Morgunblaðið - 08.02.1989, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.02.1989, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1989 Borgaraflokkurinn sleit vidræðum við stjórnina Tveir sátu hjá. Óli Þ. Guðbjartsson með sérbókun. Aðal- heiður Bjarnfreðsdóttir segir enga reiði í sínum huga. ÞINGFLOKKUR Borgaraflokksina ákvað á fundi sínum í gœr- morgun að tilgangslaust væri að halda áfram viðræðum við ríkis- stjómina um stjómaraðild Borgaraflokksins, eftir að ljóst varð að ekki yrði gengið að kröfum flokksins um afhám matarskatts- ins þegar i stað. Júlíus Sólnes formaður flokksins segist harma þessa niðurstöðu. Albert Guðmundsson og Óli Þ. Guðbjartsson sátu hjá við atkvæðagreiðslu og ÓU lét jafnframt bóka að ekki væri flúllreynt, hvort hægt væri að ná samkomulagi við ríkisstjóm- ina. Aðalheiður Bjamfreðsdóttir segir engin illindi í sínum huga, hvað varðar þessa niðurstöðu og segist munu vega og meta hvert stjómarfrumvarp, áður en hún afræður hvort hún styður það eða ekki. Aðalheiður Bjamfreðsdóttir, þingmaður Borgaraflokks, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær: „Ég er búin að taka afstöðu til bráðabirgðalaganna og mun greiða þeim nákvæmlega eins at- kvæði, þó svona hafi farið. Hvort ég mun greiða öðrum frumvörp- um ríkisstjómarinnar atkvæði mitt kemur bara í ljós, þegar þau koma til atkvæðagreiðslu og ég hef kynnt mér þau. Hins vegar er engin reiði eða illindi í mér, þó svona hafi farið." Halldór Pálsson, formaður kjör- dæmisráðs Borgaraflokksins í Albert Guðmundsson, þingmaður Borgaraflokks: „Létu draga sig á asnaeyrum“ ALBERT Guðmundsson segist ekkert hafa við það að athuga að þingflokkur Borgaraflokks- ins hafi ákveðið að slíta viðræð- um við ríkisstjómina. Hann hafi ekkert skipt sér af þessum viðræðum fyrr en i fyrradag, „þegar það var farið að vera áberandi I augum fólksins al- mennt hvað Borgaraflokkurinn var dreginn á niðurstöðum. Þetta gat ekki gengið svona lengur. Þetta var orðið átakan- legt og ég gat ekki horft upp á þetta lengur,“ sagði Albert. Albert sagði að þessar viðræður hefðu ekkert verið annað en sýnd- armennskan eintóm. Dagar og vikur hefðu liðið án þess að nokk- ur fundur hefði verið haldinn, hvað þá meir, og félagar hans í Borgaraflokknum létu „einfald- lega draga sig áfram á asnaeyr- um“. Albert sagði að kröfumar sem Borgaraflokkurinn hefði sett fram á sínum tíma hefðu farið dag- minnkandi og endað með því að hluti af einni kröfu hefði staðið eftir, þ.e. afnám matarskattsins. „Það leit ekki út fyrir það að stjómarflokkamir hefðu nokkum tíma viljað fá Borgaraflokkinn heilan og óskiptan til þessa stjóm- arsamstarfs. Það sýndu vinnu- brögðin og allur sá dráttur sem varð á því að ná fram niðurstöð- um.“ Reylqaneskjördæmi, hafði sam- kvæmt heimildum Morgunblaðs- ins ákveðið að segja af sér for- mennskunni ef flokkurinn sliti ekki viðræðunum við ríkisstjóm- ina, þar sem hann ásamt fleirum mun hafa talið að ef Borgara- flokkurinn gengi inn í ríkisstjóm- arsamstarfíð á skilmálum ríkis- stjómarinnar, þá fengi hann ná- kvæmlega ekkert fyrir sinn snúð. „Flokkurinn mun bara taka flokkslega afstöðu í hveiju máli fyrir sig. Það hefur nú oft, út af fyrir sig, komið fyrir að flokkur í stjómarandstöðu hafl getað stutt eitthvað af stjómarfrumvörpum. Það getur farið á hvaða veg sem er,“ sagði Júlíus Sólnes, formaður Borgaraflokksins er hann var spurður hvort hann teldi að flokk- urinn í heild, eða einstakir þing- menn hans, myndu halda áfram að tryggja ríkisstjóminni meiri- hluta á Alþingi með því að greiða frumvörpum hennar atkvæði sín. Júlíus sagði að