Morgunblaðið - 14.03.1989, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 14.03.1989, Blaðsíða 8
ItfiómR fHftvgttttMa&ifr Pressað til hins ýtrasta! KR-ingartryggðu sérsæti í úrslitum með sigri á Njarðvík Forest á góðri siglingu Vann öruggan sigurá Arsenal, 3:1, á Highbury NOTTINGHAM Forest sigraði Arsenal örugglega á Highbury um helgina og og jók þar með spennuna á toppi deildarinnar. Norwich, sem sigraði Wimble- don, er nú aðeins tveimur stig- um á eftir Arsenal, en á leik til góða. Nigel Clough skoraði fyrir For- est eftir sex mínútur, en Alan Smith jafnaði sjö mínútum síðar. Franz Carr náði forystunni fyrir gestina á ný og Stu- art Pearce innsiglaði sigurinn á 35. mínútu — skoraði beint úr auka- spymu. Þetta var 16. leikur Forest í röð án taps, en liðið er komið í úrslit í deildarbikamum og átta Iiða úrslit í ensku bikarkeppninni. Trevor Putney tryggði Norwich 1:0 sigur, en lánið lék við heima- Frá Bob Hennessy íEnglandi menn. Keith Curle, fyrirliði Wimble- don, varð að fara meiddur af velli eftir átta mínutur og John Fashanu skoraði, en markið var dæmt af — dómarinn sagði að Fashanu hefði stjakað við Gunn, markverði Nor- wich. Millwall vann Luton 2:1 á „plast- inu“ í Luton og er enn í þriðja sæti. Jimmy Carter skoraði tvívegis í fyrri hálfleik, en Danny Wilson minnkaði muninn úr vítaspymu á 54. mínútu. Colin Clarke og Mark Stein skor- uðu fyrir QPR í fyrsta deildarsigri liðsins á árinu, en Ray Ranson skor- aði fyrir Newcastle. Brian Kilcline, fyrirliði Coventry, gaf tóninn og skoraði úr vítaspymu á 12. mínútu, en Paul Ince jafnaði fyrir West Ham níu mínútum fyrir leikslok. Steve Sedgeley lék ekki með Coventry — var tekinn út úr liðinu vegna ummæla í dagblaði þess efnis að hann vildi fara til liðs í London. Liverpool átti ekki í erfiðleikum með Middlesboro í sjónvarpsleikn- um og vann 4:0. Beardsley, Hough- ton, Aldridge og McMahon skoruðu fyrir meistarana. „Þeir sem héldu að keppninni um meistaratitilinn væri lokið geta þurft að skipta um skoðun," sagði Dalglish, stjóri Liverpool. „Við höfum verið 18 stig- um á eftir efsta liði en sigrað samt,“ sagði Grobbelaar. Manchester United getur þakkað Jim Leighton, markverði, marka- laust jafntefli gegn Aston Villa í Birmingham á sunnudag. Heima- menn áttu leikinn, en Leigton var réttur maður á réttum stað. Urslit/B6 Staðan/B6 KR—INGUM tókst það sem fæstir áttu von á; að slá Njarðvíkinga út í úrslitakeppn- inni og tryggja sér sæti úrslita- leiknum. KR-ingar sigruðu í ótrúlegum leik í Hagaskólanum í gærkvöldi, 72:59, og mæta því Valsmönnum eða Keflvík- ingum. Likt og í fyrri leik lið- anna var það mjög sterk og góð pressuvörn KR-inga sem lagði upp þennan sigur og Njarðvík- ingar áttu ekkert svar við bar- áttugleði og sigurvilja KR-inga. Segja má að KR-ingar hafi pressað til hins ýtrasta því undir lokin voru fjórir leikimenn liðsins komnir útaf með f imm viilur. KR-ingar voru yfir allan leikinn og höfðu átta stiga forystu í hálfleik, 40:32. Njarðvíkingar náðu að minnka muninn en þegar staðan wmmmmm var 47:40 tóku kr- LogiB. ingar við sér svo um E/ðsson munaði. Þeir gerðu skrifar næstu 13 stig og komust í 60:40. Síðustu stigin í þessari rispu gerði ívar Webster, tróð boltanum í körf- una með tilþrifum, og þá var sem Njarðvíkingar játuðu sig sigraða. Eftir það gekk ekkert upp hjá Njarðvíkinum og þrátt fyrir mikil villuvandræði héldu KR-ingamir forystunni og sigruðu örugglega. KR-ingar með 34 villur! KR-ingar voru fastir fyrir í vöm- inni og lentu fljótlega í villuvand- ræðum. Þeir fengu 17 villur í fyrri hálfleik en Njarðvíkingar aðeins 5. KR-ingar fengu alls 34 villur og undir lokin voru Láms Ámason, Matthías Einarsson, Guðni Guðna- son og Birgir Mikaelsson allir komnir útaf með 5 villur. „Ég var orðinn hræddur þegar menn fóm að tínast útaf og gerði mér grein fyrir því að við gætum tapað. En við höfum notað marga leikmenn í vetur og það kom okkur til góða í lokin því varamennimir stóðu sig mjög vel,“ sagði Laszlo Nemeth, þjálfari KR. „Við höfðum mikinn sigurvilja og tókum áhættu með þessari vöm. Það gekk upp og því er ég mjög ánægður," sagði Nemeth. KR-ingar hafa leikið pressuvörn í nokkmm af síðustu leikjum sínum