Morgunblaðið - 17.11.1988, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 17.11.1988, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1988 Þessi mynd var tekin af leikurum, leikstjóra og öðrum, sem tóku þátt i sýningu Grímu á Ég er afi minn árið 1967. Sömu leikarar taka þátt í að leiklesa þetta verk á sunnudaginn kemur og er það þáttur i dagskrá, sem efiit er til í minningu höfundarins, Magnúsar Jónssonar. * Asmundarsalur: Kjuregeij Alexandra sýnir Dagskrá til minningar um Magnús Jónsson, kvikmyndaleikstjóra Á morgun, föstudag, kl. 17.00 opnar listakonan Kjuregej Alex- andra, myndlistarsýningu í Ásmundarsal. Sýning þessi er liður i dagskrá til minningar um Magnús Jónsson, kvikmyndaleikstjóra, en hann hefði orðið fimmtugur á morgun, 18. nóvember. Að dagskrá þessari standa ásamt listakonunni, ýmsir vinir og skólafé- lagar Magnúsar Jónssonar. , Svavar Gestsson, menntamála- ráðherra mun opna sýninguna, en Hallveig Thorlacius kynnir dag- skráratriði. Kl. 18.00 verður flutt tónverk eftir Atla Heimi Sveins- son, sem tileinkað er minningu Magnúsar Jónssonar. Tónverkið heitir Mysterium Tremens. Flytj- endur eru Jóhanna Þórhallsdóttir, Martial Nardeau, Sigurður Snorra- son, Anna Guðný Guðmundsdóttir og Pétur Grétarsson. Á laugardag opnar sýningin kl. 14.00 og kl. 15.00 munu Eyvindur Erlendsson og Karl Guðmundsson lesa úr leikriti eftir Magnús Jóns- son, sem nefnist Frjálst framtak Steinars Ólafssonar í veröldinni. Á sunnudag kl. 15.00 verður leiklest- ur á leikriti Magnúsar Ég er afi minn, sem sýnt var á vegum Grímu árið 1967. Allir leikaramir, sem þátt tóku í þeirri sýningu annast leiklesturinn nú. Leikstjóri nú sem þá er Brynja Benediktsdóttir, og Siguijón Jóhannsson sér um um- búnað. Flytjendur eru: Sigurður Karlsson í hlutverki Bróa, Björg Davíðsdóttir, sem Systa, Jón Júlí- usson, pabbi, Jóhanna Norðfjörð mamma, Olrtavía Stefánsdóttir sem gömul kona, Amar Jónsson sem sálfræðingur, Kjartan Ragn- arsson leikur Lillalilla og Þórhildur Þorleifsdóttir í hlutverki kynnis. Aðstoðarmenn leikstjóra eru Viðar Eggertsson og Helga Hjörvar. Kjurgey Alexandra Magnús Jónsson Fimmtudaginn 24. nóvember, verða ýmsar uppákomur á tveggja tíma fresti frá kl. 14.00. Magnús Jónsson var fæddur 18. nóv. 1938. Hann lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum í Reykjavík vorið 1958. Ári síðar hélt hann til náms í kvikmyndaleik- stjóm í Moskvu og lauk námi þar 1964. Hann var meðal fyrstu ís- lendinga, sem fór til náms í þeirri grein. Magnús gerði a.m.k. tvær kvikmyndir, skrifaði nokkur leikrit og leikstýrði öðmm. Hann lézt 2. desember 1979. Sala varnarliðseigna: Starfsemin verður ekki feerð í annað ráðuneyti - segir utanríkisráðherra JÓN Baldvin Hannibalsson, ut- anrikisráðherra, segir að sam- kvæmt lögum heyri starfsemi Sölu varnarliðseigna undir ut- anrikisráðuneytið og'því sé ekki hægt að flytja starfeemi hennar undir annað ráðuneyti. í fjár- lagafrumvarpinu er gert ráð fyr- ir að Sala varnarliðseigna skili 50 milljónum króna í hagnað á næsta ári, en verði að öðrum kosti lögð niður eða starfeemi hennar færð í hendur annarra aðila. „Það er ekkert sem kemur í veg fyrir það að endurskoða hlutverk ríkisstofnana í ljósi breyttra að- stæðna og Sölunefnd vamarliðs- eigna er þá ekki undanskilin. Hugs- anlegt breytt fyrirkomulag á þess- arri starfsemi getur þó ekki þýtt að forræði og stjóm þessarra mála færist undir annað ráðuneyti," sagði utanríkisráðherra. Krafan