Morgunblaðið - 17.05.1988, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 17.05.1988, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17 MAÍ 1988 39 ðir er istarfs Við töldum vera hægt að taka ákvarðanir um þetta þegar í stað, og vildum takmarka umræðumar við það sem augljósiega var hægt að gera og ná samstöðu um. Sam- starfsflokkamir lögðu hins vegar í upphafi fram mjög viðamikil plögg sem ég hef kallað kosninga- plögg, og sem augljóslega var ekki hægt að afgreiða á tveimur sólarhringum. Alþýðuflokkurinn gerði sér grein fyrir þessu snemma í viðræðunum og taldi rétt að taka ákvarðanir um brýnustu aðgerðir og halda svo áfram starfinu varð- andi viðameiri skipulagsbreyting- ar í éfnahags- og atvinnumálum. Síðan hörfuðu þeir frá upphaflegri tillögu sinni um afnám rauðra strika á lokaspretti viðræðnanna. Sumar hugmyndir Framsóknar- flokksins voru í samræmi við það sem ég hafði lagt fram. Nokkrar þurfu nánari athugunar við en aðrar höfðu yfirbragð kosningap- laggs. Þeir ræddu sérstaklega til- lögur sínar um afnám vísitölubind- ingar. Aðeins það afnám í hús- næðiskerfínu hefði þýtt 7 milljarða króna útstreymi miðað við núver- andi verðbólgustig sem væntan- lega hefði þurft að afla með er- lendum lánum með tilheyrandi þenslu og verðbólguáhrifum. Þeir segja að miðað við 4-5% verðbólgu kosti þetta 2 milljarða og útreikn- ingar Þjóðhagsstofnunar styðja það. Gallinn við þetta er sá að framsóknarmenn lögðu til meiri gengislækkun en aðrir og þar af leiðandi hefðu tillögur þeirra leitt af sér meiri verðbólgu en við vor- um að tala um. Þeir vildu því ganga lengra inn á verðbólgu- brautina og þessi hugmynd þeirra um 2 milljarða fær því ekki stað- ist tillögur þeirra um meiri gengis- lækkun og meiri verðbólgu. Hvort heldur sé, er auðvitað ekki hægt að samþykkja slíkt út- streymi úr byggingasjóðum og erlenda lántöku eða skattlagningu í kjölfarið þótt framsóknarmenn segðu að vísu ekkert einasta orð um hvemig þeir vildu mæta út- streyminu. Það voru atriði af þessu tagi sem gerðu það að verkum að ekki var hægt að ná raunhæfu samkomulagi um brýnustu að- gerðir sem ég taldi nauðsynlegt að þessu fylgdu," sagði Þorsteinn. Þegar Þorsteinn var spurður hvort það væri ekki feigðarmerki á ríkisstjóminni að geta ekki náð samkomulagi um nauðsynlegar til- lögur sagði hann að það væri auð- vitað alveg ljóst að menn hlytu að spyija sig til hvers ríkisstjóm sé sem næði ekki saman um brýn- ustu aðgerðir. „Ég hef ekki áhuga á að sitja í forustu fyrir slíkri ríkis- stjóm. Þess vegna verður að nást samstaða um brýnustu aðgerðir og áframhaldandi stöðugt aðhald í efnahagsmálum og uppbyggingu atvinnulífsins ef grundvöllur á að vera fyrir stjómarsamstarfínu og við höfum ekki marga daga til að fá úr því skorið hvort sá grundvöll- ur sé til. Ég trúi þó ekki öðm en þeir sem að þessu standa séu til- búnir þegar á hólminn er komið. Ég teldi það vera ábyrgðarleysi að stefna þjóðinni út í kosningar því það er þörf á ákvörðunum en ekki slagsmálum í þjóðfélaginu," Ssagði Þorsteinn Pálsson. Ríkisstarfsmenn innan BSRB: Öll félög hafa samið nema FÍ S Samkomulag tókst ekki við BHMR og KÍ Morgunblaðið/Ólatur K. Magnússon Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra gengur út úr stjómarráðinu eft- ir að ríkisstjórnin hafði tekið ákvörðun um 10% gengisfellingu. Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra: Verðum að snúa bökum sam- an o g leysa ágreiningsmálin „ÞAÐ hefur borist í tal í fjöl- miðlum hver af stjórnarflokk- unum hafi tapað og hver unnið í togstreytunni um efnahagsað- gerðir. Eg gef lítið fyrir þessa umræðu. Aðalmálið er hvort þetta gagnist þjóðinni og það ræðst af framhaldinu," sagði Jón Baldvin Hannibalsson fjár- málaráðherra. „Við jafnaðarmenn höfum alla tíð hamrað á því að gengisfelling væri ekkert nema deyfilyf sem dygði í skamman tíma. Aðalatriðið væri til hvaða annarra aðgerða væri gripið svo allt færi ekki strax aftur í gamla farið. Nú hefur ver- ið tekin ákvörðun um gengið og jafnframt hefur að okkar frum- kvæði verið ákveðið að ræða við aðila vinnumarkaðarins um hliðar- ráðstafanir áður en stjómin tekur endanlegar ákvarðanir um þær fyrir næstu mánaðarmót. Uppi hafa verið umræður um mikla gengisfellingu, allt að 22-23%. Við sögðum að stærð gengisfellingar yrði að ráðast af því hvað þurfi til að þær forsendur sem gefnar voru við ráðstafanim- ar í lok febrúar standist og til að tryggja þeim sem þá gerðu kjara- samninga sömu eða betri stöðu. Á þessum tíma hefur verð á erlend- um mörkuðum lækkað, gengi doll- ars enn sigið og kjarasamningar undir það síðasta farið fram úr því sem miðað var við. Til að bæta þessi skilyrði hefði þurft 8% gengisfellingu. Seðlabankinn lagði til 10% og við féllumst á það, enda hefði meiri gengisfelling ekki hald- ið. Einnig voru uppi háværar kröf- ur um að lögbinda ógerða kjara- samninga og stroka út rauðu strik- in með lögum. Við lögðust gegn því og fengum því framgengt að efnt yrði til viðræðna við aðila vinnumarkaðarins. í vetur hafa verið gerðir kjarasamningar sem leiðrétta kjör hinna lægst launuðu með óbeinni aðild ríkisvaldsins. Ríkisvaldið hefur ákveðnar skuld- bindingar í þessu sambandi og því eðlilegt og skynsamlegt að ræða málið við ábyrgðarmenn samning- anna áður en menn grípa til þess neyðarúrræðis að lögbinda breyt- ingar. Gengisfelling er kjaraskerð- ing, við drögum enga dul á það. En við viljum heyra sjónarmið for- ystumanna verkalýðshreyfíngar- innar um það hvemig jafna eigi þeim byrðum. Það reynir þá á vilja þeirra, ábyrgð og þor. Viðræður þessar eiga eðli sínu samkvæmt að fara fram undir forystu forsæt- ÖLL félög ríkisstarfsmanna í BSRB nema Félag íslenskra símamanna gengu frá endur- skoðun á launalið kjarasanminga sinna við ríkið um helgina og sama gildir um Starfsmannafé- lag Reykjavíkurborgar. Sam- komulag tókst ekki við BHMR og Kennarasamband íslands hafnaði tilboði Launanefndar ríkisins, en KÍ og Hið íslenska kennarafélag eru með lausa samninga. Endurskoðunin felur í sér að fé- lögin fá hækkun um einn launaflokk nú eða á bilinu 3-5% og sömu áfangahækkanir og kveðið er á um í samningunum sem undirritaðir voru á Akureyri. Auk þess launa- uppbót í desember, sem nemur 30% af launaflokki 240, en það eru nú rúmar 17 þúsund krónur. Verð- lagsákvæði eru hliðstæð þeim sem. eru í nýgerðum kjarasamningum verslunarmanna. Samningar opin- berra starfsmanna voru gerðir síðastliðið vor og gilda til næstkom- andi áramóta, en ákvæði eru um endurskoðun hækki aðrir launþegar um