Morgunblaðið - 09.04.1988, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.04.1988, Blaðsíða 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1988 GUÐMUNDUR BJÖRGVINSSON LISTMÁLARI OG RITHÖFUNDUR: Guðmundur Björgvinsson list málari og rit höfundur opnaði málverkasýningu á Kjarv- alsstöðum sl. laugardag. Sýningin ber yfir- skriftina „Martin Berkofsky spilar ungverska rapsódíu nr. 10 eftir Franz Liszt“ - sérkenni- legt nafii á málverkasýningu en Guðmundur hefur skýringar á reiðum höndum. „Kveikjan að þessari sýningu var konsert sem Martin Berkofsky hélt í Þjóðleikhúsinu 18. febrúar 1985. Meðan á leik hans stóð fór ég í eins konar ferðalag á baki tónlistarhryssunnar og eru málverkin tilraun til að festa á léreft örlítið brot af þeim myndum sem urðu á vegi minum í þessu ferðalagi. Einsog öll ferðalög hefst þetta ferðalag á upphafinu. Og upphaf- ið er myrkur. Svartur litur. Ekkert. Ekkert er svart. Svarti liturinn er fyrirsláttur eða yfirvarp. í honum leynast allir litir. Og allt getur gerst. Himinn og jörð verða til. Guðir og menn. Allt stígur útúr engu. Verði ljós! Ogþað verður Ijós. Ljósið aðskilur manninn frá óskapnaðinum. Maðurinn kemur reiðu á óskapnaðinn. Ferðalagið er sköpun heimsins. Ferðalagið er fæðing, líf og dauði. Ferðalag- ið er listsköpun. Ferðalagið er myndbreyting. Allt hangir saman einsog ógnarlangur ormur sem hlykkjast um heima alla. í senn skepna og drumbur, gijót og gras, guð og djöfull. Maðurinn er höfuð ormsins. Ekkert stendur eitt og sér. Edvard Munch er púpustig Franz Kline, Leonardo da Vinci lirfan, myrkrið er eggið. Sá sem leggur af stað á vængjaðri hryssu tónlistarinnar á ekki afturkvæmt. Hann verður um eilífð á sveimi einhvers stað- ar í sjöunda himni.“ Guðmundur Björgvinsson listmálari og rithöfimdur. „Er um dlífð á sveimi dnhvers staðar ísjöunda himniu Þ essi hugleiðing Guðmundar er lyk- illinn að skilningi á hugmyndum hans um listina, eigin verk og stöðu listamannsins í tilverunni. Uppspretta listsköpunarinnar og samhengi sögu og hluta eru hon- um hugleikin viðfangsefni, bæði í myndlistinni og í skáldsögunum tveimur, Allt meinhægt(1982) og Næturflug í sjöunda himni(198- 5).„Uppspretta allrar listsköpunar er einhver sameiginlegur kjami. Listamaðurinn velur sér farveg fyrir tjáningarþörfina en margir hafa sagt það nánast tilviljun hvaða grein varð fyrir valinu. Myrkrið - svarti liturinn - er sá kjami sem allt sprettur úr. Ljósið getur birst í .formi pensils, penna Samtal um lífíð, listina og samhengi hlutanna eða hugans, hverju því sem kemur reiðu á hlutina", segir Guðmund- ur. „Mín níðurstaða er sú að þetta er allt sami hluturinn. Ég beini mínum kröftum í tvo farvegi, myndlist og ritstörf, og ég hef grun um að afköstin yrðu ekki meiri í öðru þó ég legði hitt á hill- una. Ég tek skorpur sitt á hvað, einn til tvo mánuði skrifa ég, næstu tvo mála ég og sný mér síðan aftur að handritinu af end- umýjuðum kröftum." Myndlistarnám og náms- ferill „Ég fór út til Kalifomíu árið 1974 og lagði stund á háskólanám í sálarfræði, mannfræði og mynd- list um tveggja ára skeið. Ég ætl- aði að verða sálfræðingur en fékk leið á því og sneri mér að myndlist- inni. Ég kom svo heim 1976, stór- skuldugur eftir þessa námsdvöl og tók mér tíma til að greiða þær. Jafnframt var ég í Háskólanum og stundaði nám í sálarfræði, mannfræði og listasögu. Ég er próflaus maður en þetta háskóla- nám veitti mér akademíska skólun sem hefur nýst mér vel við vinnu mína. Reynsla mín af eiginlegu myndlistamámi er lítil en aðal- kosturinn hlýtur að vera sá að fá stöðug viðbrögð frá kennurum og samnemendum. Kennarar, list- fræðingar og gagnrýnendur hafa þó þann sameiginlega galla að segja. aldrei: mér fínnst..., heldur: þetta er svona... Þetta er galli við kennslu og gagnrýni. Tveggja ára vinna að baki sýningunni Ramminn að sýningunni er flutningur Martins Berkofskys í Þjóðleikhúsinu á rapsódíu Franz Liszts fyrir tveimur ámm. Sýning- in er þó ekki myndskreyting við tónverkið heldur úrvinnsla mín á þeirri upplifun sem ég varð fyrir við að hlusta. Fyrsti hluti sýning- arinnar er eins konar ferðalag inn í auga Liszt og það má skoða sem

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.