um að fyrirtækið skili 50 milljón króna hagnaði er meðal annars byggð á útreikningum á hagnaði af sölu bifreiða, ef hún færi fram í gegn um Innkaupa- stofnun ríkisins, sem heyrir undir fjármálaráðuneytið. Alfréð Þor- steinsson, forstjóri Sölu vamarliðs- eigna segir að fyrirtækið muni líklega skila 25-30 milljón krónum í hagnað 'á þessu ári. f KRAKKAR! A4UNÍÐ AÐ BURSTA TENNURNAR eru komin á alla útsölustaði LIONS Öll Lionsdagatöl ern merkt og þeim fylgir jólasveinslimmidi og tannkremstúpa. AUur hagnaður rennur óskiptnr til lí knarmála. Verð 150.- Þjóðleikhúsið: Stór og smár eft- ir Botho Strauss Frumsýning á laugardag Þjóðleikhúsið frumsýnir leikritið Stór og smár eftir Botho Strauss laugardaginn 19. nóvember. Leikstjóri er Guðjón P. Ped- ersen, Hafliði Arngrimsson þýddi verkið og er aðstoðarleikstjóri og aðalhlutverkið, Lottu, leikur Anna Kristín Arngrímsdóttir. Leikmynd og búningar eru eftir Grétar Reynisson, en honum til aðstoðar er Ásta Björk Ólafedóttir. Tónlist er eftir Hjálmar H. Ragnarsson og hljómsveitina Langi seli og skuggarnir og lýsingu annast Ásmundur Karlsson. Aðrir leikarar í sýningunni em: Amar Jónsson, Ámi Pétur Guðjóns- son, Ámi Tryggvason, Bryndís Petra Bragadóttir, Eliert A. Ingi- mundarson, Guðlaug María Bjama- dóttir, Guðrún Þ. Stephensen, Kristbjörg Kjeld, María Sigurðar- Hallgrímskirkja: Klassískt helgihald ÁHUGAHÓPUR um kyrrðardaga, klassiska messu og tfðagjörð gengst fyrir messu í Hallgríms- kirkju í Reykjvík föstudaginn 18. nóvember kl. 20.00 Að frumkvæði hópsins hafa verið haldnir kyrrðardagar í Skálholti undir leiðsögn dr. Sigurbjöms Ein- arssonar biskups og er stefnt að áframhaldandi starfi á því sviði í Skálholti og ef til vill á fleiri stöðum. Undanfarin tvö ár hefur hópurinn einnig staðið fyrir messum einu sinni í mánuði í Laugameskirkju í Reykjavík og auk þess haldið vökur á páskanótt. f vetur mun starfsemi hópsins fara fram á líkan hátt en flyst nú ! Hallgrímskirkju. Eru allir sem áhuga hafa á klassísku helgihaldi boðnir velkomnir til þátttöku. (FréttatUkynniog:) dóttir, Róbert Amfínnsson og Sig- urður Skúlason. Þau Ámi Pétur Guðjónsson og María Sigurðardóttir þreyta í þessari sýningu frumraun sína á sviði Þjóðleikhússins en þau hafa bæði farið með stór hlutverk í sýningum annarra leikhúsa. Botho Strauss er Þjóðveiji fædd- ur 1944. Hann hefur sent frá sér tíu leikrit auk skáldsagna, smá- sagna, ljóðasafna og ritgerða. Hann var um skeið einn af ritstjómm þýska leikhússtímaritsins Theater heute og starfaði lengi sem leiklist- arráðunautur með leikstjóranum Peter Stein. Saman vom þeir meðal leiðtoga leikhússins Schaubuhne í Vestur-Berlín og þar var Stór og smár frumsýnt 8. desember 1978 í leikstjóm Peters Stein. Síðan hefur verkið verið sýnt í flestum löndum Vestur-Evrópu og víðar. Stór og smár, sem höfundur kýs að kalla leikþætti, er lýsing á ferð ungrar konu um velferðarþjóðfélag nútímans. í frétt frá Þjóðleikhúsinu segir að verkið fjalli um leit hennar að samskiptum og samfélagi við annað fólk, að ást og hamingju í firrtu samfélagi. Form þess minni að vissu leyti á helgileik og sé auk þess náskylt Draumleik Strind- bergs, þar sem dóttir guðsins Indra er send til jarðarinnar að kanna mannlífíð. Önnur sýning á Stór og smár verður miðvikudaginn 23. nóvem- ber og þriðja sýning fimmtudaginn 24. nóvember. Sýningamar em á stóra sviðinu og heíjast kl. 20.00
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.