Morgunblaðið - 23.09.1988, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 23.09.1988, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1988 19 Sinfóníuhljómsveit æskunnar á Zukofsky-námskeiði Sinfóníuhljómsveit æskunnar heldur um þessar mundir námskeið undir stjóm Paul Zukofskys. 70 tónlistamemendur víðs vegar að af landinu taka þátt í námskeiðinu. Tvö verk em á efnisskránni að þessu sinni, Píanókvartett í g-moll, op. 25 eftir Brahms, útsettur fyrir hljómsveit af Schönberg, og Haydntilbrigðin eftir Brahms. Námskeiðinu lýkur með tónleikum í Háskólabíói laugardaginn 1. októ- ber næstkomandi klukkan 14.00. Með Fokker að Surtsey og í Þórsmörk: Breytingar í innanlands- flugí Flugleiða kynntar í háloftunum Engar kröfur fyrirliggj- andi um tvíþrepa söluskatt - segir Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins JÓN Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins segist vera tilbúin til þess að lækka söluskatt á t.a.m. kjöti, mjólk og soðningu ef tillögur fylgi um tekjuöflun á móti. Slíkar tillögur hefðu ekki fylgt tillögum forsætisráðherra og hann hefði þvi meðal annars þess 'vegna ekki geta sætt sig við tillögu Þorsteins Pálssonar um afhám söluskatts á matvæli. Hann hefur ennfremur fallist á það til málamiðlunar að standa ekki á móti heimild Seðlabankans til lækkun- ar gengis um 3%. Jón Baldvin sagði í samtali við Morgunblaðið aðspurður um þessi atriði að Alþýðuflokkurinn hefði fallist á til málamiðlunar að standa ekki á móti þeirri heimild sem Seðlabankinn hefði fengið til geng- isfellingar í tíð fyrri ríkisstjómar. Á móti kæmi að fengist hefði fram að verulega yrði dregið úr þeirri millifærslu, sem Framsóknarflokk- urinn hefði talið þörf á og að auki væri það sameiginlegt ákvörðunar- atriði hvenær heimildinni til gengis- lækkunarinnar yrði beitt. Varðandi afstöðuna til svonefnds matarskatts, sagði Jón að tillögur forsætisráðherra hefðu verið heild- artillögur um lausn á vanda í efna- hagsmálum. Þær hefðu falið í sér lækkun á söluskatti á matvæli úr 25% í 10%. Á móti hefði átt að koma hækkun á tekjuskatti til að vega upp tekjutapið. „Þetta þýðir að forsætisráðherra bauð allt í einu upp á sem lið í málamiðlun í skammtímaefnahagsaðgerðum kú- vendingu hvað varðaði grundvallar- atriði. Undirstöðuatriði í heildar- stefnu ríkisstjómarinnar í skatta- málum var undanþágulaus sölu- skattur og einfalt staðgreiðslu- kerfi.“ „Þetta er svo annað mál, þegar gengið er til stjómarmyndunarvið- ræðna við aðra flokka, sem ekki hafa svarist í fóstbræðralag um þetta gmndvallaratriði góðs skatta- kerfis um undanþágulausan sölu- skatt. Það er eðlilegt að stjómar- andstöðuflokkar, sem börðust eins og hundar gegn þessum skattkerf- isbreytingum segi að þeir vilji efna til viðræðna um breytingar á því,“ sagði Jón Baldvin ennfremur. Hann sagði að það væri mikill misskilningur ef menn héldu að undanþágulaus söluskattur væri krötum trúaratriði. Hann væri til- búin til þess að lækka söluskatt á t.a.m. kjöti, mjólk og soðningu ef tillögur fylgdu um tekjuöflun á móti, sem ekki hefði fylgt tillögum forsætisráðherra. í stjómarmynd- unarviðræðunum nú hefðu þessi atriði verið rædd almennum orðum og engar kröfur lægu fyrir um að taka upp tvíþrepa söluskatt. Menn hefðu lýst því yfir að þeir vildu fá umræðu um þetta atriði, en jafn- framt hefði