*- MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRIL 1988 65 an, hangandi í vír. Við minntumst þess hvað spara þurfti pappírinn í barnaskólanum af þvi sjómennirnir lögðu sig í hættu við að flytja hann heim. Já, það var mikið rifjað upp þennan dag. Við vorum báðar sam- mála um að hér eftir skyldum við lesa bækurnar sem við myndum gefa barnabörnum okkar í framtíð- inni. Magga var bókelsk koría og víðlesin. Henni þótti ekki nóg að lesa bækurnar, það þurfti að fjalla um efni þeirra að lestri loknum. Ef við höfðum ekki tækifæri til að hittast þá töluðum við saman í síma og spurðum gjarnan hvor aðra hvað við værum að lesa þessa stundina og bentum hvor annarri á lestrar- efni. Vinkona mín var trúuð kona og ég kveð hana með barnaversi sem hún fór með þennan dag og ég fann að henni þótti vænt um: Vertu nú yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Höf. ókunnur). Þakka ég Möggu fyrir tryggð hennar, vináttu og hugljúfar sam- verustundir. Fari hún í friði, friður Guðs sé með henni. Pálina Kjartansdóttir Vilhjálmur Birgis- son - Kveðjuorð Hann Villi er dáinn! Þau tíðindi bárust á páskadags- morgun að slys hefði orðið og að hann Villi væri dáinn. Annað eins reiðarslag hefur ekki dunið yfir mig. Ég gat ekki trúað því, en það var staðreynd, því miður. Af hverju deyja þeir ungir sem Guð elskar? Þeirri spurningu verður ekki svar- að. Vilhjálmur var sonur hjónanna Viktoríu Vilhjálmsdóttur og Birgis Brynjólfssonar. Ég man þann ham- ingjudag þegar Villi var borinn í þennan heim þann 29. ágúst 1978. Þetta var mesti hamingjudagur í lífi Bigga og Viggu. Fyrir eiga þau þrjár stúlkur, Brynju sem var þá fimmtán ára, Önnu Maríu sem var tíu ára og Jóhönnu sem var sex ára. Drengurinn var kærkominn í stúlknahópinn. Villi var augasteinn þeirra allra. Hann var ungur þegar hann fór að ferðast með mömmu sinni og pabba til fjalla, ég minnist margra ferða sem við fórum saman. Það kom oft fyrir að Villi ætti afmæli í útilegu og var þá haldin afmæl- isveisla með öllu tilheyrandi. Villi var búinn að ferðast um allt ísland og þó ungur væri var varla til sá staður hér á landi sem hann hafði ekki komið á. En seinni árin ferðaðist hann mest með pabba sínum og félögum hans. Hann var orðinn einn af hópnum. Villi var mjög fullorðinslegur og var einstak- lega gaman að tala við hann og hefur hann skilið eftir sig stórt skarð í hópnum. Ég minnist ánægjulegrar ferðar sem við fórum saman til ítalíu þar sem var margt að sjá. Villi naut sín vel í dýragarðinum og á gondól- unum í Feneyjum. Hann vann hug allra sem honum kynntust því hann var einstaklegá ljúfur og vel gefinn drengur. Nú er yilli farinn í sitt hinsta ferðalag. Ég þakka fyrir að hafa fengið að kynnast honum, að vera með honum þennan stutta tíma, og veit ég að hans bíður góð vist og góðar móttökur. Megi hann hvfla í friði. Elsku Biggi og Vigga, megi Guð hjálpa ykkur í þessari miklu sorg. Brynja, Raggi og börn, Jóhanna, Arnar og Anna María, megi Guð styrkja ykkur og vera með ykkur öllum. Þurý KMLINGAR Eru Holtakjúklingar bestir? Viðhöfumveriðað veltaþvífyrirokkur vegnaþessaðvið seljum fleiri þúsundir í hverjum mánuði.