Morgunblaðið - 01.07.1988, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTODAGtJR 1. JÚLÍ1988
VSÍ ræður
starfsmann
til að fylgj-
ast með EB
Vinnuveitendasamband íslands
hefur ákveðið að fela einum
manni það verkefni í fullu starfi
að fylgjast með þróun eins mark-
aðar innan Evrópubandalagsins.
Að sögn Gunnars J. Friðrikssonar
formanns VSÍ verður i haust sett
& stofn samstarfsnefnd atvinnu-
veganna um samskipti íslands og
Evrópubandalagsins. Þá verður
að líkindum ráðinn fastur starfs-
maður með aðsetur í Brussel til
þess að fylgjast með þróun mála
þjá bandalaginu og koma sjónar-
miðum hlutaðeigandi samtaka á
framfœri.
Hópur manna úr íslensku atvinnu-
lffi var í Brussel i síðustu viku til
þess að kynnast starfsemi Evrópu-
bandalagsins og þróun eins markað-
ar. Stefnt er að því að ríki bandalags-
ins verði eitt markaðssvæði 320 millj-
óna manna árið 1992. Evrópubanda-
lagsþióðimar eru stærstu viðskipta-
vinir Islendinga og breytingar á skip-
an innan EB munu ugglaust hafa
áhrif á útflutningsatvinnuvegi þjóð-
arinnar.
Þau samtök atvinnuveganna sem
munu sameinast um tengilið við Evr-
ópubandalagið yrðu I fyrstu VSÍ,
Félag fslenskra iðnrekenda og Versl-
unarráðið en fleiri aðilum verður
Morgunblaðið/Sverrir
Kvennaskari í ferðahug
MTKn.T. fjöldi kvenna var samankominn i húsi BSRB í gær- I konur hafa skráð sig til þátttöku á kvennaþinginu. Baráttusöng-
kvöldi, þar sem haldinn var kynningarfundur vegna Norrsena I ur hefur verið saminn fyrir ferðma og var hann kyrjaður af
kvennaþingsins f Osló 30. júlf til 7. ágúst nk. Nserri 800 islenskar I miklum móð á fundinum i gaerkvöldi.
boðin þátttaka. „Okkur varð ljóst að
ef við ætlum okkur að fylgjast með
því sem er að gerast á vettvangi
Evrópubandalagsins verðum við að
leggja í það vinnu," sagði Gunnar.
„Systursamtök okkar á Norðurlönd-
um hafa öll ráðið sér menn til starfa
í Brussel.
Með því að hafa mann á staðnum
gefst okkur tækifæri til þess að fylgj-
ast með vinnu í undimefndum Evr-
ópubandalagsins og koma sjónarmið-
um okkar á framfæri þegar mál eru
enn á undirbúningsstigi. Fastur
starfsmaður ytra gæti sfðan kallað
regiulega sérfræðinga að heiman til
aðstoðar við úrvinnslu flókinna mála
og hefði aðgang að sérfræðingum
systursamtaka okkar," sagði Gunnar
J. Friðriksson.
Útflutningiir á ísuðiun fiski
helmingaður til haustsins
í NÝRRI reglugerð um útflutning
á ferskum fiski, sem gefin verður
út i dag, er kveðið á um helming-
un á útflutningi á isuðum þorski
og ýsu frá því sem var mánuðina
júlí, ágúst og september á siðasta
ári. Þá voru flutt utan, til Bret-
lands og Þýzkalands, 10.989 tonn
Félagsvísindadeild Háskólans:
Hannes H. Gissurar-
son skipaður lektor
í stjórnmálafræði
Menntamálaráðherra hefur
skipað dr. Hannes Hólmstein Giss-
urarson lektor i stjómmálafræði
við félagsvisindadeild Háskóla ís-
lands frá 1. ágúst. Menntamála-
ráðherra féllst ekki á niðurstöðu
dómnefndar um hæfni umsækj-
enda um stöðuna hvað dr. Hannes
varðar og leitaði meðal annars
umsagnar fyrrum kennara dr.
Hannesar erlendis og fleiri stjóm-
málafræðimenntaðra mannn áður
en hann tók ákvörðun sina.
