Morgunblaðið - 18.09.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.09.1988, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B 213. tbl. 76. árg. SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins Tyrkland: Grófu sig út úr fang- elsinu Ankara. Reuter. Vinstrisinnaðir fangar, átján að tölu, flúðu í gær úr ramm- byggilegu fangelsi skammt frá höfuðborg Tyrklands, Ankara. Að sögn yfirvalda grófu fang- arnir 118 metra löng göng út úr fangelsinu með klaufjárni. Rikissaksóknari landsins taldi víst að fangamir hefðu notið að- stoðar fangavarða. Talið er að gröfturinn hafi staðið yfir í fjóra eða fimm mánuði og hafi fangamir þurft að fjarlægja flögur bflhlöss af mold. Þrír fahganna höfðu verið dæmd- ir til dauða og fjórir í ævilangt fang- elsi. Flestir fangamir vom félagar í kúrdískri deild hins bannaða kommúnistaflokks Tyrklands. Gilbert fór aftur inn yfir Mexíkó Dl a£st £* L cz icelaÍTd”" Reuter Gengið inn á Ölympíuleikvanginn Ólympíuleikamir í Seoul í Suður-Kóreu voru settir við hátiðlega athöfn í fyrrinótt. Á myndinni sjást íslenskir þátttakendur og farar- stjórar ganga inn á Ólympíuleikvanginn. gjá & ^ 6g Qg 6? Mexíkóborg. Reuter. Fellibylurinn Gilbert tók í fyrrinótt stefnu á Mexíkó og gerði þar usla í gærmorgun, öðru sinni í þessari viku. Óttast var að mikið tjón yrði í Monterrey, þriðju stærstu borg Mexíkó, af völdum fellibylsins, eink- um vegna flóða, sem honum fylgja. Þjóðvegir í nágrenni borgarinnar höfðu lokast af völdum skriðufalla um hádegið í gær. Brottflutningur fólks úr fátækrahverfum og úr borgum og fískimannabæjum við austurströndina hófst í fyrrakvöld, þegar fellibylurinn tók að nýju stefnu á Mexíkó í stað þess að fara inn yfir Texas í Bandaríkjunum. Sjötíu rrianns hafa beðið bana af völdum óveðursins, 21 á Yucatan- skaga í Mexíkó á miðvikudag og a.m.k. 49 er það fór með eyðilegg- ingarkrafti sínum yfír eyríki í Karíbahafí. Svíar ganga að kjörborðinu í dag: Jafnaðarmenn í vam- arstöðu síðustu dagana Fjölskyldumál og einkavæðing helstu mál í hringborðsumræðu stjómmálaleiðtoganna Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins, og Reuter. TALSVERT á sjöundu milljón manna hafa kosningarétt í þing- kosningunum sem fram fara i Sviþjóð í dag. Þess er vænst að úrslit verði liós um sjöleytið i kvöld að islenskum tíma. Tveim dögum fyrir kosningarnar var talið að 700 þúsund kjósendur hefðu ekki enn ákveðið hvernig þeir myndu veija atkvæði sínu. Búrma: Skotið á stjórnarandstæðinga Rangoon. Reuter. HERMENN hófu skothríð á stjórnarandstæðinga í Rangoon, höfuðborg Búrma i gær. At- burðurinn átti sér stað um það leyti sem Morgunblaðið fór i prentun og því óljóst hver varð frekari framvinda mála. Sjónarvottar sögðu að hermenn, sem stóðu vörð á byggingu við- skiptaráðuneytisins, hefðu skyndi- lega hafíð skothríð á um eitt hundr- að þúsund stjómarandstæðinga, sem gengu eftir götunum hrópandi slagorð gegn stjóm Maungs Maungs, forsætisráðherra. Stjómarandstæðingar gerðu í gær lítið úr þeirri ákvörðun ríkis- stjómarinnar að segja hermenn og ríkisstarfsmenn úr sósíalistaflokkn- um, sem hefur verið einráður í landinu í aldarfjórðung. Af hálfu flokksins var sagt að þessi ráðstöfun hefði verið gerð til að tryggja frjálsar og óháðar þing- kosningar sem em væntanlegar í landinu. Stjómarandstæðingar sögðu að ákvörðunin breytti engu og væri „misheppnað kurteisis- bragð“. Síðustu skoðanakannanir bentu til þess að Umhverfisflokkurinn, flokkur græningja, yrði fyrsti nýi stjómmálaflokkurinn á sænska þinginu i 70 ár. Flokkn- um var spáð 6-7 af hundraði at- kvæða í síðustu könnunum sem bendir þó tál þess að fylgi græn- ingja hafi dvinað nokkuð síðustu daga. Vemlegar líkur em á því að Umhverfísflokkurinn komist í odda- aðstöðu og gæti hann þá annað- hvort stutt vinstri stjóm jafnaðar- manna, er njóta stuðnings komm- únista, eða samsteypustjóm borg- araflokkanna þriggja, þ.e. Hægri flokksins, Miðflokksins og Þjóðar- flokksins. Hringborðsumræður leiðtoga fimm helstu stjómmálaflokkanna fóm fram í sjónvarpi á föstudags- kvöld, án fulltrúa frá Umhverfís- flokknum, sem ekki á mann á þingi og átti því ekki rétt á þátttöku sam- kvæmt settum reglum. Fulltrúar flokksins mótmæltu þessu og fyrir utan sjónvarpsbygginguna héldu græningjar á loft spjöldum með áletmninni: „Það er ekki hægt að þagga niður í okkur!“ Oryggisverðir ráku fólkið fljótlega á brott Ingvar Carlsson forsætisráð- herra var harðlega gagnrýndur af andstæðingum sínum fyrir stefnu stjómarinnar í flölskyldumálum og átti í vök að veijast er hann reyndi að útskýra hvers vegna ekki kæmi til greina að leyfa einstaklingum að reka dagvistir ásamt opinbemm aðilum. Borgaraflokkamir lofuðu að lækka skatta og auka valfrelsi í útvarps- og sjónvarpsmálum. Þeir hétu því að komið yrði á fót þriðju rás ríkissjónvarpsins sem fjármögn- uð yrði með auglýsingatekjum. Urslit kosninganna gætu orðið til þess að Carlsson forsætisráð- herra legði fram lausnarbeiðni fyrir sig og stjóm sína en sennilegast er þó að stjómin sitji áfram og treysti þvi að geta fengið stuðning þingmeirihluta í hveiju einstöku máli með því að leita til flokkanna á víxl en slík staða er mjög óvenju- leg í síðari tfma sögu Svíþjóðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.