Morgunblaðið - 20.11.1988, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 20.11.1988, Blaðsíða 42
MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1988 ÞETTA SÖCDU ÞAU ÞA . .. Þráinn Bertelsson í kvik- myndaþætti Morgnn- blaðsins, 7. maí 1967. Að líkindum á sjcmvarpið eftir að verða það bezta, sem komið hefur fyrir kvik- myndir, því að úr hófí lélegar myndir munu hverfa úr sög- unni, þar eð meira en lítið þarf til að lokka fólk frá nýtízku lita- sjónvarpi." BÓKIN Á NÁTTBORÐINU Hulda Þóra Sveins- dóttir, nemi í stjórn- málafræði: Eg var að lesa Kristnihald undir Jökli eftir Halldór Laxnes. Mig langaði til að lesa hana og fannst hún góð en öðru vísi en ég bjóst við. Eg hef lesið nokkrar bækur eftir Laxnes, gríp í þær annarslag- ið. Ég les frekar mikið af fagurbók- menntum á milli þess sem ég lít í námsbækurnar.“ Guðmundur Hermanns- son yfirlögreglu- þjónn: * Eg er núna að lesa Adventure eftir Harold Robbins. Það er 700 bls. reyfari.ágætur til að æfa sig í enskunni. Ég les ekki eins mikið og ég vildi gera. Helst les ég sögulegar bækur og á einar 40 hill- uraf bókum.“ ■ M....'V- ' : ÆSKUMYNDIN. . . ER AF HERÐI TORFASYNI TÓNLISTARMANNI Forvitnari en fjandinn UR MYNDASAFNINU ÓLAFUR K. MAGNÚSSON Sjóslys viö Suðurland AÐ morgni 27. febrúar 1964 barst tilkynning þess efhis að plólskur togari væri að farast við suðurströnd lands- ins. Ólaíur fór að sjálf- sögðu austur ásamt blaðamanni og reyndist þetta vera pólski togar- inn Wislok, sem hafði strandað þá um nóttina á Krossandsljöru, vestan Markarfljóts. Þegar við komum austur voru nokkrir skipverja komnir á land en fýrr um morguninn höfðu um 20 skipveijar reynt að taka land á björgunarbátum skipsins," sagði Oli K. er hann rifjaði upp þessa atburði. Trébjörgunarbáturinn hafði hvolft og skipverjar velkst í sjónum og voru illa haldnir af vosbúð og kulda þegar björgunar- sveitin kom á strandstað. Björgunarmenn höfðu fundið tvo skipverja vest- ar á sandinum og var annarþeirra látinn. Níu menn voru eftir í skipinu þegar við komum að og um klukkan 11 var búið að koma dráttartaug út í togarann og gekk björgunin vel. Skipstjórinn kom síðastur í land í björgunarstól laust eftir hádegi og eru þessar myndir frá björgun hans ogtala sínu máli sjálfar. Á myndunum sést að hann hefur lagt allt kapp á að halda skipsbókinni þurri og heldur henni upp úr sjónum þótt sjálfur sé hann allur í kafi.“ Það vilja margirþann stóra upp á vegg JÓN Guðmundsson er kennari á eftirlaunum sem nú starfar við að stoppa upp dýr. Uppstoppun dýra er Qögurra ára nám erlend- is og lærði Jón listina í Svíþjóð PLATAN Á FÓNINUM MYNDIN í TÆKINU Margrét Sverris- dóttir, forstöðumað- ur æskulýð- smiðstöðvar- innarVitans og þýðandi: Eg vinn við að þýða myndbönd svo að ég horfi sjaldan á mynd- ir. Ég horfði þó nýlega á Brjóst- sviða með Meryl Streep og Jack Nicholson og hafði gaman af. Skemmtilegastar finnst mér góðar grínmyndir, t.d. sú sem ég hef ný- lokið við að þýða og heitir Bjór.“ Auðunn Atlason Eg horfði síðast á Nafn rósarinn- arþó með öðru auganu væri, því ég var búinn að sjá hana í bíó. Ég horfi nú ekki mikið á myndbönd en það kemur fyrir að einhver fjöl- skyldumeðlimur leigir mynd. Þær eru þá yfírleitt í vandaðri kantin- myndina sem þau höfðu séð,“ segir Anna. Æskuvinkona Harðar, Margrét Ákadóttir leikkona, segir hann hafa kveikt áhuga sinn á leiklist. „Hörð- ur, sem var 5 árum eldri en ég, stóð fyrir litlu leikfélagi. Við sóttum mikið í hann því það var svo gaman áð leika. Hörður var óskaplega skemmtilegur og fallegur, ég var rosalega skotin í honum þegar ég var stelpa.