Morgunblaðið - 21.02.1989, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.02.1989, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1989 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1989 23 M&K0 Útgefandi Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aðstoðarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúarritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, BjörnJóhannsson, Árni Jörgensen. Fróttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst IngiJónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Askriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 70 kr. eintakið. Erlendar skuldir — innlendur spamaður Samkvæmt frumvarpi til lánsfjárlaga fyrir líðandi ár, sem nú er til meðferðar í efri deild Alþingis, stefnir í 21 milljarða króna erlendar lántökur 1989. Þetta eru uggvekjandi skuldatölur. Ekki sízt vegna þess að síðastliðin þijú ár hafa erlendar lántökur farið 50% — 130% fram úr upphaflegum áætlunum. í ljósi þeirrar reynslu gætu erlendar lántök- ur líðandi árs farið yfir 30 milljarða króna. Staða efnahags- og at- vinnumála eykur skuldalík- uraar. Útflutnings- og sam- keppnisgreinar ganga fyrir erlendu lánsfé. Og sýnt er að ríkissjóður verður rekinn með umtalsverðum halla, þrátt fyr- ir sjö milljarða nýjar skatta- álögur. I lánsfjáráætlun er og gert ráð fyrir því að ríkissjóður og aðrir opinberir aðilar taki að láni innanlands hálfan sext- ánda milljarð króna. Þar vega skuldabréfakaup Byggingar- sjóðs ríkisins og Byggingar- sjóðs verkamanna þyngst, ríflega 8,8 milljörðum króna, en um sl. áramót vóru um tíu þúsund lánsumsóknir hjá þess- um sjóðum. Enginn vafi er á því að lánsfjárhungur og láns- fjárásókn hins opinbera ýtir fremur upp vöxtum en hið gagnstæða. Fjárþörf hins opinbera, einkum ríkissjóðs, sem ekkert lát virðist á, hefur valdið og veldur sýnilega áframhaldandi spennu á innlendum lána- markaði. Sama máli gegnir um hallarekstur útflutningsat- vinnuveganna, m.a. vegna hins háa raungengis, sem eyk- ur lánsijárþörfma í þjóðfélag- inu. Ekki bætir úr skák að stefna stjómvalda í vaxta- og skattamálum vinnur gegn inn- lendum peningasparnaði. Dræm sala á spariskírteinum ríkissjóðs talar sínu máli þar um. Innlendur peningaspam- aður jókst hinsvegar umtals- vert um nokkurt árabil, með tilkomu verðtryggingar og já- kvæðra vaxta í stað nei- kvæðra. Sparnaður þjóðarbúsins í heild hefur hinsvegar minnkað um 40% á tíu árum, úr 24-25% í um 14% af landsframleiðslu. Miðað við landsframleiðslu á síðasta ári þýðir þetta rúmlega 26 milljarða rýmun sparnaðar. Fjárfesting hefur á sama tíma minnkað um 30% sem hlutfall af landsframleiðslu, eða um 16 milljarða króna. Minnkandi spamaður rekur rætur til þriggja höfuðástæðna: versn- andi afkomu atvinnufyrir- tækja, halla á ríkisbúskapnum og meiri eyðslu og minni spamaðar einstaklinga og heimila. Sem fyrr segir bendir ýmis- legt til þess að sitthvað sé vanáætlað í lánsfjáráætlun líðandi árs. Þar ber fyrst að nefna Verðjöfnunarsjóð fisk- iðnaðarins, en fé frystideildar gengur til þurrðar á fyrri hluta ársins og ekki er sýnt að stjómvöld hafi