Aðrir umsækjendur um stöðuna
voru Ólafur Þ. Harðarson, Gunnar
H. Kristinsson, Bjöm Stefánsson og
einn er óskaði nafnleyndar. Niður-
stöður dómnefndar um hæfiii um-
sækjenda, sem skipuð var Svani
Kristjánssyni, Gunnari Gunnarssyni,
Sigurði Líndal og Jónatan Þórmunds-
syni, voru þær að Ólafur Þ. Harðar-
son væri vel hæfur og Gunnar Helgi
Kristinsson væri hæfur til að gegna
stöðunni. Dr. Hannes var dæmdur
hæfur að hluta.
f bréfí Johns Grays, kennara í
stjómmálafræði við Oxford-háskóla
á Englandi og fyrrum leiðbeinanda
dr. Hannesar, segir: „Ég er fullfær
um að staðfesta að hann (þ.e. Hann-
es H. Gissurarson) er hæfur til að
kenna stjómmálaheimspeki og
stjómmálafræði, bæði byijendum og
þeim sem lengra eru komnir. Hann
hefur einstaka hæfileika og ég er
ekki I nokkrum vafa um að hann er
Dr. Hannes Hólmsteínn Gissurar-
son.
fyllilega undirbúinn undir þá stöðu
sem um ræðir."
í sama streng tekur Norman P.
Barry, prófessor í stjómmálafræði
við Buckingham-háskóla á Englandi
og einnig fyrmrn kennari dr. Hannes-
ar. Undir þetta álit hinna ensku
fræðimanna tók einnig dr. Gunnar
Pálsson, sem er einn fárra fslend-
inga, sem lokið hafa doktorsprófi í
stjómmálafræði.
Sjá einnig greinargerð mennta-
málaráðuneytisins á sfðu 24.
af þorski fyrir 649,2 miljjónir
króna, eða 59 krónur að meðaltali
og 2.451 tonn af ýsu fyrir 172,3
miHjónir eða 70 krónur að meðal-
tali hvert kfló. Skiptar skoðanir
eru um þessa ákvörðun. Gfsli Jón
Hermannsson, framkvæmdastjóri
ögurvíkur, kallar þetta frelsis-
sviptingu og Jón Asbjömsson,
gámaútflytjandi, er andvfgur
þessari reglugerð.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins verður mönnum nú gert að
sækja um útflutningsleyfí með
nokkrum fyrirvara, en til þessa hefur
leyfísveiting verið nær sjálfkrafa og
oft ekki verið staðfest fyrr en eftir
að fi8kurinn er farinn utan. Stefnt
er að því að ekki fari meira en 500
tonn af þorski utan í viku hverri og
til að ná því markmiöi verður engum
nýjum aðilum leyfður útflutningur,
hvorki í gámum né með fiskiskipum.
Verði óskað útflutningsleyfis fyrir
meira en 500 tonn, verður magnið
helmingað hjá hveijum og einum, sé
þess þörf, en útflutningsleyfin verða
bundin við skip og báta. Hömlur á
útflutning verða aðeins á þorsk og
ýsu.
Kristján Ragnarsson, formaður
LÍÚ, sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að hann væri ekki sáttur við
hömlur á útflutning á ýsu, þar sem
rök, sem styddu hömlur á úfcflutning
á þorski, ættu ekki við um ýsuna.
Þetta væri engan veginn góður kost-
ur, en ekki gengi að menn héldu
áfram að bjóða niður fiskverðið hver
fyrir öðrum. Ennfremur væru líkur
á hækkandi verði á öllum fiskafurð-
um í haust og því bezt að draga úr
veiðum þangað til.
Gísli Jón Hermannsson, fram-
kvæmdastjóri Ögurvíkur, er í stjóm
LÍÚ og gerir út fsfisktogarana Ogra
og Vigra, sem selja megnið af afla
sínum erlendis. Hann er óánægður
með þessa ráðstöfun. „Þetta er nátt-
úrlega frelsissvipting. Tíminn er allt-
of langur, tekjur útgerðar og sjó-
manna verða minni en ella og fisk-
verð innanlands lækkar, þar sem
ekki er líklegt að dragi úr afla. Þetta
mun koma mjög illa niður á bátun-
um, sem sumir hveijir hafa haft
megnið af tekjum sínum af útflutn-
ingi á ísuðum fiski. Það verður líka
erfitt fyrir minni bátana að draga
úr veiðum í sumar og geyma kvótann
til haustsins. Þá getur sjósókn orðið
erfið vegna veðurs. Reyndar hefur
Isfiskurinn skilað okkur mestu svo
það mætti alveg eins takmarka út-
—flutning SH og SÍS á frystum fiski
til að reyna að hífa upp afurðaverð-
ið,“ sagði Gísli.
