Morgunblaðið - 04.09.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.09.1988, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 201. tbl. 76. árg. SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins Rót á sænskum kjósendum samkvæmt nýrri könnun; Umhverfisflokkurinn eykur mjög fylgi sitt Stokkhólmi, frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins. Pólland: Verkföllum hætt en Wal- esa hallmælt Jastrzebie, Reuter. PÓLSKIR verkfaUsmenn hall- mæltu Lech Walesa, leiðtoga. hinna ólöglegu verkalýðssamtaka Samstöðu, og deiidu við hann i margar klukkustundir áður en þeir ákváðu að hætta siðasta námaverkfalli i Póllandi i gær. Hinir 400 námamenn, sem enn voru í verkfalli í Manifest Lipcowy- kolanámunni f suðurhluta landsins, ákváðu að hætta verkfallinu f dögun og um klukkan sex gengu þeir út um námahliðið undir borða Sam- stöðu, sungu ættjarðarlög og hróp- uðu: „Lengi lifi Samstaða!" Málalok þessi eru talin mikill sigur fyrir Lech Walesa, sem æskti þess á miðvikudag að verkföllunum linnti. Sovétríkin: Töpuðum vinnudög- um fjölgar Moskvu, Reuter. Æ FLEIRI sovéskir verkamenn mæta ekki til vinnu og þeir sam- viskusömu geta oft ekki hafið störf vegna verkefnaleysis, sam- kvæmt tölum sem birtar voru f Prövdu, málgagni kommúnista- flokksins, f gær. Blaðið greindi frá því að 24,5 millj- ónir vinnudaga hefðu tapast f sovésk- um verksmiðjum á liðnu ári, miðað við 22 milljónir árið 1986, meðan 8,2 milljónir vinnudaga til viðbótar hefðu tapast í byggingariðnaði, voru 6,9 milljónir árið 1986. Blaðið skýrði ennfremur frá því að í heildina hefði töpuðum vinnu- dögum flölgað um 20% í verksmiðj- um vegna skorts á hráefni og ann- arra vandamála sem gerðu það að verkum að verkamenn þyrftu að bíða verkefnalausir. í byggingariðnaði hefði töpuðum vinnudögum fjölgað um 44% vegna slíkra vandamála. Þannig töpuðust í allt 30 milljarðar rúblna (2,1 billjón ísl. kr.) í fram- leiðslu- og byggingariðnaði á síðasta ári, að sögn blaðsins. SAMKVÆMT skoðanakönnun sem birt var f sænska dagblaðinu Svenska Dagbladet í gær hefur sænski Umhverfisflokkurinn, græningjar, 8,1% fylgi meðal kjósenda og fær hann samkvæmt þvf 28 fulltrúa kjörna á sænska þjóðþingið. Fylgi Hægri flokksins hefur minnkað, ef marka má könnunina, og svo virðist sem nokkurt rót sé á kjósendum og margir séu óákveðnir. Hægri flokkurinn hefur tapað 2,5 prósentustigum miðað við skoðana- könnun sem birtist í Svenska Dag- bladetí júní, hefur 15,7% fylgi. Fylgi flokksins hefur minnkað um 4,7% frá könnun sem gerð var í maí. í kosningunum árið 1985 hlaut flokk- urinn 21,3%. Kommúnistar hafa tapað einu prósentustigi frá í júní, vantar 0,8% til að fá þingmann kjörinn, en til þess þarf fjögur prósent. Jafnaðarmenn, sem hafa haft álíka mikið fylgi í síðustu þremur könnunum, fá meira fylgi en borg- aralegu flokkamir þrir til samans, en ekki nógu mikið til að ná meiri- hluta á þinginu. Staða græningja er því sterk þar sem líkur benda til að kommúnistar detti af þingi. Lesendabréf í rússnesku bókmenntatímariti: Hvatt til að Solzhenítsyn fái að ALEXANDER Solzhenítsyn var hylltur í sovésku bókmenntatíma- riti á föstudag og sagður vera einn snjallasti rithöfundur samtf- mans. Solzhenftsyn, sem þekktastur er fyrir lýsingar sfnar á fanga- búðalffi í Sovétrfkjunum, var gerður útlægur frá Sovétríkjunum árið 1974, en hann fékk bókmenntaverðlaun Nóbels árið 1974. í bréfum, sem birt voru í vikurit- inu Knizhnoje Obozhreníje, var Solzhenítsyn mjög lofaður og sagt að framtíðarkynslóðir Sovétríkj- anna myndu líta um öxl með skömm ef stjómvöld leyfðu honum ekki að snúa aftur. Að sögn vikuritsins bárust því um 200 bréf vegna greinar, sem birtist fyrir flórum vikum, en þar var hvatt til þess að rithöfundurinn fengi að snúa heim. Af þessum 200 bréfriturum reyndust aðeins 16 hugmyndinni mótfallnir. „í huga mínum er ekki nokkur vafi — öll samanlögð reynsla mín sem sagnfræðings gerir mér kleift að fullyrða að eftir nokkra ára- tugi, jafnvel fyrr, verði götur, torg, verksmiðjur og bókasöfn kennd við Solzhenítsyn," sagði í bréfi Natans Eidelmans. Tveir handhafar Lenln-verðlaun- anna, sem eru æðsti virðingarvott- ur Sovétstjómarinnar fyrir afrek á andlega sviðinu, sögðu Solzhenít- syn vera „einn fremsta rithöfund nútímans" og kröfðust tafarlausrar heildarútgáfu verka hans. Sérstaklega nefndu þeir „Krabbadeildina", „Innsta hring- inn“ og „Gúlag-eyjahafið" og hrós- uðu hinni síðastnefndu sérstaklega fyrir nákvæma lýsingu á þrælkun- arbúðakerfinu og sálfræðilega greiningu á rótum þess. „Alexander Solzhenítsyn er 70 ára gamall," sagði í öðru bréfí. snúa heim „Við megum ekki láta skrána yfir þá sem endurreistir eru til vegs og virðingar að þeim látnum lengjast frekar." Fyrir skömmu var tilkynnt af formanni hinnar opinberu Minn- ingamefndar um fómarlömb Stalíns, að Solzhenítsyn hefði verið tilnefndur til þess að vera í ráðgjaf- amefnd nefndarinnar ásamt and- ófsmanninum og Nóbelsverðlauna- hafanum Andrej Sakharov. Sjálfur hefur Solzhenítsyn ekki gefið neitt til kynna um að hann hafi i hyggju að snúa heim til Rússlands, verði honum á annað borð boðið það. Eftirfarandi tafla sýnir fylgi flokkanna samkvæmt skoðanakönn- uninni (fylgisbreytingar frá könnun- inni í júnímánuði innan sviga): Hægri fl. Þjóðarfl. Miðflokkur Kristilegi fl. Græningjar Jafnaðarmenn Kommúnistar Aðrir flokkar 15,7% (-2,5%) 17,0% (-1,1%) 8,4% (-0,5%) 2,3% (+1,3%) 8,1% (+3,5%) 44,9% (+0,1%) 3,2% (-1,0%) 0,4% (+0,2%) Borgaralegu flokkamir þrír fá til samans 41,1% (-4,1%), jafnaðar- menn og kommúnistar 48,1 (-0,9%). Þeir sem hyggjast skila auðu eða eru óákveðnir eru 9,1%. í samsvar- andi skoðanakönnun fyrir kosning- amar árið 1985 var þessi tala 4,5%, þannig að óvenju margir eru óá- kveðnir samkvæmt þessari skoðana- könnun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.