Morgunblaðið - 07.09.1988, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B
203. tbl. 76. árg.__________________________________MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1988___________________________________Prentsmiðja Morgfunblaðsíns
Enn neyðarástand í Bangladesh vegna flóða:
25 milljóiiir manua sagð-
ar hafa misst heimili sín
Talið að tíu milljónir manna séu í algjörri einangrun
Dhaka. Reuter.
Sovétríkin:
Geimfar-
ar í mik-
illihættu
Bandaríkjamenn
bjóða aðstoð
Washington. Reuter.
TVEIR geimfarar, Afgani og
Sovétmaður, voru í gær í al-
varlegri hættu í geimnum
eftir að tvær tilraunir til að
stýra geimfari þeirra til jarð-
ar höfðu mistekist. Um mið-
nættið hófst þriðja tilraun
geimfaranna til að komast til
jarðar, að sögn breska út-
varpsins BBC. Bandaríkja-
menn buðust til að aðstoða
Sovétmenn við að koma far-
inu, Soyuz TM-5, til jarðar.
Jennifer Clapp hjá Geimrann-
sóknastofnun Bandaríkjanna,
NASA, sagði í samtali við frétta-
ritara Reuters að Sovétmenn
hefðu afþakkað boð Bandaríkja-
manna um aðstoð um miðjan dag
í gær, þar sem þeir hefðu talið
að bilanimar í geimfarinu væru
ekki alvarlegar. Bandaríska ut-
anríkisráðuneytið hefði síðan
ítrekað boðið eftir að fregnir bár-
ust um að bilanimar væru alvar-
legri en talið var. Bandaríkjamenn
buðu meðal annars Sovétmönnum
afnot af fjarskipta- og geimeftir-
litskerfum sínum til að halda stöð-
ugu sambandi við farið.
Sovéskir embættismenn sögðu
að geimfaramir gætu þurft að
stýra farinu sjálfir til jarðar, en
sjálfvirkur lendingarbúnaður þess
var bilaður. Fréttastofan TASS
greindi frá því að geimfaramir
gætu haldið lífi í tvo daga í farinu
og gaf í skyn að súrefnisbirgðir
þeirra væm takmarkaðar. Ekki
var vitað hvort þriðja tilraunin til
að stýra geimfarinu til jarðar hefði
tekist þegar Morgunblaðið fór í
prentun.
Sjá frétt á síðu 28.
ÞÚSUNDIR Dliaka-búa börðust
um takmarkaðar birgðir matar
og hreins vatns i gær og ekkert
lát varð á hörmungunum vegna
flóðanna í Bangladesh. Niður-
gangspest breiddist ört út í borg-
inni og hafa 650 manns látist, að
sögn embættismanna. Talið er að
minnst 25 milljónir Bangladesh-
manna hafi misst heimili sín og
10 miiyónir manna á afskekktum
stöðum séu algjörlega einangrað-
ar vegna flóðanna, sem stöfuðu
af miklum monsúnrigningum.
Embættismenn sögðu að um
102.000 manns hefðu veikst eftir
að hafa drukkið mengað vatn eða
borðað skemmdan mat, þar af
30.000 í höfuðborginni. „Við eigum
í erfiðri baráttu við að halda pest-
inni í skefjum og veita þeim að-
hlynningu sem þegar hafa veikst,"
sagði Kazi Anwarullah, læknir við
sjúkrahús í Dhaka. „Hundruð nýrra
sjúklinga koma á sjúkrahúsið á
hverri klukkustundu og skortur á
lyflum og salti háir okkur mikið,“
bætti hann við. „Allt virðist stefna
í algjört stjómleysi," sagði annar
læknir við fréttamenn.
Embættismenn segja að ástandið
sé enn verra í dreifbýli landsins.
„Menn hafa dregið fram lífið dögum
saman með því að drekka flóðvatn
og borða mat sem jafnvel dýrin líta
ekki við,“ sagði Nurul Islam frá
Atti-bæ, átta kílómetrum frá Dhaka.
Dauði blasir við þúsundum fjöl-
skyldna af völdum hungurs, sjúk-
dóma og eitumaðra. Þyrlur flug-
hersins í Bangladesh og fjórar frá
Indlandi flytja matvæli til verst settu
héraðanna en sú hjálp dugar
skammt, að sögn embættismanna.
Stjómvöld í Kuwait og Saudí-Arabíu
hafa lofað að senda matvæli um leið
og flugvöllurinn í Dhaka verði opn-
aður, en hann lokaðist á föstudag.
Onnur ríki hafa lofað alls 15 milljón
dala aðstoð (um 690 millj. ísl. kr.).
Veðurstofa landsins spáði í gær
að neyðarástandið myndi ríkja í að
minnsta kosti viku til viðbótar.
Nýjar ásakanir á hendur fyrrum dómsmálaráðherra Svíþjóðar:
Reyndi að hindra rannsókn
á mútu- og vopnasölumálinu
Stokkhólmi. Frá Claes von Hofsten, fréttaritara Morgunblaðsins.
ANNA-Greta Leijon, sem neyddist til að segja af sér sem dómsmála-
ráðherra í sænsku stjóminni vegna afskipta af einkarannsókn á
Palme-morðinu, hefur nú einnig verið sökuð um að hafa reynt að
misnota vald sitt sem ráðherra. Saksóknarinn, sem kannaði hugsan-
legar mútugreiðslur í tengslum við mikla vopnasölu til Indlands,
segir nú, að Leijon hafi hringt til sín sl. vetur og reynt að fá sig til
að hætta við að yfirheyra ákveðna Indverja.
I janúar sl. kom Rajiv Gandhi, hafði saksóknarinn farið fram á
forsætisráðherra Indlands, í opin- það við sænska utanríkisráðuneyt-
bera heimsókn til Svíþjóðar ásamt ið, að hann fengi tækifæri til að
70 manna fylgdarliði. Nokkru áður ræða við nokkra fylgdarmenn
Rajivs um mútumálið. Tók ráðu-
neytið vel í það en fímm dögum
fyrir komu Gandhis hringdi Leijon
til saksóknarans og reyndi að fá
hann til að hætta við fyrirætlan
sína.
Reyndin varð sú, að saksóknar-
inn fékk ekkert tækifæri til að
ræða við Indveijana og nokkrum
dögum eftir að þe’r voru farnir
skilaði hann af sér lokaskýrslu um
málið. Sagði hann þar, að málið
væri strand, yfirvöld í Sviss hefðu
ekki viljað létta bankaleyndinni og
síðasta hálmstráið hefði verið að
fá að tala við Indveijana.
Anna-Greta Leijon varð að segja
af sér embætti í vor þegar í ljós
kom, að hún hafði lagt blessun
sína yfir einkarannsókn bókaút-
gefandans Ebbe Carlsson á morð-
inu á Olof Palme.