Morgunblaðið - 29.12.1988, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 29.12.1988, Blaðsíða 48
] s PJöföar til Llfólks í öllum tarfsgreinum! ~L JltarigiitiiMjifrtfe Endurski í skam FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1988 VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR. Úðabrúsar verða bann- aðir 1991 SALA úðabrúsa sem innihalda ósoneyðandi efni verður óheimil frá og- með 1. júní 1990 sem'liður í áætlun um verndun ósonlagsins sem ríkisstjórnin hefúr fallist á. Arleg notkun ósoneyðandi efha hér á landi er talin vera um 200 tonn og eru ósoneyðandi efni i úðabrúsum um fjórðungur heild- arnotkunarinnar. Þessi ákvörðun var tekin á grund- velli skýrslu nefndar sem Friðrik Sophusson, þáverandi iðnaðarráð- herra, skipaði í júnímánuði. Megintillaga nefndarinnar er að ísland fylgi eftir þeim aðgerðum er Norðurlöndin koma sér saman um og gerist aðili að Vínarsáttmálanum Iwvonefnda og undirriti Montreal- samninginn. Hefur ríkisstjómin ákveðið að Islendingar gerist aðilar að þessum tveimur alþjóðasamning- um. Samkvæmt þeirri framkvæmda- áætlun sem hefur verið samþykkt á grundvelli tillagna nefndarinnar á að vera hægt fyrir árið 1991 að minnka heildamotkun klórflúorkol- efna um meira en 25% miðað við árið 1986 og um 50% fyrir lok ársins 1994 skv. sömu viðmiðun. Heildar- kostnaður við að minnka notkun þessara efna um 50% fyrir lok ársins 1994 er áætlaður 30-40 milljónir króna. Sjá nánar frétt á miðopnu. Einar kosinn íþróttamaður ársins 1988 Einar Vilhjálmsson, spjótkastari, var í gær útnefndur Iþróttamað- ur ársins 1988. Einar varð sigur- vegari í tólf af þrettán mótum sem hann tók þátt í. Þrjátíu og tveir íþróttamenn fengu atkvæði og munaði litlu á þremur efstu mönnum. Einar fékk 130 at- kvæði, Bjami Friðriksson varð í öðru sæti með 125 atkvæði og Haukur Gunnarsson hreppti þriðrja sætið með 110 atkvæði. Sjá bls. 46 og 47. 502 milljómr til upp- byggingar í fískeldi SAMÞYKKT hafa verið lán að Qárhæð 502 milljónir kr. til upp- byggingar fiskeldis á þessu ári. Þar af eru tæpar 300 milljónir króna sem síðasta ríkissfjórn ákvað að veita til uppbyggingar matfiskeldis á þessu ári, aðallega til strandeldisstöðva, til að flýta uppbyggingunni og koma í eldi innanlands sem mestu af þeim seiðum sem framleidd voru á árir.u. Snorri Tómasson hagfræðingur hjá Framkvæmdasjóði segir að þeim 300 milljónum sem ákveðið Landsbankínn tapaði 26,5 milljónum króna á Eldvík Skipið selt í Portúgal á 5,5 milljónir LANDSBANKINN hefúr gert bráðabirgðakaupsamning við skipasmíðastöð í Portúgal um ms. Eldvík sem bankinn keypti eftir nauðungaruppboð i nóv- Bandaríkin: * Islensk stúlka lést í bílslysi ÍSLENSK stútka, Bryndís Elín Einarsdóttir, 17 ára gömul, lést í bílslysi í Bandaríkjunum á ann- an dag jóla. Slysið átti sér stað í borginni New Canaan í Connecticut-fylki. Bifreið- in 'enti á steinvegg og valt og mun Bryndís hafa látist samstundis. embermánuði. Eldvík hefúr ver- ið í viðgcrð í skipasmíðastöðinni undanfarna mánuði og var kyrr- sett þar vegna skulda útgerðar- innar, Skipafélagsins Víkur hf. Bankinn fær 120 þúsund dollara, sem samsvarar 5,5 milljónum kr., fyrir skipið, en keypti það á 32 