“ Móðir Harðar segir hann hafa vérið músikalskan krakka. Hann var ekki hár í ioftinu þegar hann söng og spilaði á gítar í sunnudaga- skólanum og gerði prestinn „þræl- fúlan“. Fyrstu vísuna samdi hann fimm ára. „Þá voru allir roliingam- ir með kíghósta og hlaupabólu og það var ekki alltaf auðvelt að koma þeim í rúmið. Hörður var eitthvað súr yfir því að þurfa að fara að hátta og fór að söngla; Upp, upp í ból upp, upp í sól, ég veit ekki fyrr en komin erujól. “ Anna segir Hörð einnig hafa haft samúð með þeim sem minna máttu sín; hafi einhveijum verið strítt hafi hann reynt að beina at- hyglinni að öðru. „Hann gat slegist við systkini sín, þau rifust stundum eins og skepnur. En væri ráðist á eitthvert þeirra, stóðu þau saman eins og klettur. Hörður var alveg dýrðlegur krakki, ógurlega dugmikill og for- vitinn. Alltaf varð eitthvað að vera að gerast í kringum hann. Tíu ára komst hann meira að segja í blöðin þegar hann fann kassa sem í var tvíhöfða lamb. Hann þaulspurði um alla skapaða hluti og kom mér oft í mestu vandræði, því það þýddi einfaldlega ekki að svara honum með af því bara. Haddi vorkenndi mikið fullorðnum manni sem hafði misst annan fótinn og gekk með hækjur. Hann varð því að reyna hvernig það væri að ganga á einum fæti við staf, með alla krakkana í hverfinu horfandi á.“ STARFIÐ JÓN GUÐMUNDSSON UPPSTOPPARI á árunum um og eftir 1950. Hann var kennari við Laugarnesskól- ann i 35 ár, en stoppaði upp dýr samhliða kennslunni, þegar tími vannst til. Eftir að hann fór á eftirlaun sneri hann sér alfarið að uppstoppuninni og kvaðst hafa meira en nóg að gera. Það er einna mest að gera í físk- um, einkum silungum og löx- um. Það eru margir sem vilja hafa „þann stóra“ uppi á vegg hjá sér,“ sagði Jón er hann var spurður nán- ar út í starfíð. Hann sagði að einn- ig væri talsavert beðið um upp- stoppun á minnkum og refum, sem menn hafa skotið. Morgunblaðið/Rax Jón Guðmundsson með stórlax í uppstoppun Guðlaugur Jörundsson módelsmiður: Eg hlustaði síðast á Pál Jóhann- esson syngja einsöngslög. Plat- an er nokkuðgóð, hann er efnileg- ur söngvari. Eg er alæta á tónlist en hlusta lítið núorðið. Ég nýt þess að hlusta á góða tönlist og geri ekki annað á meðan.“ Elín Guð- munds- dóttir snyrti- fræðingur: Það er alltaf tónlist á þegar ég er heima, helst sígild tónlist. Síðast hlustaði ég á Árstíðirnar fjór- ar eftir Vivaldi. Hann er í sérstöku uppáhaldi hjá mér og er oft spilað- ur. „Haddi var afskaplega atorku- samur krakki og forvitnari en fjandinn. Hann var foringinn í hópnum, lék og söng og hreif krakkana í hverfinu með sér í alls kyns leiki,“ segir Anna Krist- insdóttir, móðir trúbadúrsins Harðar Torfasonar. Hörður er fæddur þann 4. sept- ember 1945 á fæðingardeild Landsspítalans í Reykjavík sonur hjónanna Torfa Benediktssonar og Ónnu Kristinsdóttur. Hann er næst- elstur sex systkina; Kristjáns, Þeir eru orðnir fjölmargir lelk- hóparnir, bæði hér heima og erlendis, sem Hörður hefur unnið með, bæði sem leikstjóri og leikari. Og Ijóðin hans skipta tugum. Hjördísar, Benedikts, Magdalenu og Kristins. Uppvaxtarárin bjó Hörður víðs vegar í Austurbænum og gekk í Austurbæjarskóla. „Hörður tók snemma stjórnina í krakkaskaranum sem bjó í hverf- inu. Hann sagði þeim sögur og stjórnaði leikjunum. Á hveijum sunnudegi fóru minnst 10 rollingar á bíó, helst Roy Rogers-mynd og þegar heim var komið, tók Hörður stjórnina og krakkamir léku Mynd sem birtist í Morg- unblaðinu í janúar1956. Hörður Torfason 10 ára með tvíhöfða lamb sem hann hafði fundið. I greininni sem með fylgdi segir m.a. að Hörður litli hafí sýntþað að hann sé greind- ur drengur og at- hugull.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.