Morgunblaðið - 03.01.1989, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.01.1989, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B l.tbl. 77. árg._____________________________________ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1989________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins SASHOTAÐ Reuter Vopnaður liðsmaður úr víkingasveit grísku lögregl- unnar stendur vörð við afgreiðslu SAS-flugfélags- ins flugvellinum í Aþenu. Óryggisgæsla hefur ver- ið efld til muna á afgreiðslustöðum SAS í kjölfar ítrekaðra sprengjuhótana, sem félaginu hefur borizt undanfarría daga. Sjá „SAS-flugfélaginu berast sprengjuhótan- ir“ á bls. 22. Niðurfærsiuhugmyndir í Danmörku: >> Askorun pólskra menntamanna: Vilja frjálsar þingkosningar Varsjá. Reuter. UM EITT hundrað menntamenn og stjórnarandstæðingfar í Pól- landi hafa hvatt til þess að þingkosningar í landinu í október næstkomandi verði frjálsar. Áskorun þess efiiis var afhent umboðs- manni pólska þingsins 30. desember sl. og birt fréttamönnum í gær. Hermt er að hún sé undanfari meiriháttar baráttu fyrir kosningaumbótum. í áskorunarskjalinu er hvatt til þess að hverjum sem er verði fijálst að bjóða sig fram hljóti hann stuðning tilskilins fjölda kjósenda í viðkomandi kjördæmi. Samkvæmt núverandi fyrir- komulagi velur sérstök nefnd, sem pólska stjórnin útnefnir, frambjóð- endur til þings. Meðal þeirra, sem skrifuðu und- ir áskorunarskjalið, voru kvik- myndaleikstjórinn Andrzej Wajda, rithöfundarnir Stanislaw Lem og Tadeusz Konwicki, lagaprófessor- inn Andrzej Stelmachowski og Jerzy Turowicz, ritstjóri hins ein- arða vikurits kaþólskra, Tygodn- iks Powszechny. Alls rituðu 54 háskólaprófessorar undir áskorun- ina og á 21 þeirra sæti í pólsku vísindaakademíunni. Pólsk yfirvöld hafa lofað umbót- um á kosningalöggjöfínni. Jaruz- elski sagði í nýársávarpi til þjóðar- innar að fulltrúar á þingi þyrftu að endurspegla betur ólíkar skoð- anir og sjónarmið þjóðarinnar. Schluter leggur til lækkun á kaupgjaldi og tekjuskatti Kaupmannahöfn. Frá Nils Jergen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins. Reuter. POUL SCHLÚTER, forsætisráðherra Danmerkur, sagði í ávarpi sínu til þjóðarinnar á nýársdag að semja bæri um lækkun launa en jafii- framt myndi ríkisstjómin sjá um að skattar lækkuðu. Þetta myndi hafa góð áhrif á framleiðslu og minnka atvinnuleysi. Einnig hefði þetta þau áhrif að verðlag lækkaði. landsins eru um 45 milljarðar Banda- ríkjadala og atvinnuleysi um nfu af hundraði. í fjárlögum stjómar Schliiters, er samþykkt voru um miðjan desember, er gert ráð fyrir miklum niðurskurði á ríkisútgjöldum; allt að tíu milljörðum danskra króna (67 milljörðum ísl.kr.). Sjá „Velferðarkerfið hefúr far- ið úr böndunum" á bls. 24. Leiðtogar pólska kommúnista- flokksins hafa hins vegar ótvírætt gefið til kynna að flokkurinn sé ekki reiðubúinn að gefa eftir for- ystuhlutverk sitt. Reuter FRAKKAR MINNAST BYLTINGAR Hátíðahöld, sem standa munu allt þetta ár, hófust í París á nýársdag í tilefni þess að 14. júlí næstkom- andi verða 200 ár liðin frá frönsku byltingunni. Vegna afmælisins hófu á annað hundrað belgför sig á loft frá Concorde-torginu í Parísar á fyrsta degi hátíðahaldanna. Að