aðgerðir á tak- teinum til að bæta rekstrar- stöðu sjávarútvegsins með al- mennum aðgerðum. Þá hefur ríkisstjómin vakið athygli Byggðastofnunar á vanda smábátaútgerðar, sem metinn er á um 500 m.kr. og ekki er gert ráð fyrir í lánsfjáráætlun, sem og vanda þeirra byggðar- laga, sem stefna í atvinnuleysi vegna rekstrarstöðu sjávarút- vegsfyrirtækja. Horfur em á því að erlendar langtímaskuldir þjóðarinnar verði um 106 milljarðar króna um næstu ármót. Þessi upp- hæð svarar til kr. 1.700.000.- á hverja fjögurra manna fjöl- skyldu í landinu. Talið er að yfir 90% þéssara skulda séu með beinni ríkisábyrgð. Inn- streymi erlends lánsfjár í efna- hagslífíð hefur skapað eyðslu- getu sem ekki hefur haft inn- lenda verðmætasköpun að bakþjarli. Á sama tíma hafa útflutningsatvinnuvegirnir barizt í bökkum, sætt tapi, gengið á eignir og safnað skuldum. Draga þarf úr ríkisábyrgð- um á erlendum skuldum. Jafn- framt þarf að afnema smám saman hömlur á gjaldeyrisvið- skiptum og skapa innlendum fyrirtækjum sama aðgang að alþjóðlegum fjármagnsmörk- uðum og erlendir keppinautar njóta. Jafnhliða þarf að hlúa að hvers konar innlendum spam- aði, ekki sízt peningaspamaði, með það að höfuðmarkmiði, að íslenzkt atvinnulíf — og ríkisbúskapur — verði ekki jafn háð erlendu lánsfé, er- lendum spamaði, og nú er. Til þess að svo megi verða þurfa íslenzkir sparendur að búa við sömu réttindi og er- lendir. Fjölmenni við vígslu Seltjarnameskirkju SELTJARNARNESKIRKJA var vigð síðastliðinn sunnudag. A sjötta hundrað manns voru við athöfnina, en kirkjan tekur um 400 manns í sæti. Meðal gesta var Halldór Ásgrímsson, kirkju- málaráðherra. Biskup íslands, herra Pétur Sigurgeirsson vígði kirkjuna, en ásamt biskupi ann- aðist sr. Ólafur Skúlason, vígslu- biskup, altarisþjónustu. Vígsluathöfnin hófst með inn- göngu biskupa, presta, vígsluvotta og starfsfólks kirkjunnar, en alls voru 26 prestar viðstaddir athöfn- ina. Biskup íslands, herra Pétur Sigurgeirsson, vígði kirkjuna, en við athöfnina annaðist sr. Ólafur Skúlason, vígslubiskup, altarisþjón- ustu ásamt biskupi. Auk biskups og sr. Solveigar Láru Guðmunds- dóttur, sóknarprests Seltjamarnes- kirkju, önnuðust ritningarlestur þau Jóhann Guðmundsson les kórbæn við vigslu Sel- tjarnarneskirkju. Á innfelldu myndinni vígir bisk- up íslands, herra Pétur Sigurgeirsson, kirkjuna. Til hægri er sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, sóknarprestur Seltjarnarnessóknar. Morgunblaöið/Ámi Sæberg Mikið fjölmenni var við vígslu Seltjarnarneskirkju. Á sjötta hundrað manns var við athöfnina, en kirkjan tekur um 400 manns í sæti. Kristín Friðbjarnardóttir, formaður sóknarnefndar, Þórður Búason, varaformaður sóknamefndar, Eimý Ásgeirsdóttir, starfsmaður bama- starfs, Sighvatur Jónsson, organ- isti, Sigrún Ólafsdóttir og Þórir Guðbergsson. Að vígsluathöfninni lokinni fór fram messuathöfn og prédikaði biskup í messunni. Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir og sr. Olafur Skúlason, vígslubiskup, þjónuðu fyrir altari, en sr. Guðmundur Orn Ragnarsson og sr. Guðmundur Óskar Ólafsson aðstoðuðu. Áður en vígsluathöfnin hófst sá blásarakvintett um hljóðfæraleik, en við vígsluathöfnina vom flutt tvö íslensk tónverk, annað eftir Þorkel Sigurbjörnsson, en hitt eftir Gunnar Reyni Sveinsson. Safnaðarkór Selt- jamarneskirkju söng við vígsluat- höfnina, en Elísabet F. Eiríksdóttir söng einsöng. Organisti var Sig- hvatur Jónasson. Fyrsta skóflustungan fyrir bygg- ingu Seltjarnarneskirkju var tekin 16. ágúst 1981, en á jóladag 1985 vígði herra Pétur Sigurgeirsson hluta kirkjubyggingarinnar til helgihalds. Þar hafa síðan verið haldnar guðsþjónustur fram til þessa, en nú að lokinni vígslu kirkj- unnar verður sá hluti byggingarinn- ar notaður fyrir félagsstarfsemi fyrir alla aldurshópa safnaðarins. SeHjarnarneskirkja á vígsludaginn. V estmannaeyjar: Skipstjórinn á Sigurvík fékk 180.000 króna sekt SKIPSTJÓRINN á Sigurvík VE 555 var í gær dæmdur til að greiða Landhelgissjóði 180.000 kr. sekt vegna notkunar á ólög- legum veiðarfærum. Þá voru afli og veiðarfæri gerð upptæk. Varðskipið Týr stóð Sigurvík að því, á föstudaginn, að vera að veið- um á Álnum inn af Vestmannaeyj- um með of smáriðið veiðarfæri. Færði varðskipið Sigurvík til hafnar í Eyjum og var mál skipstjórans tekið fýrir í héraðsdómi Vest- mannaeyja um helgina. í gær var dómurinn birtur og í honum er skip- stjórinn sekur fundinn um notkun ólöglegra veiðarfæra. Var hann dæmdur til að greiða Landhelgis- sjóði 180.000 kr. sekt auk þess sem afli og veiðarfæri, þar með taldir togvírar, voru gerð upptæk til Land- helgissjóðs'. Þá var skipstjórinn dæmdur til að greiða allan sakar- kostnað, þ.m.t. málsvarnarlaun til skipaðs verjanda kr. 30.000 og sak- sóknaralaun kr. 30.000. Dóminn skipuðu Jón Ragnar 'x : ' ■ Sigurvík VE og varðskipið Týr í Vestmannaeyjahöfii. Þorsteinsson, héraðsdómari, sem var dómsforseti og meðdómendum- ir Friðrik Ásmundsson, skólastjóri Stýrimannaskólans og Finnbogi Ólafsson, netagerðarmeistari. Grímur. Á myndinni eru talið frá vinstri: Finnbogi Ólafsson netagerðarmeist- ari, Jón Ragnar Þorsteinsson héraðsdómari og Friðrik Ásmundsson skólastjóri Stýrimannaskólans. Sigurvík VE: Viðurkemii að við vorum með 135 mm net í hluta pokans -segir eigandi bátsins „ÉG MÓTMÆLI því að við höfum verið með ólögleg veiðarfæri en viðurkenni hins vegar að við vor- um með 135 millimetra net í hluta pokans,“ sagði Sigurður Ingi Ingólfsson, netagerðar- meistari og eigandi Sigurvikur VE, í samtali við Morgunblaðið. Skipstjóri Sigurvíkur var i gær dæmdur í 180 þúsund króna sekt fyrir landhelgisbrot í svokölluð- um Á1 á milli lands og Vest- mannaeyja á föstudaginn, að sögn Jóns Þorsteinssonar, hér- aðsdómara í Vestmannaeyjum, sem dæmdi í málinu. „Varðskipið Týr stóð Sigurvík að ólöglegum veiðum 24 sjómílum fyrir innan 12 sjómílna mörkin, sem miðast við grunnlínu. Leyfileg möskvastærð fyrir innan 12 mílum- ar er 155 millimetrar en 4,20 öft- ustu metramir á botnvörpu Sig- urvíkur vom með 135 millimetra möskvum, sagði Jón Þorsteinsson. „Ég vil lýsa furðu minni á þessum dómi og það liggur nokkuð ljóst fýrir að við munum áfrýja honum til Hæstaréttar. Við vomm dæmdir fyrir landhelgisbrot en Sigurvík var