Morgunblaðið - 01.05.1988, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 01.05.1988, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. MAÍ 1988 FRAM 1» Fyrsta signrlið Fram 1911. Enneru Framarar aðleggja mátherja sína að velli Fyrsta unglingalið Framt fremsta röð f.v.: Karl Magnússon, Odd- geir Hjartarson, Linneus Östlund, Sveinn Gunnarsson og sr.Sigurður Lárusson. Miðröð f.v.: Þórólfur Karelsson, Tryggvi Forberg og Bolli Thoroddsen. Aftast f.v.: Geir Haukdal, Gústaf Sigurbjamarson, Ós- valdur Knudsen, Eiríkur Jónsson og Kveldúlfur Grönvold. Fyrir nákvæmlega áttatíu árum, nánar tiltekið 1. mai 1908, tóku sig saman hálfur annar tugur 13 til 14 ára gam- alla unglinga og stofnuðu íþróttafélag í Reykjavík, skammt fyrir vestan miðbæinn. Félagið var skýrt Fram og æ síðan hefur það verið eitt öflug- asta íþróttafélag landsins, sérs- taklega á sviði knattspyrnu og handknattleiks. Fram er stór- veldi í íslenska íþróttaheiminum og undirstrikar það í dag á 80 ára afmælinu með opnun nýs félagsheimilis á svæði sínu við Safamýri. I fyrstu var þetta sér til gamans gert, en 11. júní 1911 var leikinn opinber knatt- spymuleikur í tilefni aldaraf- mælkis Jóns Sigurðssonar og var mótherjinn KR. KR hafði verið stofnað 12 áram áður og aldursmunur var nokkur á strákunum í Fram annars vegar og KR hins vegar í keppnis- flokkinum. Samt sem áður héldu Framarar jöfnu, ekkert mark var skorað í leiknum sem fór fram á malarvelli sem var þar sem blokkirnar á Víðimeln- um standa nú. Arið eftir gaf Fram bikar þann sem Ieikið var um á íslandsmótum næstu 50 árin. Síðan hefur mikið vatn rannið til sjávar. Aðeins einn strákanna forðum er enn á lífi, Kristinn Albertsson, Framarar era því nokkuð gamalt félag í vissum skilningi, en þó ekki svo að það nemi heilum mannsaldri. Sem fyrr spgir, var keppt næstu 50 árin á íslandsmóti í knatt- spymu um bikar þann sem Fram- strákarnjr söfnuðu fyrir og lögðu svo til. Á þeim árum, vann Fram íslandsbikarinn alls 13 sinnum. Allar götur síðan hafa þrír Islands- meistaratitlar bæst við, þannig að Fram hefur 16 sinnum orðið ís- landsmeistari á 80 ára ferli sínum. íslandsmótin hófust þó ekki fyrr en árið 1912, þannig að Fram hafði verið við lýði í þrjú ár áður en mótin hófust. Síðast varð félag- ið íslandsmeistari í knattspymu árið 1986. Sex sinnum hefur og félagið orðið bikarmeistari í bikar- keppni KSÍ og nokkrum sinnum Reykjavæikurmeistari. Oft hefur Fram vegna þessara afreka sinna verið fulltrúi Islands í Evrópumót- um félagsliða, leikið alls 24 leiki og oft átt láni og velgengni að fagna. Auk þessarar upptalningar, hefur mikil rækt verið lögð við yngri flokka félagsins í knatt- spymu og margir titlar segja sína sögu um það starf. Handknattleikur er önnur af tveimur megin íþróttagreinum Fram, en félagið tók fyrst þátt i íslandsmóti karla árið 1940 og vann sinn fyrsta íslandsmeistara- titil 10 árum seinna, eða árið 1950. Allar götur síðan hefur karlalið Fram í handknattleik verið í fremstu röð og oft í toppbaráttu. Segja má þó, að á sviði hand- knattleiksins hafi konumar stolið senunni að nokkru keyti, sérstak- lega þó á seinni ámm er karlaliðið hefur átt dálítið erfítt uppdráttar á köflum. Kvennadeildin var stofn- uð árið 1943 og var fljótt í fremstu röð, þannig vann meistaraflokkur kvenna alls 19 mót á árunum 1948 til 1954. Síðustu ár hefur verið uppgangsskeið kvennaliðs Fram og það orðið margfaldur Islands- og bikarmeistari. Islensk landslið hafa ekki farið varhluta af bæði kvenna- og karlaliðum Fram í handknattleik og raunar ekki í knattspymu heldur. Skíðadeild Fram er starfrækt af ákveðnum hörðum kjarna innan félagsins. Á árunum 1946 til 1950 átti hún vinsældum að fagna, en síðan lagðist hún undir feld og það var ekki fyrr en árið 1972 að hún var endurvakin og er nú mikil gróska í deildinni.Hefur m.a. verið unnið að smíði nýs skíðaskála og lyftu i Eldborgargili í Bláflöllum. Áuk þessa starfar blakdeild innan Frá vallargerðinni við Stýri- mannaskólann, f.v. Sigurbergur Elísson, Agnar Jónsson, Ævar Þráinsson, Þráinn Sigurðsson, Sigurður E. Jónsson, Jón Sig- urðsson og Böðvar Pétursson. vébanda Fram og til skamms tíma var þar einnig körfuknattleiks- deild. Um hríð var Fram með eitt af betri liðum úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik, en að sögn Birgis Lúðvíkssonar var eigi lögð nægileg rækt við yngri flokkana í körfunni og því lagðist deildin af. Fram hefur sannarlega sett mark sitt á íslenska íþróttasögu og upp: gangstímar virðast fram undan. í fyrstu var liðið með malarvöll í vesturbænum, en árið 1944 fékk Fram úthlutað svæði við Stýri- mannaskólann, beint á móti Tónabíói sáluga. Það þótti góður malarvöllur á sínum tíma, en hann skemmdist í einu síldarárinu er Fram lánaði völlinn til geymslu á síldartunnum. Rann þá svo mikið lýsi í mölina að hún harðnaði og var sem malbik. Komust Framarar þá á hrakhóla, en völlurinn og svæðið var þar að auki óðum að verða allt of litið fyrir félag í svo örum vexti. Á 50 ára afmæli Fram, 1. mai 1958 afhenti síðan þáver- andi borgarstjóri, Gunnar Thor- oddsen, félaginu svæði það sem það hefur yfir að ráða enn þann dag í dag. Þá þegar hófst mikil uppbygging og 10 árum síðar skartaði svæðið tveimur knatt- spymuvöllum, gras- og malarvelli, öðrum flóðlýstum. 1975 var svo fyrsti áfangi félagsheimilsins tek- inn í notkun. í dag verður nýtt og glæsilegt hús vígt, það er 300 fermetra hús að grunnfleti, en á tveimur hæðum og með tilkomu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.