lög- un minntu þau á belgför til forna, en Montgolfier-bræðurnir frönsku sigmðust fyrstir manna á þyngdar- lögmálinu er fyrsta belgflugstilraun þeirra 5. júní 1783 heppnaðist. Schliiter sagði að hækkun launa hefði í för með sér aukið atvinnu- leysi. Hann sagði laun hafa hækkað of mikið undanfama áratugi og auka þyrfti sparifjármyndun í landinu. Armenía: 17 fundust í húsarúst Paris. Reuter. FRÖNSK útvarpsstöð, Europe 1, sagði í gær, að 17 menn hefðu fúndizt á lífi eftir 24 daga vist í rústum kornverksmiðju, sem hrundi í jarðskjálfta í borginni Spítak í Armeníu. Stöðin bar franska hjúkmnar- konu, sem starfar í Spítak á vegum samtakanna Medecins du Monde, fyrir fréttinni. Hún fékkst hvorki staðfest hjá talsmanni samtakanna í París né yfirmönnum hjálparstarfs í Armeníu. Ráðherrann sagði einnig að leggja bæri hugmyndir um styttingu vinnut- ímans á hilluna að sinni. Búist er við því að ríkisstjómin muni bera fram tillögur af sama toga og Schlviter nefndi í ávarpi sínu í viðræðunum á föstudag. Finn Thorgrimsson, formaður danska Alþýðusambandsins, sagði í gær að það væri engin lausn á vanda- málum ríkisins að reyna að snúa öll- um hjólum öfugt. Hann taldi að ef launafólk sætti sig við launalækkan- ir myndu aðrir hópar þjóðfélagsins neyta aðstöðu sinnar og tryggja sér bætt kjör. Þetta myndi hafa í för með sér aukinn lífskjaramun í landinu, að áliti formannsins. Formaður sambands atvinnurek- enda, Poul Hedegaard, sagði nauð- synlegt að lækka kostnað fyrirtækj- anna til frambúðar, ekki síst launa- kostnaðinn. Skattaálögur á almenning er þyngri í Danmörku en í nokkru öðru ríki Evrópubandalagsins, hlutfall tekjuskatts er að jafnaði á bilinu 50 til 68 af hundraði. Erlendar skuldir Fátækt jókst í AMku þrátt fyrir hagvöxt Addis Ababa. Reuter. HAGVÖXTUR í Afríku varð tvöfalt meiri árið 1988 en 1987 en lífskjör íbúa álfúnnar versnuðu samt og þeir urðu fátækari. Allt bendir til þess að sú þróun haldi áfram á þessu ári, að sögn Efiia- hagsstofiiunar Afríku (ECA), sem fylgist með þróun efnahagsmála í Afríku fyrir Sameinuðu þjóðirnar. Að sögn ECA nam aukning landsframleiðslu í Afríku að meðal- tali um 2,5% árið 1988, miðað við 1,3% aukningu 1987. Þrátt fyrir þetta versnuðu lífskjör í álfunni því fólksfjölgunin var meiri en sem nemur aukningu landsframleiðsl- unnar, sem er mælikvarði á verð- mæti allrar vöru og þjónustu, sem verður til í viðkomandi landi. Að sögn fulltrúa ECA er við því búist að sama þróun haldi áfram í ár, þ.e. að hagvöxtur aukist en fátækt líka. Spáð er allt að 2,5% auknum hagvexti á nýbyijuðu ári, en að það muni í engu bæta lífskjör því fólkinu muni fjölga hlutfalls- lega meira. Láta mun nærri að tekjur hvers Afríkubúa séu um 80% af því sem þær voru fyrir átta árum. Erlendar skuldir Afríkuríkja jukust í fyrra úr 218 milljörðum Bandaríkjadoll- ara í 230 milljarða, eða jafnvirði 10.350 milljarða íslenzkra króna. Útflutningstekjur lækkuðu um 2% árið 1988 og voru um 10 millj- örðum dollara lægri en kostnaður vegna innflutnings. Þegar greitt hafði verið af lánum og borgað fyrir innflutning var því lftið sem ekkert eftir til nýrra fjárfestinga sem nauðsynlegar töldust til þess að auka hagvöxt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.