á löglegu veiðisvæði, sem var opnað 15. febrúar síðastliðinn, - “ sagði Sigurður Ingi Ingólfsson. Hann sagði að 49% af möskvunum í poka Sigurvíkur hefðu verið undir 155 millimetmm. Ég held hins vegar að það þekkist ekki að menn klæði trollin með fínriðnum netum," sagði Sigurður Ingi. Hann sagði að það væm sex mánuðir síðan Sigurvík hefði fengið einhveija ýsu og út- gerð hans hefði ekki flutt út smá- ýsu í gámum undanfama mánuði. „Þegar Sigurvík var færð til hafnar á föstudaginn var hún að veiða á svæði sem ýsa hefur ekki gengið á undanfarin 4 til 5 ár. Báturinn var þá kominn með 400 kíló af ýsu og 77% af henni var undir 50 sentímetrum. Sigurvík var einnig með 200 kíló af stórþorski og 350 kfló af tindabikkju og sand- kola. Verðmæti alls aflans var 22 þúsund krónur. Okkur fannst þetta því vera lítið mál og þetta er í fyrsta skipti sem tekið er svona hart á þessum málum,“ sagði Sig- urður Ingi Ingólfsson. Hilmar Rósmundsson, formaður útvegsbændafélags Vestmanna- eyja, sagði að altalað væri að einn og einn maður hefði notað klæddar vörpur. Skipstjórar á togbátum frá Vestmannaeyjum hefðu hins vegar svarið fýrir að þeir hefðu gert slíkt. Hundrað lístamenn fá sjö milljónir króna Tólf nýjum listamönnum úthlutað listamannalaunum Launin rýrna um 20% frá síðasta ári Úthlutunarnefnd listamannalauna. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Gunnar Stefánsson, Sölvi Óskarsson, Bolli Gústavsson, Magnús Þórð- arson, formaður, Jón R. Hjálmarsson, Soffía Guðmundsdóttir. ÚTHLUTUNARNEFND lista- mannalauna hefur lokið úthlutun fyrir árið 1989. Bætast tólf nýjir listamenn í flokkinn að þessu sinni, þau Birgir Sigurðsson, Fillippía Kristjánsdóttir (Hugr- ún), Geir Kristjánsson, Guð- mundur Karl Ásbjörnsson, Guðný Guðmundsdóttir, Gylfí Gröndal, Hafsteinn Austmann, Hjörleifur Sigurðsson, Leifur BreiðQörð, Rut Ingólfsdóttir, Steingrímur St. Th. Sigurðsson og Þórarinn Eldjárn. Miðað við 24% verðbólgu hafa listamanna- laun rýrnað um 20% frá síðasta ári og gagnrýndu nefhdarmenn það er þeir kynntu fjölmiðlum niðurstöður úthlutunarnefiidar í gær. Töldu þeir nauðsynlegt að endurskoða fyrirkomulag lista- mannalauna og bentu í því sam- bandi á, að æskilegt væri, að hafa breytanlegri flokka og tryggja eftirlaunagreiðslur til aldraðra listamanna. Einnig þyrfti nefiidin meira fé til ráð- stöfunar ef vel ætti að vera. Ef á annað borð ætti að lialda þess- ari úthlutun áfram þá bæri að gera það af myndarskap. Nefndin hafði 7 milljónir króna til ráðstöfunar, og hafði sú upphæð hækkað um 300 þús. krónur eða 4% frá síðasta ári. Samkvæmt fjár- lögum 1989 hafa framlög til lista hækkað milli ára um 34% að meðal- tali. Af þessu má ráða, að lista- mannalaun hafi í raun rýrnað um 20% miðað við 24% verðbólgu. í fyrra fengu 99 listamenn laun, hver 68 þúsund krónur. Að óbreytt- um fjölda hefði hver þeirra átt að hljóta 85 þúsund krónur að þessu sinni, en vegna þessa niðurskurðar fær hver þeirra 100, sem nú fá laun, 70 þúsund krónur í hlut. Samkvæmt undanþágu frá lög- um var aðeins einn flokkur lista- mannalauna á árinu 1988, og verð- ur svo einnig nú. Nefndarmenn