrir að

Spánn sé meðal sterkustu þjóða í

Evrópu var leikurinn jafn. Spán-

verjar leiddu þó allan tímann og í

hálfleik var staðan 43:35.

íslendingum tókst að minnka mun-

inn í sex stig, en sigur Spánverja

var sanngjarn, 77:66.

Óskar Karlsson átti  mjög góðan

leik og var besti maður vallarins.

Slig íslands: Óskar Karlsson 21, Hjörtur

Harðarson 8, Bergur Hinriksson 8, Kristinn

Jónasson 7, Jóhannes Helgason 6, Jón Þór

Þórisson 4, Helgi Sigurðsson 4, Marel Guð-

laugsson 2, Ingi Karl Ingðlfsson 4 og Krist-

inn Ingólfsson 2.

íslendingar mættu Englendingum í

næsta leik og áttu flestir von á sigri

gjestgjafanna. En íslendingar voru

Góðurárangur

íslenska drengjalandsliðið í körfuknattleik náði mjög góðum árangri

á móti í Englandi um páskana. Liðið lék þrjá leiki, sigraði í tveimur

leikjum og_ tapaði einum. Liðið vann góðan sigur á Englendingum,

76:65 og írum, 78:68, en tapaði fyrir Spánverjum, 66:77. Þessar

þjóðir hafa hingað til verið taldar mun sterkari en íslendingar og

úrslitin komu því mjög á óvart. Á þessari mynd má sjá liðið ásamt

þjálfurum. Fremri röð frá vinstri: Bergur Hinriksson, Jón Þór Þórðar-

son, Einar Örn Birgisson, Hjörtur Harðarson fyrirliði, Ingi Karl Ing-

ólfsson, Helgi Sigurðsson og Kristinn Ingólfsson. Efri röð frá yinstri:

Sigvaldi Ingimundarson aðstoðarþjálfari, Kristinn Jonasson, Jóhann-

es Helgason, Marel Guðlaugsson, Þröstur Sigmundsson og Jón Sig-

urðsson þjálfari. Á myndina vantar Óskar Karlsson sem leikur í

Luxemburg.

Morgunblaðiö/Syerrir

á öðru máli, þrátt fyrir slæma byrj-

un.

Englendingar náðu tíu stiga for-

skoti í upphafi leiksins, en íslend-

ingar minnkuðu muninn í tvö stig

fyrir leikhlé, 35:37.

Berg^ur Hinriksson fór á kostum í

upphafi síðari hálfleiks og skoraði

átta stig í röð, en Englendingar

jöfnuðu að nýju, 59:59. Þá komu

sex stig í röð frá íslendingum og

sigurinn var í höfn, 67:65.

Bergur Hinriksson og Marel Guð-

laugsson voru bestu menn íslenska

liðsins í þessum leik.

Stig íslaods: Marel Guðlaugsson 18, Berg-

ur Hinriksson 18, Óskar Karlsson 13, Hjört-

ur Harðarson 8, Ingi Karl Ingólfsson 6 og

Einar Örn Birgisson 2.

Síðasti leikurinn var gegn írum,

sem höfðu þá sigrað Englendinga

með þriggja stiga mun og því var

búist við spennandi leik.

íslendingar byrjuðu mjög vel og

náðu snemma tíu stiga forskoti. I

leikhléi var staðan 36:29, íslending-

um í vil.

Kristinn Jónasson gerði svo út um

leikinn með tfu stigum á fyrstu

mínútum síðari hálfleiks og íslend-

ingar náðu 14 stiga forskoti, 54:40.

Eftir það var aldrei spurning og

sigur Islands var örugg^ur og sann-

gjarn, 78:68.

Bergur Hinriksson og Helgi Sig-

urðsson voru bestu menn íslenska

liðsins í þessum leik.

Stig íslands: Óskar Karlsson 22, Hjörtur

Harðarson 12, Kristinn Jonsson 12, Helgi

Sigurðsson 9, Marel Guðlaugsson 7, Bergur

Hinriksson 6, Jón Þór Þðrisson 4, Jðhannes

Helgason 2, Ingi Karl Ingólfsson 2 og Þröst-

ur Sigmundsson 2.

„Þetta var mjög góð ferð í alla

staði, enda mjog sterkur hópur og

líklega besta lið sem við höfurn átt

í þessum aldursflokki," sagði Jón

Sigurðsson, þjálfari íslenska liðsins

í samtali við Morgunblaðið. „Við

gerðum okkur vonir um sigur á

Irum, en það er orðið langt síðan

við sigruðum Englendinga.

Þessi hópur er mjög góður og sam-

stilltur og á án efa eftir að ná

langt."

Boðið á þrjú mót

Islenska drengjalandsliðið vakti

mikla athygli og hrifningu á

mótinu í Englandi og. var boðið

að taka þátt í þremur mótum.

Athygliverðasta boðið kom frá

Spánverjum sem eru með sterk-

ustu þjóðum Evrópu í körfuknatt-

leik.

íslenska liðinu var einnig boðið

að taka þátt í þessu sama móti,

í Englandi, á næsta ári og einnig

móti sem haldið verður á írlandi

um jólin.

„Spánverjarnir voru mjog ánægð-

ir og sögðust ekki hafa leikið

gegn jafn baráttglöðu liði. Þeir

vilja ólmir fá okkur ti að taka

þátt í móti í sumar eða haust og

telja sig geta lært margt af okk-

ur, einkum hvað varðar varnar-

leik," sagði Jón Sigurðsson, þjálf-

ari drengjalandsliðsins í samtalið

við Morgunblaðið. „Þetta eru allt

góð mót, en tilboðið frá Spáni er

óneitanlega mest spennandi, enda

mikilvægt að leika gegn sterkum

andstæðingum.            Spánverjar

standa mjög framarlega og hafa

hingað til ekki viljað spila gegn

íslendingum og það er því greini-

legt að þessi ferð hefur skilað

árangri."

					
Fela smįmyndir
B 1
B 1
B 2
B 2
B 3
B 3
B 4
B 4
B 5
B 5
B 5
B 5
B 6
B 6
B 7
B 7
B 8
B 8
B 10
B 10
B 11
B 11
B 12
B 12