Morgunblaðið - 15.04.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.04.1988, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR B STOFNAÐ 1913 85. tbl. 76. árg. FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsina Ránið á kúvæsku farþegaþotunni: Ræningjarnir sleppa einum gísl til viðbótar Alcreinilumr Reiiier Algeirsborg, Reuter. RÆNINGJAR kúvœsku farþegaþotunnar slepptu einum af 32 gíshim í gærkvöldi. „Mér líður vel,“ sagði Djamaa Abdallah Zaki, sjötugur að aldri, þegar hann kom inn í flugstöðvarbygginguna ásamt alsirsk- um samningamðnnum. „Hendur mínar voru bundnar . . . Það sem ræningjarnir gerðu var forkastanlegt," bætti hann við. Samningamenn Alsírstjómar fóm í gær margar ferðir milli flug- ræningjanna f júmbóþotunni og kúvæskra embættismanna í flug- stöðinni. Ræningjamir héidu sem fyrr fast við þá kröfu að 17 föngum í Kuwait yrði sleppt úr haldi. Þeir hleyptu lækni um borð í gær til að huga að gíslunum 32. Læknirinn sagði að ræningjamir hefðu beðið þá gísla sem kenndu sér meins að rétta upp hönd og hefði hann rætt Sprenging í Napolí: 5 manns láta lífið við þá tíu sem svo gerðu. Hann sagðist gíslana allvel á sig komna og ekki væm nein merki þess að þeir hefðu verið pyntaðir. Samningaviðræður lágu niðri fyrri hluta gærdagsins vegna heim- sóknar Kenneths Kaundas forseta Zambíu til Alsfr. Ræningjamir féll- ust á að færa vélina til um 1 km til þess að einkaþota Kaundas gæti lent á vellinum. Stuttu síðar bámst þau boð frá einum gfslanna um borð að ræningj- amir myndu drepa alla gíslana ef ekki yrði orðið við kröfum þeirra. „Priður sé með yður. Ég sendi fjöl- skyldu minni kveðju. Mér líður mjög vel. Þeir kreQast þess að kúvæska stjómin láti 17 fanga lausa. Ef það gerist ekki þá munu þeir drepa okkur alla,“ sagði maðurinn sem heitir Zahid Ahmed. Sjá fréttír af fhigráninu á bls. 24. Ræningjar kúvæsku farþegaþot- unnar halda enn fast við kröfur sinar. í gær leyfðu þeir lækni að koma um borð til að huga að gislunum 32. Læknirinn sést hér stíga um borð. Sagði hann að líðan gíslanna væri allgóð. Reuter Samkomulag undirritað um brottflutning sovéska herliðsins frá Afganistan; Sáttmálinn verður bana- biti Kabúl-stj órnarinnar segir Zia-ul-Haq, forseti Pakistans Genf, Reuter. Keuter Utanríkisráðherrar fjögurra ríkja undirrita samkomulag um Afgan- istan í Evrópu-höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna f Genf. Napolí, Reuter. FIMM menn fórust, þar á meðal bandarískur hermaður, og nokkrir særðust þegar sprengja sprakk í gær i bifreið fyrir utan klúbb bandariskra hermanna f Napolí á Ítalíu. Lögregla í Napolí sagði að ekki væri vitað hveijir staðið hefðu að baki sprengjuárásinni. Gmnur léki á að arabfskir skæruliðar ættu þar hlut að máli. Sprengjan var gífur- lega öflug og eyðilagðist fjöldi bif- reiða í nágrenninu. í klúbbnum var fjöldi fólks þegar sprengingin varð. Flestir þeirra voru skipveijar af tveimur banda- rískum herskipum sem lágu í í höfn- inni í Napolí. Utanrikisráðherrar Banda- rfkjanna, Sovétríkjanna, Pakist- ans og Afganistans undirrituðu i gær samkomulag sem ætlað er að koma á friði í Afganistan. Samkomulaginu hefur viðast hvar verið fagnað en ekki er fylli- lega ljóst hveijar afleiðingarnar verða aðrar en þær að sovéski herinn yfirgefur landið. Mo- hammad Zia-ul-Haq, forseti Pak- istans, sagði að samkomulagið yrði banabiti Kabúl-stjórnarinn- ar: „Skæruliðar munu fella stjómina, ég er viss um það.