voru sammála um, eins og hefð er fyrir, að sömu nöfn yrðu á listanum nú, sem voru þar í fyrra, að undan- skildum ellefu, er burt hafa fallið, en viðbættum þeim tólf, er áður voru nefndir. Sex hafa látist frá síðustu úthlut- un: Guðrún Á. Símonar, Gunnar M. Magnúss, Heiðrekur Guðmunds- son, Kristján Albertsson, Ragnar Kjartansson og Valtýr Pétursson. Fjórir listamenn hafa flust í heið- urslaunaflokk samkvæmt ákvörðun Alþingis: Jakobína Sigurðardóttir, Jórunn Viðar, Kristján Davíðsson og Þorsteinn Ö. Stephensen. Atli Heimir Sveinsson tilkynnti fyrir úthlutun að hann óskaði ekki eftir launum. í úthlutunarnefnd listamanna- launa eiga nú sæti: Magnús Þórðar- son, framkvæmdastjóri, formaður nefndarinnar, Jón R. Hjálmarsson, fræðslustjóri, Bolli Gústavsson, sóknarprestur, Bessí Jóhannsdóttir, kennari, Gunnar Stefánsson, dag- skrárfulltrúi, Sölvi Óskarsson, kaupmaður, Soffía Guðmundsdótt- ir, tónlistarkennari. Árið 1989 hljóta eftirtaldir 100 menn listamannalaun, 70.000 krón- ur hver: Agnar Þórðarson, Ágúst Petersen, Armann Kr. Einarsson, Árni Björnsson, Ásgerður Búadótt- ir, Askell Másson, Benedikt Gunn- arsson, Birgir Sigurðsson, Bragi Ásgeirsson, Bragi Siguijónsson, Einar Bragi, Einar Hákonarson, Einar Þorlákssop, Eiríkur Smith, Elías B. Halldórsson, Eyþór Stef- ánsson, Filíppía Kristjánsdóttir (Hugrún), Geir Kristjánsson, Gísli Halldórsson, Gísli Magnússon, Gísli Sigurðsson, Gréta Sigfúsdóttir, Guðbergur Bergsson, Guðmunda Andrésdóttir, Guðmundur Karl Ás- bjömsson, Guðmundur L. Friðfinns- son, Guðmundur Frímann, Guð- mundur Jónsson, Guðmundur Ingi Kristjánsson, Guðný Guðmunds- dóttir, Gunnar Dal, Gunnar Eyjólfs- son, Gylfi Gröndal, Hafliði Hall- grímsson, Hafsteinn Austmann, Hallgrímur Helgason, Hannes Sig- fússon, Helga Ingólfsdóttir, Heígi Sæmundsson, Herdís Þorvaldsdótt- ir, Hjálmar H. Ragnarsson, Hjör- leifur Sigurðsson, Hjörtur Pálsson, Hringur Jóhannesson, Hrólfur Sig- urðsson, Hörður Ágústsson, Ingi- mar Erlendur Sigurðsson, Jóhann ' Hjálmarsson, Jóhannes Geir, Jó- hannes Helgi, Johannes Jóhannes- son, Jón Ásgeirsson, Jón Bjömsson, Jón Dan. Jón Óskar. Jón Þórarins- son, Jónas Ámason, Karen Agnete Þórarinsson, Karl Kvaran, Kjartan Guðjónsson, Kristinn Hallsson, Kristinn Reyr, Kristján frá Djúpa- læk, Leifur Breiðfjörð, Leifur Þór- arinsson, Nína Björk Árnadóttir, Oddur Björnsson, Ólöf Pálsdóttir, Óskar Aðalsteinn, Pétur Friðrik, Ragnheiður Jónsdóttir, Róbert Amfinnsson, Rut Ingólfsdóttir, Rú- rik Haraldsson, Rögnvaldur Sigur- jónsson, Sigfús Daðason, Sigfús Halldórsson, Sigurður A. Magnús- son, Sigurður Pálsson, Sigurður Sigurðsson, Skúli Halldórsson, Stefán Hörður Grímsson, Stefán Júlíusson, Steingrímur St.Th. Sig- urðsson, Steinþór Sigurðsson, Svava Jakobsdóttir, Sveinn Björns- son, Thor Vilhjálmsson, Tryggvi Emilsson, Veturliði Gunnarsson, Vésteinn Lúðvíksson, Vígdís Grímsdóttir, Vilborg Dagbjarts- dóttir, Þorkell Sigurbjörnsson, Þor- steinn frá Hamri, Þórarinn Eldjárn, Þómnn Elfa Magnúsdóttir, Þuríður Guðmundsdóttir, Þuríður Pálsdóttir oer Örlvemr Sicnjrðsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.