16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988 töh/uprentarar Tölvuprentarar f rá STAR styðja þig í starf i. Þeir eru áreiðanlegir, hraðvirkir og með úrvali vandaðra letur- gerða. STAR prentarar tengjast öllum IBM PC tölvum og öðrum sambærilegum. Níu gerðirfyrirliggjandi. Söluaðilar: Andi sf., Hverfisgötu 105, 105 Reykjavík Atlantis, Laugavegi 168, 105 Reykjavík Einar J. Skúlason hf., Grensásvegi 10,108 Reykjavik Gísli J. Johnsen sf., Nýbýlavegi 16, 200 Kópavogi GunnarÁsgeirsson, Suðurlandsbraut 16,108 Reykjavík Heimilistæki sf., Sætúni 8, 125 Reykjavík Hugtak hf., Vestmannabraut 25, 902 Vestmannaeyjum Hugurhf., Hamraborg 12, 200Kópavogi Magnús sf., Bolholti 6,105 Reykjavík Penninn, Hallarmúla 2, 108 Reykjavík Reiknistofa Vestfjaröa, Aðalstræti 24,400 isafjörður Skrifstofuvélarhf., Hverfisgötu 33, 105Reykjavik Stuðull,Skagfirðingabraut 6, 550 Sauðárkróki Traust, Ragnar Jóhannss., Miðási 11, 700 Egilstööum Tölvusamskipti, Skipholti 35,125 Reykjavík Tölvútæki-Bókval hf., Kaupvangsstræti 4, 602 Akureyri Tölvuvörur, Skeifunni 17,108 Reykjavik Karlakórinn Þrestir Tónlist Egill Friðleifsson Víðistaðaðakirkja 16.4.88 Flyfjendur: Karlakórinn Þrest- ir Einsöngvari: Steinarr Magnús- son Undirleikarar: Bjarni Jónat- ansson, Bragi Hlíðberg Ef nisskra: Lög úr ýmsum átt- um Karlakórinn Þrestir í Hafnar- firði hélt árlega vortónleika sína í síðustu viku. Að þessu sinni fóru tónleikarnir fram í Víðistaða- kirkju, sem vígð var fyrir stuttu. Kirkjan er ágætlega fallin til tón- leikahalds og hljómburður góður, auk þess sem húsið er ákaflega fallegt, þar sem freskumynd Balt- asars eiginlega umvefur alla sem í kirkjuna koma. Víðistaðakirkja verður væntanlega hafnfirsku tónlistarlífi til eflingar, auk þess að þjóna sem guðshús að sjálf- sögðu. Karlakórinn Þrestir á sér merka sögu og er elsti starfandi karlakór landsins. Kórinn var stofnaður árið 1912 og hélt upp á 75 ára afmæli sitt með pomp og prakt á síðasta ári og fór í söngför til útlanda. Eftir slík átök Kjartan Sigurjónsson koma gjarnan lægðir í starfsemi sem þessa, en það var ekki að heyra á Þröstum að þeir væru eftir sig heldur voru hinir spræk- ustu. Stjórnandi kórsins er Kjartan Sigurjónsson, en hann hefur unn- ið með kórnum hin síðustu ár. Kjartan er hógvær í verkstjórn sinni og leggur áherslu á áferðar- fallegan söng fremur en átakam- ikinn. Kórinn söng lipurt. Efnis- skráin var í hefðbundnum karla- Steinarr Magnússon kórsstíl og þar var fátt um nýj- ungar. Fyrir hlé voru eingöngu íslensk lög utan eitt, en eftir hlé voru erlend lög úr ýmsum áttum. Einsöngvari með kórnum var Steinarr Magnússon og komst vel frá sínu. Hann hefur bjarta og fallegá tenórrödd og beitti henni smekklega. Undirleikarar voru þeir Bjarni Jónatansson og Bragi Hlíðberg. Kirkjan var þéttsetin áheyrendum, sem tóku flytjendum hlýlega. Velta atvinnugreina árið 1987: Hlutur Reykjavíkur í heildarveltu verslunar 67% 140% aukning veltu í bíiasölu á Reykjanesi HLUTUR Reykjavíkur í heildar- veltu verslunargreina á síðasta ári var 66,6% samkvæmt upplýs- ingum Þjóðhagsstofnunar. Þetta er nokkur aukning frá árinu 1986, en þá nam þessi tala 65,8%. Hlutfall Reykvikinga af fjölda landsmanna er hins vegar 37,8%. MikU aukning varð um allt land á verslun með bíla og bílavðrur, veltan jókst um 58,3%. Reykjanes sker sig þó úr; þar var aukningin 139%. Tölur þær, er Þjöðhagsstofnun Fjármunir eru öruggir í hvelííngum - en hvernig væri láta þá vinna fyrir þig Kynntu þér valkosti Avöxtunar sf. ÁVftXTUNSf^ Ftjármálaráðgíöf - Ávöxtunarþjónusta — Verðbréfamarkaður LAUGAVEGI 97 - SÍMI 621660 hefur sent frá sér, eru byggðar á söluskattsframtölum fyrirtækja og sýna heildarveltu, bæði þann hluta sem er söluskattskyldur og þann sem undanþeginn er söluskatti. Samkvæmt þessum tölum var heild- arvelta í smásöluverslun á landinu 54 milljarðar króna og jókst um 32% frá fyrra ári. í almennri heildverslun nam veltuaukningin 34%, sala á bflum og bflavörum jókst um 58,3% og á byggingarvörum um 40%. Alls jókst velta verslunargreina um 36% og var um 107,2 milljarðar króna á sfðasta ári. í þjónustugreinum varð veltu- aukningin rúmlega 41%. Heildar- velta í vörugreinum iðnaðar var 35,4 milljarðar króna og jókst um 34,4%. f fréttatilkynningu Þjóðhags- stofhunar segir að vísitala vöru og þjónustu hafi hækkað um 18,5% milli áranna 1986 og 1987. „Má af því ráða að umsvif í verslun hafi aukist að raungildi á sama tfma ,um tæp 15% en í þjónustugreinum nokkru meira eða 19%, en hér er um grófar vísbendingar að ræða þar sem vægi einstakra liða f vfsi- töiu vöru og þjónustu kann að vera annað en í veltutölunum," segir í fréttatilkynningunni. Bæði almenn heildverslun og verslun með bfla og bílavörur er að langmestu leyti skráð í Reykjavík og Reykjanesi, um 95% af heildar- veltu beggja greina. í byggingar- vöruverslun fara einnig um 84% viðskiptanna fram á suðvestur- horninu. Byggingavöruverslunin í Reykjavík eykur veltuna á kostnað Reykjaness, en í öðrum landshlut- um stendur hún í stað. Ef litið er á breytingar á heildar- veltu verslunargreina eftir lands- hlutum, sést að f langflestum tilvik- um eykst veltan meira f Reykjavík og á Reykjanesi en f öðrum lands- hlutum. Þar vekur sérstaka athygli 139% aukning veltu í bílasölu á Reykjanesi. I fréttatilkynningu Þjóðhagsstofnunar segir að lokum: „Að öllu samanlögðu gefa þessar veltutölur þó vfsbendingu um meiri umsvif og þenslu á höfuðborgar- svæðinu en annars staðar á landinu."