meira en kveðið er á í kjara- samningunum. Takist ekki sam- komulag fer ágreiningurinn í gerð- ardóm, sem er skipaður tveimur aðilum frá hvorum auk oddamanns, mánuði eftir að farið er fram á endurskoðun. Samkornulag tókst ekki milli BHMR og Launanefndar ríkisins og ber aðilum ekki saman um ástæður þess. Indriði H. Þorláks- son, formaður Launanefndar ríkis- ins, segir að aðilar hafí verið sam- mála um það markmið að allir BHMR-félagar hækkuðu um einn launaflokk, en í ljós hafí komið við útreikning á tilboði, sem BHMR isráðherra og við bindum miklar vonir við þær. Gengisfelling innan við 10% er á mörkum þess að reyna á rauðu strikin í kjarasamningunum og við höfum góðan tíma til að líta á áhrifín. Það verður gert þegar þar að kemur. Þá verður einnig hægt að meta greiðslugetu þjóðarbús- ins. Við jafnaðarmenn höfum lagt fram tillögur um aðgerðir sem koma eiga strax til framkvæmda og skipulagsbreytingar, meðal annars í landbúnaðar- og sjávarút- vegsmálum, sem þarf að ákveða núna en skila ekki árangri strax. Iðulega hefur komið upp ágrein- ingur um einstök mál í stjómar- herbúðunum þrátt fyrir að mál- efnasamningurinn hafi verið óvenju ítarlegur. En núna stöndum við frammi fyrir víðtækari ágrein- ingi, sem snýst um staðfestu og vilja til að standa við stefnuna í efnahagsmálum. Ríkisstjórnin ætlar sér hálfan mánuð til að undirbúa frekari að- gerðir, meðal annars með viðræð- unum við aðila vinnumarkaðarins. 'Auðvitað verða forystumenn ríkis- stjómarinnar að snúa bökum sam- an og leysa ágreiningsmál sín á þessum tíma,“ sagði Jón Baldvin. hafí gert ríkinu, að fímmti hluti félagsmanna þess eða 600 manns myndu hækka um tvo launaflokka. Þegar það hafi komið í ljós hafí ekki verið hægt að ganga að því. Páll Halldórsson, formaður BHMR, segir að Launanefndin hafí ekki treyst sér til þess að standa við sitt eigið tilboð og hafí ásakað BHMR fyrir að hafa ekki bent á þetta. Þeir hafí haft umboð frá aðildarfé- lögunum til þess að ganga frá end- urskoðun á þessum grundvelli, en þar sem það hafí ekki verið ger- legt, sé nú umboðið aftur hjá aðild- arfélögunum. Stjóm og kjararáð Kl hafnaði tilboði ríkisins um kjarasamning á fundi sínum á laugardaginn. í fréttatilkynningu segir að stjóm sambandsins telji ósæmilegt af ríkinu að ætla sér að knýja fram samninga á sama tíma og gengis- felling vofði yfír og í kjölfar hennar efnahagsaðgerðir, sem enn hafi ekki verið gerðar opinberar. „Á opinbemm vettvangi hafa fulltrúar Samninganefndar ríkisins ítrekað lýst því yfir að kennurum væm boðnar sömu launahækkanir og aðrir launþegar hafa samið um að undanfömu. Að dómi Kennarásam- bands íslands fer því víðsfjarri. Því fer einnig fjarri að tilboðið komi til móts við tillögur starfskjaranefndar um bætt lqör kennara og skójastarf í landinu. Kennarasamband íslands getur ekki axlað þá ábyrgð að und- irrita kjarasamning sem vitað er að hvorki bætir kjör kennara né skólastarf í landinu og mun einung- is verða til þess að auka enn á vanda skólanna, ekki síst með tilliti til kennararáðninga næstkomandi haust," segir ennfremur í fréttatil- kynningunni. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Jón Baldvin Hannibalsson, fjár- málaráðherra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.