Morgunblaðið - 01.12.1988, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 01.12.1988, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1988 Bretar gramir belg- ískum stíórnvöldum Irskur prestur ekki framseldur til Bretlands St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaösins. MARGARET Thatcher forsætis- ráðherra hefur fyrirskipað sendi- ráði Breta í Belgíu að undirbúa skýrslu um þá ákvörðun belgískra stjórnvalda að flytja kaþólska klerkinn Patrick Ryan til Irlands í stað þess að framselja hann yfír- völdum í Bretlandi. Að sögn breskra fjölmiðla var belgíska dómsmálaráðuneytið hlynnt Finnland: Yerkfall þaggarnið- ur í ríkis- útvarpinu Helsinki. Frá Tom Kankkonen, fréttaritara Morgunblaðsins. ÚTVARPS- og sjónvarpssend- ingar fínnska ríkisútvarpsins, YLE, féllu niður í gær vegna verkfalls fréttamanna. 1200 fréttamenn lögðu niður vinnu og kröfðust 8% launahækkunar. Verkfallið er mikill hvalreki fyr- ir einkastöðvar sem notuðu tæki- færið og lengdu útsendingartíma sinn og fjölguðu fréttatímum. Verkfallið lamar tvær sjón- varpsrásir og þijár útvarpsrásir finnska ríkisútvarpsins. Þriðja sjón- varpsrásin sem fjármögnuð er með auglýsingum stendur hins vegar fyrir utan verkfallið. Einkasjón- varpsstöðin MTV sem leigir send- ingartíma hjá ríkisútvarpinu heldur einnig úti sendingum þrátt fyrir verkfallið. Einkastöðvarnar eru himinlifandi yfir verkfallinu. I Finnlandi eru tutt- ugu einkaútvarpsstöðvar. Flestar Qármagna starfsemina með auglýs- ingum. „Ef þið farið í verfall þá skuluð þið halda út fram á vor;“ sagði forsvarsmaður sambands einkastöðva þegar vinnudeilan hófst. þvi, að Ryan yrði framseldur, en Wilfried Martens, forsætisráðherra Belga, kallaði saman ríkisstjórnar- fund á föstudag, og á föstudags- kvöldið var flogið með Ryan í vél belgíska flughersins til Dyflinnar. Yfirvöld á írlandi höfðu ekki látið í ljós neinn áhuga á að fá Ryan, sem er írskur ríkisborgari. Ryan hafði verið í hungurverk- falli í íjórar vikur og neitað að taka við vökva í eina viku, og hugðu belg- ískir læknar honum vart líf lengur, þegar ákveðið var að flytja hann til Irlands. Breskir íjölmiðlar telja, að ástæða flutningsins sé ótti belgískra yfirvalda við, að IRA hefði gripið til hryðjuverka í landinu, ef Ryan hefði látist þar. Yfirvöld í Belgíu handtóku Patrick Ryan í júní á þessu ári, vegna þess að hann hafði komið inn í landið á fölsku vegabréfi. Hinn 9. september síðastliðinn fóru bresk yfirvöld fram á, að hann yrði framseldur vegna þátttöku í samsæri um morð og vegna þess að hann hefði haft undir höndum sprengiefni, sem tengdist 185 hryðjuverkum gegn breskum borgurum. Einnig vildu þau yfir- heyra hann um Eksund, bátinn sem Frakkar stöðvuðu í október í fyrra og reyndist fullur af sprengiefni og vopnum ætluðum IRA. Vangaveltur eru um, að nú stefni í átök íra, Breta og Belga á leið- togafundi EB á Rhodos á föstudag. En þessi ákvörðun Belga veldur auk- inni spennu í samskiptum Breta og íra. Bresk yfirvöld hafa farið fram á framsal Ryans. Irski dómsmála- ráðherrann mun taka ákvörðun um framsalið í þessari viku. Ef hann fellst á það, mun það valda Charles Haughey vandræðum á írska þing- inu og í flokki hans. Ef ráðherrann neitar, mun það valda vandræðum í samskiptum yfirvalda á Bretlandi og írlandi, og ýmsir þingmenn Ihaldsflokksins munu neita að styðja samkomulag Breta og Ira um Nórð- ur-írland. Fundur Æðsta ráðs Sovétríkjanna: Arnold Ruutel, forseti Eistlands, flytur ræðu gær. Hann varði gagnrýna afstöðu eistneska nýrri stjórnarskrá fyrir Sovétríkin. Reuter sína í Æðsta ráðinu í þingsins til draga að Ruutel Eistlandsforseti ver sjálfræði lýðveldisins Moskvu. Reuter. Forseti Æðsta ráðs (þings) Eistlands flutti ávarp á öðrum degi funds Æðsta ráðs Sovétríkjanna i gær. Hann sagðist undrandi á hörðum viðbrögðum Moskvustjórnarinnar við samþykktum eist- neska þingsins þar sem m.a. er kveðið á um rétt Eistlendinga til að beita ákvarðanir Kremlveija neitunarvaldi og full yfírráð lands- manna yfír náttúruauðæfum sínum. Hann gagnrýndi ákveðin