Morgunblaðið - 25.09.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.09.1988, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B 219. tbl. 76. árg. SUNNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins Hersveitir enn á götum Jerevan Moskvu. Reuter. SVEITIR úr fastaher Sovétríkj- anna héldu uppi lögrim og reglu í Jerevan, höfuðborg Armeníu, í gær, eftir að mikill mannQöldi hafði tekið þátt í mótmælaað- gerðum þar vegna deilnanna um yfirráð yfir sjálfestjórnarsvæð- inu Nagorno-Karabak. Talsmaður Jerevan-útvarpsins sagði þó, að engir hermenn væru á Óperutorginu, sem verið hefur aðal- fundarstaður mótmælafólksins síðastliðna sjö mánuði. Á föstudags- kvöldið safnaðist þar enn saman mikill mannfjöldi og krafðist þess, að yfirráð Nagomo-Karabaks yrðu tekin af Azerbajdzhan og fengin Armeníu í hendur, auk þess sem tryggt yrði öryggi armenska meiri- hlutans þar. í sovéskum sjónvarpsfréttum var greint frá því, að óróinn hefði breiðst út til Bakú, höfuðborgar Tíbet: DalaiLama samþykkir viðræður Nýju Dell. Reuter. ANDLEGUR leiðtogi Tíbetbúa, Dalai Lama, hefúr samþykkt boð kínversku stómarinnar um bein- ar viðræður við Peking-stjóm- ina. Útlagastjóra leiðtogans, sem hefur aðsetur í Indlandi, sagðist telja að Kínverjar vildu í raun scmja um framtíð Tíbet. Skilyrði Kínvetja fyrir viðræðun- um eru að Dalai Lama gefi upp á bátinn hugmyndir sínar um fullt sjálfstæði Tíbets. í yfirlýsingu út- lagastjómarinnar um tilboð Kínveija er ekki drepið á þá kröfu en minnt á að Dalai Lama hafi í júní síðastliðnum samþykkt þá hug- mynd að Tíbet fái sjálfsforræði inn- an Kínaveldis. Ekki hefur enn verið ákveðið hvar og hvenær væntanleg- ar viðræður fara fram. Dalai Lama flúði frá Tíbet 1959 eftir misheppnaða uppreisnartil- raun gegn Kínverjum en Tíbet var öldum saman kínverskt skattland. Kommúnistastjóm Kína hemam landið skömmu eftir valdatöku sína 1949. Kínversk yfirvöld segja að alls 11 manns hafi týnt lífi í átökum sjálfstæðissinna í höfuðborg Tíbets, Lhasa, við lögreglumenn á þessu og síðasta ári en tíbeskir útlagar segja tölu fallinna hafa verið mun hærri. Azerbajdzhans. Þar hefðu „upp- reisnarseggir" reynt að skipuleggja mótmælaaðgerðir og hefði öryggjs- gæsla í borginni verið efld til muna. í Stepanakert, höfuðborg Nag- omo-Karabaks, er atvinnulífið enn lamað af verkföllum, sem hófust 12. september síðastliðinn. Sagði Tass-fréttastofan, að vopn hefðu verið gerð upptæk í borginni og lögregla handtekið brennuvarga og íbúa, sem hunsað hefðu útgöngu- bannið, er verið hefur í gildi frá því að neyðarástandslög voru sett þar á miðvikudag. Geislavirk- ur tefarmur Dubai. Reuter. KOMIÐ hefur í Jjós að eitt hundr- að tonn af tei, sem flutt vom til Sameinuðu fústadæmanna frá Iran, era geislavirk. Tollgæslu- menn í hafnarborginni Sharjah innsigluðu farminn og komst ekkert af honum í hendur neyt- enda. Geislavirknin mældist þrisvar sinnum hærri en leyfilegt er, 1,872 Becquerel af sesíni 137 í hveiju kflógrammi. Talsmenn yfírvalda sögðust hvorki vita með vissu hvar telaufin hefðu verið ræktuð né hvemig þau hefðu orðið fyrir geisl- un. Farmurinn verður sendur aftur til írans. Þetta er í fyrsta sinn sem geisla- virkni finnst I innfluttu tei í landinu en áður hefur hún mælst í eggjum og annarri innfluttri matvöru. Nýtt heimsmet Reuter Ben Johnson (t.v.) frá Kanada sést hér setja nýtt heimsmet í 100 metra hlaupi á Ólympíuleikunum