ákveðnir hlutir í efnahagsaðgerðum ríkisstjómar- innar væru Borgaraflokknum að skapi. „Ég harma þessa niður- stöðu. Menn eru búnir að leggja mikið á sig við að reyna að ná þessu saman, en það tókst ekki. Við létum bijóta á þessu ágrein- ingsmáli, matarskattinum, sem er búið að vera á oddinum allan tímann," sagði j'úlíus. Júlíus kvaðst vísa orðum Al- berts Guðmundssonar þess efnis, að þingmenn Borgaraflokksins hefðu verið dregnir á asnaeymn- um af ríkisstjóminni, til fóður- húsanna. Hann kvað Borgara- flokkinn hafa komið fram eins og ábyrgur stjómmálaflokkur, en þrátt fyrir mjög umfangsmiklar og ýtarlegar málalengingar hefði ekki tekist að ná samkonjulagi. Júlíus kvaðst engin merki sjá á lofti þess efiiis, að samstaða flokksins væri að rofna. Forsætisráðherra og utanrfldsráðherra um ákvörðun Borgaraflokks: Vildu koma til móts við Borgaraflokkinn RÍKISSTJÓRNIN telur ekki skynsamlegt að ákveða upphæð og dagsetningu lækkunar matvæla, en það mat ríkisstjómarinnar varð endanlega til þess að þingflokkur Borgaraflokksins ákvað á fimdi sínum i gærmorgun að tilgangslaust væri að halda áfiram viðræðum við rikisstjómina um stjórnaraðild Borgaraflokksins. Þessu mati sinu lýstu þeir Steingrímur Hermannsson forsætisráð- herra og Jón Baldvin Hannibalsson utanrikisráðherra i samtölum við Morgunblaðið i gær. „Við teljum ekki skynsamlegt að setja upphæð og dagsetningu á lækkun matvæla inn í sam- starfssamning við Borgaraflokk- inn,“ sagði forsætisráðherra. Hann sagði að þetta hefði ríkis- stjómin rætt sín á milli og talið óskynsamlegt og greint Borgara- flokknum frá þessari afstöðu sinni. „Það verður bara að ráðast, hvort við leitum eftir stuðningi einstakra þingmanna flokksins við stjómarfrumvörp okkar, en ég tel það mjög mikilvægt að þetta gerð- ist allt án nokkurra illinda," sagði Steingrímur. „Stjómarflokkamir höfðu teygt sig langt til móts við Borgara- flokkinn, um þau meginmál, sem flokkurinn vildi setja á oddinn, enda var það fyrst og fremst eitt — lækkun matvömverðs," sagði Jón Baldvin Hannibalsson, ut- anríkisráðherra um ákvörðun Borgaraflokksins. Jón Baldvin sagði að í slqali frá forsætisráðherra til Borgara- flokks hefði komið fram að ríkis- stjómin væri reiðubúin til að leita leiða til að lækka verð á þýðingar- mestu matvælum.'Auk þess hefði verið greint frá því að ríkisstjóm- in væri reiðubúin til þess að kanna það við undirbúning á upptöku virðisaukaskatts, hvort skynsam- legt væri að taka upp tvö þrep í virðisaukaskatti, sem yrði þó að skoðast með tilliti til heildamiður- staðna ríkisQármála. Loks hafí verið greint frá því að ríkisstjóm- in væri reiðubúin til þess að beita sér fyrir lækkun verðs á tilteknum matvælum: mjólkurvörum, brauði, komvöru, kjöti og físki, í tengslum við efnahagsráðstafan- ir, enda yrði þá samkomulag um aðra tekjuöflun á móti. Utanríkisráðherra segir að þetta bréf gefl það berlega til kynna að fullur vilji hafí verið tii þess af hálfu stjómarflokkanna að leysa þetta mál þannig að Borgaraflokki lfkaði. Samkomu- lag hafí hins vegar strandað á samþykkt flokksstjómar Borg- araflokksins frá því sl. laugardag, þar sem þess hefði verið krafíst að þetta yrði gert þegar í stað, áður en ráðrúm fengist til þess að leita svars við því með hvaða hætti tekjumissir ríkissjóðs yrði bættur. Jón Baldvin sagði að framtíðin myndi leiða í ljós hvemig ríkis- stjómin kæmi stjómarfrumvörp- um sínum í gegnum þingið án samstarfs við Borgaraflokk. Eldur um borð í Selfossi ELDUR kom upp í lest Selfoss, flutningaskips Eimskipafélags- ins, þar sem það var statt í Mið- jarðarhafi á mánudagskvöld. Áhöfii