verið játað að fyrir mönnum vekti verð á matvælum en ekki skattfyrirkomulag. Menn skildu átta sig á því að þó söluskatt- ur yrði lækkaður á einhveijum matvælum, en jafnframt teknar af niðurgreiðslur, þá lækkaði verð ekki um fimmeyring. FLUGLEIÐIR kynntu breytingar á innanlandsflugi félagsins fyrir fréttamönnum í gær, og fór kynningin fram í einni af Fokker vélum félagsins í háloftunum yfir Suðurlandi og Vestmanna- eyjum. Þær breytingar sem kynntar voru eru þær helstar að nú hefur félagið breikkað bilið á milli sætaraðanna í Fokkerunum, svo og hefiir félagið gert nokkr- ar breytingar á fargjaldakerfí og þar með verði í innanlands- flugi. Nú hefur verið lokið við að fækka sætaröðum í Fokker vélunum, og breikka þar með bilið á milli þeirra sæta sem eftir eru. Segja talsmenn félagsins þessa breytingu koma til vegna þess að nokkuð hafí borið á óánægju farþega með þrengsli á milli sæta. Um leið og sætabilinu var breytt voru sett ný teppi, sætaá- klæði og veggþyljur í vélamar, og er tilgangurinn sá að gera vélamar nýtískulegri og meira aðlaðandi fyr- ir farþega. Að sögn Flugleiðamanna verður í vetur mörkuð framtíðar- steftia fyrir innanlandsflugið, og í kjölfar þess verður væntanlega tek- in ákvörðun um flugvélakaup. Flugleiðir hyggjast samhliða vetraráætlun sinni, sem tekur gildi þann 1. október, taka upp tvo nýja fargjaldaflokka. Hér er um að ræða svonefnt unglingafargjald, fyrir fólk á aldrinum 12-21 árs, og svo PEX-fargjald. Unglingafargjaldið gerir ungu fólki kleift að ferðast með 55% afslætti frá venjulegu far- gjaldi, með svipuðum skilyrðum og hafa verið á svonefndum hopp- fargjöldum. Þessi fargjöld em ekki háð sérstökum vikudögum, en em hins vegar háð sætaiými í viðkom- andi flugi. PEX-fargjöldin þarf að bóka og kaupa báðar leiðir, og em háð þeirri reglu að gilda ekki á föstudögum og sunnudögum, auk þess sem þau em háð því að viðkom- andi farþegi dveljist aðfaranótt sunnudags á ákvörðunarstað. Þau leysa af hólmi svonefnd APEX- fargjöld, og veita 35% afslátt frá venjulegu fargjaldi. Þá hyggst félagið bjóða helgar- pakka til ýmissa áætlunarstaða sinna nú í vetur sem undanfarin ár, og segja talsmenn félagsins að gerðar hafi verið ýmsar breytingar á þeim, og að þau séu nú í mörgum tilfellum hagstæðari en áður. Sókn mót- mælir bráða- birgðalögum Starísmannafélagið Sókn hef- ur sent frá sér ályktun þar sem bráðabirgðalögum ríkissljórnar- innar er mótmælt. Orðrétt fer ályktunin hér á eftir: Stjóm og trúnaðarráð Starfs- mannafélagsins Sóknar mótmælir harðlega setningu bráðabirgðalaga um frestun á samningsbundinni launahækkun fyrir septembermán- uð. Með gengisfellingum og sífelldri hækkun á vöra og þjónustu hefur nú þegar verið gengið of langt í að skerða gildandi kjarasamninga. Félagsmenn Starfsmannafélagsins Sóknar teljast ekki til þess hóps í landinu er þiggur ómældar yfír- borganir og sperslur hverskonar í launaumslög sín, heldur taka laun samkvæmt gildandi launatöxtum. Við mótmælum því öllum áformum um lækkun launa, slík lítilsvirðing við láglaunafólk verður ekki íiðin. Slæm staða eftiahagsmála þjóðar- innar er á engan hátt lægstlaunuð- ustu hópum þjóðarinnar að kenna, því skoram við á þjóðkjörna þing- menn að virða gerða kjarasamninga og leita gáfulegri leiða til lausnar enahagsvandans, en að skerða meira en orðið er laun þeirra er