milljónir. Sölutap bankans er því 26,5 miHjónir kr. en ekki er ljóst hvort eða hve miklum hluta af kröfúm sínum á Skipafélagið Víkur hf. bankinn tapar. Við uppboð á Eldvíkinni var upp- lýst að 300 þúsund dollara (14 millj- ónir kr.) viðgerðarkostnaður væri kominn á skipið í Portúgal og félli sú upphæð á kaupandann. Stefán Pétursson lögfræðingur Lands- bankans segir að kostnaður við skipið ytra hefði reynst mun meiri en þetta og það væri meðal annars ástæðan fyrir því að ekki fékkst meira fyrir skipið. Landsbankinn keypti ms. Hvalvík á 31 milljón eftir sama nauðungar- uppboð og Eldvíkina og seldi hana til Nesskips á 32 milljónir fyrr í mánuðinum. Bankinn er einnig að- alkröfuhafinn í þriðja skip Skipafé- lagsins Víkur hf., ms. Keflavík, sem Eimskip keypti á 160,5 milljónir kr. eftir nauðungaruppboð í Vík í Mýrdal. Stefán Pétursson sagði ekki tímabært að segja hvort eða hve miklum peningum Landsbank- inn muni tapa á viðskiptum við Skipafélagið Víkur hf. Sagði hann að þó að bankinn hafi fengið lítið upp í kröfur sínar með því að kaupa og selja Eldvíkina hefðu uppboð skipanna þriggja komið vel út fyrir bankann. Þá hefði bankinn aðrar tryggjngar fyrir kröfum. var að taka að láni á þessu ári til að flýta fiskeldisuppbygging- unni sé að mestu ráðstafað. Kom þessi fjárhæð til viðbótar því sem áður var búið að ákveða að veita til framkvæmda í fiskeldinu. Stærstu verkefnin eru strandeldis- stöðvamar Lindalax á Vatns- leysuströnd, Atlantslax á Reykja- nesi, Fjörfiskur í Þorlákshöfn, stækkun ísþórs í Þorlákshöfn og Miklilax í Fljótum. Einnig nefndi hann Silfurstjömuna í Kelduhverfi og Árlax á Kópaskeri. Framkvæmdasjóður lánar fyr- irtækjunum beint um 270 milljón- ir á árinu og veitir einnig verulegu fjármagni til annarra lánastofn- ana, aðallega Byggðastofnunar, til endurlána í fiskeldi. Þá lána Iðnþróunarsjóður, Þróunarfélag íslands hf. og Den Norske Kredit- bank töluverða peninga til fram- kvæmda í fiskeldi. Á næsta ári á að veita 500 milljónum til viðbótar til upp- byggingar fiskeidisins samkvæmt þessari sérstöku afgreiðslu fyrr- verandi ríkisstjórnar þannig að heildarupphæðin verður um 800 milljónir kr. Á þessum tveimur árum má því búast við að minnsta kosti milljarður verði lánaður til framkvæmda í fiskeldi þegar með eru tekin þau lán sem samþykkt voru áður en sérstaka átakið var ákveðið. Snorri sagðist ekki vita hvað mikil eftirspurn yrði eftir lánum á næsta ári, en sagði þó að vitað væri um nokkra aðila sem áhuga hefðu á að ráðast í fram- kvæmdir. Spáð slyddu eða rigningu á gamlársdag GERT er ráð fyrir hlýnandi veðri með slyddu eða rign- ingu um allt land á gamlárs- dag, en á morgun er gert ráð fyrir bjartviðri um allt land. Að sögn Guðmundar Haf- steinssonar veðurfræðings eru taldar líkur á vaxandi sunnan- átt og hlýnar.di veðri á landinu á gamlársdag. Vestanlands verður komin nokkuð hvöss suðaustanátt og slydda eða rigning um miðjan dag, en á austanverðu landinu er gert ráð fyrir að veður verði farið að spillast um kvöldið. Á ný- ársdag lítur út fyrir sunnanátt og hlýtt veður með rigningu sunnanlands og vestan, en lítilli úrkomu á Austur- og Norðurlandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.