skipsins slökkti eldinn án utanaðkomandi aðstoðar. Engan úr áhöfhinni sakaði. Eldsupptök eru rakin til skammhlaups í hita- blásara, að sögn Þórðar Sverris- sonar framkvæmdastjóra hjá Eimskip. Þórður sagði að hvorki hefðu orðið skemmdir á skipinu né telj- andi seinkun á för þess til grísku hafnarborgarinnar Patrai. Ekki var ljóst hvort skemmdir hefðu orðið á farmi skipsins, síðast þegar Morg- unblaðið hafði spumir af. Aldi Nord hættir kaupum á lagmeti ALDI Nord, annar hluti Aldi- verslanakeðj unnar í Vestur- Þýskalandi, hefiir hætt kaupum á niðursoðinni rækju frá ís- landi. Tilkynning þess efiiis barst til Iceland Waters í Kiel I gær. Ástæður þess að Aldi Nord hættir viðskiptum við ís- lendinga eru þær sömu og hjá Aldi Slid, eða þrýstingur firá Grænfriðungum vegna hval- veiða íslendinga. kvæmdastjóri Aldi Nord, hafði síðan samband við K.H. Jakubow- ski framkvæmdastjóra SL í Kiel og sagði honum að formlegt upp- sagnarbréf yrði sent seinna í vik- unni. í skeyti sem Jakubowski sendi síðan skrifstofu SL í Reykjavík segir orðrétt: „Nú er síðasta tækifærið til að stöðva hvalveiðar, að öðmm kosti er við- skiptum okkar (í Þýskalandi) lok- ið.“ Theódór Halldórsson, fram- kvæmdastjóri Sölustofnunar lag- metis, segir að þessi ákvörðun Aldi Nord hafí ekki komið þeim á óvart. Þeir hafí alltaf átt von á því að Aldi Nord myndi fylgja í fótspor Aldi Sud. Því hafí þeir áætlað sölu- tap sitt á þessum markaði 430 milljónir króna strax í upphafi. Af þessari upphæð seldi Aldi Siid fyr- ir 230 milljónir króna en Aldi Nord fyrir 200 milljónir króna. Samkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið hefur aflað sér eru Aldi-verslanakeðjumar yfirleitt með það ákvæði í samningum sínum við heildsala að Aldi geti sagt þeim upp hvenær sem er. Theódór segir að slíkt ákvæði hafí ekki verið til staðar í samningum Iceland Waters, sölufyrirtæki SL í Þýskalandi, við Aldi. SL hefur hinsvegar ekki í hyggju málshöfð- un gegn Aldi fyrir samningsbrot. „Við reiknum þetta dæmi þann- ig út að þetta hvalamál muni ganga yfír og eftir það munum við aftur taka upp samstarf við Aldi,“ segir Theódór Halldórsson. „Mála- ferli nú myndu bara hleypa illu blóði í Aldi-menn og hafa þær af- leiðingar að við kæmust ekki aftur að hjá þeim í framtíðinni." Tilkynningin barst með símskeyti, en Kujahn, fram- INNLENT Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra: Engin stefnu- breyting í hvalveiðum HALLDÓR Ásgrímsson sjávarút- vegsráðherra lagði fram upplýs- ingar á ríkisstjórnarfundi í gær- morgun um hvalveiðimál íslend- inga og að honum loknum áttu hann og Jón Baldvin Hannibals- son utanríkisráðherra ítarlegan firnd um málið með utanrikis- málanefiid Alþingis. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins eru stjómarliðar innan Alþýðu- bandalagsins einna helst á því að íslendingum beri að breyta hvalveiðstefiiu sinni, en Halldór segir enga breytingu vera á meg- instefiiu ríkisstjórnarinnar og utanríkismálanefndar um málið. „Þetta mál er til umQöllunar í utanríkismálanefnd og hjá þeirri nefnd hefur engin stefnubreyting orðið," sagði Halldór, „en hitt er svo annað mál, að það eru ýmsar skoðanir uppi þar, hvemig best sé fyrir okkur að koma upplýsingum og skoðunum okkar á framfæri. Innan nefndarinnar er enginn ágreiningur um meginstefnu, en sú nefnd er sá vettvangur sem er til ráðuneytis í þessum efnum.“ Halldór sagði að sér væri full- kunnugt um afstöðu ákveðinna þingmanna gegn hvalveiðum, svo sem Áma Gunnarssonar, en hún hefði engin áhrif á stefnu utanríkis- málanefndar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.