Morgunblaðið - 20.09.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.09.1988, Blaðsíða 1
88 SÍÐUR B 214. tbl. 76. árg. ÞRIÐJUDAGUR 20 SEPTEMBER 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins Pólland: Stjóminni sagt að segja af sér Varsjá. Reuter. ZBIGNIEW Messner, forsætis- ráðherra Póllands, lét í gær und- an mikilli gagnrýni innan komm- únistaflokksins sem utan og sagði af sér. Kommúnistaflokkurinn og tals- Gjaldþrot hjá norsk- um banka Ósló. NTB. STÆRSTI einkabanki í Noregi, Sunnmörsbanken, er gjaldþrota en hann hefur verið helsti lánar- drottinn sjávarútvegsfyrirtækja í Suðvestur-Noregi. Hefúr bank- inn glatað öllu eiginfé sinu, um 1.417 miiyónum ísl. kr. menn hinna opinberu verkalýðs- félaga hafa sakað Messner og stjóm hans um að standa í vegi efnahags- legra umbóta og bera ábyrgð á mikilli verðbólgu og vöraskorti. í áliti þingnefndar sagði, að verk- föllin í sumar sýndu, að stjómin nyti ekki lengur neins trausts og væri því nauðsynlegt að skipa nýja stjóm með þátttöku manna utan kommúnistaflokksins. Talið er líklegt, að Wladyslaw Baka, félagi í stjómmálaráðinu og fyrram þjóð- bankastjóri, taki við forsætisráð- herraembættinu en hann er hlynnt- ur meira einkaframtaki og mark- aðsbúskap. Stjómvöld í Póllandi hafa boðið fulltrúum kirkjunnar og stjómar- andstæðinga til viðræðna á næst- unni en Lech Walesa, leiðtogi Sam- stöðu, setur það skilyrði fyrir samn- ingum, að Samstaða verði leyfð. Við því er þó mikil andstaða innan hersins og kommúnistaflokksins. Reuter Þjóðaólga íJúgóslavíu Um 50.000 Serbar og Svartfellingar söfnuðust saman á sunnudag í bænum Niksic í Svartfjallalandi til að mótmæla kúgun og misrétti í Kosovo-héraði. Þar er fólk af albönskum ættum í miklum meirihluta og hefur verið grannt á því góða milli þess og annarra þjóðarbrota. Síðustu árin hefur Sunnmörs- banken tapað veralegu fé á við- skiptum sínum við sjávarútvegs- fyrirtæki og á þessu ári hafa skakkaföllin fremur aukist en hitt. Var um tíma vonast til, að unnt yrði að komast hjá gjaldþroti með því að sameina hann öðram banka, Kreditkassen, en á sunnudag varð ljóst, að af því yrði ekki. Gunnar Berge fjármálaráðherra reyndi í gær að fullvissa sparifjáreigendur um að þeir ættu ekkert á hættu en í allan gærdag var stríður straumur fólks í bankann til að taka út spari- fé sitt. í Noregi hefur enginn banki orð- ið gjaldþrota síðan á kreppuáranum en þá vora þeir um 100 talsins, sem fóra á hausinn. Sovétríkin: Blóðugir bardagar milli þjóð- arbrota í Nagorno-Karabakh Moskvu. Reuter. TIL MIKILLA átaka kom á sunnudag milli Azerbajdzhana og Armena í borginni Khadzhaly í Nagorao-Karabakh og var bar- ist jafnt með byssum sem hnifúm. Sagði í fréttum TASS-fréttastof- unnar, að 25 hefðu særst, þar af fjórir alvarlega. í Stepana- kert, höfúðborg héraðsins, var allsheijarverkfall í síðustu viku en íbúarnir, sem era flestir af armenskum ættum, vijja segja skilið við Azerbajdzhan og sam- einast Armeníu. Embættismenn í Stepanakert sögðu á sunnudag, að átökin hefðu hafist þegar Azerbajdzhanar skutu á langferðabfl með armenskum Kosningarnar í Svíþjóð: Jaftiaðarmenn áfram við sljóm Stokkhólmi. Frá Erik Lidén, firéttaritara Morgunblaðsins. Jafnaðarmenn munu áfram sitja við stjóravölinn í Svíþjóð með tilstyrk kommúnista en hinir eiginlegu sigurvegarar kosninganna, sem fram fóru á sunnudag, eru græningjar, umhverfísflokkurinn, sem kom nú í fyrsta sinn mönnum á þing. Frammistaða borgaraflokk- anna var slök og kenna þeir um kjörsókninni, sem sjaldan eða aldr- ei hefúr verið minni, 83,3%. Reuter Ingvar Carlsson, forsætisráðherra og leiðtogi jafiiaðarmanna, var ánægður með úrslitin enda verður hann áfram við stjórnvölinn í Svíþjóð. Jaftiaðarmenn fengu 43,7% at- kvæða og 157 þingmenn, töpuðu einu prósenti, en mega þó kallast óbeinir sigurvegarar þar sem þeim hafði verið spáð meira fylgistapi. Kommúnistum vegnaði einnig til- tölulega vel, fengu 21 þingmann, og saman hafa þessir flokkar því 178 þingsæti af 349. Á fjármála- markaðnum var þessum fréttum um óbreytt ástand vel tekið og í fram- haldi af því hækkuðu hlutabréf og gengi sænsku krónunnar styrktist. Hægriflokkurinn fékk 66 þing- sæti, tapaði 10, Þjóðarflokkurinn 44, tapaði átta, og Miðflokkurinn 41. Var sá síðastnefndi eini borg- araflokkurinn, sem bætti í raun stöðu sína þegar til þess er tekið, að hann bauð nú fram einn en ekki í samvinnu við Kristilega flokkinn. Græningjar komu nú mönnum á þing í fyrsta sinn, fengu 20 þing- sæti, en fylgið reyndist þó minna en skoðanakannanir höfðu gefíð til kynna og þeir náðu ekki að komast í þá oddaaðstöðu, sem þeir höfðu stefnt að. námsmönnum, sem áttu leið um Khadzhaly, og særðu 18, þar af fjóra mjög alvarlega. Þegar fréttir af árásinni bárast til Stepanakert þustu Armenar til Khadzhaly „þar sem notaðar vora byssur og hnífar í fjöldaátökum milli þjóðarbrot- anna“. Særðust 25 manns og era nú 17 á sjúkrahúsi. TASS-fréttastofan sagði, að nefnd undir forystu Andreis Volskíjs, fulltrúa Kremlarstjómar- innar, væri að störfum í Nagomo- Karabakh en ekki er vitað hvort það þýðir, að Moskvustjómin hafi tekið við stjóminni. Þá kom einnig fram, að ráðist hefði verið á skrif- stofur ríkissaksóknarans í héraðinu og á lögreglumenn og hermerin. Allt símasamband milli Moskvu og Stepanakert var rofíð í gær og ekki reyndist heldur unnt að ná sam- bandi við Jerevan, höfuðborg Arm- eníu. í fréttum TASS var skuldinni skellt á „mútuþega og þjófa“, sem reyndu að fela spillinguna með því að etja saman þjóðarbrotunum. Armenar í Nagomo-Karabakh segja hins vegar, að vaxandi ókyrrð í héraðinu megi meðal annars rekja til þess, að Azerbadjzhönum, sem „flúið" hafa Armeníu, hefur verið komið fyrir í héraðinu. Vestrænir fréttamenn, sem nýlega fengu að fara til Jerevans, segja, að þar komi allt að 200.000 manns saman um hveija helgi til að krefjast samein- ingar Nagomo-Karabakhs og Arm- eníu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.