í Seoul í fyrrinótt. Tími Johnsons var 9,79 sekúndur. Bandaríkjamaðurinn Carl Lewis (t.h.) varð að sætta sig við annað sætið. Sjá nánar á bls. 38. Shultz og Shevardnadze: Nýr leiðtogafundur risa- veldanna ekki á dagskrá Góður árangur í viðræðum um takmörkun á hefðbundnum vopnabúnaði Washington. Reuter. GEORGE Shultz, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, og Eduard Shevardnadze, utanríkisráð- herra Sovétrikjanna, luku tveggja daga viðræðum sinum í Washington á föstudag og sögðu góðan árangur hafa náðst í við- ræðum um fækkun hefðbund- inna vopna. Hins vegar er (jóst að lítið miðar í viðræðum risa- veldanna um langdræg kjarna- vopn og geimvarnir. Shultz lagði sig fram um að kveða niður allan orðróm um fyrirhugaðan fimmta fúnd Reagans Bandaríkjaforseta og Gorbatsjovs Sovétleiðtoga áður en Reagan lætur af emb- ætti í janúar á næsta ári. „Ég veit ekki um neitt sem gæti orðið til þess að slíkur fundur yrði haldinn," sagði Shultz á blaða- Svíaher á heljarþröm vegna féleysis Stokkhólmi. Frá Erik Lidcn, fréttaritara MorgunblaðBÍns. SÆNSKI herinn á við alvarlega fjárhagsörðugleika að etja og er alls ófeer um að veija landið ef á það er ráðist. Kemur þetta fram hjá yfirmanni herráðsins, sem segir, að eigi herinn að standa undir nafiii þurfi hann á að halda rúmum 36 mil(jörðum ísl. kr. strax og um 100 mil(jörðum fram til ársins 1992. 1 skýrslu, sem Bengt Gustafs- son, yfírmaður hersins, leggur fram jiú um mánaðamótin, segir, að erlfendum her mundi veitast það létt verk og löðurmannlegt að ganga á land í Svíþjóð enda sé sænski herinn ófær um að veij- ast skyndiárás. Á það er bent, að komi til heimsstríðs muni Svíar dragast fyrr inn í það en áður var talið vegna þess, að f áætlunum stórveldanna hafí mikilvægi landsins og annarra Norðurlanda stóraukist. Árlegur kostnaður Svía af hemum er rúmir 180 milljarðar fsl. kr. en Bengt Gustafsson seg- ir, að aðeins Norrlands-hemum og flughemum sé hægt að jafna til þess, sem best gerist með öðr- um þjóðum. Aðrar hersveitir séu svo illa búnar, að þær geti í raun ekki veitt neina mótspymu komi til styrjaldar. Gustafsson segir, að sænski sjóherinn sé sérstaklega illa búinn og hafi öllum áætlunum um end- umýjun skipa og annars búnaðar verið frestað í spamaðarskyni. Jan Östlund, majór í sænska hem- um, segir, að stjómmálamennimir velti fyrir sér hverri krónu, sem til hersins fari, og sjái jafnvel of- sjónum yfir kostnaðinum við reið- hjólin, helsta fararskjóta margra sænskra hermanna. mannafundi í Hvfta húsinu. Líklegt er talið að fundur þeirra Shev- ardnadzes og Shultz verði síð^sti fundur svo háttsettra ráðamanna stórveldanna tveggja áður en for- setaferli Reagans lýkur í janúar. Shevardnadze sagði að svo mikið hefði breyst í samskiptum ríkjanna að ástæðuiaust væri að varpa frá sér öllum vonum um frekari árang- ur. Hann kvartaði þó sáran undan því sem hann kallaði tilraunir Pak- istana, náinna stuðningsmanna Bandaríkjamanna, til að eyðileggja samning þann er gerður var um frið í Afganistan fyrir tilstuðlan Sameinuðu þjóðanna. Sagði ráð- herrann ástandið svo alvarlegt að nauðsynlegt gæti orðið fyrir utan- ríkisráðherra risaveldanna beggja, ásamt utanríkisráðherram Pakist- ans og Kabúlstjómarinnar í Afgan- istan, að eiga fund í New York til að hindra friðarsamninginn í að verða að „ónýtum pappírsmiða".
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.