minnst mega sín. Útvarp Útrás hef- ur starfsemi á ný ÚTRÁS, FM 104,8, útvarp fram- haldsskóla í Reykjavík og ná- grenni, hefiir byrjað starfsemi eftir sumarfrí. Að Útrás stendur hlutafélag, Útvarpsfélag framhaldsskólanema, skammstafað ÚFFN, sem 8 fram- haldsskólar eiga aðild að. Útrás á í tvö hús að venda með aðstöðu til dagskrárgerðar og útsendinga, annars vegar í Ármúlaskóla og hins vegar í Fjölbraut, Breiðholti og verður sent út til skiptis frá báðum stöðum í vetur, að' sögn Páls Inga Magnússonar ritara ÚFFN. Megin- hluti dagskrárinnar verður tónlist, en einnig verður um menningarlegt efni að ræða og hefur félagið eign- ast tæki til að vinna dagskrárefni eins og leikrit. Skólamir munu skiptast á um útsendingar og dagskrárvinnslu og verður hlutur þeirra í dagskránni í samræmi við eignarhlut í ÚFFN. Sent verður út á tíðninni 104,8 á FM bylgju. Virka daga verður sent út frá klukkan 16 síðdegis til klukk- an 1. Föstudaga er sent út til klukk- an 4. Laugardaga og sunnudaga hefst útsending á hádegi og lýkur klukkan 4 laugardaga og klukkan 1 sunnudaga. Nafn verkstæöis Ljosa- ■ stilling Árni Gíslason, Tangarhöfða 8-12, R. 500 Áfak, Nýbýlavegi 24, Kóp. 400 Bifreiðar- og landbúnaðarvélar, Suðurlandsbraut 14, R 400 BifreiðastiIIingar Nicolai, Dugguvogi 23, R. 400 Bifreiðastillingin, Smiðjuvegi 40d, Kóp. 390 Bifreiðaverkstæði Ásgeirs, Ármúla 24, R. 400 Bílaborg, Fosshálsi 1, R. 398 Bílaskoðun og stilling, Hátúni 2a, R. 500 Bílastilling Birgis, Smiðjuvegi 62, Kóp. 500 Bílson, Langholtsvegi 115, R. 500 Bílvangur, Höfðabakka 9, R. 500 Bílver, Smiðjuvegi 60, Kóp. 440 Borðinn, Smiðjuvegi 24c, Kóp. 500 Glóbus, Lágmúla 5, R. . 475 Hekla, Laugavegi 170-172, R. 505* Jöfur, Nýbýlavegi 2, Kóp. 524 Kristinn Guðnason, Suðurlandsbraut 20, R. 450 Lúkas, Siðumúla3-5, R. 500 N.K. Svane, Skeifunni 5, R. 400 P. Samúelsson, Nýbýlavegi 8, Kóp. 525 Ræsir, Skúlagötu 59, R. 500 Réttingamiðstöðin, Hamarshöfða 8, R. 400 Skúli Skúlason, Kirkjusandi, Laugarnesvegi R. 400 Sveinn Egilsson, Skeifunni 17, R. 566 Toppur, Smiðjuvegi 64, Kóp. 540 Ventill, Bíldshöfða 6, R. 500 Vélastilling, Auðbrekku 16, Kóp. 500 Ögmundur H. Runólfsson, Súðatvogi 40, R. 400 Hæsta verð 566 Lægsta verð 390 Mismunur á hæsta og lægsta verði 45% Uppgefið verð er fyrir einföld Ijós, stillingin kostar 705 ef um tvöföld Ijós er að ræða. Verðmunur á ljósastillingu alltað45% NÚ fer f hönd sá tími þegar bifreiðaeigendur biia bfla sína undir veturinn, meðal annars með yósastillingu. í verðkönn- un Verðlagsstofnunar kemur í ljós að yósastilling fólksbíls kostar oftast á milli 400 og 500 krónur á höfuðborgarsvæðinu. Dæmi eru þó um lægra og hærra verð. Lægsta verðið fyrir stillingu á einföldum ljósum er 390 krónur hjá Bifreiðastillingu, Smiðjuvegi 40d í Kópavogi, en hæsta verðið 566 krónur hjá Sveini Egilssyni, Skeifunni 17 í Reykjavík. Hæsta verð er því 45% hærra en lægsta verð, samkvæmt könnuninni. í einu tilviki, hjá Heklu, er annað verð fyrir stillingu á tvöföldum Ijósum en einföldum, 705 krónur. Er það jafnframt hæsta verð sem fram kemur í könnuninni, eða 81% hærra en lægsta verð. Verðkönnunin var gerð dagana 12. og 13. september og náði til 29 verkstæða á höfuðborgarsvæð- inu. Hér á eftir era birtar niður- stöður verðkönnunar Verðlags- stofnunar:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.