„Það gengi kraftaverki næst ef
kvóti á ferskfískútflutning ylli ekki
miklum erfíðleikum. Ég get fallist á
að stjóma þarf framboðinu yfir sum-
armánuðina. En ég sé enga aðferð
til þess að gera það án þess að mis-
muna mönnum, valda ringulreið og
óánægju," sagði Jón Ásbjömsson
forstjóri. Fyrirtæki hans flutti út
10.000 tonn af ísuðum físki í gámum
á síðasta ári.
Jón sagði að það væri vítavert að
tillögur sjávarftvegaráðuneytisins
hefðu ekki verið kynntar útflutnings-
ráði stórkaupmanna. Það hefðu verið
eðlileg og sjálfsögð vinnubrögð þegar
mikið væri í húfi. „Staðreyndin er sú
að þessi atvinnugrein hefur skilað
góðri afkomu hvað sem á hefur dun-
ið. Við flytjum út fisk vegna þess að
frystihúsin geta ekki tekið við aflan-
um. Úti býðst betra veið en fiskvinnsl-
an getur boðið og þjóðarbúið ber
minna úr býtum fyrir unninn fisk en
ferskan þegar allt er reiknað."
Steingrímur fer
með rétt mál um
undirbúninginn
- segir Jón Baldvin Hannibalsson
„Deilan er ekki um lagatúlkun.
Það vita allir að Landsvirkjun
er ekki ríkisfyrirtæki í eiginleg-
um skilningi, heldur sameignar-
fyrirtæki ríkis og sveitarfélaga.
Hitt er rétt að við undirbúning
efnahagsr&ðstafana í mai var
það skilmerkilega rætt og sam-
eiginleg niðurstaða formanna
stjórnarflokkanna að með gjald-
skrá Landsvirkjunar skyldi farið
með sama hætti og með ríkis-
fyrirtæki,“ sagði Jón Baldvin
Hannibalsson, fjármálaráðherra
og formaður Alþýðuflokksins,
um það mat Steingríms Her-
mannssonar, utanríkisráðherra
og formanns Framsóknarflokks-
ins í Morgunblaðinu i gær að
leggja hefði átt fyrir ríkissljóm
gjaldskrárhækkun Landsvirkj-
unar.
„Þetta gat ekki þýtt annað en
að tveir stjómarflokkanna, sem
eiga fulltrúa í sljóm Landsvirkjun-
ar, þ.e.a.s Sjálfstæðis- og Fram-
sóknarflokkur ætluðu sér að
tryggja það í reynd, hvað sem svo
líður sérstöðu Landsvirkjunar að
lögum. Alþýðuflokkurinn á engan
fulltrúa í stjóm Landsvirkjunar,"
sagði Jón Baldvin.
„Efnislega var ákvörðun ríkis-
stjómarinnar sú, að því er varðaði
gjaldskrárhækkunarbeiðnir, að þær
skyldu ekki ná fram að ganga án
samþykkis rikisstjómar. Stefnan
var sett sú að það ætti að halda
þeim mjög í skefjum og gera kröfur
til þess að opinberar stofnanir og
fyrirtæki sem byggja tekjur sínar
á gjaldskrám, endurskoðuðu rekstr-
aráætlanir sínar og legðu fram til-
lögur um samdrátt og spamað.
Allir voru sammála um að þær
ættu ekki að safna skuldum. Ég
verð því að segja sannleikanum
samkvæmt að Steingrímur Her-
mannsson fer rétt með þennan und-
irbúning málsins. Mér þykir því
miður að svona skuli hafa til tekist
með framkvæmdina," sagði Jón
Baldvin Hannibalsson að lokum.