“ Frelsissveitir sem barist hafa við Kabúl-stjómina undanfarin 8 ár eiga ekki aðild að samkomulaginu. Gulbuddin Hekmatyar, leiðtogi sjö skæruliðahópa sem hafa bækistöðv- ar í Pakistan, tók í sama streng og Zia-ul-Haq og sagði að hans menn myndu beijast áfram uns stjómin hefði verið felld. „Stríðinu lýkur ekki nú og flóttamenn í Pakistan munu ekki snúa heim.“ Á blaðamannafundi eftir að samningurinn hafði verið undirrit- aður sagði Eduard Shevardnadze, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, að Sovétmönnum fyndist ekki sem þeir væru að tapa stríði. „Aldrei var um stríð gegn afgönsku þjóðinni að ræða,“ sagði ráðherrann. George Shultz, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, sagði að stjóm sín væri þess fullviss að hún gæti enn sem fyrr veitt skæruliðum stuðning án þess að bijóta í bága við samkomu- lagið. En hann útlistaði ekki nánar hvemig sú aðstoð verður fram- kvæmd. Najibullah forseti sagði að það væri nú undir Afgönum sjálfum komið að velja sér ríkisstjóm og stjómarfar, en kosningum lauk í landinu 1 gær: „Afganir munu velja óháð, fullvalda og sjálfstætt ríki og mynda samsteypustjóm þjóðarinn- ar.“ Samningurinn sem undirritaður var í gamla ráðstefnusal Þjóða- bandalagsins í Genf kveður á um brottflutning sovésks herliðs á 9 mánuðum frá og með 15. maí og að bækistöðvar skæmliða í Pakistan verði lagðar niður. Einnig er gert ráð fyrir að 3 milljónir afganskra flóttamanna í Pakistan snúi heim. Formlega er samningurinn milli Afganistans og Pakistans en risa- veldin tvö ábyrgjast samninginn með undirskriftum sínum. Ekki er gert ráð fyrir vopnahléi I stríðinu í Afganistan og hafa risaveldin gert með sér óopinbert samkomulag um Jafna og gagnkvæma hemaðarað- stoð“ við bandamenn hvore um sig í Afganistan. Sjá fréttír & bb. 22-23 og leið- ara á miðopnu. Danska stjórnin bíður enn ósigur KaupmannahBfn. Frá NJ. Bruun, fréttaritara Horgunblaðsins. DANSKA stjómin beið í gær enn einn ósigurinn á þingi, þann 23. frá þvi hún tók við völdum, þegar þingmenn Jafn- aðarmannaflokksins, Radikale Venstre, Sósíaliska vinstri- flokksins og smáflokksins Fæl- les Kurs samþykktu tillögu frá jafnaðarmönnum en samkvæmt henni ber stjórainni skylda til að greina yfirmönnum hvers einasta herskips, sem til lands- ins kemur, frá stefnu Dana i kjarnorkuvopnamálum. Er hún sú, að þessi vopn megi ekki vera innan danskrar lögsögu á friðartímum. Poul Schliiter forsætisráðherra reyndi árangurslaust að fá þingið til að hætta við atkvæðagreiðsl- una og sagði, að samþykkt tillög- unnar gæti haft alvarlegar afleið- ingar fyrir samstarf annarra Nato-ríkja við Dani. Eftir at- kvæðagreiðsluna vildi hann ekk- ert um niðuretöðuna segja fyrr en að loknum fundi, sem hann boðaði strax til með ráðherrunum. Var beðið með mikilli eftirvænt- ingu eftir að honum lyki og spáðu því sumir, að Schluter boðaði til nýrra kosninga. Af því verður þó ekki að þessu sinni. Þess í stað ætlar stjómin að skipa nefnd til að kanna hvaða áhrif samþykktin hefur á aðild Dana að Atlants- hafsbandalaginu og á hún að skila skýrslu um það eftir 10 daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.