at- riði í drögum að nýrri stjórnarskrá Sovétríkjanna en þeim hefur vérið harðlega mótmælt af þorra Eistlendinga. Forsætisnefnd Æðsta ráðs Sov- étríkjanna lýsti því yfir á laugar- dag að samþykkt Eistlendinga um neitunarvald bryti gegn stjómar- skránni. Ruutel var ómyrkur í máli í gær. „Það er ekkert undar- legt við þá staðreynd að við [Eist- lendingar] skyldum leita eigin GULLVÆG BOK FYRIR. SUNNLENDINCA SAGA ÞORLAKSHAFNAR Þríggja binda sfórvirki, sunnlensk atvinnu- eg menningarsaga gefin út að frumkvmði Ölfushrepps. Bindin nefnast: Byggð eg búendur, Veiðistöð og verslun, Örlög og atburðir. Saga Þorlákshafnar er viðamik- ið og margþætt verk, í senn safn þjóðsagna frá Þorlákshöfn, sagn- fræðileg úttekt á sögu staðarins, þjóðháttarit um sjósókn fyrri tíma þar sem útgerðarsagan er rakin frá stofnun biskupstóls í Skálholti til loka áraskipaútgerðar 1929, og ævisögurit sögufrægra bænda og sjósóknara í Höfninni. Saga Þorlákshafnar er umfangsmikið verk í íslenskri atvinnu- og menn- ingarsögu. Hún lýkur upp dyrum að heimi löngu genginna kynslóða þar sem þær ganga fram í starfi og leik, blíðu og stríðu, í hvers- dagsleika og á örlagastundum. SWJUHBl-GtóON ORN OG ÖRLYGUR SIÐUMÚLA 11, SÍMI 8 48 66 leiða til að finna lausn á efnahags- vandræðum okkar,“ sagði forset- inn. „Þið hafið kynnt ykkur vel samþykkt forsætisnefndarinnar [um stjómarskrárbrotið]. Okkur er það áhyggjuefni hve leiðin til aukins lýðræðis virðist vera hlyk- kjótt og torsótt...Þegar drögin að nýrri stjórnarskrá voru gefin út hófum við Ijörugar umræður í Eistlandi. Mörgum fannst þau geta stofnað sjálfræði lýðveldis okkar í hættu.“ Ruute) gagnrýndi sérstaklega ákvæði draganna um nýtt þing Sovétríkjanna sem verða á í tveim deildum. Sagði ■ hann tillögurnar alls ekki hafa hlotið nægilega umræðu. Á hinn bóginn lagði hann þunga áherslu á stuðning Eist- lendinga við umbætur, perestroj- ku, Gorbatsjovs Sovétleiðtoga. Aukinn stjórnmálaáhuga í Eistl- andi mætti rekja til umbótastefn- unnar og átti hann þar greinilega við umsvif svonefndrar Þjóðarfylk- ingar, er mjög hefur látið til sín taka og m.a. staðið fyrir undir- skriftasöfnun gegn stjórnarskrár- drögunum. Forsetinn sagði að ýmsar breytingar hefðu verið gerðar á drögunum og væru Eist- lendingar ánægðir með þær en ekkert ságði hann um það hvort hann myndi greiða atkvæði með samþykkt þeirra. Fulltrúar flestra Sovétlýðveldanna, sem eru alls 15, hafa þegar lýst yfir stuðningi sínum við drögin. Ráðherrafimdur EFTA: Skyr fyrirmæli um fHverslun með fisk Zílrích. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttarítara Morgunblaðsins. RÁÐHERRAR EFTA-ríkjanna gáfu sérstakri nefiid, sem hefiir Qallað um fríverslun með fisk síðan í sumar, skýr fyrirmæli um að útfæra grundvallarreglur um fríverslun með fískaíurðir innan EFTA án tillits til þess hvernig það snertir viðskipti við önnur lönd. Var þetta samþykkt á tveggja daga fiindi í Genf nú í byijun vikunnar. Nefhdin á að skila lokaskýrslu á vorfúndi fríverslunar- samtakanna í Noregi í júní. Jón Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra fagnaði niður- stöðu ráðherranna. „Svíar hafa verið helstu andstæðingar okkar í þessu rnáli," sagði hann. „Ut- anríkisviðskiptaráðherra þeirra hóf mál sitt á því að vara við að þetta yrði útkljáð eitt og sér og benti á að það gæti haft áhrif á viðskipti EFTA og þriðju ríkja. Við andmæltum fyrirvara ráð- herrans og fengum okkar máli framgengt. Það mun styrkja stöðu okkar í viðræðum við Evrópu- bandalagið þegar fríverslun með fískafurðir verður komin á innan EFTA.“ Svíar óttast samkeppni frá Noregi, þar sem fiskiðnaður er niðurgreiddur, þegar fiskvið- skipti verða gefin fijáls. Ráðherrarnir fjölluðu um ráð- herrafund GATT í Montreal, sem stendur fyrir dyrum. Annars ræddu þeir um ýmis mál sem snerta samskipti EFTA og Evr- ópubandalagsins. Willy de Clercq, sem fer með utanríkismál innan framkvæmdastjórnar EB, átti fund með ráðherrunum á mánudag og kvaddi þá en hann lætur af störfum um áramótin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.