Morgunblaðið - 19.04.1988, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 19.04.1988, Blaðsíða 12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988 Sýning Gerðar Myndlist Valtýr Pétursson í hinu nýja sýningarplássi Ny- höfn, hefur verið efnt til sýningar á verkum Gerðar Helgadóttur, en hún var einn af brautryðjendum abstrakt myndlistar hér á landi, þrátt fyrir þá staðreynd, að hún vann mestallan starfstíma sinn er- lendis og var þar á bekk með fram- sæknustu listamönnum í skúlptúr á sínum tíma. Gerður hefði orðið sex- tug þann 11. apríl, ef henni hefði enzt aldur til. En eins og flestir vita varð hún aðeins 47 ára og lézt því langt um aldur fram. Ég, sem þetta rita, var svo heppinn að eign- ast vináttu Gerðar og tel það til þess ánægjulegasta sem hent hefur mig um ævina. Það er því enn ánægjulegra að fá að sjá skúlptúra hennar enn einu sinni og það í því ágæta umhverfí, sem raun ber vitni. Það er nefnilega merkilegt, hvað marmaragólfið í Nýhöfn fer vel við hina svörtu jámskúlptúra, og sýn- ing Gerðar er öll ágætlega valin og auk þess komið fyrir af mikilli smekkvísi og tilfinningu fyrir sjálf- um verkunum. Þetta eru viðkvæm verk og. fíngerð. Þarfnast þar af leiðandi sérstakrar umgengni og varkámi. Þetta er falleg sýning í heild, og klippimyndir og teikningar falla ágætlega að aðal uppistöðu sýning- arinnar, sjálfu jáminu. Nú tala menn um rými og rannsóknir á því sviði, en til gaman minnist ég á það hér, að er Gerður hélt sína fyrstu sýningu í gamla listamannaskálan- um fyrir löngu, skrifaði ég nokkrar línur í sýningarskrá, og var mikið grín gert að þeim skrifum vegna þess, að ég tók þannig til orða, að Gerður geislaði tómið. Það voru aðrir tímar og annað mannfólk í þá daga. Gerður varð fyrst manna hér á landi til að notfæra sér jám í skúlptúr, og síðan fylgdu Ásmund- ur og Siguijón í kjölfarið. Allir þeir, sem eitthvað vita um tímabilið 1950—57 í íslenzkri listasögu eru mjög vel vitandi um þátt Gerðar Helgadóttur í þeim miklu breyting- um, sem áttu sér stað f íslenzkri myndlist á þeim tíma. Gerður var mikilhæf listakona, Steindur gluggi eftir Gerði Helgadóttur í eigu Lista- og menningarsjóðs Kópavogs. Á Norðurlöndum ertu í senn á heimavelli og úti í heimi. Þar ganga hlutirnir greiðlega, andrúmsloftið er þægilegt og náttúran stórfengleg. Flugleiðir fljúga alls 37 sinnum I viku til Norðurlanda, á hverjum degi vikunnar. Áfangastaðirnir eru sex: Kaupmannahöfn (14), Osló (8), Bergen (3), Stokkhólmur (8), Gautaborg (3), Helsinki (1). Leitaðu ekki langt yfir skammt. Fáðu nánari upplýsingar hjá söluskrifstofum Flugleiða, ferðaskrifstofum og umboðsmönnum um land allt. FLUGLEIDIR -fyrírþíg- Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og í Kringlunni. Upplýsingasími 25 100. Ferð tU móts- við frændgarð sem vann í fjöldamörg efni. Sýning- in í Nýhöfn er hvergi tæmandi, hvað það snertir, enda ekki til þess ætlazt. Þama em 14 skúlptúrar, hver öðmm skemmtilegri, og gefa ágæta hugmynd um þetta tímabil í list Gerðar. Síðan koma aðrar myndir unnar í ýmis efni.samklipp- ur, dúkristur og teikningar. Einnig em þama tveir steindir gluggar, en Gerður vann gríðar mikið á því sviði, og em gluggar hennar bæði hér á landi og víða erlendis, en alls em 35 verk þama samankomin. Það er List- og menningarráð Kópa- vogs, sem stendur að þessari sýn- ingu Gerðar, en þar í bæ er nú verið að byija á safnbyggingu, sem mun bera nafn listakonunnar. Það mætti skrifa langt mál um list og feril Gerðar Helgadóttur sem myndhöggvara, en slíkt yrði of langt mál hér og því aðeins farið fáum orðum um þessa sýningu. Gerður var um tíma lang þekktasta myndlistakona af íslenzku bergi brotin. Það var sár missir að sjá hana safnast til feðra sinna svo unga í anda og að ámm sem raun bar vitni. Hún átti svo margt ógert, en hafði afrekað svo mikið. Sumar- dagurinn fyrsti í Kópavogi I ÁR sér skátafélagið Kópar um hátíðahöldin fyrir Kópavogsbúa. Dagskráin hefst að venju með skátamessu í Kópavogskirkju klukkan 11. Skrúðgangan fer frá Menntaskólanum kl. 13.30 en hátíðahöldin hefjast um kl. 14 í íþróttahúsi Digranesskóla. Sumardagurinn fyrsti er dagur bamanna og taka skemmtiatriðin mið af því. Hallveig Thorlacius kem- ur með brúðu, Kársnesskólakórinn syngur, nemendur úr dansskóla Sigurðar Hákonarsonar dansa, skátamir sýna hvað þeir geta verið skemmtilegir og Leikfélag Kópa- vogs verður með uppákomu. Kynnir er Sigurður Grétar Guðmundsson. Þegar út kemur taka ungir hesta- menn úr Gusti á móti hátíðargest- um og leika listir sína á hestbaki og verður bömunum ef til vill boðið að setjast á bak. Urtumar (mömmudeild Kópa) verða með kaffí- og kökusölu í íþróttahúsi Digranesskóla og í Fé- lagsheimili Kópavogs. (Úr fréttatilkynningu) Talaðu við ofefeur um ofna SUNDABORG 1 S.688588-688589
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.