og unnu leikinn í Njarðvík einmitt með slíkri vöm. Þrátt fyrir það höfðu Njarðvíkingar ekki enn fund- ið svar við pressunni og því töpuðu þeir. Jóhannes Kristbjömsson átti mjög góðan leik, hélt boltanum vel og átti mjög margar stoðsendingar. Guðni Guðnason fór á kostum í síðari hálfleik og gerði 12 af fyrstu 14 stigum KR-inga í síðari hálfleik. Ivar Wester hirti aragrúa frákasta og varði fjölmörg skot í vöminni og Birgir Mikaelsson lék einnig mjög vel. Þá áttu Ólafur og Matt- hías góðan leik, einkum í síðari hálfleik. Njarðvíkingar léku ágætlega framan af en í síðari hálfleik gáfu taugamar sig. Ótímabær skot og slæmar sendirtgar gerðu stöðu þeirra vonlausa og í lokin var sem liðið gæfist upp. Teitur Örlygsson átti þó mjög góðan leik og Helgi Rafnsson stóð sig vel í vörninni. Aðrir vom langt frá sínu besta. Það er ekki hægt að segja annað en að þessi sigur KR komi á óvart. Njarðvíkingar hafa haft mikla yflr- burði í vetur og leikið vel. Þeir hafa hinsvegar ekki náð að sýna sitt besta í úrslitakeppninni. Það hafa KR-ingar hinsvegar gert og sigur þeirra í gær var sanngjam. Nigel Clough kom Forest á bragðið gegn Arsenal. KR—UMFN 72 : 59 íþróttahús Hagaskólans, íslandsmótið í körfuknattleik, úrslitakeppnin, 2. leik- ur, mánudaginn 13. mars 1989. Gangur leiksins: 2:0, 6:5, 16:5, 22:11, 22:18, 31:21, 37:28, 40:32, 42:38, 47:40, 60:40, 62:44, 62:50, 64:54, 67:54, 69:55, 70:57, 72:59. Stig KR: Guðni Guðnason 23, Birgir Mikælsson 18, Jóhannes Kristbjöms- son 8, ívar Webster 8, Matthías Einars- son 5, Hörður Gunnarsson 5, Lárus Ámason 2, Ólafur Guðmundsson 2 og Lárus Valgarðsson 2. Stig UMFN: Teitur Örlygsson 27, Helgi Rafnsson 16, Friðrik Ragnarsson 6, ísak Tómasson 4, Hreiðar Hreiðars- son 3 og Kristinn Einarsson 3. Dómarar: Kristinn Albertsson og Sig- urður Valgeirsson. Sluppu vel frá mjög erfíðum leik. Áhorfendur: 350. fvar Webstor átti mjög góðan leik í gær og hirti mörg fráköst. FráBob Hennessy í Englandi ÍÞRÓmR FOLX ■ FRANK McAvennie lék ekki með Celtic um helgina. Ástæðan var sú að hann vill fara frá félaginu og á föstudag kom tilboð upp á 800.000 pund. Talið er að það hafí verið frá West Ham eða Arsenal. ■ PAUL Stew- art er með fjögurra ára samning við Tottenham, en konan og sonur- inn kunna ekki við sig í London og því vill Stewart fá sig lausan. ■ NORWICH lék 1000. deildar- leikinn á Carrow Road á laugar- dag. Völlurinn var tekinn í notkun í ágúst 1935 eftir að framkvæmdir, sem kostuðu 25.962 pund, höfðu staðið yfír í 82 daga. ■ NORMAN Hunter hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari hjá Brad- ford City. Terry Yorath er þar við stjómina, en þeir félagar gerðu garðinn frægan með Leeds á árum áður. I DAVH) OldGeld, miðheiji Luton, vildi ekki fara til West Ham, en tók boði Manchester City, sem greiddi 600.000 pund fyrir kappann. BELGÍA „I Arnór: Léttasti Frá Bjama Markússyni iBeigiu leikurinn í vetur" Amór Guðjohnsen átti mjög góðan leik er Anderlecht vann Lokeren 5:1 í 1. deild belgísku knattspymunnar á laugardag. „Ég hef ekki séð Lokeren eins slakt og í vetur síðan ég kom til Belgíu og þetta var léttasti leik- urinn í vetur," sagði Amór, sem gerði þriðja mark Anderlecht — fékk knöttinn á bijóstkassann og beindi honum þaðan í netið. Arnór er enn bólginn í nára en hann fær nú tveggja vikna frí og vonast til að verða orðinn góður, er hann mætir Jean- Marie Pfaff og félögum í Lierse eftir hálfan mánuð, en Amór verður í leikbanni um næstu helgi. Mechelen vann Liege 1:0 og skoraði Rutjes á 90. mínútu. Fimm stig skilja Mechelen og Anderlecht að en níu umferðir eru eftir. V-ÞYSKALAND Asgeir skor- aði beint úr aukaspymu Asgeir Sigurvinsson skoraði mark beint úr aukaspymu af 20 m færi — á síðustu mín., þegar Stuttgart lagði Stuttgart Kicker að velli, 2:0. Fritz Walter skoraði hitt markið. Bayem Munchen, sem hefur leikið tuttugu og einn leik í röð án taps, vann Hamburger SV í Miinchen — 1:0. Jurgen Wegmann skoraði mark Bayem. FráJóni Halldóri Garóarssyni i V-Þýskaiandi Urslit/B 6. Staðan/B 6. KNATTSPYRNA / ENGLAND KÖRFUKNATTLEIKUR / ÚRSLITAKEPPNIN GETRAUNIR: 2 X X 122 21X X 2 X LOTTO: 4 7 12 18 19 + 5

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.