MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988 27 Hasina Wajid. en gert að taka við þessu -nýja riki, þar ríkti öngþveiti og sundur- lyndi, samgöngukerfíð var í mol- um, efnahagurinn í rústum eftir stríðið. Og Mujibur fékk litlu áork- að og virðist ekki hafa tekizt að hrífa menn með sér til verka á sama hátt og hann hafði gert sem baráttuglaður stjórnarandstæð- ingur. Þegar á leið valdatíma hans urðu margir til að saka Mujibur sjálfan um valdníðslu, spillingu og óreiðu og stirfni í samvinnu. Samt er hann í minningu Bangladesha, ásamt Ziaur Rah- man sveipaður ljóma hetjudáða og píslarvættis. Þetta tjóði ekki að ræða við Hasinu Wajid þarna um kvöldið. Svo að ég venti mínu kvæði í kross og spurði hana um fjöldafundina sem hún og Khalida virðast efna til — sitt í hvoru lagi vitanlega — að jafnaði nokkrum sinnum í viku. Hún sagði að menn Ershads hers- höfðingja reyndu að koma í veg fyrir þá með ýmsu móti og sjón- varpið væri málpípa hershöfðingj- ans og það sama gilti um blöðin. Allt væri reynt til að torvelda þeim að ná til fólksins. Daginn áður hafði ég farið á útifund sem hún hélt, þar sem ungir og alvörugefnir menn hlu- stuðu á ræðumenn sem voru að „hita upp" unz hún birtist. Þegar hún birtist ætlaði allt af kollinum að keyra af fögnuði. Ræða hennar fékk miklar undirtektir og síðan fór hópurinn niður í gömlu Dháka og hrópaði slagorð Awami-banda- lagsins: „Við viljum atkvæðaseðla — burt með byssukúlurnar." Ég hafði ekki orðið vör við neina lög- gæzlu á svæðinu og allt fór frið- samlega fram. Hópurinn hlykkj- aðist hrópandi eftir £röngum göt- um og við litlu útibúðirnar stóðu margir og fylgdust með eða sló- gust í hópinn. Ég spurði hana um það hvernig henni hefði þótt þessi fundur. Mér hefði verði sagt að tíu eða fimmtán þúsund manns hefðu verið á honum. Hún sagðist vera ánægð méð fundinn og á hann hefðu miklu fleiri viljað koma. Hvort tveggja hefði verið að menn Ershads hers- höfðingja hefðu takmarkað ferðir að fundarstaðnum og svo hitt að Khalida Zia hefði endilega þurft að vera með fund um svipað leyti annars staðar. Það hlaut að verða niðurstaða mín, að þrátt fyrir þá andúð sem allur þorri manna virðist hafa á Ershad forseta, þrátt fyrir að hann brýtur án þess að blikna allar reglur lýðræðis sem honum verður svo tíðrætt um, þrátt fyrir spillingu og mútuþægni í æðri stöðum, eymd og hörmungar íbú- anna og djúpstæða óánægju — þrátt fyrir þetta og margt fleira virðist það einn stærsti þátturinn af vanda Bangladesh, hversu máttvana og ráðalaus stjórnar- andstaðan er. Vandamál landsins verða ekki leyst með skrúðyrðum aðila. Og annað virðist ekki í boði. #É w2 && h- *?- Mátt þú sjá af 332 krónum Q* ádag? Skutlanereinsogsniðinfyrirnútímafólk.Húner TTif QT7n OTÍ "U£ rf/yhi-n Vm níífnaot spameytin,5mannaogsérlegaléttoglipuríum- i-il DVU Ol yOt 5CUU.I pLL GlgllGbDu feröinni. Skutlan er flutt inn af Bílaborg h/f. Það -. _ ^ . T * tvt/^t a riTr-TTmT tti tryggir1.flokksþjónustu,semerrómuðaföllum SPlUIlAUIiyÍai LAJMUIA dJIUTLU! sem til þekkja. . ° ° *rLANCIA SKUTLA kostar kr. 320þús.kr. stgr. Útborgun kr.80.000 eftirstöðvar greiðast á 30 mánuðum, kr.10.113 pr. mánuð að viðbættum verðbótum. Kostnaður við ryðvörn og skráningu er ekki innifalinn. (Gengisskr. 15.338) ÐILABORG HF. FOSSHÁLSI 1.S.68 12 99.